Morgunblaðið - 27.11.1964, Page 21
zf Fðstudagur 27. nðv. 7964
MORCUNBLADID
21
Nýjar
bækur
frá Leiftri
Hvikul er konuást
! eftir Guðrúnu frá Lundi. — Þessi saga Guð-
| rúnar hefur hvergi birzt áður. Sagan gerist
i á fyrri hluta þessarar aldar og hefst á því,
er útflytjendur til Ameríku eru að yfirgefa
landið. — Sagan lýsir átökunum í íslenzku
þjóðlífi, þegar einstaklingar og heilar fjöl-
skyldur slitu öll tengsl við vini og ættingja.
I Líklega er þetta átakanlegasta tímabilið í
sögu íslenzku þjóðarinnar. Og Guðrún frá
| Lundi lýsir því látlaust og snilldarlega.
Heillar mig Spánn
eftir Fredrik Wislöff. Spánn er heillandi
land. Saga Spánar er stórbrotin. Spænskia
þjóðin er glæsileg og tignarleg í fasi. List
hennar sé’-stæð, og margt sem vekur athygli
ferðamannsins. Höfundurinn kynnir okkur
þetta litríka land.sögu þess, listina og hið
ólgandi líf. — Bókin er falleg og ágætlega
! skemmtileg.
! FuIInuminn Vestanhafs
, | eftir Cyril Scott. Þýðandi Steinunn Briem.
I Fullnuminn Vestanhafs er framhald hinnar
frægu bókar tónskáldsins og rithöfundarins
Cyril Scott — FULLNUMINN — þar sem
hann segir frá kynnum sínum af dularfullum
spekingi. Hér hittast þeir aftur í Bandaríkj-
unum, og lýsir Scott á fjörlegan hátt hinni
amerísku útgáfu af meistaranum.
i Lending með lífið að veði
! Skáldsaga eftir J. Castle og Arthur Haily.
Þýðandi Hersteinn Pálsson. Viðburður sá,
j sem hér er lýst, gerist að nóttu. Stór flugvél
: er þá á leið yfir hinn ókleifa fjallgarð milli
Winnipeg og Vanco'Uver. í vélinni eru 35 far-
þegar, en báðir flugmennirnir eru meðvit-
, undariausir — höfðu fengið matareitrun.
Með eindæma snarræði bjargar flugfreyjan
áhöfn og farþegum. — Sagan er byggð á
sönnum atburðum.
Bóndinn í Þverárdal.
skáldsaga eftir Unu Þ. Árnadóttur. Una er
Skagfirzk og er þetta fyrsta bók hennar. En
I Una á til góðra að telja. Faðir hennar og
Elínborg Lárusdóttir eru systrabörn, og hinn
þjóðkunni hagyrðingur, séra Hannes á Ríp,
langafi þeirra. — Sigurður Guðmundsson
málari og séra Pétur Guðmundsson í Gríms-
! ey voru langömmubræður Unu í móðurætt.
j — Þetta er bók, sem vekja mun athygli.
1 í vökulok,
ljóðabók eftir Margréti Jónsdóttur. Margrét
er landskunn, bæði af sögum sínum og ljóð-
um.
Systurnar,
skáldsaga úr Reykjavíkurlífinu eftir Ingi-
björgu Jónsdóttur. — Sagan um systurnar er
ástarsaga, saga um örlög tveggja systra.
Leikurinn er ójafn. Jú.lía er ekki fríð og kom
in yfir þrítugt, en Sigrún er ung og fögur.
Smáfólk,
! tíu sögur eftir Guðrúnu Jacobsen. — Þetta
| er 5 .bók Guðrúnar og tvær síðustu bækurn-
l ar hefur hún sjálf myndskreytt. í sögum Guð
rúnar Jacobsen skiptist á létt gamansemi og
þung alvara. Fyrri bækur hennar hafa hlotið
ágæta dóma. — Sumar sögurnar í þessari
bók eru snilldarvel skrifaðar.
Maddaman með kýrhausinn,
eftir Helga Hálfdánarson, er bók, sem mikla
athygli mun yekja. Helgi er hlédrægur, en
hörkugreindur og glöggur fræðimaður. Hon-
um þykir illa hafa verið farið með Völuspá,
merkasta kvæði á Norðurlöndum að fornu og
nýju. Helgi segir það deginum ljósara, að i
öllum útgáfum sé kvæðið víðs fjarri sinni
upphaflegu mynd. Eftir miklar rannsóknir
hefur honum tekizt að leysa mörg þap vanda
mál, sem öðrum hefur yfirsézt, og setur hér
fram tilgátu um upphaflega gerð Völuspár.
Stjörnuspáin
eftir R. H. Nylor. — Viltu þekkja sjálfan þig
og vita hvað framtíðin ber í skauti sínu?
Hefurðu gaman af að kynnast lyndisein-
Inennum kunningja þinna og vina? — Stjörnu
spáin er bezta fræðigreinin, sem hægt er að
fara eftir, þegar skyggnst er eftir huldum
rökum framtíðarinnar og örlögum manna.
Lífið í kringum okkur,
eftir Ingimar Óskarsson. — Ingimar er lands-
kunnur, bæði af útvarpserindum sínum og
greinum í blöðum og tímaritum. í þessarl
bók lýsir hann á sinn skemmtilega hátt
fjölda mörgum sérkennilegum dýrum, bæði
á sjó og landi. Fjöldi mynda prýðir bókina.
Todda frá Blágarði
eftir Margréti Jónsdóttur. —Margrét Jóns-
dóttir er fyrir löngu þjóðkunn, bæði af sög-
um og ljóðabókum. — Þetta er sagan um
Toddy litlu eða Þórdísi Sveinsdóttur. — Hún
á íslenzka móður en danskan föður. Og sag-
an segir frá ýmsum æfintýrum, sem Todda
lendir í með leiksystkinum sínum í fæð-
ingarborg, Kaupmannahöfn.
Börnin í Löngugötu
eftir Kristján Jóhannsson. — Sagan gerist í
Reykjavík. Höfundurinn er ungur kennari,
og hann þekkir börnin í umhverfinu. Börnin
í Löngugötu eru býsna mörg, og ekki er
hægt að lýsa þeim öllum. En við fáum að
kynnast honum Steina, hann er 10 ára. Beint
á móti eiga tvíburarnir heima, þær Hulda og
Krisín. Þær eru 9 ára, og enginn nema
mamma þekkir þær sundur. Og svo er það
hann Danni og fjörkálfurinn hún Finna.
Rósalín
eftir Johanne Spyri. Þýðandi Freysteinn
Gunnarsson. — Rósalín er átta ára. Hún
heitir annars Þeresía, en er alltaf kölluð
Rósalín. Nafnið fékk hún af því að hún var
svo elsk að blómum. Þetta er falleg saga.
Höfundinn Johanne Spyri, þekkir fjöldi
manna, sem lesið hafa Heiðu og Smala-
drenginn Vinzi. Og þýðandann, Freystein
Gunnarsson, þekkja allir.
Þrjár í sumarleyfi — Trilla, Trína og ég.
Skólanum er lokið og þrjár telpur í sól-
skinsskapi halda í sumarleyfi. Þær eru 11
ára og hlakka til að hitta ættingja og vini,
sem eiga heima í sveitinni. Þar kynnast þær
kettinum Gosa og lenda í ótal ævintýrum.
Pétur og Tóbí.
Bókin er í senn litabók og lestrarbók. öll
börn hafa gaman af ævintýrum, og öllum
þykir þeim gaman að lita. — Þetta er bókin,
sem barnið vantar.
Nancy og leyndardómur gamla hússins.
Nancy er dóttir lögfræðings og hefur gaman
af leynilögreglusögum. Allt sem er leyndar-
dómsfullt er henni hugleikið — og í þessari
bók kemst hún í eitt slíkt ævintýri.
Hanna tekur ákvörðun.
Hanna er komin á þann aldur, að ástin er
farin að ólga í blóði hennar og alvara lífs-
ins að taka í taumana.
Matta-Maja verður fræg.
Matta-Maja er líka að komast á leiðarenda.
Hún er orðin kunn dansmær, en braut frægð
arinnar er stundum erfiðleikum háð. — Þess
skal getið, að í næstu bók verður hún alvar-
lega ástfangin og er það síðasta bókin í hin-
um vinsæla bókaflokk um Möttu-Maju.
Jói og flugbjörgunarsveitin
eftir örn Klóa. Örn Klói er dulnefni, en
höfundurinn er íslenzkur piltur, Kristján
Jónsson, leikari, og er þetta 8. bók hans.
Sagan af Tuma litla
eftir Mark Twain. — Ekki þarf að kynna
höfundinn. Hann er heimsfrægur. Sagan af
Tuma iitla hefur áður komið á íslenzku, en
verið ófáanleg mörg undanfarin ár. — Marg-
ir, sem lásu fyrri útgáfu af sögunni um Tuma
litla, eru nú komnir á fullorðins ár, og hafa
gaman af að rifja upp prakkarastrikin hans
Tuma og félaga hans.
KIM-bækurnar —
KIM og gimsteinhvarfið (10. Kim-bókin) og
KIM og brennuvargarnir (11. Kim-bókin)
— Bækurnar um Kim og félaga hans eru
orðnar svo kunnar, að ekki þarf annað en
minna á, þegar ný Kim-bók kemur. Og nú
eru tvær nýjar Kim-bækur komnar og verða
eflaust horfnar úr bókaverzlunum fyrir jól.
Bob Moran-bækurnar —
Kjarnorkuleyndarmálið og Smyglaraskipið,
í þýðingu Magnúsar Jochumssonar fyrrv.
póstmeistara. Bob Moran-bækurnar eru sér-
stæðar í flokki unglingábóka. Þær eru hetju-
sögur um ofurmennið Bob Moran, sem fer
hamförum um loft, láð og lög, og leysir allar
þrautir. En sögurnar eru skrifaðar af mikilli
þekkingu á þeim viðfangsefnum, sem hver
saga fjallar um, og fróðleik um hin fjöl-
breyttustu efni.
Zorro-bækurnar —
ZORRO og dularfulla sverðið og ZORRO
berzt á báðar hendur. — Ekki þarf að lýsa
Zorro. Unglingar um allt land þekkja hann
og fylgjast af áhuga með ævintýrum hans.
Og spenningurinn eykst með hverri bók.
Blóðrefur
eftir Karl May, sem er þýzkur rithöfundur
og talinn með þeim snjöilustu, sem skrifað
hafa Indíánasögur. Blóðrefur er 4. bókin í
flokki Indíánasagna Karls May.
Aðeins |)cið bezta fyrir börnin
PABLUM barnamjöl
VÍÐFRÆG AMERÍSK ÚRVALSFÆÐA.
Þrjár tegundir: Mixed
Oatmeal
Rice
FÆST í MATVÖRUBÚÐUM OG LYFJA-
BÚÐUM UM LAND ALLT.
/ Garðahreppi!
Afgreiðsla Morgunblaðsins í Garðahreppi,
vill ráða dreng eða stúlku til að bera
Morgunblaðið til kaupenda í Hraunholts
hverfi (Ásarnir) Silfurtúnið og Flatir.
Afgr. Mbl. Hoftúni við Vífilsstaðaveg.
Sími 51-247.
jH«r$wnI)Inli«b
HÚSMÆDUR
DIXAN ER SÉRSTAKT ÞVOTTADUFT FYRIR
ALLAR TEGUNDIR ÞVOTTAVÉLA.
• Vélin yðar þarfnast sérstaks
þvottaefnis — þessvegna
*varð DIXAN til.
• DIXAN freyðir lítið og er því
sérstaklega gott fyrir sjálf-
virkar þvottavélar.
• DIXAN fer vel með vélina og skilar beztum
árangri, einnig hvað viðkemur gerfiefnum.
• DIXAN er í dag mest keypta efni í þvotta-
vélar í Evrópu.
• DIXAN er framleitt hjá HENKEL í Vestur-
Þýzkalandi.