Morgunblaðið - 19.01.1965, Side 6
0
MORCUNBLADIB
Þriðjudagur 19. janúar 1965
Nýjar kvikmyndir um
ina og örninn
*
sýndar á kvöldvöku F.l.
Öræfingar veiða sel, sem gengur í árósa við ströndina. I.áti hann
ánetjast fær hann ©kki fjriri forðað. — Úr kvikmynd Osvaldar
Knudsen úr ÖræfasveitinnL
1 HAUST og vetur fékk Ferða-
félag íslands að frumsýna tvær
nýjar íslenzkar kvikmyndir:
Sveitin milli stranda, eftir Os-
vald Knudsen, og Við Arnar-
stapa, eftir Magnús Jóhannsson,
Vík, 9. jan.
JÓN Halldórsson fyrrum kaup-
maður í Suður-Vík, lézt að heim-
ili sínu á gamláráskvöld, 81 árs
að aldri. Hann var kunnar at-
hafnamaður og naut mikilla vin-
sælda, trausts og virðingar. Jón
var alla ævi á ættaróðali sínu,
Suður-Vík, nema tvo vetur, er
hann stundaði verzlunarnám í
Reykjavík. Hann tók við hinni
þekktu verzlun föður síns
Verzlun Halldórs Jónssonar í
Vík árið 1926 og rak hana í aldar-
fjórðung. Auk verzlunarinnar
starfrækti Jón slátur- og frysti-
hús í Vík. Einnig bjó hann búi
y
Aætlanir
um hafnar-
mannvirki
sína á hvorri kvöldvökunni. Þær
vöktu mikla athygli og aðsókn
var svo mikil að margir misstu
af miðum. í>ví hefur Ferðafélag
ið ákveðið að sýna þessar mynd
ir báðar á kvöldvöku í Sjálf-
sínu í Suður-Vík og var um
skeið hreppsnefndaroddviti, hafði
póstafgreiðsluna í Vík með hönd-
um og gegndi fleiri störfum.
Með Jóni Halldórssyni er horf-
inn af sjónarsviðinu héraðshöfð-
ingi í Mýrdal, sem setti svip sinn
á Víkurkauptún. Persónuleiki
hans var óvenjulegur og sterkur
og menn munu lengi minnast
Jóns fyrir prúðmennsku hans,
grandvarleik og drengskap.
Útför Jóns Halldórssonar var
gerð* frá Víkurkirkju í dag að
viðstöddu mjög miklu fjöímenni
og voru ýmsir lanigt að komnir.
Séra Jón Þorvarðsson flutti hús-
kveðjuna og ávarp í kirkju, en
séra Páll Pálsson hélt líkræðuna
og jarðsöng.
Að athöfninni lokínni var öll-
um viðstöddum boðið á heimili
hins látna og þágu þeir þar
raunarlegar góðgjörðir.
— Fréttaritari.
Oræfasveit-
stæðishúsinu annað kvöld, mið-
vikudagskvöld kl. 8. Á eftir kvik
myndasýningunum verður
myndagetraun og síðan dans.
Sveitin milli sanda er 20 mín-
útna kvikmynd úr Öræfasveit-
inni, gerð sem ferðalag um Öræf
in, komandi að austan, um
Breiðamerkursand. Til efnissöfn
unar fór Ósvaldur Knudsen í 5
sumar austur og hefur nú nýlega
sett myndina saman og gengið
frá henni í eina fallega kvik-
mynd. Magnús Blöndal Jóhanns-
son samdi tónlistina við mynd-
ina, en Sigurður Þórarinsson
textann, sem hann les: „Ingólfs-
höfði, heitinn eftir fyrsta land-
námsmanninum, er útvörður
þeirrar sveitar, sem löngum hef
ur verið talin hin einangraðasta
á Islandi. Framundan henni er
háfnlaus og háskaleg sandströnd,
vörðuð skipsflökum, að baki
jökulkrýnt eldfjall, hið mesta á
landinu, að austan og vestan
jökulbreiður og svartir sandar.
En innan sveitar eru friðsæl
býli við fjallarætur og þar býr
sviphreint fólk með falslaust
viðmót. Þessi sveit heitir Öræfi“.
Og svo hefst frásögnin í mynd-
um af jöklum, söndum og ám
og fólkinu sem byggir þessa
fögru sveit. Þar sjást Kvískerja-
bændur með fugla og skordýr,
Mýrarmenn að heilskáraslætti á
blautum engjum, Öræfingar að
sela- og svartfuglsveiðum, kirkju
fólk ríðandi að Hofi, þar sem er
falleg torfkirkja, menn að viðar-
kolagerð í Skaftafelli og svo
framvegis. Myndinni lýkur „þar
sem að baki eru Öræfi, sveit
úfinna fjalljökla og ískaldra
vatna, yfirvættis auðna og unaðs
legra vinja, umgjörð friðsæls
mannlífs í skjóli hins háa jökul-
jöfurs“. Þetta er falleg mynd.
Ósvaldur hefur lagt á sig mikið
erfiði og lagt í hana sína venju-
legu natni. Þær eru nú orðnar
nærri 30 kvikmyndirnar sem
han-n hefur gert, myndir sem
eiga eftir að verða ómetanleg-
ar heimildamyndir og margar
þegar orðnar það.
Við Arnarstapa kallar Magnús
Jóhannsson kvikmynd sína, sem
hann hefur tekið af erninum,
háttum hans og siðum. Örnin er
ekki í alfaraleið og Magnús hefur
farið margar erfiðar ferðir með
myndavélina i von um að festa
hann á filmu. Einum merkasta
kaflanum í myndinni, þar sem
arnarmóðir er að rífa niður hræ
og mata ungana sína, náði hann
eftir 64 tíma bið við hreiðrið og
bætti síðan 8 tímum við yfirleg-
una við hreiðrið í von um að
ná enn íleiri atriðum frá hreiðr-
inu. Myndin hefst þar sem ein-
mana ekkjufugl svífur yfir Kalda
lóni, í nánd við æskustöðvar
Magnúsar við Isafjarðardjúp, eft
ir að eitrun fyrir ref hafði orðið
maka hans að bana. Önnur at-
riði • eru tekin við Arnarstapa 1
ísafjarðardjúpi og á Breiðafjarð-
areyjum, þar sem þennan tignar
lega fugl er enn að finna.
Verk falið öðrum
verktaka
BORGARRÁÐ heimilaði hita-
veitustjóra á fundi sínum s.L
föstudag að taka verkið aif
verktaka við lagningu hitaveitu
í 2. áfanga Múlahverfis, Snæfelll
•h.f.. Hefur fyrirtækið ekki get-
að sta'ðið við verksamninig. Verð-
ur verkið falið öðrum.
IViikið ffölmenni við út-
för Jóns Halldórssonar
Akureyri, 16. jan.
Á FUNDUM í hafnarnefnd
Akureyrar nýlega var rætt um
nýja dráttarbraut og þar lagðar
fram tillögur og áætlanir um
nauðsyni'.eg mannvirki. Var hér
um að ræða 6 mismunandi áætl-
anir, gerðar af Páli Lúðvíkssyni
vélaverkfræðingi og Ágústi B.
Sigurssyni skipatæknifræðingi,
en auk þeirra hefir Skafti Ás-
keliisson forstjóri Slippstöðvar-
innar h.f. unnið að málinu.
All ar áætlanirnar gera ráð fyr
ir að hægt sé að taka á land ca.
450 lesta skip og hiiðarfærzlur
séu fyrir 10 skip. Þær gera einn
ig alliar ráð fyrir aðstöðu til
stálskipasimíða, sem er mjög mik
iásvert mál fyrir Akureyri.
Ekki hafa enn verið gerðar
áætlanir um ktostnað við undir-
stóðubyggingar, eða lagfæringar
og frágang á iandi því, sem fer
undir dráttarbraiutina og önniur
niaiuðsynileg mainnvirki því við- i
komandi. Fól hafnamefnd I
Skaifta Ásfcelssyni að vinna og
annast áframhaild atihugana og
áætlana til undirbúnin.gs þessu
milkll.a naiuðsynjamáli. Skal þeim
hraða eins og toostur er, helzt
svo, að unnt verði að taka loka-
átovarðainir og hefja framkvæmd
ir á þessu ári.
Vitamálasitjóri sat emn fund
nefndarinnar og var hennd til
ráðuneytis í máli þessu. Einnig
var rætt um framitíðarstaðsetn-
ingu haifnarsvæðis Akureyrar og
hafnarmannvirkja, þ.á.m. haf-
skipabryggju og bátakví. Sv. P.
★ NÝ ÞÆGINDI FYRIR
SKAUTAFÓLK
KJARTAN Ólafsson, fyrrv.
brunavörður, skrifar okkur
eftirfarandi:
„Undanfarna góðviðrisdaga
hefur verið gott skautasvell á
Tjörninni og hefur því verið vel
við haldið, enda óspart notað,
sérstaklega af börnum, og ungu
fólki, og svo einstaka unnenda
þessarar hollu íþróttar af eldri
kynslóðinni. Alltaf finnst mér
Tjörnin okkar einn skemmtileg-
asti leikvöllurinn, sem við eig-
um., þeigar vel viðrar að vetrin-
um, og hægt hefur verið að
viðhalda þar góðum skautaís.
Oft hef ég fundið til þess, og
minnst á það í smá fréttafclaus-
um frá Tjörninni, að þar vant-
aði þægindi fyrir skautafólk,
og hefur slökkvistöðin mikið
hætt úr því á liðnum árum. Bn
nú virðist mér sem verið sé að
bæta úr þessu á mjög smekk-
legan og myndanlegan hátt,
með því að innrétta rúmgóða
og hreinlega snyrtiklefa í
kjallara hússins Tjarnargötu 11,
ásamt geymslu fyrir skófatnað
og annað, sem fólk þarf að
skilja við sig á meðan á skauta-
ferð stendur. Er þetta sannar-
lega lofsverð og þörf fram-
kvæmd, sem ber að þakka og
ástæða er til að gleðjast yfir.
Verður sennilega sagt nánar frá
þessu nú mjög bráðletga þegar
þessi þægindi verða tekin í
notkun fyrir almenning.
Á leið minni út á skauta-
svellið, sé ég andapollinn við
Lækjarósinn, en þar hópast
þessir fuglar saman í þröngri
vök, ásamt öðrum fuglum. Má
stundum sjá þar fjóra svani af
þýzkum stofni. Öll þessi fugla-
hjörð veit um góða vini meðal
borgarbúa, sem koma nær dag-
lega með matargjafir til þeirra.
Eru böm og unglingar þar eng-
in undantekning. Já, það er
margt fallegt og Skemmtilegt
að sjá við Tjörnina og gildir
það jafnt um allar árstíðir.
Kjartan Ólafsson."
ic PóSTHúsie vie
LANGHOLTSVEG
Gunnar Ólafsson skrifar
um póstinn og kemur með nýjar
tillögur:
„Velvakandi!
Mig langar að minnast á hið
nýja pósthús við Lapgholtsveg-
inn, Þeir hafa opið virka daga
kl. 10—17 og Laugardaga kl.
10—12. Eins og sjá má er ógjörn-
ingur fyrir einhleypt fólk, sem
vinnur úti, að nota sér þjón-
ustu þessa. Þó er það versta, að
fá einhverja sendingu í
ábyrgðarpósti, því það kostar
viðkomandi að taka sér frí frá
störfum (sem allir geta ekki).
Ég er viss um að starfsemi
útibúsins myndi aukast með ör-
lítilli hagræðingu á opnunar-
tíma og jafnframt styttingu.
Mín tillaiga er þessi:
Virfcir dagar kl. 15—19, laug-
ardagar kl. 12—14. Ef póst-
stjórnin er í vafa um ágæti
þessara tillögu, þá má minna á
hina vinsælu opnun sparisjóðs
Útvegsbankans eftir kl. 17.
Gunnar Ólafsson.**
ic UNDARLEGUR SIOUR
Og loks er hér bréf frá H.T.
um umferðarmálin:
„Kæri Velvakandi!
Er nú við góðu að búast! í
morgun um hálf átta leytið átti
ég leið upp Bergþórugötuna
frá Snorrabraut í bíl mínum.
Gekk þá fullorðinn maður, en
þó ekki mjög gamall á undan
mér eftir götunni miðri. Þetta
var myndar náungi með staf og
gleraugu. Ég vildi ekki flauta
á hann svo snemma dags svo
ég blikkaði með ljósunum, en
hann vék ekki úr vegi. Fór svo
að ég sá mér ekki annað úr-
kosta, en að víkja yzt á vegar-
kantinn til þess að komast
framhjá manninum. Þegar upp
á hornið kom nam ég staðar,
fór út úr bílnum og sagði
manninum, að hann hlyti að
eiga götuna, svo sem hann nú
gengi eftir henni. Já, hann hélt
nú það, að hann ætti götuna
eins og aðrir og mætti svo
sannanlega ganga á henni miðri
eins og bílarnir.
Eru þetta nú ekki fádæml
með fullorðinn mann að haga
sér svona? Ekki verður hann
sóttur til saka, þagar ekið hef-
ur verið á hann og hann stein-
dauður! Er nú við góðu að bú-
ast af þeim sem yngri eru, þeg-
ar þeir sem fordæmin eiga að
skapa, haga sér svona? Nei,
framkoma þessa manns er hon-
um til mikils vansa og væri
betur, að hann breytti um hátt-
ernL
H. T «
12 r
24 t
Bosch
þurrkumótorar, þurrkuarmar
og þurrkublöð.
BRÆÐURNIR ORMSSON h.f.
Vesturgötu 1. — Simi 114>67.