Morgunblaðið - 19.01.1965, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 19.01.1965, Qupperneq 6
0 MORCUNBLADIB Þriðjudagur 19. janúar 1965 Nýjar kvikmyndir um ina og örninn * sýndar á kvöldvöku F.l. Öræfingar veiða sel, sem gengur í árósa við ströndina. I.áti hann ánetjast fær hann ©kki fjriri forðað. — Úr kvikmynd Osvaldar Knudsen úr ÖræfasveitinnL 1 HAUST og vetur fékk Ferða- félag íslands að frumsýna tvær nýjar íslenzkar kvikmyndir: Sveitin milli stranda, eftir Os- vald Knudsen, og Við Arnar- stapa, eftir Magnús Jóhannsson, Vík, 9. jan. JÓN Halldórsson fyrrum kaup- maður í Suður-Vík, lézt að heim- ili sínu á gamláráskvöld, 81 árs að aldri. Hann var kunnar at- hafnamaður og naut mikilla vin- sælda, trausts og virðingar. Jón var alla ævi á ættaróðali sínu, Suður-Vík, nema tvo vetur, er hann stundaði verzlunarnám í Reykjavík. Hann tók við hinni þekktu verzlun föður síns Verzlun Halldórs Jónssonar í Vík árið 1926 og rak hana í aldar- fjórðung. Auk verzlunarinnar starfrækti Jón slátur- og frysti- hús í Vík. Einnig bjó hann búi y Aætlanir um hafnar- mannvirki sína á hvorri kvöldvökunni. Þær vöktu mikla athygli og aðsókn var svo mikil að margir misstu af miðum. í>ví hefur Ferðafélag ið ákveðið að sýna þessar mynd ir báðar á kvöldvöku í Sjálf- sínu í Suður-Vík og var um skeið hreppsnefndaroddviti, hafði póstafgreiðsluna í Vík með hönd- um og gegndi fleiri störfum. Með Jóni Halldórssyni er horf- inn af sjónarsviðinu héraðshöfð- ingi í Mýrdal, sem setti svip sinn á Víkurkauptún. Persónuleiki hans var óvenjulegur og sterkur og menn munu lengi minnast Jóns fyrir prúðmennsku hans, grandvarleik og drengskap. Útför Jóns Halldórssonar var gerð* frá Víkurkirkju í dag að viðstöddu mjög miklu fjöímenni og voru ýmsir lanigt að komnir. Séra Jón Þorvarðsson flutti hús- kveðjuna og ávarp í kirkju, en séra Páll Pálsson hélt líkræðuna og jarðsöng. Að athöfninni lokínni var öll- um viðstöddum boðið á heimili hins látna og þágu þeir þar raunarlegar góðgjörðir. — Fréttaritari. Oræfasveit- stæðishúsinu annað kvöld, mið- vikudagskvöld kl. 8. Á eftir kvik myndasýningunum verður myndagetraun og síðan dans. Sveitin milli sanda er 20 mín- útna kvikmynd úr Öræfasveit- inni, gerð sem ferðalag um Öræf in, komandi að austan, um Breiðamerkursand. Til efnissöfn unar fór Ósvaldur Knudsen í 5 sumar austur og hefur nú nýlega sett myndina saman og gengið frá henni í eina fallega kvik- mynd. Magnús Blöndal Jóhanns- son samdi tónlistina við mynd- ina, en Sigurður Þórarinsson textann, sem hann les: „Ingólfs- höfði, heitinn eftir fyrsta land- námsmanninum, er útvörður þeirrar sveitar, sem löngum hef ur verið talin hin einangraðasta á Islandi. Framundan henni er háfnlaus og háskaleg sandströnd, vörðuð skipsflökum, að baki jökulkrýnt eldfjall, hið mesta á landinu, að austan og vestan jökulbreiður og svartir sandar. En innan sveitar eru friðsæl býli við fjallarætur og þar býr sviphreint fólk með falslaust viðmót. Þessi sveit heitir Öræfi“. Og svo hefst frásögnin í mynd- um af jöklum, söndum og ám og fólkinu sem byggir þessa fögru sveit. Þar sjást Kvískerja- bændur með fugla og skordýr, Mýrarmenn að heilskáraslætti á blautum engjum, Öræfingar að sela- og svartfuglsveiðum, kirkju fólk ríðandi að Hofi, þar sem er falleg torfkirkja, menn að viðar- kolagerð í Skaftafelli og svo framvegis. Myndinni lýkur „þar sem að baki eru Öræfi, sveit úfinna fjalljökla og ískaldra vatna, yfirvættis auðna og unaðs legra vinja, umgjörð friðsæls mannlífs í skjóli hins háa jökul- jöfurs“. Þetta er falleg mynd. Ósvaldur hefur lagt á sig mikið erfiði og lagt í hana sína venju- legu natni. Þær eru nú orðnar nærri 30 kvikmyndirnar sem han-n hefur gert, myndir sem eiga eftir að verða ómetanleg- ar heimildamyndir og margar þegar orðnar það. Við Arnarstapa kallar Magnús Jóhannsson kvikmynd sína, sem hann hefur tekið af erninum, háttum hans og siðum. Örnin er ekki í alfaraleið og Magnús hefur farið margar erfiðar ferðir með myndavélina i von um að festa hann á filmu. Einum merkasta kaflanum í myndinni, þar sem arnarmóðir er að rífa niður hræ og mata ungana sína, náði hann eftir 64 tíma bið við hreiðrið og bætti síðan 8 tímum við yfirleg- una við hreiðrið í von um að ná enn íleiri atriðum frá hreiðr- inu. Myndin hefst þar sem ein- mana ekkjufugl svífur yfir Kalda lóni, í nánd við æskustöðvar Magnúsar við Isafjarðardjúp, eft ir að eitrun fyrir ref hafði orðið maka hans að bana. Önnur at- riði • eru tekin við Arnarstapa 1 ísafjarðardjúpi og á Breiðafjarð- areyjum, þar sem þennan tignar lega fugl er enn að finna. Verk falið öðrum verktaka BORGARRÁÐ heimilaði hita- veitustjóra á fundi sínum s.L föstudag að taka verkið aif verktaka við lagningu hitaveitu í 2. áfanga Múlahverfis, Snæfelll •h.f.. Hefur fyrirtækið ekki get- að sta'ðið við verksamninig. Verð- ur verkið falið öðrum. IViikið ffölmenni við út- för Jóns Halldórssonar Akureyri, 16. jan. Á FUNDUM í hafnarnefnd Akureyrar nýlega var rætt um nýja dráttarbraut og þar lagðar fram tillögur og áætlanir um nauðsyni'.eg mannvirki. Var hér um að ræða 6 mismunandi áætl- anir, gerðar af Páli Lúðvíkssyni vélaverkfræðingi og Ágústi B. Sigurssyni skipatæknifræðingi, en auk þeirra hefir Skafti Ás- keliisson forstjóri Slippstöðvar- innar h.f. unnið að málinu. All ar áætlanirnar gera ráð fyr ir að hægt sé að taka á land ca. 450 lesta skip og hiiðarfærzlur séu fyrir 10 skip. Þær gera einn ig alliar ráð fyrir aðstöðu til stálskipasimíða, sem er mjög mik iásvert mál fyrir Akureyri. Ekki hafa enn verið gerðar áætlanir um ktostnað við undir- stóðubyggingar, eða lagfæringar og frágang á iandi því, sem fer undir dráttarbraiutina og önniur niaiuðsynileg mainnvirki því við- i komandi. Fól hafnamefnd I Skaifta Ásfcelssyni að vinna og annast áframhaild atihugana og áætlana til undirbúnin.gs þessu milkll.a naiuðsynjamáli. Skal þeim hraða eins og toostur er, helzt svo, að unnt verði að taka loka- átovarðainir og hefja framkvæmd ir á þessu ári. Vitamálasitjóri sat emn fund nefndarinnar og var hennd til ráðuneytis í máli þessu. Einnig var rætt um framitíðarstaðsetn- ingu haifnarsvæðis Akureyrar og hafnarmannvirkja, þ.á.m. haf- skipabryggju og bátakví. Sv. P. ★ NÝ ÞÆGINDI FYRIR SKAUTAFÓLK KJARTAN Ólafsson, fyrrv. brunavörður, skrifar okkur eftirfarandi: „Undanfarna góðviðrisdaga hefur verið gott skautasvell á Tjörninni og hefur því verið vel við haldið, enda óspart notað, sérstaklega af börnum, og ungu fólki, og svo einstaka unnenda þessarar hollu íþróttar af eldri kynslóðinni. Alltaf finnst mér Tjörnin okkar einn skemmtileg- asti leikvöllurinn, sem við eig- um., þeigar vel viðrar að vetrin- um, og hægt hefur verið að viðhalda þar góðum skautaís. Oft hef ég fundið til þess, og minnst á það í smá fréttafclaus- um frá Tjörninni, að þar vant- aði þægindi fyrir skautafólk, og hefur slökkvistöðin mikið hætt úr því á liðnum árum. Bn nú virðist mér sem verið sé að bæta úr þessu á mjög smekk- legan og myndanlegan hátt, með því að innrétta rúmgóða og hreinlega snyrtiklefa í kjallara hússins Tjarnargötu 11, ásamt geymslu fyrir skófatnað og annað, sem fólk þarf að skilja við sig á meðan á skauta- ferð stendur. Er þetta sannar- lega lofsverð og þörf fram- kvæmd, sem ber að þakka og ástæða er til að gleðjast yfir. Verður sennilega sagt nánar frá þessu nú mjög bráðletga þegar þessi þægindi verða tekin í notkun fyrir almenning. Á leið minni út á skauta- svellið, sé ég andapollinn við Lækjarósinn, en þar hópast þessir fuglar saman í þröngri vök, ásamt öðrum fuglum. Má stundum sjá þar fjóra svani af þýzkum stofni. Öll þessi fugla- hjörð veit um góða vini meðal borgarbúa, sem koma nær dag- lega með matargjafir til þeirra. Eru böm og unglingar þar eng- in undantekning. Já, það er margt fallegt og Skemmtilegt að sjá við Tjörnina og gildir það jafnt um allar árstíðir. Kjartan Ólafsson." ic PóSTHúsie vie LANGHOLTSVEG Gunnar Ólafsson skrifar um póstinn og kemur með nýjar tillögur: „Velvakandi! Mig langar að minnast á hið nýja pósthús við Lapgholtsveg- inn, Þeir hafa opið virka daga kl. 10—17 og Laugardaga kl. 10—12. Eins og sjá má er ógjörn- ingur fyrir einhleypt fólk, sem vinnur úti, að nota sér þjón- ustu þessa. Þó er það versta, að fá einhverja sendingu í ábyrgðarpósti, því það kostar viðkomandi að taka sér frí frá störfum (sem allir geta ekki). Ég er viss um að starfsemi útibúsins myndi aukast með ör- lítilli hagræðingu á opnunar- tíma og jafnframt styttingu. Mín tillaiga er þessi: Virfcir dagar kl. 15—19, laug- ardagar kl. 12—14. Ef póst- stjórnin er í vafa um ágæti þessara tillögu, þá má minna á hina vinsælu opnun sparisjóðs Útvegsbankans eftir kl. 17. Gunnar Ólafsson.** ic UNDARLEGUR SIOUR Og loks er hér bréf frá H.T. um umferðarmálin: „Kæri Velvakandi! Er nú við góðu að búast! í morgun um hálf átta leytið átti ég leið upp Bergþórugötuna frá Snorrabraut í bíl mínum. Gekk þá fullorðinn maður, en þó ekki mjög gamall á undan mér eftir götunni miðri. Þetta var myndar náungi með staf og gleraugu. Ég vildi ekki flauta á hann svo snemma dags svo ég blikkaði með ljósunum, en hann vék ekki úr vegi. Fór svo að ég sá mér ekki annað úr- kosta, en að víkja yzt á vegar- kantinn til þess að komast framhjá manninum. Þegar upp á hornið kom nam ég staðar, fór út úr bílnum og sagði manninum, að hann hlyti að eiga götuna, svo sem hann nú gengi eftir henni. Já, hann hélt nú það, að hann ætti götuna eins og aðrir og mætti svo sannanlega ganga á henni miðri eins og bílarnir. Eru þetta nú ekki fádæml með fullorðinn mann að haga sér svona? Ekki verður hann sóttur til saka, þagar ekið hef- ur verið á hann og hann stein- dauður! Er nú við góðu að bú- ast af þeim sem yngri eru, þeg- ar þeir sem fordæmin eiga að skapa, haga sér svona? Nei, framkoma þessa manns er hon- um til mikils vansa og væri betur, að hann breytti um hátt- ernL H. T « 12 r 24 t Bosch þurrkumótorar, þurrkuarmar og þurrkublöð. BRÆÐURNIR ORMSSON h.f. Vesturgötu 1. — Simi 114>67.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.