Morgunblaðið - 19.01.1965, Page 8

Morgunblaðið - 19.01.1965, Page 8
8 MORGUNBLADIÐ Þriðjudagur 19. janúar 1965 Sextug: Sesselja Magnúsdóttir 1 DAG, 19. janúar, er mín ágæta vinkona frú Sesselja Magnúsdótt- ir, Vatnsnesvegi 13, Keflavík, sextug. Sesselja er ein merkasta kona á Suðurnesjum Var sem hún er borin og barnfædd. Um 40 ára skeið hefur hún verið búsett í Keflavík og látið þar mikið að Ég mæti áreiðanlega fyrir rnunn allra Kefivíkinga, er ég nú á þessum merku tímamótum æfi frú Sesseljar óska henni heilla og árnaðar og þakka henni öll hennar miklu störf í þágu Keflavíkurbæjar méð einlægri ósk um, að við samborgarar hennar mættum enn lengi njóta starfskrafta hennar í bæjar- félaginu og málefnum þess til gagns og blessunar. Alfreð Gíslason. sér kveða á flestum sviðum fé- lagsmála. Áhugi hennar á félagsmálum^ dugnaður og ósérhlífni í störfum, hafa orðið til þess, að á hana hafa hlaðizt meiri störf á opin- berum vettangi en hægt er að ætlast til af húsmóður, sem jafn- framt gegnir umfangsmiklum heimilisstörfum af alkunnri rausn og myndarskap. Keflaví'k- ingum kemur öllum saman um það, að varla hafi svo menningar- eða líknarfélag verið stofnað í Keflavík síðustu áratugina, að Sesselja hafi ekki verið þar einn aðalhvatamaðurinn. Þannig var hún einn af stofendum Slysa- varnafélags kvenna í Keflavík, Kvenfélags Keflavíkur, Tónlistar- félags Keflaví'kur og Sjálfstæðis- kvennafélagsins Sóknar. Hefur hún igegnt stjórnarstörfum í öll- um þessum félögum frá upphafi. Hún er sannur máttarstólpi þessara félaga og eiga þau henni að þakka að miklu leyti viðgang sinn og þróun. Sesselja er ákaf- lega söngelsk og hefur fagra og þróttmikla sópranrödd. Telja þeir sem vit hafa á, að hún hefði náð langt á sönglistarbrautinni, hefði hún haft aðstöðu til að leggja inn á þá braut. Sesselja hefur ákveðna skoðun á þjóðmálum og hefur ætíð fylgt Sjálfstæðisflokknum að málum og unnið honum ómetanlegt gagn í sínu byggðarlagi. Hún situr nú sem fulltrúi flokksins í bæjar- stjórn Keflavíkur og gegnir þeim tímafreku störfum með mikilli prýði. Á sviði bæjar- málanna hefur Sesselja að von- um verið falin mörg cng mikil trúnaðarstörf í nefndum og ráð- um, s.s. barnaverndarnefnd, barnaleikvallanefnd, elliheimilis- nefnd og vetrarhjálp svo fátt eitt sé talið. Auk þessa er hún for- maður æskulýðsráðs og forstjóri elliheimilisins'Hlévangur. Ölium þessum trúnaðarstörf- um, sem á hana hafa verið hlaðin, gegnir Sesselja með einstakri trú- mennsku og samviakusemi. Er ótrúlegt hve miklu þessi ágæta kona getur afkastað. Sámt sem áðúr er hún ætíð reiðubúiri að rétta hjálparhönd þeim, sém skuggamegin eru í tilvérunni, og ver miklum tíma í líknarstörf, sem fáum er kunnuigt um után heimilis hennar. Sesselja er gift Axel Pálssyni fyrrum skipstjóra og kunnum sjósóknara. Er heimili þeirra þekkt af rausn og höfðingsskap og er oft gestkvæmt þar, enda eru hjónin bæði vinsæl og vinmörg. Ég og kona mín þökkum þeim hjónum báðum fyrir áralanga vináttu og margar ánægjustundir á heimili þeirra. ÁGÆT vinkona mín, frú Sesselja Magnúsdóttir að Vatnsnesvegi 13, Keflavík er sextug í dag, 19. janúar. Þetta hljómar ótrúlega í eyrum þeirra sem hana þekkja, jafn fjörleg og athafnasöm kona sem hún er, en við vinir hennar neyðumst samt til að trúa þessu. Fyrir nokkrum árum hittist svo á að undirritaður bjó í næsta húsi við Sesselju og fékk þá ágætt tækifæri til þess að kynn- ast henni qg hennar ágæta manni, Axel Pálssyni útgerðar- manni. Er þar skemmst frá að Fraimhaild á bls. 17. ATHUGIÐ að borið saman við útbreiðslu er langtum ódýrara aS auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum biöðum. ÞÆR FREGNIR bárust fyrir nokkru frá kóngsins Kaup- mannahöfn, að Elsa Sigfúss væri hætt að syngja — flauels röddin hennar væri þögnuð. Þessa fregn staðfesti Elsa sjálf í símtali við Morgunblaðið nú Elfia Sigfús, söngkona, ásamt dottur smni Eddu og móour, fru Valborgu Einarsson. Mynain var tekin á heimili þeirra fyrir nokkrum dögunu Mundi velja sönginn aftur — segír Elsa Sigfúss í símfali við Mbl. í vikunni: — Já — ég skal segja yður, að meiðslin, sem ég hlaut í baki, þegar ég var heima árið 1947, hafa tekið sig nokkuð upp að undanförnu. Hefur komið æ oftar fyrir, að ég yrði að neita að syngja á síðustu stundu og ákvað ég því að hætta alveg. En hvernig er heima, hvernig er veðrið? — Yndislegt í augnablikinu, vægt frost og stilla. Eruð þér e.t.v. farin að hugsa til búsetu á íslandi? — Nei' — það yrði of mikil breyting, held ég, að flytjast búferlum úr þessu'. Heimili mitt hefur svo léngi verið hér og nú-hef ég fengið hér ör- orkubætur, sem eru allgóð trygging. En við móðir mín setlum að koma til fslands í heimsókn í sumár og dveljast einhvern tíma. —1 Hve iengi hafið þér verið búsett í Darimörkú? — Frá því árið 1928, þá fór ég til náms við konservatoriið hérna. — Ætlið þér e.t.v. að segja lesendum Mbl. eitthvað frá náms- og söngferli yðar?" — Jú, það er sjálfsagt — það ég man. Annars er nú allt af auðveldara að rifja upp liðna tíð, þegar spjallað er saman augliti til auglitis. Við Konservatoriið var ég í fjög- ur ár, lærði hjá frú Dóru Sig- urðsson. Eftir það fékk ég styrk og notaði hann til náms í Dresden í Þýzkalandi. — Hvar sunguð þér fyrst op inberlega? —f Kaupmannahöfri, í lítla salnum í Oddfeliow palæet — söng þar, að mig minnir, ljóð eftir Schubert, Schumann og Hándel. — Hvenær sunguð þér fyrst inn á hljómplötu? — Það var skömmu eftir að ég byrjaði að koma fram op- inberlega, kringum 1934—35. Ég er nýbúin að fá í hendur síðustu plötuna mína, plötú með íslenzkum lögum, sem kom út á vegum Fálkans: Danska útvarpið hafi fengið hana og mun spila hana bráð lega. Nú fyrir skömmu voru liðin 25 ár frá því ég fyrst söng í danska útvarpið, en síð an hef ég einnig sungið í út- varp í Noregi, Svíþjóð, Hol- landi og Bretlandi. - • Hvað hafið þér sungið inn á margar plötur — Ætli þær séu ekki a-lls um 150 -r- ýmist sígild músik eða léttari auk íslenzkra söng laga. En þau hafa ekki verið neitt sem heitir á markaði hér í Danmörku. Þeir hjá útvarp- inu sögðu einmitt við mig, að þeim þætti leitt að hafa ekki fleiri ísl. sönglög á hljóm plötum. Væri gaman ef hægt væri að ráða einhverja bót á því. — Hvað er yður minnis- stæðast frá söngferli yðar? — Ja, það er erfitt að segja — ég hef nú svo sem upplif- að margt, bæði gott og miður gott. í augnablikinu minnist ég til dæmis helzt hljómleika, sem ég hélf með kammer- hljómsveit Emils Thelmany í stóra salnum í Oddfellow palæet. Það var mjög ánægju legur viðburður fyrir mig og þá ekki síðúr dómamir í blöð unum. Þeir sögðu sumir, að ég hefði verið betri en hljóm sveitin. Annars er svo margs að minnast, — til dæmis „den Nordiske musikfest", þar sem ég var með og söng íslenzk lög, bæði í Oddfellow palæet og í dómkirkjunni hérna. Þar söng ég lög eftir föður minn. Þá hefur mér þótt afar vænt um, að síðustu dagana — frá því. Berlingske Tidende birti viðtalið við mig — hafa mér borizt svo mörg vinsamleg bréf. Mér þykir vænt um, að fólkinu virðist hafa verið á- nægja að því að heyra mig syngja — það er gaman að heyra það, meðan maður er ennþá á lífi — slíkt kemur jú svo oft fyrst eftir að maður er farinn. — Það mátti sjá á þessu sam tali í „Berlingske Tidende“, að ferill yðar hefur ekki ver- ið eingöngu dans á rósum. — Nei, það hefur hann ekki verið. Og ég hef ekki haft eins mikið upp ú.r söng mínum fjár hagslega og fólk hefur nú á dögum. Kemur þar ýmislegt til og það meðal annars, að ég hef eiginlega aldrei haft „al- buer“ ef svo má segja — aldrei haft góða hæfileika til að oln- boga mig áfram í samkeppn- inni og því tiltölulega lítt bor ið úr býtum annað en góða dóma. „Show business“ er ekki beinlínis fyrir viðkvæmt fólk. — Er það þá harkan sem gildir? — Já, hún er bráðnauðsyn- leg. — Vilduð þér hafa valið yð- ur annað starf? — Ja, ég veit ekki — það er nú einu sinni svo, að sá, sem hefur eitthvað í sér, vill helzt gera úr því það, sem hann getur. Ég held nú, að ég mundi velja aftur það sama. — Og nú er dóttir yðar far- in að syngja Hvað heitir hún? — Hún heitir Edda og er 23 ára. — Já, hún hefir mik- inn áhuga á söngnum, og hef- ur held ég ágæta mezzósópr- an rödd. Áhugi hennar beinist einkum að óperumúsik. En það er aldrei að vita, hvað úr þessu getur orðið. Hún hef ur nú starf sitt á skrifstofu tii að byggja á jafnframt — Hvað finnst yður um sönglífið hjá Dönum, er það í mikilli framför? — Já, það finnst mér, eink- um í óperunni. Þar eru nú margar ágætar raddir, til dæm is Lone Koppel, sem er fín rödd og á eflaust eftir að verða á heimsmælikvarða •— og tenórsöngvarinn Hart- mann. — En f nýrri músik? — Það er auðvitað mikið af henni hér eins og annarsstað ar en ég verð að játa, að ég kann yfirleitt ekki að meta hana, held mér helzt við gömlu kompónistana. Sem bet ur fer heyrist enn nokkuð eftir Bach, Vivaldi og Handel. — Segið mér að lókum Elsa, man ég ekki rétt, að móð ir yðar hafi verið góður píanó leikari? — Jú, jú — hún var af- bragðspíanóleikari og spilar enn þótt hún sé orðin 81 árs. Hún hlakkar mikið til að koma til íslands í sumar og heimsækja vini og kunningja. Þætti mér vænt um ef ég mætti biðja yður fyrir kveðj- ur til þeirra og þakklæti til allra þeirra aðila heima, sem hafa hjálpað mér og veitt mér ómetanlegan stuðning.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.