Morgunblaðið - 21.01.1965, Síða 2

Morgunblaðið - 21.01.1965, Síða 2
2 MORCU N BLADIÐ Fimmtudagur 21. jan. 1965 Varsjárfundinum lokið IMðrgt bendir til vaxandi eSningar eftir fafll Krúsjeffs Varsjá, 20. jan. — (AP-NTB) LOKIÐ er í Varsjá tveggja daga ráðstefnu ráðgjafanefnd ar Varsjárbandalagsins, en í nefnd þessari eiga sæti fremstu flokks- og stjórnar- leiðtogar kommúnistaríkj- anna. Að fundarhöldum lokn- um undirrituðu þingfulltrú- ar sameiginlega yfirlýsingu, sem birt verður síðar. Þing sóttu flokks- og stjórn- arleiðtogar frá Sovétríkjun- um, Austur-Þýzkalandi, Pól- landi, Ungverjalandi, Tékkó- Eldflaug skotið !of Skogasandi? FRAKKARNIR, sem nú eru að athuga möguleika á að skjóta aftur eldflaug frá ís- landi í sumar, komust ekki austur í Vík í fyrradag vegna ófærðar. Sneru þeir við skammt austan við Skóga. >eir munu í þetta sinn hafa í hyggju að skjóta eldflaug- inni af Skógasandi og voru m. a. að athuga það. Óvenjuleg ófærð í Eyjum Vestmannaeyjum 20. jan. ENOLR síldarbátar voru á sjó sl. nótt vegna óveðurs, en með morgninum tóku þeir að halda út og voru allir farnir á miðin fyrir hádegið. Línubátar voru á sjó í dag í bezta veðri. Fyrstu bátarnir voru að koma að landi um fimm leytið. Höfðu þeir sæmilegan afla. Mrkil ófærð er á götum Vest- mannaeyja og vont um gang. Er mjög langt um liðið síðan önnur eins ófærð hefur verið í Eyjum sakir fannkyngis. — Bjöm. slóvakíu, Rúmeníu og Búlg- aríu. Margt bendir til þess að sum dagskrármálanna hafi ekki verið rædd á sameiginlegum fundum, heldur aðeins í nefndum. Meðal þessara móla eru varnarmál Varsjárbandalagsins. Meðan þau mál voru rædd á nefndarfundum ræddust flokksleiðtogarnir við um ágreining Sovétríkjanna og Kína. En tilraunir Kínverja til að taka sér leiðtogahlutverkið meðal kommúnistaríkjanna eru ein aðal orsök þess að boðað var til ráð- stefnu ráðgjafanefndarinnar að þessu sinni. Eftir að Krúsjeff var vikið úr embætti er margt, sem bendir til aukinnar einingar meðal komm- únistaríkjanna í Evrópu. Því var sérstaklega veitt eftirtekt í því sambandi að Rúmenar, sem að undanförnu hafa ekki virzt sér- lega samvinnuþýðir við hin aust- antjaldslöndin, sendu nú fjöl- menna sendinefnd til ráðstefn- unnar í Varsjá og var flokksfor- maðurinn, Gheorghiu Dej, for- maður nefndarinnar. Lítið hefur frétzt af ráðstefn- unni enn sem komið er, því frétta mönnum var bannaður aðgangur að fundunum þar til leiðtogarnir höfðu undirritað sameiginlegu yfirlýsinguna í fundarlok. Siguiúur Sigurjónsson, for- maður V öru bílst jóraíélagsins Þróttar. Ssállkförið í Vörir^>íl- stfórafélaginu Þrótti FRAMBOÐSFRESTUR til stjórn arkjörs í Vörubílstjórafélaginu Þrótti var útrunninn kl. fimm í gær. Aðeins einn listi kom Frestur á fyrirfram- qreiðslu opinberra gj f ÁGÚST síðastliðnum var gjald endum opinberra gjalda, sem greiða gjöldin reglulega af laun- um sínum, gefinn kostur á, að tilhlutan ríkisstjórnarinnar, að Ijúka greiðslu eftirstöðva gjalda síðastliðins árs á sex mánuðum í stað fjögurra. Munu þeir því ijúka greiðslu þeirra í næsta mánuði. Gert er ráð fyrir, að fyrir- framgreiðslur opinberra gjalda fari fram 1. febrúar til 1. júní ár hvert. Til þess að koma í veg fyrir, að gjaldendur, sem veittur var greiðslufrestur á s.L ári, þurfi að inna af hendi tvær greiðslur opinberra gjalda á sama tíma, hefur ríkisstjórnin ákveðið að gefa þeim kost á að Skíðagangan á Akranesi AKRANESI, 20. janúar. í dag gengu um 30 barnaskóla- drengir fimm kílómetra skíða- gönguna. Áður höfðu gengið 20 gagnfræðaskólanemendur. Á morgun munu nemendur úr báð- um þessu skólum þreyta skíða- gönguna. — Oddur. fresta fyrirframgreiðslum ríkis- sjóðsgjalda á yfirstandandi ári um einn mánuð, þannig að þær fari fram 1. marz til 1. júlí n.k. Jafnframt beinir ríkisstjórnin þeim tilmælum til stjórna sveit- arfélaga, að þær veiti áðurgreind um gjaldendum sama gjaldfrest að því er varðar fyrirfram- greiðslur gjalda til veitarfélag- anna, verði þess óskað. Frétt frá ríkisstjórninni. 20. janúar 1965. Léleg frammistaða — fær ekki síma MjfeR finnst það orðin frétt að niú er komið á annan mánuð síð- an óg flutti í nýtt húsnæði, en Landsíminn hefir ekki enn séð sér fært að leggja til mín síma, sagði fréttaritari bla'ðsins á Seyð- isfirði Sveinn Guðmundsson, er blaðið hafði samband við hann í gær. Á það skal bent að Sveinn rekur söltunarsböðina Ströndina, sem á síðastliðnu sumri var hæsta söltunarstóð lanidisins. Enn skal því við bætt að ekki eru nema Veðurútlit i UM hádegi í gær var kröftug lægð um 1500 km. suðvestur af Reykjanesi og hreyfðist NA. Er því búizt við ali- hvassri SA-átt og hlákublota í dag, en sennilega hækkar á í nótt og kólnar aftur. tvö hús rnilli þess gamla og hins nýja íbúðaitbúss hans. Þetta kem- ur sér auðvitað mjög illa, ekki sízt er þetta batgalegt fyrir Morg- unibiaðið vegna fréttaöflunar frá staðnum. Sveinn bætti þv< við að nú stæði til að loka loftskeytastö'ð- inni á Seyðisfirði að næturþeli, en það er ein elzta loftskeyta- stöð landsins. Hitt er svo annað mál að lítið sem ekkert hefir verið endurbætt í stöðinni og loftnet hennar á mjög óhepipi- legum stað og hlustunarskilyrði slæm. Þarna er mikil ' þörf úr- bóta, ekki sízt vegna þess, að undanfarið hafir Seyðisfjörður verið mi'ðstöð síldveiðanna við Austurland og Seýðisfjarðarhöfn mun nú vera sú höfn landsins, sem fær flestar skiipakomur, er- lendar og innlendar, þegar Reykjavík ein er undandkilin, sagði Sveinn að lokum. Hafnarfjörður ÁRSHÁTÍÐ Sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði verður haidin tvk. laugardag 23. janúar í Sjálfstæð- ishúsinu, og hefst með sameigin- legri kaffidrykkju kl. 21.00 Dagskrá: Ræða, Geir Hallgrímsson, borg arstjóri. Skemmtiatriði. Dans. 35 ára afmælis F.U.S. Stefnis verður sérstaklega minnzt. Geir Hallgrímsson. Aðgöngumiðar í Sjálfstæðishús inu föstudaig milli kl. 5-7 og laug ardag frá 2-4. Sími 50228. Fram hafa farið gagngerar breytingar á salarkynnum Sjálf- stæðiahússins og verður húsið tekið í notkun á ný á laugardag með árshátíð Sjálfstæðisfélag- anna. — Fjórtán bilar Framhald af bls. 24 þar allar stóðir í nótt. Þá er búið að ryðja veginn að Veigastöðum á Svalbarðsströnd. en þar fyrir norðan er allt ófeert og mjólk dregin hingað á dnáttarvélum og sleðum a£ Svalibarðsströnd og úr Fnjóskadal. Vegir í framsveitum Eyjafjarðar eru ágætlega færir öllum bílum eins og er. — Sv. P. fram, listi stjórnar og trúnaðar- ráðs, og var hann því sjálfkjör- inn. Stjórn Þróttar er þannig skip- uð: Sigurður Sigurjónsson, formað ur, Erlingur Gíslason, varafor- maður, Pétur Hannesson, ritari, Pétur Guðfinnsson, gjaldkeri, og Ásmundur Guðmundsson, með- stjórnandL Varastjórn skipa: Lárus Bjarna son og Stefán Hannesson. Trúnaðarmannaráð skipa: And rés Kr. Hansson, Friðrik Pálsson, Helgi Kristjánsson og Stefán Þ. Gunnlaugsson. Varamenn: Valdi mar Stefánsson, Gunnar Ólafs- son, Hans Þorstekisson og Marinó Pétursson. Vatnsleitarmál Vestmaimaey- m^a MBL. hafði í gær tal af Jóni Jónssyni jarðfræðingi hjá Jarð- hitadeild Rafsrkumálaskrifstof- unnar og spurðist frétta af vatns leitarmálum Vestmannaeyinga. Sagði hann deildina mundu senda frá sér einhvern næstu daga bráðabirgðaskýrslu um vatnsleitina. Verið er að smíða hérlendis sýnishornanema (prufutaka), sem á að taka sýnishorn á mis- munandi dýpi í borholunni í Heimaey. Beðið er eftir að fá dælu utanlands frá, sem á að dæla upp úr holunni. Hótíðosýning n sjónleiknnin „Munkarnir n MöðruvöUnm“ Akureyri, 20. jan. LEIKFÉLAG Akureyrar frum- sýnir sjónleikinn Munkana á Möðruvöllum annað kvöld, 21. janúar, í heiðurs- og virðingar- skyni við höfundinn, Davíð skáld Stefánsson frá Fagraskógi. Frum- sýningin verður ekki með venju- legu sniði, heldur sérstök hátíða- sýning. Leilkstjóri er Ágúst Kvar- an. — Sv. P. Prófessorsstaða auglýst til um- sóknar f LGGBIRTINGABLAÐI 14. jan. er prófessorsembætti í lífeðlis- fræði við læknadeild Háskóla ís- lands auglýst laust til umsóknar. Forseti íslands veitir embættið, og umsóknarfrestur er til 31. þessa mánaðar. Skipstjóri slasast MS. LANGJÖKULL kom inn til St. John’s á Nýfundnalandi á miðnætti aófaranótt mið- vikudags, og var skipstjórinn, Jón Þorvaldsson, sendur í sjúkrahús, vegna þess að hann hafði lærbrotnað á föstudags- morgun, er hann féll á gólfið inni hjá sér í miklu óveðri. Skipið var komið 640 sjómíl- ur frá Vestmannaeyjum, þeg- ar óhappið vildi til. Mikíð óveður var mestan hluta leið- arinnar frá íslandi, og aðfara- nótt laugardags náði það há- marki. Varð skipið þá að halda sjó. Jóni leið illa, eftir að hafa dottið í iilviðrinu, og þótti þvi rétt að koma í St. John’s og láta lækna athuga meiðsli hans. Kom þá í ljós, sem fyrr segir, að hann hafði lærleggs- brotnað. Varð hann eftir í sjúkrahúsi í St. John’s, þar sem gert verður að meiðslum hans, en skipið hélt áfram til Gloucester í Massachusetts. Þaðan fer m_s. Langjökull svo til Frakklands. — Churchíll Framhald af bls. 1 tuttugu mínum síðar gaf hanri út 12. tilkynningu sína um heilsu- far gamla mannsins. Segir þar aðeins að lítið sé að frétta. Sir Winston hafi sofið vel um nótt- ina og ókyrrð, sem hann var hald inn í gær, sé nú horfin. Fréttamenn í London hafa leit- að álits hjá ýmsum sérfræðing- im um líkumar fyrir því að Churchill komLst yfir þennan sjúkdóm sinn, og ber flestum saman um að þær séu ekki mikl- ar. Er bent á það í þessu sam- bandi að djúpur svefn Churchilla í nótt og í morgun bendi til þesa að máttur hans sé á þrotum. Að lokinni morgunheimsókn Morgans Iávarðar tilkynnti hann að næsta skýrsla um heilsufar Churohills yrði gefin út klukkan átta í kvöld (ísl. tími). Það vakti því nokkurn ugg þeirra, er tit sáu, þegar Iækinirinn birtist skyndilega við heimili Ghurchilla klukkan hálf fjögur síðdegis. — Var Morgan lávarður í þrjá stuindarfjórðunga hjá sjúkilingn- uim, en hélt síðan heirn. Er hann kom út frá Churchill sagði hann við fréttamenm að ekkert nýtt væri að frétta. Áður en Morgan kom í síð- degisheimsóknina hafði frú Chur chitl brugðið sér út sem snöggv- ast í fylgd með eiztu dóttur sinni, Mary, og tengdasyni, Christopher Soames. En þau voru komin heim nokkru áður en lækinirinn kom. Og meðan læknirinn var hjá sir Wi.nston komu þangað Sarah, dóttir Chur chill og Ceiia Sandys, dóttur- dóttir hans. Morgan kom svo, eins og hann hafði boðað, í kvöldheimsóknima kl'ukkan átta. Dvaldi han.n no-kkra stund inni, en gaf síða.n út tilkynningu sína. Sagði lækn- irinn aðeins: „Hjartsláttur Chur- chiils er orðinn ábei'ancli mikið veikari. Að öðru leyti er ekk.ert að frétta." Bætti læknirinn því við að næsta tilkynning yrði gef- in út í fyrramálið. Talsmaður brezku læknasam- takanna sagði eftir að kvöldtil- kynningm var birt, að það eina við tiikynninguna, sem gæfi til- efni til bjartsýni, væri að næsta tilkyn.ning væri væntanleg á morgun. Ha.nn sagði að svo virt- ist sem sjúkdómur Churehilla væri nú að komast á úrslitastig. Seinna í kvöld sagði svo Moran lávarður að yfirleitt hefði heilsa Churohills lítið breytzt frá þvl hann fékk slag s.l. föstudag, o.g þó sénstakLega frá því á aðfara- ■nótt þriðjudags. Vel gæti verið að heilsuástand hans héldist litið breytt enn lun stund.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.