Morgunblaðið - 21.01.1965, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 21. jan. 1965
MORGUNBLADIÐ
5
Lcandsins forni fjandi
SAGT hefur verið frá því í
fréttum, að óvenjumikið ísrek
hafi verið út af Hornströnd-
um og Vesfjörðum að undan-
förnu. Ekki eru nema 10 ár
liðin síðan hafis varð land-
fastur í ísafjarðardjúpi, og í
því tilefni birtum við 2 mynd-
ir, sem teknar voru af ísnum,
sem þá lagðist fyrir Bolunga-
vík og m.a. lokaði um stund-
arsakir í höfninni þar. Hér
fylgir einnig frásögn sjónar-
votts af því, þegar ísinn, lands
ins forni fjandi, sigldi inn
djúpið. Þetta gerðist þriðju-
daginn 15. marz 1955.
„Vfð sátum nokkrir vinir
saman að kvöldlagi í húsi
einu á Bökkunum í Bolunga-
vik. Allt í einu varð okkur
litið til hafs út um gluggann.
Sáum við þá mikla hreyfingu
á bátunum í höfninni, sem
ætluðu að fara að leggja í
nýja sjóferð. Sigldu þeir fram
og aftur og höfðu ljóskast-
ara uppi. Er við fórum út til
Hér sést út undir ísbreiðuna meðfram Stighlíð.
Djúpsins sér á Rit og Grænuhlíð.
Handan
Jarðýta að ýta ísjökum i fjör-
unni við Brimbrjótinn. Takið
eftir, hvað jakarnir eru háir.
að atlhuga þetta nánar, heyrð-
um vi'ð undarlegt hljóð. Veð-
ur var annars stillt og stjörnu
bjartur himinn.
Gengum við nokkuð út á
Bakkana og litum út á Djúpið.
Var þá strax ljóst, hvað var á
seyðL Þar var á ferðinni haf-
ísinn, landsins forni fjandi.
Hann skreið hægt og tígulega
inn djúpið, inn með Stigahlíð.
Liktist hann einna helzt stór-
um flota. Það lagði af honum
nákulda. Næstum sífellt heyr'ð
ist urga í jökunum, þegar þeir
nérust upp við hvern annan.
Hér var hin hvíta skelfing á
ferð. Alls konar hugsanir leit
uðu á okkur. Okkur varð hugs
að til forfeðra ok'kar, sem
höfðu horft upp á þetta sama,
máski margfalt stórkostlegra,
og áreiðanlega haft minni tæki
færi til að sigrast á vágestin-
um, en við höfum á tuttugustu
öldinni.
Jafnvel á þessum tíma, lok-
aði hafísinn nú alveg höifn-
inni í Bolungavík svo aðeins
einn bátur slapp undan, þarna
um kvöldi'ð, inn á Isafjörð. Hin
ir máttu bíða til næsta dags,
þegar fært var að draga
jakana burtu og gera íslausa
rennu út á Djúpið. í marga
daga á eftir var unnið að því
að hreinsa höfnina, bæði með
jarðýtum í fjörunni og með
vélbátum, sem drógu jakana
burtu út á dýpri sjó.
Fólk horfði á þessa ísbreiðu
með undrun, en jafmframt
með aðdáun, því að litbrigðin
í jökunum, sem sumir voru
3—4 metrar á hæð upp úr sjó,
voru ægifalleg. Skiptust þar á
safírbláir og smaragðgrænir
litir, svo að líktist einna helzt
Ævintýrahöll eimhvers álfa-
kóngsins.
Meðfram Stigahlíð, frá
Brimbrjótnum, fyrir Ófæru
og Máfakamba, lá þétt ís-
breiða í langan tíma og mun
hafa ná'ð um 200 metra út frá
landi. Sumir klöngruðust út
á breiðuna, hjuggu sér fallega
ísköggla og höfðu með heim
með sér, og því má viðbæta,
sem rúsinu í pylsuendann, að
það fréttist til þriggja félaga
sem eitt kvöld kældu Whiskiið
sitt fneð hafís, og hlýtur það
að vera sárasjaldgæft."
Þannig endar frásögn sjón-
arvotts af þessum ís í ísafjar'ð
ardjúpi, árið 1955. Vonandi
verður ekki framar um hafís
hérlendis að' ræða, að ráði
því að hann býr enn yfir
skelfilegu eyðingarafli, getur
á svipstundu lamað bæði sam
göngur á sjó og annað at-
vinnulíf, vfð sjávarsíðuna og
jafnvel, þótt íslendingar séu
betur undir það búnir nú en
fyrr að mæta ógnum hans.
Höfnin í Bolungavík fylltist af jakabröngli. í baksýn Óshlíð
og Syðridalur.
AkranesferClr me8 sérleyfisbílum Þ.
I>. Þ. Afgreiðsla hjá B.S.R. Frá Reykja
^ik alla virka dag« kl. 6. Frá Akra-
nesi kl. 8, nema á Laugardögum ferðir
frá Akranesi kl. 8 frá Reykjavík kl.
12. Á sunnudögum frá Akranesi kl. 3.
Frá Reykjavík kl. 9.
Akraborg: Miðvikudagur Frá R. kl.
7:45, 11:45, 18. Frá A. kl. 9:13 og 19:30.
Fimmtudagur Frá R. kl. 7:45, 11:45;
18. Frá A kl. 9:13 og 19:30.
M.s. Akraborg: Fimmtudagur Frá
R. kl. 7:45; 11:45 og 18. Frá A. kl.
©:13 og 19:30. Fös>tudagur Frá R. kl.
il og 18. Frá B. kl. 12 og frá Akranesi
kl. 13:45 og 19:30.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.:
Katla er á Siglufjröi. Askja er i
Rvík.
H.f. Jöklar: EXrangjökuW lestar á
Austfjarðahöfnum, fer þaðan til CaJ-
*íks, Grim-sby, Halden, Norrköping og
Finnlands. Hofsjökull fer frá Ham-
t>org í gær til Rvíkur. Langjökull er
væntanlegur til Gloucester 23. þm.
#er þaðan til Le Havre og Rotterdam.
Vatnajökull fór fná Liverpoo-1 í gær-
kveldi til Cork, London og Rotterdam.
Skipaútgerð ríkisins: Hekla er á
Austfjörðum á norðurleið. Esja fer frá
Rvik kl. 17:00 í dag ve«tur um land
f hringferð. Herjólfur fer frá Ves<t-
fnannaeyjum í dag til Hornafjarðar.
l>yriii er í Rvítk. Skjaldibreið er á
Norður 1 andshöfnum. Herðubreið er á
leið frá Kópaskeri til Rvíkur.
Skipadeild S.Í.S.: Arnarfell f6r 19.
#rá Antwerpen tid Carteret og New
Haiven. JökulfeH fór 14, frá Keflavík
til Caimden. Disafell er i Rvik. Litla-
felJ fór í gær frá Le Havre tiil Rvík-
ur. Helgafell er væntanlegt til Rvík-
ur á morgun frá Kaupmannahöfn.
Hamrafell er væntanlegt til Avon-
mouth 24. frá Trinidad. Stapaifell fer
frá Bergen í dag til Rvíkur. Mælifelil
fór 18. frá Fáskrúðsfirði tiJ Belfast,
Liverpool og Avonmouth.
Hafskip h.f.: Laxá fór frá Fáskrúðs-
firði 20. þm. til Hull og Hamborgar.
Rangá er í Gautaborg. Selá fór frá
Hull 20. þm. til Hamborgar. Nacie er
í Rvík.
H.f. Eimskipafélag íslands: Bakka-
foss fór frá Gufunesi 18. þm. til
Akureyrar, Svalbarðseyrar, Hvamms-
tanga og Húsavíkur. Brúarfoss fór frá
Hamborg 20. þm. til Hull og Rvíkur.
Dettifoss fór frá Reyðarfirði 19. til
Vestmannaeyja, Keflavíkur og Rvíkur
Fj allfoss fór frá Eskifirði 20. þm. til
Avonmouth. Goðafoss fór frá Hull 17.
þm. væntanlegur til Rvíkur. Gullfoss
kom til Rvíkur 18. þmj frá K.höfn.
Lagarfoss fór frá Gdynia 20. þm. til
Turku, Ventspils. Kotka og Rvíkur.
Mánafoss fór frá Rauifarhöfn 20. þm.
til Eskifjarðar, Sharpness og Man-
chester. Reykjafoss er í Hamborg. Sel
fos er í NY. Tungufoss fór fró Húsa-
vík 19. þm. til Antwerpen og Rotter-
dam.
Utan skrifstofutíma eru skipafréttir
lesnar í sjálfvirkum símsvara 2-1466.
Hcegra hornið
Það er mælt að maður sé orð-
inn vel miðaldra þegar líðanin á
laugardagskveldi er svipuð og
áður á mánudagsmorgnL
Málshœttir
Nú hækkar hagur Strimpu. •
Nær er skinni'ð en skyrtan.
Náið e-i nef augum.
Þvottastöð fyrir fólksbíla
Bifreiðaþjónustan
Súðarvog 9. — Simi 37393.
Bónstöð fyrir fólksbíla
Höfum bóntvist og ýmsar
gerðir af bóni. Einnig ryk-
suga til afnota.
Bifreiðaþjónustan
Súðarvog 9. — Simi 37393.
| Bifreiðaeigendur aíhugið
Við veitum ykkur aðstöðu
til viðgerða. Verkfæri inni-
falin í tímagjaldi.
Bifreiðaþjónustan
Súðarvog 9. — Sími 37393.
Keflavík
Óska eftir herbergi. Uppl.
í síma 2337.
Smóvarningui
Kinverjar telja átta eftirfar-
andi atriði hin mestu óhyggindi:
— Að gleyma því að maður eigi
að deyja. Að álíta að það sé ör-
uggt fé, sem maður hefur lánað.
Að vænta launa fyrir að gera
skyldu sína. Að álíta að auðugur
maður telji vitran mann jafn-
ingja sinn. Að yrkja ljóð. Að
halda áfram að drekka, þegar I
maður hefur sagt: „Ég er ölvað-
ur*‘. Að aumkva glæframenn. Að |
ferðast með mikinn farangur.
>f Gengið >f-
Reykjavík 29. des. 1964
d Sala
1 Enskt pund ....... 119,85 120,15 I
i Bw.iOai IKjudOllar ... 42 'JD 43.Ub
1 Kanadadollar ..... 39,91 40,02
10C| Austurr. sch. 166.46 166,83 |
100 Danskar krónur .. 620,20 621,8
100 Norskar krónur ..— 600.53 602.07 I
100 Sænskar kr....... 835,70 837,85
100 Finnsk mörk .... 1.338,64 1.342,06
100 Fr. franki .... 874,08 876.32
200 Svlssii frankar .. 992.95 995.50
1000 italsk. ___ 68.80 68.98
100 Gyllini .. 1.193,68 1.196,74
100 V-þýzk mörk 1.080,86 .083 62
100 Ðmlg. frankar ...... 86.34 86,56 |
ilfunið eftir
smáfuglunum
Nýr 12 kílóvatta
Gufuketill til sölu. Sími
13234 og eftir kl. 5 13454.
GRUNDIG RADÍÓFÓNN
Til sölu Grundig radiófónn,
Stereó. Lengd 110 cm, hæð
73 cm. Verð 10.000 kr. —
Sími 14846.
Svefnsófar
Eins manns svefnsófar
í úrvali.
Nýja bólsturgerðin
Laugaveg 134. Sími 16541.
Útsaumsnámskeið
Kenni ryasaum og fjöl-
breyttan útsaum. Rifja upp
gleymda grunna. Nánari
uppl. eftir kl. 5 e.h.
Hjördís Þorleifsdóttir
handavinnukennari
Einholti 9. Sími 18470.
2-3ja herb. íbúð
í Hlíðunum eða nágrenni óskast til leigu nú þegar.
Fyrirframgreiðsla. — Upplýsingar í síma 34915.
Stúika óskast
til skrifstofustarfa hálfan eða allan daginn. —
Eiginhandar umsókn, er greini menntun, aldur og
fyrri störf, sendist afgr. Mbl., merkt: „Skrifstofa —
6616“.
P&H
harnischfeger
RAFSUBUTÆ5ÍI
o
SPENNIR
20—180 A
léttur og með-
færilegur.
Rafsuðuvél
með benzín-
mótor. 200 Amper.
Höfum ávallt fyrirliggjandi venjulegan og
spesíal rafsuðuvír, rafsuðuhjálma, rafsuðu
tengur, rafsuðukapal o. fl.
1, tlUTiIIIiM I IIIIIIIII,
Grjótagötu 7. — Sími 24250.