Morgunblaðið - 21.01.1965, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.01.1965, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐI& Fimmtudagur 21. jan 1965 Aðstoð við skattframtöl í kvöld verð'ur frumsýning á Litla-sviðinu í Lindarbæ á einþáttungunum Sköllóttu söngkonunni eftir Ionesco og Nöldri eftir Gustav Wied. Leikstjóri er Benedikt Árna- son, en leiktjöld eru gerð af Lárusi Ingólfssyni. Leikendur eru: Valur Gíslason, Gunnar Eyjólfsson, Árni Tryggvason, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Herdis Þorvaldsdóttir, Nína Sveinsdóttir, Brynja Bene- diktsdóttir og Kristbjörg Kjeld. Þýðandi er Bjarni Bene diktsson. — Myndin er af Árna, Brynju, Val og Krist- björgu í hlutverkum sínum i Sköllóttu söngkonunni. EIGNIR OG TEKJUR I GÆR birtist hér í blaðinu grein til aðstoðar framteljendum við skattframtöl þeirra. Var hún um skattmat á búfé, tekjumat af eig- in húsaleigu og frádrátt vegna námskostnaðar. 1 dag birtist önn- ur grein og verður nú skýrt frá því, sem aðallega skiptir máli við að útfylla eignadálk framtals- eyðublaðanna svo og skuldadálk, sem eru á 1. bls. þeirra og dálk- inn fyrir tekjur fyrir sl. ár, en hann er á bls. 2. Upplýsingar þessar eru frá ríkisskattstjóra. EIGNIR 31. DES. 1964 L. Hrein eign samkvæmt meðfylgjandi efnahags- reikningi. ví flestum tilfellum er hér um atvinnurekendur að ræða, og ekki til ætlast að skattstjóri ann- ist reikningagerð. Er þessi liður því aðeins útfylltur, að efnahags- reikningur sé fyrir hendi, og skiptir hann því mikinn hluta al- mennings engu málL 2. Eignir samkvæmt landbún- aðar- eða sjávarútvegsskýrslu. Leita skal til deildarstjóra, fulltrúa eða umboðsmanns skatt- stjóra með slíka aðstoð, og til- nefnir hann starfsmann til verks- ins. 3. Fasteignir. í lesmálsdálk skal færa nafn og númer fasteignar- og fast- eigna og fasteignamat í kr.dálk. Hafi framteljandi keypt eða selt fasteign, ber að útfylla D-lið á bls. 4 á eyðublaðinu, eins og þar segir til um. Ef framteljandi á hús eða íbúð í smíðum, ber að útfylla bygg- ingarskýrslu og færa nafn og númer húss undir eignalið 3 og kostnaðarverð í kr.dálk, hafi hús ið ekki verið tekið í fasteigna- mat. Sama gildir um bílskúra, sumarbústaði, svo og hverjar aðr ar byggingar. Ef framteljandi á aðeins íbúð eða hluta af fast- eign, skal tiigreina hve eignar- hluti hans er mikill, t.d. >/s eða 20%. Nota má það sem betur hentar, hlutfall eða prósentu. Lóð eða land er fasteign. Eignarlóð færist á sama hátt og önnur fast-- eign, en leigulóð ber að skamm- stafa L. 1. kr........ sem færist í lesmálsdálk. 4. Vélar, verkfæri og áhöld. Undir þennan lið koma land- búnaðartæki þegar frá eru dregn ar fyrningar skv. landbúnaðar- skýrslu, svo og ýms áhöld hand- verksmanna, lækna o.sfrv. Áhöld keypt á árinu að viðbættri fyrri áhaldaeign, ber að færa hér að frádreginni fyrningu. 5. Bifreið. Hér skal útfylla eins og skýrsluformið segir til um, og færa kaupverð í kr.dálk. Heimilt mun þó að lækka einkabifreið um 1314% af kaupverði fyrir árs- notkun, frá upphaflegu verði. Kemur það aðeins til lækkunar á eignarlið, en dregst ekki frá tekjum, nema bifreiðin sé notuð til tekjuöflunar. Leigu og vöru- bifreiðir má fyrna um 18% af kaupverði. Fyrning til gjalda 2. grein skal færð á rekstrarreikning bif- reiðarinnar. 6. Peningar. Hér á aðeins að færa pen- ingaeign um áramót. Ekki víxil- eignir, verðbréf, né neina aðra fjármuni en peninga. 7. Inneignir. Hér ber eingöngu að færa peningainnstæður í bönkum, sparisjóðum og innlánsdeildum, svo og verðbréf, sem skattfrjáls eru skv. sérstökum lögum. Víxlar eða verðbréf, þótt geymt sé í bönkum, eða þar til innheimtu, telst ekki hér. 8. Hlutabréf. Rita skal nafn félags í lesmáls dálk og nafnverð bréfa í kr.dálk. Heimilt er þó, ef hlutafé er skert, að telja hlutabréf undir nafn- verði og þá í réttu hlutfalji við eignir félagsins og miðað við upphaflegt hlutafé. 9. Verðbréf, útlán, stofn- sjóðsinnstæður o. fl. Útfylla skal B-lið bls. 3 eins og skýrsluformið segir til um, og færa samtalstölu í lið 9. 10. Eignir barna. Á bls. 4 á eyðublaðinu er sér stakur iiður yfir eignir barna, sem útfylla skal eins og formið segir til um, og færa samtals- töluna á eignarlið 10, að frá- dregnum skattfrjálsum innstæð- um og verðbréfum sbr. tölulið 7. Ef framteljandi óskar þess, að eignir barns séu ekki taldar með sínum eignum, skal ekki færa eignir barnsins í eignarlið 10, og geta þess sérstaklega í G-lið bls. 4, að það sé ósk framteljanda, að barnið verði sjálfstæður skatt- greiðandi. 11. Aðrar eignir. Undir þennan lið koma ýms- ar ótaldar eignir hér að ofan (aðrar en fatnaður ,bækur, hús- gögn og aðrir persónulegir mun- ir). * GULL-BÆRINN NÚ SITJA þeir uppi með allra þjóða fólk í Vestmanna- eyjum og tugthús staðarins er orðið fjölsótt gestaheimili — líka fyrir allsgáða. Fiskisagan um hinn skjótfengna gróða á íslandi virðist hafa flogið víða um lönd, en þótt straumurinn hingað sé ekki stór miðað við allar milljónirnir í heiminum — þá er ljóst, að fyrirhyggju- lausir menn leggja á sig tölu- vert erfiði og útgjöld til að komast í gullbæinn Vestmanna- eyjar til þess að fá hlutdeild í gróðanum. ic FÆREYJAFLUG Nýlega var sagt frá því i fréttum, að Flugfélag íslands SKULDIR ALLS Fyrir skuldir er sérstakur lið- ur C á bls. 3, sem útfylla skal eins og formið segir til um og færa samtalstölu á bls. 1 neðst: Skuldir alls. Muna ber að merkja fasteignalán til 10 ára eða lengur með X aftan við upphæðina, ef þau eru tekin til öflunar fast- eignanna eða endurbóta. TEKJUR ÁRIÐ 1964 1. Hreinar tekjur samkv. með- fylgjandi rekstrarreikningi. Liður þessi er því aðeins út- fylltur, að fyrir liggi rekstrar- reikningur Skattstjóri annast ekki reikningsuppgjör fyrir fram teljanda og kemur því ekki til aðstoð í þessu tilvikL 2. Tekjur samkv. landbúnaðar- og sjávarútvegsskýrslu. Hér eru færðar nettótekjur af landbúnaði og smáútgerð og ekki til ætlast að byrjandi annist slíka skýrslugerð. Sjá umsögn með eignarlið 2. 3. Húsaleigutekjur. Frá þeim var skýrt í blaðinu í gær. — 4. Vaxtatekjur. Hér skal færa skattskyldar vaxtatekjur samkv. A- og B-lið bls. 3. Það athugist, að undan- þegnir framtalsskyldu og tekju- skatti eru allir vextir af eignar- skattsfrjálsum innistæðum og verðbréfum, sbr. tölulið 7, X. 5. Arður af hlutabréfum. Hér skal færa arð, sem fram- teljandi fær úthlutaðan af hluta- bréfum sínum. 6. Laun greidd í peningum. í lesmálsdálk skal rita nöfn og heimili kaupgreiðenda og tekjuupphæð í kr.dálk. Ef fram- teljandi telur fram óeðlilega lág- ar tekjur, miðað við það sem aðr- ir hafa í hliðstæðu eða sams kon- ar starfi, skal inna eftir ástæðu og geta hennar í G-lið bls. 4. 7. Laun greidd í hlunnindum. a. Fæði: Rita skal dagafjölda, hyggðist halda áfram Færeyja- flugi í sumar. Er ánægjulegt, að unnt skuli að viðhalda flug- samgöngum milii Færeyja og íslands — og jafnframt að temgja Færeyjar Bretlandseyj- um á þennan hátt. En miðað við síðasta ár verð- ur dregið töluvert úr Færeyja- fluginu í sumar. Nú verða eng- ar ferðir til Noregs og Dan- merkur, eins og þá, einungis ferðir frá Færeyjum til íslands og Skotlands. Erfiðar aðstæður í Færeyj- um munu valda því, að með nú- verandi flugvélakosti Flugfé- lagsins reynist erfitt að láta þessa starfsemi bera sig og þess vegna hefur félagið dreigið sam- an seglin. sem framteljandi hefir frítt fæði hjá atvinnurekanda sínum, og reiknast til tekna kr. 50.— á dag fyrir karlmann, kr. 40.— fyrir kvenmann og kr. 40.— fyrir börn yngri en 16 ára. Margfalda síðan dagafjölda með 50 eða 40, eftir því sem við á, og færa útkomu í kr.dálk. b. Húsnæði: Rita skal fjölda mánaða, sem vinnuhjú hafa frítt húsnæði hjá atvinnurekanda sín- um og reiknast til tekna kr. 165.— Friendship verður ekki not- uð í Færeyjafluginu í sumar, því hún mun hafa í nógu að snúast í innanlandsfluginu. Hins vegar er talað um að fá aðra Friendship næsta vor — og e.t.v. þá þriðju síðar — og verður þá væntanlega hægt að þjóna samgöngum við Færeyj- ar mun betur. En mikilsvert er, að samgöngur þessar falli ekki niður meðan beðið er eftir endurnýjun fluigflotans. ic SKOTTHÚFAN ENN Lending Björns Pálssonar og vísindamannanna í Surtsey hefur vakið töluverða athygli, enda þótt Surtsey sé hætt að vekja athygli — hversu líflegur á mánuði í bæjum og kaupstöð- um, en kr. 132.— á mánuði i sveitum. Margfalda skal mánaða- fjölda með 165 eða 132, eftir þvl sem við á, og færa útkomu í kr. dálk. Frítt fæði sjómanna er und- anþegið skatti og útsvari og fær- ist því ekki hér. Ef framteljandi fær greitt kaup fyrir heimilisstörf reiknast fæði og húsnæði til tekna. c. Fatnaður eða önnur hlunn- Framhald á bls. 17 sem Surtur er. Einhver sagði að þessi flugleiðangur hafi verið gerður út til þess að koma í veg fyrir að Sigurður Þórarinsson færi á bólakaf við ströndina — og týndi höfuðfati sínu. En menn geta týnt höfuðfatinu og öllum fjandanum þótt þeir lendi ekki við Surtsey. í gær týndi óg t.d. bílnum mínum og leitaði lengi á öllum bílastæðum og götum í kring um Morgunblaðs- húsið, en fann ekki. Það var komið myrkur og þess vegna gafst ég upp á endanum — og fór heim í mat. En það fyrsta. sem ég sá, þegar ég kom heim, var bíllinn, sem ég hafði auð- vitað aldrei farið á í bæinn. Þetta eru svo sem engin tíð- indi. Ég nefni þetta bara til þess að sýna fram á að fólk getur týnt öðru en húfu og vettlingum, jafnvel miklu merkilegri hlutum — og þvi ekki ástæða til að tönglast óendanlega á því að Sigurður Þórarinsson.hafi týnt skotthúfu sinni. 6 y 12 v 24 y 32 y spennustitlar, í miklu úrvali. BRÆÐURNIR ORMSSON h.f. Vesturgötu 3. — Sími 11467.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.