Morgunblaðið - 21.01.1965, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.01.1965, Blaðsíða 22
MORGU N B LAÐIÐ Fimmtudagur 21. jan. 1965 22 Reiði vegna kaupa Skota á norrænum leikmönnum Ensk stórblöb blanda sér 1 málið en litlar breytingar eru liklegar INNFLUTNINGUR norrænna knattspymumanna til Skotlands er nú farin að vekja athyg-li I enskri knattspyrnu og enskir íþróttafréttamenn rita mikið um málið. Fram til þessa hafa þeir látið málið afskiptalaust en und- anfarna daga hafa skrif um „Vík- inga-innflutninginn“ fyllt marga dálka stóru blaðanna. í gær Skrifuðu íþróttafrétta- menn ,,Times“ og „Daily Mail“ um tilkynningu frá sambandi skozkra knattspyrnumanna. þar sem segir að rætt verði um inn- flutning norrænna leikmanna á fundi n.k. sunnudaig. Fyrirsögnin er „. . . Skandinavisk innrós ógn- ar skozkri knattspyrnu" skýrir skozkur knattspyrnusérfræðing- ur ástandið í grein í Times. Orsök þess að skozk félög líta til leikmanna á Nor'ðurlöndum er augljós. Um margra ára skeið bafa skozku liðin misst hverja stjörnuna af annari til ensku fé- laganna. Þess vegna hafa skozku félögin orðið að leita á ný mið til að viðhalda „standardinum“. • Fjárhagslegur ágóði. Fjórhagslega séð ligigja Norð- urlöndin vel vi'ð hjó Skotum. Þar er hægt að fá úrvals leik- menn fyrir 5—600 þús. ísl. kr. en jafningi hans í Skotlandi er keyptur til enskra liða fyrir kannski 6 sinnum hærri upphæð. Annar kostur er að geta skozkra liða hefur aukizt við komu'hinna norrænu leikmanna. Þeir hafa reynzt hinir ágætustu hæfileika menn og þeirra vegna hafa þeir Skotar sem í liðunum voru fyrir orðið að leggja hart að sér til að halda stö’ðum sínum í liðun- um. í þriðja lagi hefur koma Ihinna norrænu manna aukið að- sókn áhorfenda að leikjunum og bætt fjárhag skozku liðanna. Times lýkur greininni með því að segja að flutningur norrænna leikmanna til Skotlands sé jafn- heilbrigður og flutningur skozkra leikmanna til enskra liða. Blað- ið segir að án efa muni fleiri norrænir leikmenn koma til Skot lands í náinni framtíð. Það eina sem gæti komið í veg fyrir það væri að lagður yrði t.d. 15% „innfluytningsskattur" á kaup skozkra liða á norrænum leik- mönnum. • Engar aðgerðir. Daily Mail skrifar undir fyrir- sögninni .,Er noikkur sem vill kaupa sér víking?“ hvort ekki sé ástæða til fyrir atvinnumálaráðu MOLAR Cardiff City og Real Zara- gossa léku fyrri leik sinn í 8 liða úrslitakeppni um Evrópu bikar bikarsigurvegara, í Zara gossa í gær. Eftir 12 mín. stóð 2—0 fyrir spánska liðið. En Cardiff-mönnum tókst að jafna og leik lyktaði 2—2. 18 ára gamall Norðmaður Tor A. Wiersdalen setti nýtt norskt unglingamet * lang- stökki án atrennu innanhúss. Ilann stökk 3.45 m. Viku áður setti hann unglingamet í há- stökki án atrennu, stökk 1,72 m. og átti góðar tilraunir við l. 75. Vitali Kunarev, 26 ára gam all rússneskur spretthlaupari setti óstaðfest heimsmet í 100 m. hlaupi innanhúss í Lenin- grad s.l. sunnudag. Hann hljóp á 10.3 sek. Á sama móti stökk Igor Feldes 4.50 m. í stangar- stökki. neytíð að skipta sér af þessum sí- vaxandi innflutningi. Greinarhöf- undur hefur snúið sér til ráðu- neytisins í London og fengið þau svör að ráðuneytið sæi ekki frek ari ástæður til afskipta al mál- ' inu ,svo lengi sem geta hinna Framhald á bls. 23. „Ég vil fá hvítan andstæðing“ segir Cassius Clay CASSIUS Clay lét svo um mælt ó dögunum að vandamál hnefa- leikaíþróttarinnar væri „að skort ur væri á hvítum' mönnum sem eitthvað gætu. Ef þeir fyrirfynd ust myndi áhugi fóliks á íþrótt- inni aukast mjög. Clay lét þessi orð falla í hádegisverði sem iþróttafréttamenn, sem um hnefa leika skrifa, buðu til. Clay sagði að væri fleiri að finna í hnefa- leikunum eins og Gene Tunney og Jack Dempsey (iþiir voru báð ir viðstaddir) og ég til að berjast við þá, þá væri hægt að stofna til kappleikja sem gæfu 30 millj. dollara í inntekt. „Við þurfum fleiri hvíta sem eitthvað geta. Þess vegna er ég að vona að „þvottakonan" (en svo kallar Clay Kanadamanninn Chuvalo) _ sigri Floyd Patterson. Þá lendi ég á móti hvítum and- stæðingi. Fólkið myndi kjósa frekar að það væri hvítur og svartur sem berðist um titilinn“. Clay var aðalmaður þessa sam kvæmis. Allir snerust um hann en þó voru meðal viðstaddra margir heimsfrægir garpar svo og þingmenn og ráðamenn. m Sundsvæöið tilbúið á næsta ári SUNDLAUGARBYGGGING- IN í Laugardal tekur nú stökkbreytingum. Feiknlegur uppsláttur hefur risið þar síð- ustu mánuðina, en hann stend ur undir mótum að þaki áhorf endastúkunnar. Var allt verk ið boðið út fyrir nokkrum ár- um og m.a. samið um smíði á þaki stúlkunnar. Með núver- andi verðlagi var þó tilboðið ekki raunhæft, en verktakinn vildi standa við það og hóf smíði þess, þó um það hafi hafi verið rætt af ráðamönn- um að fresta gerð þaksins. En nú er ljóst að allri steypu- vinnu við laugina verður lokið með vorinu. Verið er að hefja vinnu við innréttingu á kvennaklefum og síðan verð- ur gengið að karlaklefum. Senn verður hafin smíði á klórtækjum fyrir laugina en smíði þeirra og uppsetning tekur um það bil ár. Miðað er að því að allt sundsvæðið verði tilbúið á árinu 1966. Myndin sýnir uppsláttinn undir þak stúkunnar. Sjá má og göngubrúna yfir vaðlaug- ina og tröppurnar niður í vað- laug barna. Jóhonn Vilbergsson þjólfor skíðamenn JÓHANN Vilbergsson frá Siglu- firði þjálfar í vetur skíðamenn f. h. Skíðasambands íslands og um þessar mundir fer þjálfun fram hjá Reykjavíkurfélögunum og fer kennsla fram hjá eftir- töldum félögum sem hér segir: Þriðjudag, 19. janúar, Ármann Miðvikudag 20. jan. Skíðaskálinn Fimmtudag, 21. janúar Ármann Föstudag, 22. janúar K.R. Laugardag, 23. janúar K.R. Sunnudag, 24. janúar K.R. Mánudag, 25. janúar K.R. Þriðjudag, 26. janúar Ármann Miðvikudag, 27. janúar Ármann Fimmtudag, 28. janúar Ármann Föstudag, 29. janúar Í.R. og Vík. Laugardag, 30. jan. Í.R. og Vík. Sunnudag, 31. janúar Í.R. Mánudag, 1. febrúar Í.R. Þriðjud. 2. febrúar Skíðaskálinn. Ferðir verða síðar auglýstar nánar af skíðafélögunum. Hjónaband nefbrotins hnefaleikara í hœttu vegna þess hvað hann hrýtup óskaplega MAÐUR er nefndur Keith Lee og er áhugahnefaleikari í Eng landi. Nefið á honum er í átján hlykkjum, enda var hann nefbrotinn í hnefaleik- um fyrir mörgum árum, en að öðru leyti er þetta hinn vörpulegasti náungi. Hann hefur samt engar áhyggjur af lýti sínu, því að ekki eru allar ástir í andliti fólgnar, eins og sagt er, og fyrir nokkrum mánuðum festi nann sér konu, stúlku að nafni Pam, er hann gekk svo að eiga fyrir tólf vikum. En þegar á brúðkaupsnótt- ina komst þriðji aðili upp á milli hjóna: nef húsbóndans. Gamla, ljóta, brotna nefið er nefnilega með þeim ósköpum gert, að eigandi þess lírýtur ofboðslega. Hrotudrunurnar eru háværar og langdregnar, svo að Pam getur ekki sofið fyrir skarkalanum. Minnstu munaði, að hrot- urnar eyðulegðu brúðkaups- ferðina algerlega fyrir vesa- lings Pam. Þau voru sjö daga í ferðinni, og þegar þau komu aftur heim til Exeter, var frú- in búin að fá blakka bauga undir bæði augu af vökum og andstreymi þess vegna. Hún reyndi að vinna bug á svefnleysinu með ýmsum ráðum. Hún setti upp hlustar- hettur og eyrnaskjól, át gríð- arlega mikið af svefntöflum, kleip Keith í nefið, tróð baðm ullarhnoðrum upp í nasir á karli og límdi sárabindi yfir munninn á honum. Ekkert dugði. Keith skar hrúta sem aldrei áður. Að lokum greip unga frúin til örþrifaráðs, sem telja verð ur óvenjulegt meðal nýgifts fólks: Hún rak Keith úr rúm- inu og lét hann sofa í öðru svefnherbergi. Það kom þó fyrir ekki. Hvalablásturinn, lúðraþyturinn og hryglukorrið heyrðist inn til hennar og hélt fyrir henni vöku. Nú voru læknar kvaddir til ráða. Hið 33ja ára gamla nef Keiths var grandskoðað af færustu doktorum, sem kváðu upp þann úrskurð, að brjósk- flögur, sem brotnað höfðu og raskazt við heljarmikið hnefa- högg fyrir löngu, skelltust til og frá í skakka nefinu og trufl uðu eðlilega öndun. Ákveðið var að höggva og skera í nef- ið. Aðgerðinni eða viðgerðinni lauk með uppskurði s.l. þriðju dad (19. jan.). Keith sagði við íiþróttafréttaritara og aðra blaðamenn að homum loknum: „Ég vona, að nú falli allt í ljúfa löð, þótt mér séu enn að berast kvartanir um hrot- ur mínar frá öðrum sjúkling um í sjúkradeildinni eftir upp skurðimn. É|g hef hrotið vel og lengi, — árum saman, að því er ég bezt veit, en ég hef aldrei haft nokkrar áhyggjur af því, enda alltaf sofandi á meðan". „Ég er önnur og ný kona“, sagði Pam. „Meðan Keith hef ur verið í sjúkrahúsi, hef ég átt beztu nætur hjónabands- ins ti-1 iþessa. Ég hef sofið eins og steinn. Hefði ég vitað, að hann hryti svona stórkostlega alla liðlanga nóttina, þá hefði ég aldrei gifzt honum, svei mér þá“, segir hún Pam litla. Hvað er hægt að læra af þessu? Að hnefaleikarar gifti sig, áður en þeir láta nef- brjóta sig.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.