Morgunblaðið - 21.01.1965, Side 17
Fimmtudagur 21. jan. 1965
MOHGUHBLAÐIÐ
17
Sira Björn O. Björnsson
praep. hon. sjötugur
CICBRO taldi ellina tvímsela-
laust ávinning, þrátt fyrir líkam-
ans hvimleika, sem henni gjama
fylgir. Hvert æfiskeið hefur sina
kosti, en ellin hefur þá flesta, að
Ihans dómi. í>essi skoðun hins
rómverska mælskumeistara virð-
ist sannast allvel á þeim, hvers
mynd og yfirskrift þessum orð-
um fylgir.
Síra Björn virðist sameina and
lega snerpu æskunnar og þroska
ellinnar í allríkum mæli. En því
sízt að furða þó að hann verði
Iþeim, sem til hans þekkja harla
minnisstæður, þar sem hann fer.
I>að sem fyrst stingur í augun í
tfari hans, er skörp skynsemin og
irökhyggjan. Hugsun hans öll ber
þess vitni, að hann hefur hugað
meira en almennt gerist að nátt-
úruvísindum, en hann hóf náms-
tferil sinn með náttúrufræðinámi
og var langt kominn með það,
er hann sneri sér að guðfræði.
■— Síra Björn er einlægur trú-
maður. Hefur hann að ég hygg,
lagt meira að sér en velflestir
aðrir, til þess að koma fram skoð
unum sínum á þeim efnum, og
gaf út tímaritið „Jörð“ um ára-
bil. Hygg ég að sú útgáfa hafi
orðið honum þungur baggi fjár-
hagslega, en bjartsýni hans og
traust á hinn góða málstaðinn
hefur hjálpað honum yfir þá
erfiðleika.
Ég þekkti síra Björn alináið
um tvegja ára bil. Bar þá oft
við, að við ræddum mörg mál,
Síra Björn O. Björnsson
pastor emeritus.
ekki sízt trúmál. Urðum við ekki
alltaf á eitt sáttir, en urðum samt
betri vinir fyrir, og var það að
þakka víðsýni síra Bjöms og
humanitate. Mér hefur virzt
mannkærleikur og viss óskil-
greind hugans heiðríkja einkenna
síra Björn í óvenju ríkum mœli.
Vil ég þakka honum og ágætri
konu hans, frú Guðríði Vigfús-
dóttur, vináttu þeirra og góðleika
í minn garð.
Sig. Steingrímsson.
— Minniflig
Framhald af hls. 8
binda-Bjarna), er út kom á ofan-
verðri öldinni sem leið, og er nú
afar fágæt bók. — Já, ég hélt nú
það. Ég fann hana einu sinni í
rusli hjá fornbóksala, sem ekk-
ert vit hafði á slíku. Það var á
kreppuárunum svonefndu, ég
galt fyrir hana heila krónu, og
þá var krónan króna! Eintak af
þessu kveri var selt í fyrra á 2
þúsund krónur. Það er ekki til
í „Fiske“ bókaskránni, og engum
bókaskrám íslenzkum, en eintak
er til í Landsbókasafni. „Seigur
ertu! En áttu þá þessa,“ hélt
Davíð áfram og réttir að mér
fyrstu bók Einars Hjörleifssonar,
síðar Kvarans: „Hvorn eiðinn á
ég að rjúfa?“, er út kom á Eski-
tfirði 1880 á kostnað Jóns Ólafs-
sonar, ritstjóra." „Nei, þar
slóstu mig út“, segi ég. „Það er
hart að eiga allar útgáfur af
verkum Einars H. Kvaran „plús“
sérprentanir og þýðingar, en
vanta aðeins þetta eina þriggja
arka smákver, sem aldrei var og
aldrei verður gefið út aftur. En
sagan sem liggur að baki tilveru
þessa kvers og örlög þess litla
upplags verður ekki sögð hér.
Þannig héldum við Davíð
éfram að rabba um bækur og
bókfræði, og tíminn líður og áð-
ur en varir erum við búnir að
tæma koníaksglösin, fylla þau á
ný og tæma þau aftur. Þó erum
við báðir ófullir, nema af anda-
gift, hana hefur Davíð í ríkum
mæli, en úndirritaður því miður
af skornum skammti.
„Ja, Stefán minn, nú er ekki
orðið hægt að safna bókum leng-
ur“, segir Davíð og sýnir mér
verðlista frá dönskum fornbók-
sala yfir íslenzkar bækur gamlar,
er honum hefði borizt, þar sem
verðið er ofboðslegt á hverri bók.
Ég er sammála því, og segi hon-
um frá hliðstæðum lista frá
norskum fornbóksala er ég hafði
lengi skipt við og þá nýlega
fengið. Þar var m.a. ein bók,
sem ég keypti frá Osló fyrir all-
mörgum árum á 15 krónur norsk-
ar. En nú kostaði sams konar
eintak 300 norskar krónur. „Dýr
myndi Hafliði allur."
„Ef þú sérð Pál ísólfsson þá
skilaðu frá mér kveðju. Ég er
annars orðinn svo skollí stirður
í liðamótum, það brakar í mér
eins og gömlu seglskipi“, segir
Davíð og skálar um leið. „Er það
ekki gigt eins og í mér?“ spyr ég.
„Nei, það er ekki gigt, heldur
eitthvað annað". „Þetta „eitt-
hvað annað“ vona ég samt að
verði þér ekki að aldurtila" segi
ég um leið og ég kveð Davíð
og þakka honum fyrir fróðlega
og skemmtilega samverustund.
„Ég sendi þér næstu bók eftir
mig í pósti“, segir Davíð við mig,
úti á tröppum hússins. „Gleymdu
þú ekki að skrifa í hana til mín“,
árétta ég. „Það eiga helzt engir
að skrifa á bækur nema höfund-
arnir sjálfir." Um það erum við
sammála.
Davíð Stefánsson var dulur
maður og fáskiptinn. Ekki allur
þar sem hann var séður. Mikill
einstaklingshyggjumaður. —
Manna skemmtilegastur þegar
hann vildi það við hafa. Hann
var mikill íslendingur í þess
orðs beztu merkingu. Ókunnug-
um gat virst hann nokkuð þurr
á manninn og á þetta erindi
Gríms Thomsens, skálds, um
Konráð Gíslason, málfræðing,
látinn, einnig við um Davíð:
„Hans brann glaðast innra eldur
hið ytra virtist sumum kalt;
við alla var hann fjöl ei felldur,
fann ei skyldu sína heldur,
að heiðra sama’ og aðrir allt.“
í barmi Davíðs frá Fagraskógi
sló heitt hjarta tilfinningamanns-
ins, lífsnautnarmannsins og
drengskaparmannsins. Vinum sín
um var hann mesta tryggða-
troll.
Þau eru orðin mörg skáldin,
sem undirritaður hefur kynnzt
persónulega. En ekkert skáld er
mér jafn minnisstætt sem Stefán
frá Hvítadal, veldur því fleira
en eitt. Og þar næst Davíð frá
Fagraskógi, svo ólíkir sem þeir
annars voru. Þeim gleymi ég
aldrei.
Davíð Stefánsson var, er og
verður ástmögur íslenzku þjóð-
arinnar. Það er bjart yfir minn-
ingu Davíðs í huga mínum, bæði
sem manns — og skálds.
Blessuð sé minning hans.
Reykjavík, — janúar 1965
Stefán Rafn.
— Aðstoð
Framhald af bls. 6
indi: Til tekna skal færa fatnað,
sem atvinnurekandi lætur fram-
teljanda í té án endurgjalds, og
ekki er reiknað til tekna í öðr-
um launum. Tilgreina skal hver
fatnaður er og útfæra í kr.dálk,
sem hér segir: Einkennisföt kr.
22.00.—. Einkennisfrakki kr.
1650.—. Sé greidd ákveðin fjár-
hæð í stað fatnaðar, ber að telja
þá upphæð til tekna.
8. Elli og örorkulífeyrir.
Færa • skal í kr.dálk upphæð
þá, sem framteljandi telur sig
hafa fengið greidda á árinu. Rík-
istrygging gefur upp slíkar
greiðslur á nafn hvers og eins,
og verður það borið saman við
uppgjöf framteljanda við endur-
skoðun framtals.
9. Sjúkra- eða slysabætur.
Sama gildir hér og um lið 8.
10. Fjölskyldubætur.
Greiðslur. Tryggingastofnun-
ar vegna barna (ekki barnalíf-
eyrir = meðlag) nefnast fjöl-
skyldubætur og mæðralaun, og
er hvort tveggja fært til tekna
undir lið 10. Á árinu 1964 voru
fjölskyldubætur fyrir hvert barn
kr. 3000.— yfir árið. Margfalda
skal þá upphæð með barnaf jölda
og útfæra í kr. dálk.
Mánaðargreiðslur á árinu 1964
voru kr. 250.—.
Mæðralaun eru greidd ekkjum,
ógiftum mæðrum og fráskildum
konum. Á árinu 1964 voru mæðra
laun, sem hér segir:
Fyrir 1 barn kr. 2221,80, 2 börn
kr. 12061,20, 2 börn og fleiri kr.
24122,40. Mæðralaun fyrir börn,
sem bætast við á árinu eða öfugt,
yerður að reikna með öðrum
hætti en fjölskyldubætur.
Fjölskyldubætur eru alltaf þær
sömu fyrir barnið, en mæðralaun
ekki.
11. Tekjur barna.
Útfylla skal F-lið bls. 4 eins og
formið til um og færa saman-
lagðar tekjur barna í kr.dálk 11.
tekjuliðs, að frádregnum skatt-
frjálsum vaxtatekjum sbr. tölulið
4, III. Ef barn (börn) hér til-
greint stundar nám í framhalds-
skóla, skal í neðstu línu F-liðar
rita nafn barnsins og í hvaða
skóla námið er stundað, rita skal
einnig námsfrádrátt skv. mati
ríkisskattanefndar.
12. Launatekjur konu.
Hér skal færa tekjur konu
framteljanda, ef einhverjar eru.
I lesmálsdálk skal rita nafn at-
vinnurekanda og tekjuupphæð í
kr.dálk.
13. Aðrar tekjur. ,
Hér skal tilfæra hverjar þær
tekjur, sem áður eru ótaldar. Má
þar tilnefna styrktarfé, gjafir
(aðrar en tækifærisgjafir), happ
drættisvinninga (sem ekki eru
skattfrjálsir), arð af hlutabréfum
vegna félagsslita, arð af eignum,
töldum undir eignarlið 11, sölu-
hagnað sbr. D-lið bls. 4, skatt-
skylda eigin vinnu við eigið hús,
afföll af keyptum verðbréfum
o.fl. o.fl.
ATHUGIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrana að auglýsa
í Morgunblaðinu en öðrum
blöðum.
Til sölu mjög góð
4ra herbergja íbúð
á 7. hæð í háhýsi við Ljósheima. íbúðin er tvær
stofur og tvö svefnherbergi á sér gangi ásamt baði
og mjög rúmgott eldhús með borðkrók. Flísalagt
þvottahús á ytri forstofu. Sér inngangur af svöl-
um. Tvær lyftur. Tvöfalt gler. Góðar svalir. —
Teppi og harðviðargluggakappar.
Þorskanét
Höfum japanska þorskanót til afgreiðslu hér í
Reykjavík í byrjun febrúar.
Einnig þorskanet af mismunandi stærðum.
Vinsamlegast talið við Ara Jónsson í skrifstofu
okkar eða í síma 13271, heimasími 35906.
Kristjánsson h.f.
INGÓLFSSTRÆTI 12.
Verzlunarstörf
Piltur og stúlka, helzt vön, óskast til starfa
í verzluninni.
Jónsval
Blönduhlíð 2. — Sími 16086.
«
Aðalfundur
Slysavarnadeildar INGÓLFS verður haldinn í
Slysavarnahúsinu, Grandagarði, nk. sunnudag kl.
16:00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN.
Nýkomlð
Þakjárn Nr. 24
Lengdir 8’, 9’, 10’, 11’ og 12’.
Pantanir óskast sóttar sem fyrst.
Byggingavöruverzlun
Suðurlandsbraut 6. — Sími 22235.
Vcrkstjóri — Iðnfyrirtæki
Reglusamur karlmaður 25—30 ára, óskast að góðu
og traustu iðn- og innflutningsfyrirtæki, við verk-
stjórn, framleiðslu og fleira. Framtíðaratvinna og
gott kaup fyrir duglegan mann. — Umsóknir ásamt
upplýsingum sendist í pósthólf 547, Reykjavík,
fyrir nk. mánaðamót, merktar: „Verkstjóri — 1965“.
Allar umsóknir skoðast sem trúnaðarmál, og end-
ursendast, ef þess er óskað.
Blaðburðarfólk Meðalholt —
óskast til blaðburðar í eftirtalin hverfi Grettisgötu 1-35
WgttttMltfófr
Sími 22-4-80