Morgunblaðið - 28.03.1965, Qupperneq 1
32 snðtir og Lesbollc
l.,iósm. Mbl. 61. K. M. var á grant^i eftir Skúlagötunni nú fyrir nokkrum kvöldum og: kominn í krikann hjá Batteríisgrarðinum gamla
tók hann þessa mynd af fjöllum Reykvíkinga, Akrafjalli, Skarðsheiði og Esjunni, sveipuðum gullskýjum niður i miðjar hliðar.
Rússar senda loftvarnar-
skeyti til N-Vietnam
Rússneskir sérfræðingar fylgja
Washington og Saigon,
27. marz, AP.
HAFT er eftir sendimönnum
kommúnistarikja í Washington
*ð Sovétstjórnin sendi nú loft-
varnaskeyti til Norður Viet-
Nam til þess að ,verja mikl-
vægar borgir, á borð við
Hanoi og Haiphong árásum
Bandarikjamanna" eins og sagt
var. Sovézkir sérfræðingar
eru með í förinni til þess að
sjá um notkun loftvarnarskeyt-
anna, þvi ekki eru menn sagðir
kunna á þeim tökin í N-Vietnam.
Lögð er á það áherzla, hversu
alvarlegar afleiðingar það geti
haft ef Bandarikin ráðist á her-
stöðvar þær sem hafi yfir að
ráða þessum loftvarnaskeytum
og dragi með því sovézka ríkis-
borgara inn í striðið þar eystra.
Sendiherra Bandaríkjanna í
Saigon, Maxwell Taylor, hers-
höfðingi, er á leið til Washing-
ton til viðræðna við Bandarikja-
I w
Olga í Alabama
- útifundur í dag
Fyrirhugub rannsókn á starfsemi
Ku Klux Klan
Alabama, 27. marz, AP, NTB.
MIKIL sorg og gremja ríkir nú
■ Alabama vegna morðsins á frú
<Jregg Liuzzo, sem kom suður til
Selma frá Detroit til að taka
þátt í göngunni miklu til Mont-
gomery og var skotin til bana er
bnn var að störfum i hennar
þágu, og hefur verið ákveðinn
útifundur í dag af þessu tilefni.
I>rír þeirra fjögurra manna,
rern teknir voru höndum í gær
sakaðir um morðið á frú Liuzzo
voru i dag látnir lausir gegn
S0.000 dala tryggingu fyrir hvern
þeirra. Allir eru mennirnir fjór-
>r féiagar í Ku Klux Kian, féiags
likap þeim, sem Johnson íorseti
hefur nú lýst striði á hendur.
Talið er liklegt, að nefnd full-
trúadeildar Bandarikjaþings sú
er fjallar um óameríska starf-
semi muni þegar í næstu viku
samþykkja, að fnam skuli fara
gagnger rannsókn á allri starf-
semi Ku Klux Klan. Talið er að
í félagsskap þessum séu eitthvað
á milli 48—65 þúsund félagsmenn
en hann eigi sér 16 til 20 þúsund
áhangendur.
— ★ —
Hálft annað hundrað blökku-
manna átti í útistöðum við lög-
regiu í Waterbury í Connecticut
í gærkvöldi og voru sjö mánns
fiuttir á sjúkrahús, en enginn
alvarlega særður.
stjórn. Er talið að hershöfðing-
inn muni leggja til, að auknar
verði loftárásir Bandaríkja-
manna norðan landamæranna og
að ráðist verði ekki eingöngu
á hernaðarlega mikilvæga staði
heldur einnig á þá sem mikil-
vægir eru iðnaðar síns vegna.
í Moskvu var það sagt í gær
að heilar herdeildir sovézka hers
ins hefðu hefðu boðizt til að
fara að stríða í Vietnam. Áður
munu Kína og Norður-Kórea
hafa boðið Norður-Vietnam að-
stoð, bæði mannafla og hergögn,
ef þess gerðist þörf.
í Washington var það sagt í
dag, að Bandaríkin myndu
standa við skuldbindingar sínar
í S-Vietnam þó svo Kina og Sovét
ríkin sendu sjálfboðaliða Viet
Cong til aðstoðar, en því bætt
við að enn benti ekkert til að
af hótunum um þetta yrði. Lögð
var áherzla á, að stefna Johnson
forseta væri óbreytt með öllu
frá því sem áður væri: Bandarík-
in myndu halda áfram aðstoð
sinni við S.-Vietnam meðan ekki
linnti árásum N-Vietnamstjórn-
ar á landið.
Sovétríkim
Manna-
skipti í mið
stjórninni
Moskvu, 27. marz.’ NTB.
Á FUNDI sínum í gær ákvað
miðstjórn sovézka kommánista-
flokksiru að víkja skyldi úr em-
bætti flokksritara hugmyndafræð
ingnum Leonid Iljitsjev, 58 ára
gamall, var helzti talsmaður
flokksins í menningarmálum
meðan Krúsjeffs naut við. í staff ^
hans kaus miðstjórnin Dimitri
Ustinov, sem áður var fyrsti aff-
stoðarutanríkisráðherra. Þá á-
kvað miðstjórnin einrág á fund-
inum í gær, að Kiril Mazurov
skyldi taka sæti í framkvæmda-
stjórn flokksins sem fullgildur
félagi. Framkvæmdanefndin verff
ur þá skipuð 12 mönnum í staff
11 áður.
Iljitsjev var útnefndur aðstoð-
arutanríkisráðherra nú fyrir
nokkrum dögum og þvkir hann
hafa sett töluvert ofan við em-
bættaskiptin. í stað Ustinovs í em
bætti fyrsta aðstoðarutanríkisráð
herra kemur Vladimir Novikov,
sem jafnframt var skipaður for-
maður efnahagsráðs rikisins. —
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Novikov gegnir aðstoðarforsáet-
isráðherraembætti, hann sat í
því þegar Krúsjeff var og hét en
var vikið frá árið 1962.
Brezhnev kunngerir
róttækar breytingar
á stefnu Sovétríkjanna
í landbúnaðarmálum
Chou En-lai
í Albaníu
Vín og Tirana, 27. marz.
AP—NTB.
CHOU En-lai, forsætisráðherra
Kína. kom í dag til Tirana frá
Búkarest, en þangað fór hnnn
til að vera við útför Rúmeríu-
forseta, Gheorghe Gheorghiu-
Dej. Með Chou En-lai er senrii-
nefnd skipuð fulltrúum kín-
versku stjórnarinnar og kín-
verska kommúnistaflokksins.
í Búkarest átti Chou En-lai, að
sögn útvarpsins þar í borginni,
viðræður við hinn nýskipaða for-
seta landsins, Chivu Stoica, við
formann rúmenska kommúnista-
flokksins, Nicolae Ceausescu, sem
einnig tók við embætti nú við
fráfali Gheorghiu-Dej og við for
Framh. á bls. 31
Moskvu, 27. marz. — (NTB) —
LEONID BREZNEV, formaður
kommúnistaflokks Sovétríkj-
anna, hefur sett fram tillögur til
gagngerra umbóta í landbúnað-
armálum ríkisins, er miða að því
að auka afurðaframleiðsluna. í
tillögunum er gert ráð fyrir
mjög auknum f járframlögum
rikisins á þessu sviði og einnig
er i þeim hvatt til að auka áhuga
samyrkjubænda á því að ná
meiri afköstum en nú er og meiri
framleiðslu.
Tillögur þessar er að finna í
skýrslu þeirri um landbúnaðar-
mál, er Brezhnev flutti miðstjórn
kommúnistaflokksins á fimmtu-
dag. Tass-fréttastofan birti út-
drátt skýrslu þessai'ar í gær-
kvöldi, en nefndi ekki Krúsjeff
á nafn, þó hann hefði á þessum
fundi miðstjórnarinnar sætt
mjög harðri gagnrýni arftaka
síns í embætti formanns flokks-
ins fyrir stefnuna í landbúnaðar-
málum. Sagði Brezhnev, að sam-
kvæmt gerðum áætlunum hefði
framleiðsla landbúnaðarafurða
átt að aukast um 70% á árunum
1959—65 (Sjö ára áætlunin), en
aukningin hefði ekki orðið nema
10%. Sagði Brezhnev ástæðuna
til þessa vera þá, að ekki hefði
verið tekið nægilegt tillit til efna
hagslögmáia þeirra, sem mestu
réðu um þróun sósíaliskra efna-
hagsmála og þau stundxim jafn-
vel virt að vettugi.
Fregnir herma, að úrbætur
þær sem bændum er nú iofað
að gerðar skuli, séu meiri en
nokkru sinni áður síðan 1929 er
hafinn var fyrir alvöru samyrkju
búskapur í Sovétríkjunum og
sagt að Sovétstjórnin hafi ekki
gengið eins langt i þessum efn-
um síðan á dögum „efnahags-
málastefnunnar nýju“ á árunum
eftir heimsstyrjöldlna fyrri. t>á
segir að Bx-ezhnev hafi borið upp
tillögu um samtals 71 milljarða
rúblna fjárveitingu til landbún-
aðarins (3.408 milljarða isl. kr.)
næstu fimm ár, en það er nærri
jafnmikið fé og veitt hefur verið
til landbúnaðarmála í Sovétrikj-
unum öll árin eftir heimsstyrjöld
ina síðari.
Ekkja Gorkís
látiri
MOSKVU, 27. marz, AP, NTB. —
Ekaterina Pavlovna Peshkova,
ekkja rithöfundarins Maxims
Gorki, lézt í Moskvu á föstudag,
að því er „Pravda“ hermir, 87
ára að aldri. Útför hennar mun
að öllum líkindum fara fram í
næstu viku og er gert ráð fyrir
að hana muni sækja ailir heiztu
rithöfundar Sovétríkjanna og
skáld.
<