Morgunblaðið - 31.03.1965, Side 21
Miðvikudagur 31. marz 1968
MORGUNBLAÐIÐ
21
Tvær Guðrúnar
í Gamla bíó
ÞAÐ má teljast viðburður á öld
bítilóðra, öskrandi hottentotta að
tvær íslenzkar listakonur skuli
taka í sig kjark til þess að bjóða
músikunnendum upp á jafn
gamaldags (sic) fyrirbrigði og
naer óaðfinnanlega flutta tónlist
eftir hina gömlu meistara,
Mozart, Hándel, Schubert og
Wolf.
|' Reyndar létu refsinornirnar
ekki lengi standa á sér. Á sama
tíma sem æskulýður landsins,
ixpplýstur af langri skólagöngu
og konfirmaður af kanasjónvarpi,
sprengir gólandi utanaf sér
stærstu hljómleikasali bæjarins,
ef getur þar að heyra og sjá
arftaka hellisbúa steinaldar og
öskurapa frumskóganna, máttu
j þessar ungu og indælu listakonur
! ihorfa yfir ekki nærri fullt hús
á síðari tónleikunum. Þeir áheyr-
endur sem gáfu sér þó stund frá
kveldsins amstri til þess að
sitja þessa stund í Gamla Bíó og
hlýða á óperu- og ljóðasöng
fengu ómak sitt hundraðfalt end-
urgoldið. Guðrún Tómasdóttir er
engin valkyrkjusópran, en þeir
sem þekktu rödd hennar og aðra
hæfileika höfðu alla ástæðu til
að vona, er hún hvarf af Jandi
brott til söngnáms, að árangur-
inn yrði hinn gagnmenntaði, fág-
aði og stílhreini söngur er lét
i í eyrum á fimmtudagskvöldið. Og
xneðan ég man, leikmannseyru
! gátu enganveginn greint þetta
i portamento, sem einhver var að
j gagnrýna á fyrri tónleikunum.
j Hinn finnst mér óþarfi fyrir ís-
! lenzka söngkonu að leggja sér
til hið nauðaljóta flatþýzkunnar
guttulrala r, í stað þess að nota
hreint tungbrodds r, við þýzku
textana sem mér er sagt að
minnsta kosti teljist ekki fram-
burðar galli hjá menntuðum
Suður-Þjóðverjum og fer miklu
betur í söng.
f* Söngmenning virðist vera í lág
gengi meðal íslendinga sem
stendur. Það teljast sem sagt við-
burðir, ef einhver hinna mörgu
ágætu söngvara okkar vogar sér
út í konsertævintýri. Ennfremur
höfum við talsvert af frambæri-
legum lagasmiðum en verk
þeirra eru ekki frekar fáanleg
í músikbúðum en hárlokkur af
höfði heilagrar Sesselju, þó hest-
burðir af amerísk- enskri dægur-
lagamúsik seljist daglega.Músik-
snobberíið lætur að vísu sjaldan
á sér standa, a.m.k. á einn kon-
sert, ef til landsins kemur söng-
stjarna fræg úr útlöndum til að
klappa upp 2 aukalög. En þó
höfuðstaður íslands geti" ekki
dregið að sér til starfa stjörnur
á borð við þær er dvelja við
Scala eða Covent Garden, væri
æskilegt að músikunnendur hér
sýndu þann skilning að hinir
ágætu söngvarar okkar sem eru
að koðna niður vegna verkefna-
skorts fengju tækifæri til þess að
halda list sinni við og þyrftu ekki
að flýja land til þess að syngja
eða fara til sjós í föðurlandi sínu
til þess að lifa. Þetta er sérstak-
lga skrifað með það í hug að
okkur skortir áreiðanlega ekki
efni á að halda þá vel, ef við
getum fleygt milljónum árlega
til þess að flytja inn hellisbúa
úr enskum hafnarbæjum og
hottintottska blásara okkur til
uppbyggingar, og greitt í bein-
hörðum gjaldeyri án þess að
blikna.
Áhugi fyrir sönglist, skák,
skáldmennt eða bítlagóli er að
mjög miklu leyti áróðursspurs-
mál og hér hvílir ábyrgðin að
langmestu leyti á forráðamönn-
um þjóðarinnar, menntafrömuð-
um, útvarpi og blöðum. Það þarf
örugglega ekki að auglýsa oft þá
staðreynd dagsins á viðeigandi
hátt, að það séu nær eingöngu
hinir vargefnaíi unglingar sem
fyllast móðursýkisköstum yfir
hinu rafmagnaða góli gítarlubb-
anna svo að rakarastofurnar
fengu nóg að gera að gefa þess-
um æskumönnum aftur mennskt
útlit. Ekki þyrfti heldur mjög
mikla hvatningu né leiðbeiningu
til þess að hinir fjölmörgu sífróð-
leiksfúsu og oft leitandi hugir
íslenzkra æskumanna létu ekki
fara fram hjá sér listviðburði
eins og konsert Guðrúnanna, en
fögnuðu þeim í þess stað með
orðunum: Mættum við fá meira
að heyra.
Egill Stardal.
— Grlmdarleg
Framhald af bls. 1
fórust. En eftir því sem bezt verð
ur séð kom annar tilræðismann-
anna akandi að sendiráðinu í bif-
reið, sem mun hafa verið hlaðin
um 100 kílóum af sprengiefni.
Maðurinn stöðvaði bifreiðina, og
kom þá lögreglumaður strax á
vettvang «g skipaði honum að
Ihalda á brott. En maðurinn sagði
það útilokað, því bifreiðin væri
Ibiluð. Áður en lögreglumaðurinn
gat frekar að gert kom maður að
á mótorhjóli. Hljóp ökumaður bif
reiðarinnar þá til og settist á sæt-
íð fyrir aftan hjólreiðamanninn,
sem ók þegar af stað. Lögreglu-
maðurinn greip þá til byssu sinn-
ar og skaut að mönnunum á mót-
orhjólinu. Þeir svöruðu í sömu
mynt og féll lögreiglumaðurinn
fyrir skotum þeirra. Annan lög-
reglumann bar þá að. Skaut hann
é ökuman mótorhjólsins og særði
íhann. Missti þá ekillinn stjórn á
hjólinu og féll til jarðar. f sama
mund sprakk bifreiðin við sendi-
ráðið í loft upp með gný miklum,
sem heyrðist í margra kílómetra
fjarlægð. Og í sprengingunni
fórst ósærði samsærismaðurinn.
Sá særði náðist og var handtek-
inn. Heitir hann Nguyen Van Hai
og er 32 ára.
Lögreglan er sannfærð um að
Hai sé meðlimur Viet Cong. Sjálf-
ur ber hann á móti því, en segir
félaga sinn hafa verið það. Út-
skýrir Hai nærveru sína þannig
að félagi hans hafi greitt hon-
um talsverða upphæð fyrir að að-
stoða sig, en ekki tekið fram við
Ihvað. Hélt Hai að hér væri að-
eins um innbyrðis átök tveggja
bófaflokka að ræða. Lögreglan
segir að Hai hafi verið vopnaður
og telur sennilegt að hann hafi
orðið lögreglumanninum við
sendiráðið að bana.
• SENDIHERRANN SÆRÐIST
Alexis Johnson, sendiherra, var
við vinnu í skrifstofu sinni á
fimmtu hæð þegar sprengingin
varð. Allar rúður sendiráðsins
splundruðust við sprenginguna,
einnig rúðurnar í gluggunum hjá
sendiherranum. Við það skarst
Johnson nokkuð í andliti. En áð-
ur en hann lét gera að sárum
sínum sá hann um brottflutning
þeirra, sem meira voru særðir.
Mestar skemmdir urðu á
neðstu hæðinni. Meðal þeirra,
sem þar voru við vinnu, var
Thomas Wilson, ræðismaður. Seg
ir hann svo frá að hann hafi
heyrt skot fyrir framan sendi-
ráðið oig farið út að glugganum
til að athuga hvað um væri að
vera. Sá hann þá bifreiðina og
grunaði hvers kyns var. Leitaði
hann því strax í skjól. En annar
starfsmaður sendiráðsins, Viet-
nam-búi, gekk þá að glugganum.
I því bili varð sprengingin, og
fórst sá, sem við gluggan var,
samstundis. Einnig fórst banda-
rísk stúlka, Barbara Robbins, 21
árs, sem var ritari við sendiráðið,
ag foringi nokkur úr bandaríska
heínum.
• GESTIR FÓRUST
í KAFFIHÚSI
Við sprenginguna tættust brot
úr útvegg sendiráðsins, og flugu
mörg þeirra langar leiðir. Hand-
an við götuna var kaffistofa þar
sem margt manna sat að morgun-
verði er múx- og glerbrotum
Wallace Clark í munkakufli, en þeir félagar voru þannig
klæddir í ferðinni. Hann heldur á líkani af farkosti þeirra.
Fyrirlestur um
St. Columba
ÁRIÐ 1963 voru liðin 1400 ár
síðan írski munkurinn St. Col-
umba sigldi litlum báti með fé-
lögum sínum frá Londonderry á
írlandi til Iona á Skotlandi. Á
þessum tímamótum tóku nokkrir
írskir áhugamenn sig saman um
að fara sömu leið við svipaðar
kringumstæður.
Foringi fararinnar, Mr. Wallace
Clark, er nú staddur hér á ís-
landi og mun hann halda fyrir-
lestur um þessar ferðir í 1.
kennslustofu Háskólans í dag.
Fréttamönnum gafst í gær kost-
ur að hitta Mr. Clark að máli.
rigndi yfir gestina, oig eld- og
reyksúla steig upp í um 100 metra
hæð við sprenginguna. Særðist
mikill fjöldi gestanna, en nokkr-
ir fórust. Mest varð þó mannfall-
ið úti á götunni, og var aðkoman
þar ömurleg á eftir.
Strax eftir sprenginguna var
hafinn brottflutningur særðra.
Margir af starfsmönnum sendi-
ráðsins höfðu fengið glerbrot í
augun, og voru nokkrir þeirra
fluttir flugleiðis til Filipseyja í
dag þar sem sérfræðingar munu
reyna að bjarga sjón þeirra. Ein
starfsstúlka sendiráðsins var
mjöig illa skorin í andliti og á lík-
ama, og um 30 konur aðrar hlutu
andlitsskurði.
Bandarískur liðþjálfi var stadd
ur um 50 metrum frá sendiráð-
inu þegar sprengingin varð. Seg-
ir liðþjálfinn, Lyle Goodwin, að
sprenigin hafi skellt honum tþl
jarðar, en síðan hafi hann haldið
til sendiráðsins. Á leiðinni hras-
aði hann um lík tveggja lögreglu
þjóna. „Það var eins og eldur
Vítis hafi brotizt út“, sagði hann.
Hann hélt fyrst til kaffistofunn-
ar og leit þar inn. Þar lágu 17
manns í blóði sínu, nokkrir þeg-
ar látnir, Aðstoðaði hann hina
særðu við að komast út.
• LOFTÁRÁS Á HANOI?
I Saigon heyrast í dag hávær-
ar raddir um að sprengingin
muni leiða til þess að Bandaríkja
menn geri loftárás á Hanoi. Hafa
mangir Bandaríkjamenn þá sögu
að segja að hermenn og stjórnar-
fulltrúar Suður Vietnam hafi
tekið þá tali og sagt: „Nú eigið
þið ekki um neitt að velja, nú
vei’ðið þið að ráðast á Hanoi.“
Sagði hann við það tækifæri að
leið sú, er þeir félagar fóru sé
um 180 mílna löng. Voru þeir 13
saman. á báti, sem þeir höfðu lát-
ið smíða eftir hinum írsku
curraghs". Tók ferðin 8 sólar-
hringa.
Mr. Wallace Clark kemur hing
að á vegum Anglia, en hann hef-
ur að undanförnu ferðazt um
Bandaríkin og haldið þar fyrir-
lestra um þetta efni. Hann mun
aðeins halda einn fyrirlestur hér
og, eins og áður er greint, verð-
ur hann í 1. kennslustofu Há-
skólans kl. 17,30 í dag.
Talsmenn stjórnarinnar í
Washington vilja hinsvegar ekk-
ert láta upp um hvort gripið verð
ur til sérstakra ráðstafana vegna
sprengjuárásarinnar. George
Reedy, blaðafulltrúi Johnsons
forseta, ræddi við fréttamenn í
dag um málið. Aðspurður um
gagnráðstafanir saigði blaðafull-
trúinn: „Ég get ekkert sagt að
svo stöddu“. Og hann neitaði að
svara því hvort „að svo stöddu“
þýddi það að hann hefði frekari
fréttir að færa innan skamms.
Utanríkismálanefnd Banda-
ríkjaþings kemur saman til fund
ar um málið á morgun, og mun
Maxwell Taylor skýra þar ástand
ið í Vietnam. Talið er að sendi-
herrann muni óska eftir því að
herliði Bandaríkjanna þar verði
fjölgað að mun. Talsmaður utan-
ríkisnefndarinnar, J. W. Ful-
bright, sagði á fundi með frétta-
mönnum í dag að litið væri á
sprengjuárásina mijöig alvarleg-
FRETTIR I
STUTTU MÁLI
LOFTÁRÁS Á N-VIETNAM
Saigon og Tokíó 30. marz (AP
—NTB). — Tuttugu og fjórar
sprengjuflugvélar úr fluglxer
Suður-Viet-nam gerðu í dag
loftárás á flugstöðina við
Dong Hoi ,um 120 kílómetr-
um fyrir norðan lanidamæri N-
Viet-nam. í fregnum frá Sai-
gon segir að flugstöðin hafi
verið gereyðilögð og allar flug
vélar komizt heim. í frétt frá
Hanoi segir hins vegar að
fimm flugvélar hafi verið
skotnar niður. Með sprengju-
flugvélunum voru 15 banda-
rískar orustuþotur.
ÁRÁS Á KÍNVERSKT SKIP?
Tokíó, 30. marz (AP). — Út-
varpið í Peking sakaði í dag
Bandaríkjamenn um að hafa
gért loftárás á kínverskt fiski-
skip út af strönid Hainan-eyju
á Tonkinflóa. Segja Kínverjar
bandarískar flugvélar hafa
gert þrjár atlögur að skipinu,
en geta ekki um mannfall eða
tjón. Talsmaður band.aríska
utanrikisráðuneytisins sagði
í dag að stjórninni væri alls
ókunnugt um árás á ívokkurt
kínverskt skip.
KÚBANSKIR SJÁLF-
BOÐALIÐAR.
llavana, Kúbu, 30. marz (AP).
— Blöð á Kúbu láta mikið
yfir því að stjórn Castros sé
reiðubúin til að senda sjálf-
boðaliða til Suðaustur-Asíu, ef
stjórn Norður-Vietnam óskar
þess. Blaðið Hoy segir i dag
í ritstjórnargrein: „Það ent
engar ýkjur að segja að sér-
hver Kúbúbúi vildi gjaraan
fara sem sjálfboðaliði til vig-
vallanna í Vietnam “
um augum, en hann kvaðst ekki
telja að hún þyrfti endilega að
leiða til loftárása á HanoL
• TAUMLAUS GRIMMD
Lyndon B. Johnson, forseti, gaf
út tilkynningu í dag vegna
sprengjuárásarinnar. Segir hann
þar að þessi „taumlausa grimmd“,
sem hafi orðið jsaklausum íbúum
Vietnam að bana muni aðeins
styrkja þann ásetning Banda-
ríkjamanna að halda áfram að-
stoð sinni við Suður-Vietnam og
efla hana. Vottaði forsetinn ætt-
ingjum hinna látnu samúð.
f London er einnig litið alvar-
lagum augum á árásina og talið
að hún komi í veg fyrir þær fyrir
ætalanir Breta að reyna að miðla
málum í Vietnam. Ekkert hefur
verið látið uppi opinberlega, en
haft er eftir brezkum sérfræð-
ingum að tvennt geti leitt af árás
inni. f fyrsta lagi auknar hefndar
aðgerðir Bandaríkjamanna, í
öðru lagi auknar ofbeldisaðgerð-
ir kommúnista gegn almennum
borgurum í Suður Vietnam,
Af þeim þrettán, sem fórust
í sprengingunni í Saigon, voru
tveir Bandaríkjamenn oig ellefu
Vietnam-búar. Auk þess eru sjö
Bandaríkjamenn og 35 Vietnam-
búar alvarlega slasaðir, en 47
Bandaríkjamenn og 94 Vietnam-
búar minna meiddir.
Nýlt einbýlishús til sölu
Til sölu sérlega vandað og glæsilegt nýtt einbýl-
ishús á góðum stað í Kópavogi. í húsinu eru tvær
stofur, skáli, 3 til 4 svefnherbergi, rúmgott eldhús,
tvö baðherbergi, þvottahús og innbyggður bílskúr
á jarðhæð. Þrennar svalir. Óvenju fallegt útsýni.
Allar nánari upplýsingar gefur:
ÞORÐUR G. HALLDÓRSSON
INGÓLFSSTRÆTI 9.
Símar 19540 og 19191.
Kl. 7,30—9 sími 51566.
tlGNASALAN
U X Y K .1 /\ V I K