Morgunblaðið - 31.03.1965, Síða 27
Miðvikudagur 31. marz 1965
MORGUNBLAÐIÐ
27
Yfir 32 þús bílar á land-
inu í árslok 1964
Ford og Volkswagen flestir af fólksbilum
í LANDINU voru í árslok sl.
32232 bifreiðar og bifhjól, það
er 25.645 fólksbifreiðar, 6.279
vörubifreiðar og 308 bifhjól. í
Keykjavík einni eru 13.890 bílar
og bifhjól. Befur fólksbílunum
fjölgað um 2897 frá því árið áð-
ur, en vörubifreiðum fækkað um
197 og bifhjólum um 8. I»a'ó hef
ur verið þróunin undanfarin ár,
að bifhjólum hefur farið fækk-
andi, en fólksbifreiðum og vöru-
bifreiðum hefur farið stöðugt
fjölgandi sl. 10 ár, með fyrr-
nefndri undantekningu á vöru-
Ibifreiðum ÍO'OS til 1964. Árið
1955 voru alls 15.9-*3 bifreiðar og
biflhjól í landinu eða meira en
Ihelmingi færri en árið 1964.
Þessar upplýsingar er að finna í
bifreiðaskýslu Vegamálaskrifstof
Af fól'ksbifreiðum eru 112 teg-
undir, sem skiptast þannig: 3124
Ford eða 12,2%, 3074 Volkswag-
en eða 12,0%, 2401 Willy’s Jeep
eða 9,4%, 1931 Moskwitoh . eða
7,5%, 1612 Opel eða 6,3%, 1481
Skoda eða 5,8%, 1473 Chevrolet
eða 5,7%, 1342 Land-Rover e'ða
5,2%, 815 Mercedes-Benz eða
3,2%, 794 G.A.Z. 69 eða 3,1%, 794
Volvo eða 3,1%, 524 Fiat eða
2,0%, 502 Austin eða 1,9%, 482
Renault eða 1,9%, 433 Dodge eða
1,7%, 411 Austin Gipsy eða 1,6%,
325 Vauxháll eða 1,3% 288
Plymoutíh eða 1,1%, 274 Trabant
P 60 eða 1,1%, 271 Her-Jeep eða
1,0%, 268 Simca eða 1.0%, 220
Buick eða 0,9%, 200 Rambler eða
0,8%, 175 Mercury eða 0,7%, 174
Morris eða 0,7%, 171 Saab eða
0,7%, 143 Pobeda eða 0,5%, 116
Skíðafargjöld
FÍ um páskana
Volga eða 0,5%, 109 Willys
Station eða 0.4%, 108 Kaiser eða
0,4%, 106 DAF eða 0,4%, 105
N.S.U. PrinZ eða 0,4% og 1399 af
80 öðrum tegundum eða 5,5%.
Samtals 25.645- bílar. Fólksbif-
reiðir með fleiri en 8 sæti eru
ekki hér meðtaildar.
Af vörubifreiðum eru 109 teg-
undir og eru þar flestar af
Chevrolet gerð, 1268 talsins eða
20,2% og af Fordgerð 1202 bílar
eða 19,1%. Eru þá ekki meðtald-
ar vörubifreiöir m.eð fleiri en
eitt sæti, en af þeim eru Ford og
Chervolet einnig efstar með 547
og 480 bíla.
Fertugur bíll í gangi.
Elzta bifreið sem talin er 1.
janúar 1965 er frá árinu 1923,
engin er frá árinu 1924, ein frá
1925, báðar fólksbifreiðar og frá
árinu 1926 eru 2 fólksbílar og 2
vöruöílar. Frá árganginum 1927
er einn fólksbíll, en úr því fer að
fjölga í árgöngunum, frá 1942
eru t.d. mjög margir eða 1169
bílar og sömuleiðis frá 1946 eða
2358 bílar og bílar frá sl. ári eru
3378 talsins, en 1965 komnir 678
bílar.
R.annsóknarstöðin ARLIS II, á ísjakar.um, sem flýtur nú suð-
_ ur með Grænlandi um 640 km. norðan við Island.
Jakinn með vísindamönnunum
í TILEFNI af skíðalandsmóti,
Skíðamóti Islands, sem haldið
verður á Akureyri um páskana
og skíðaviku á Isafirði á sama
tíma, hefir Flugfélag íslands
ákveðið að sérstök „skíðafar-
gjöld“ skuli gilda frá Reykjavik
til Akureyrar og ísafjarðar frá
8.-25. apríl að báðum dögum
meðtöldum. Skíðafargjöldin eru
30% lægri en venjuleg einmiða-
fargjöld á þessum flugleiðum og
kostar farið Reykjavík — Akur-
eyri — Reykjavík, aðeins kr.
1022,00. Sama fargjald er einnig
í gildi á flugleiðinni Reykjavík
— ísafjörður — Reykjavík um
Strjálir jakarúti
íyrir Blönduósi
Blönduósi, 30. marz.
UNDANFARNA daga hafa stak-
ir og strjálir jakar sézt úti fyrir
Biönduósi, en enginn samfelldur
xs. í morgun sázt dálítið íshrafl
bera við hafsbrún þyert yfir
Húnaflóa. Frá Refasveit, skammt
norðan við Blönduós, en allmiiklu
bærra yfir sjó, sézt um hádegið í
dag mikill ís vestur og norður
af Vatnsnesi og ísrek norður með
Ströndum. í dag er sunnanátt og
við og við dálítil ngnin.g.
15. B.
páskana. Gildisf'mi farmiða er 7
dagar.
Skíðamót íslands, Akureyri
Skíðamót íslands hefst á Akur
eyri þriðjudaginn 13. apríl og
lýkur á annan páskadag, 19.
apríl. Skíðamótið fer fram við
Skíðahótelið í Hlíðarfjalli, en þar
er sem kunnugt er, hin ákjósan-
legasta aðstaða til skíðaferða.
Tvær skíðalyftur eru í Hliðar-
fjalli, önnur við hótelið en hin
nokkru ofar við svonefndan
Stromp.
Margt verður til skemmtunar
meðan mótið stendur, kvöldvök-
ur í Skíðahótelinu og skemmtan-
ir í samkomuhúsum bæjarins.
Skíðavikan á ísafirði
Á ísafirði verður skíðavika
um páskana og einnig þar verður
margt til skemmtunar. í- ná-
grenni skíðahótelsins í Seljalands
dal er frábært skíðaland. Þarna
mun gestum hótelsins og öðrum
er dvelja á ísafirði skíðavikuna,
gefinn kostur á skíðakennslu,
skíðaferðir verða skipulagðar um
nágrennið, en á kvöldin verður
efnt til kvöldvaka í skíðahótel-
iinu og skemmtanir verða í sam-
komuhúsum á Isafirði.
Skíðafargjaldið Reykjavík —
Isafjörður — Reykjavík, er sem
fyrr segir kr. 1022,00 og gildis-
tími farmiðanna 7 dagar frá því
lagt er upp I ferð.
ilifreiðarnar á slysstað í gær. (Ljósm. Mbl.: Sv. Þorni.)
Ctúlka meidivist í árekstii
Á 2. TÍMANUM í gær varð harð
ur árekstur á mótum Túngötu
og Hofsvallagötu. Gerðist það
þannig, að vestur Túngötu var
ekið bifreið af gerðinni Willys
statíon. í sömu fund var ekið
austur Túngötuna fólksbifreið af
Öpel-gerð. Er á mótum Hofsvalla
götu kom, sveigði Willys-bifreið
in til hægri, og mun ökumaður
hennar ekki hafa veitt Opel-bíln
um eftirtekt. Afleiðingarnar urðu
þær, að bifreiðarnar skullu sam
an og skemmdust báðar nokkuð.
Stúlka, sem var fariþegi í Opel-
bílnum, skarst í andliti og var
flutt í Slysavarðstofuna.
um 640 km. norður frá íslandi
ÍSJAKINN fljótandi, Arlis II,
sem Hafrannsóknardeild
Bandaríkjaflotans hefur haft
rannsóknarstöð á síðan 1961,
og nú flýtur suður með aust-
urströnd Grænlands, er um
það bil 640 km. norður af ís-
landi, en frá þessari stöð sagði
dr. Britton, sem stjórnar þess
um rannsóknum, í viðtali við
Mbl. í febrúarmánuði.
S.l. laugardag var flugvél
sú, sem hingað til hefur ann-
azt vistaflutninga til vísinda-
mannanna á jakanum frá
Point Barrow í Alaska flutt
til Keflavíkurflugvallar og
verður framvegis haldið uppi
birgðaflutningum til þeirra
frá íslandi, en yfirmaður
þeirra er amerískur vísinda-
maður að nafni John Schind-
ler. Er gert ráð fyrir að flug-
vélin flytji einnig vísinda-
mennina af jakanum, þegar
ekki verður lengur talið óhætt
að hafast við þar.
Þá berast fréttir frá Boston
um að ísbrjóturinn Atka hafi
lagt af stað s.l. mánudag til
að aðstoða við að ná mönnun-
um af jakanum, ef nauðsyn-
legt verður að flytja þá þaðan
öðru vísi en flugleiðis. Jakinn
sé nú kominn inn í Austur-
Grænlandsstrauminn og berist
til suðurs í hlýrri sjó með 16
km. hraða á dag og því sé
farið að hugsa til þess að ná
mönnunum, sem eru 18 talsins
af jakanum. Á ísbrjóturinn
sem sagt að halda til íslands
og vera til taks, ef á þarf að
halda. Ekki er þó gert ráð fyr-
ir að flytja þurfi vísindamenn
ina af jakanum fyrr en í lok
aprí: eða byrjun maí.
Alþ]óða sfóstangavelði-
mót hér um hvítasunnuna
UM HVÍTASUNNUNA verður
efnt til 6. alþjóða sjóstangaveiði-
mótsins hér á landi. Fer það að
þessu sinni fram frá Keflavík,
dagana 4.—7. júní n.k. Áður hafa
slík mót verið haldin í Vest-
mannaeyjum og Reykjavík og
hafa jafnan verið vel sótt. Mótið
verður sett að kvöldi þess 4. júní
Útför frú Linzzo
gerð í gær
Detroit, Michigan, 30. marz (AP)
í DAG var gerð í Detroit útför
frú Viola Gregg Liuzzo, sem
myrt var í Alabama í fyrri viku.
Athöfnin var eins fábrotin og
unnt var miðað við aðstæður. Þó
var þar margt kunnra manna.
Útförin var gerð frá „Heart of
Mary“ kirkjunni í Detroit. Full-
trúi Johnsons forseta við útför-
ina var Lawrence Gubow, sak-
sóknari Michigan-ríkis. Meðal
annarra gesta voru dr. Martin
Luther King, leiðtogi blökku-
manna og handhafi friðarverð-
launa Nobels, James Farmer og
Roy Wilkins, sem báðir eru
leiðtogar í baráttunni fyrir jafn-
rétti blökkumanna, Walter P.
Reuther, forseti samtaka verka-
manna hjá bílaiðnaðinum og
James Hoffa, forseti samtaka
flutningaverkamanna. En eigin-
maður frú Liuzzo starfaði hjá
samtökum flutningaverkamanna
í Detroit.
af formanni Sjóstangaveiðifélags
Reykjavíkur, Birgi J. Jóhanns-
syni, tannlækni, en mótið er hald
ið að tilhlutan þess í samvinnu
við Stangaveiðifélag Keflavíkur-
flugvallar.
Veiðikeppnin hefst svo að
morgni 5. júní og stendur yfir
í þrjá daga. Verður siglt á miðin
frá Keflavík kl. 10 á hverjum
morgni, en bátar eiga að vera
komnir aftur í höfn kl. 6 að
kvöldi. Að mótinu loknu á annan
í hvítasunnu verður haldið
kveðjuhóf á Keflavíkurflugvelli,
þar sem úrslit verða tilkynnt og
verðlaun afhent.
Keppt verður um mörg og
glæsileg verðlaun m.a. Flugfélags
bikarinn, Roff-styttuna, gull- og
ADALFIJNDI miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins lauk sl. mánu-
dagskvöld í Reykjavik. Eysteinn
Jónsson var kjörinn formaður
flokksins fyrir næsta kjörtima-
bil.
Að öðru leyti skipa flokks-
stjórnina Ólafur Jóhannesson,
varaformaður, Helgi Bergs, rit-
ati, Sigurjón Guðmundsson,
gjaldkeri, Jóhannes Elíasson,
vararitari, og Kristján Benedikts
silfurverðlaun gefin af Alþjóða-
^"'b^ndl sjóstangaveiðifélaga
(ICSA) o.fl.
Meðan mótið stendur yfir,
munu þátttakendur gista á Keflá
víkurflugvelli og hafa þar sama
stað. Þátttökugjald er ákveðið
kr. 3000,00 og er innifalið í því
gisting og máltíðir allar, báts-
leiga og beita. Er búist við mik-
illi þátttöku í þessu sjóstanga-
veiðimóti, bæði héðan að heim-
an og eins erlendis frá. Ferða-
skrifstofan Saga veitir allar nán-
ari upplýsingar um mótið og tek
ur á móti þátttökutilkynningum.
Flugmálafélagið
í KVÖLD. miðvikudag, kl. 8,30
heldur Flugmálafélag fslands
fund að Hótel Borg. Þar verða
kjörnir fulltrúar á landsþing
Flugmálafélagsins, sem haldið
verður í Reykjavík 10. apríl.
son, varagjaldkeri.
I framkvæmdastjórn voru
kjörnir Einar Ágústsson, Her-
mann Jónasson, Þórarinn Þórar-
insson, Jóhannes Elíasson, Er-
lendur Einarsson, Sveinn
Tryggvason og Tómas Ámason.
Fimm menn. eru sjálfkjörnir í
miðstjórn: formaður, ritari, gjald
keri, varaformaður og formaður
Sambands ungra framsóknar-
manna.
Eysteinn Jónsson endur-
kjörinn for maður
Framsóknarflokksins