Morgunblaðið - 06.05.1965, Síða 20

Morgunblaðið - 06.05.1965, Síða 20
M' 20 ** WáR'tfifífiðÁtíl Ð FimmtudagUr 0. maí 1969 Lóð í Kópavogi Til sölu eru byrjunarframkvæmdir að einbýlishúsi á mjög góðum stað í KÓRavogi. Glæsileg teikning, sökkalr og tröppur komna,r. .Timbuf og járn í allt húsið, fylgir svo og allar teikningar. öll lóðagjöld greidd. Teikning til sýnis á skiifstofunrú. SKIPA OG FASTEIGNASALAN Kirkjuhvoli. — Símar 14916. og 13842. Heimasaumur Óskum eftir vönumt konum til að sauma herra og drengjabuxur heima. Nafn og símanúmer sendist Mbl. merkt: „Hátt kaup — 7178“ fyrir föstudags- kvöld. Kjötiðnaðarma&ur með nokkra reynslu óskar eftir atvinnu í R.-vík. ^eða úti á landi. Hefur starfað sjálfstætt að undan- förnu. Æskilegt að íbúð fylgi, þó ekki nauðsynlegt. Tilboð sendist á afgr. Morgunblaðsins merkt: „7176“. Einhleypur eldri maður í tryggri atvinnu óskar eftir herbergi helzt með sér inngangi, helzt í Hliðunum. Uppl. í síma 24407 allan daginn og kl. 7—8 e.h. i síma 15782. Akranes Nýlenduvöruverzlun í fullum rekstri á góðum stað í bænum til sölu. — Upplýsingar gefur: Lögfræðiskrifstofa Stefáns Sigurðssonar, Vesturgötu 23, Akranesi, sími 1622. Glæsilegur bíll Opel Kapitan árg. 1960. Lúxus módel. Ekinn aðeins um 35 þús. km til sýnis og sölu á Bílasölu Guð- niundar símar 19032 og 20070. Danskar bœkur Seljum næstu vikur gamlar danskar bækur mjög ódýrt. Notið þetta sjaldgæfa tækifæri. Bókaverzlun STEFÁNS STEFÁNSSONAR, Laugavegi 8 — Sími 19850. Auglýsing usn sveinspróf Sveinspróf í löggiltum iðngreinum fara fram um land allt í maí og júní 1965. Meisturum og iðnfyrirtækjum ber að sækja um próf- töku fyrir þá nemendur sina, sem lokið hafa námstíma og burtfararprófi frá iðnskóla. Ennfremur er heimilt að sækja um próftöku fyrir þá nemendur sem eiga 2 mánuði eða minna eftir af náms- tíma sínum, enda hafi þeir lokið iðnskólaprófi. Umsóknir um próftöku sendist formanni viðkomandi prófnefndar fyrir 15. maí n.k. ásamt venjulegum gögnum og prófgjaldi. Meistarar og iðnfyrirtæki í Reykjavík fá umsóknar- eyðublöð afhent í skrifstofu iðnfræðsluráðs, sem einnig veitir upplýsingar um formenn prófnefnda. Reykjavík, 3. maí 1965. IÐNFRÆÐSLURÁÐ. — Upp / loftið Framhaid af bls: 17 við bryggju og biður gesta sinna, sex hundruð og fjörutíu að tölu. Hér hófst "nú langvinh bið og þreytandi þóf um eitt og- annað, í tollbúðinni og salarkynnum skipaafgreiðslunnar. Mannfjöldi af mörgu þjóðerni stóð hér 1 bið- röðum meðan afgreiðslufólk bar farseðla þess saman við farþega- skrárnar og káetunúmer hvers einstaks farþega. Við hjónin höfðum á ferðaskrifstofu Benn- etts í Kaupmannahöfn fengið ká- etu númer 331, sem var tveggja manna klefi. Þegar við nú loks- ins komumst að afgreiðsluborð- dn, þá skýtur upp þvl óvænta og óskiljanlega vandamáli, að ekki sé lengur nema eitt rúm laust í káetu númer 331, það sé bara einn Danielsson á listanum þeirra. Farseðillinn minn, sem ég veifaði þarna framan, í þá, sýndi hins vegar, að greitt haíði yerið fargjald fyrir tvo farþega á minu nafni og höíðu báðir káetu núm- er 331. „Já,“ segja þeir innan við borðið, „í gær var allt í lagi, en í dag kom skeyti frá ferðaskrif- stofu yðar á Norðurlöndum, þar sem segir að annað ykkar hjóna hafi hætt við ferðina. Við erum búnir að setja annan farþega með yöur í klefann.“ „Kannski aðra konu?“ spurði ég, en þeir önzuðu mér ekki og ypptu öxl- um og gátu ekk'ert gert. Náttúr- lega trúði ég þeim ekki, en þeir héldu dauðahaldi við sína lýgi eða sinn misskilning, og loks skarst frú Kaiser í leikinn og sagði að Sigriður skyldi þá fá sinn klefa, þar til úr þessu greiddist, engin leið myndi í svip inn að leysa málið á annan hátt. Með það sluppum við um borð í Atlantica, og var klukkan þá langt gengin átta um kvöldið. „Mt. Atlantica“ — þetta gríska skip, sem er 14 þúsund lestir að stærð, er eign Typaldos bræðra í Aþenu. Mér var sagt þeir ættu heilan flota farþegaskipa og í hverri grískri höfn þar sem skip þeirra hafa viðkomu, eiga þeir marga stóra langferðabíla til þess að aka ferðafólkinu upp í sveit að skoða rústir eða til nálægra borga. Já, miklir menn eru Ty- paldosbræður og lifa enn og búa í Aþenu, en fæddir eru þeir og uppaldir á Korfu. í ferðaáætlun „Atlantica" segir svo um skipið, að það sé 170 metra langt og 25 metra breitt. Skipið hefur € þilför. Á efsta þil- fari er sundlaug, sólskýli og setu- stofa, Einnig eru innanborðs skrifstofa, bókasafn, danssalir, tveir vínbarir, rakarastofa, sjúkrahús með fastráðnum lækni, búð með tollfrjálsum vörum, kvikmyndasýningasalur, íþrótta- salur og banki. Fleira nenni ég ekki að telja upp. Bræðurnir kalla þetta skip sitt „fljótandi lúxushótel" og satt að segja má það til sanns vegar færa. Því fór þó fjarri að mér fyndist svo fyrsta kvöldið. Mér fannst allt snarvitlaust, — farþegafjöldinn ruddist um ganga og sali eins og innikróað stóð. Sumir fundu ekki klefa sína, sumir fundu ekki far- angur sinn. Þeirra á meðal var ég. Það var sama hvar ég leitaði, töskurnar fundust ekki. Þær fundust ekki fyrr en daginn eft- ir. En seint um kvöldið sann- færðist ég um að káetan mín númer 331 var engum ætluð, nema okkur hjónunum, og losn- aði frú Kaiser því við að ganga úr rúmi fyrir Sigríði. — Skipið leysti landfestar klukk- an tíu og seig þungt og hægt út í nætursortann á Adríahafi. Það var þoka og regn og strekkings- vindur og fyrr en varði voru torfin hafnarljós Feneyjaborgar og ekkert framundan nema stjörnulaus nótt. Gert var ráð fyrir landgöngu í Split næsta dag, júgóslavneskri hafnarborg. Ég heyrði að einhver veinaði og kastaði upp í næsta klefa, — gat það verið Miðjarðarhafið sem lék gesti sina svo grátt? Morguninn eftir lægði vind og létti til, en svo hafði skipinu seinkað um nóttina vegna þoku, að enginn tími reyndist til við- Attanuca. komu í Split og var siglt suður með strönd Dalmatíu þennan dag allan, var stundum landsýn, stunndum ekki, um • kvöldið rétt fyrir rökkur sá til fjalia í Al- baníu, og var sjór nú sléttur, og sló tunglið gullinni braut allt til lands, en engan sá ég aka eftir henni til fundar við félaga Hoxa. Aftur á móti efndi skipstjóri okkar til kokteilveizlu í stærsta sal skipsins og bauð til hennar öllum sem þiggja vildu. Gerðist almenningur nú heimavanur um borð, og þótti öllum vel hafa rætzt úr vandkvæðunum frá kvöldinu áður. Látum hér stað- ar riumið úiri sinn, í þann mund, sem óskirnar byrja að rætast. Vínarborg, 25. apríl 1965. Ódýrt! Ódý r a Utigallar barna a^eiaas: kr. J95,— t i:7l|Fl3 Smásala Laugavegi 81. Stúlka sem ætlar að fara að stunda nám í stúdentadeild 'Kennaraskóla íslands n.k. vetur óskar eftir herbergi og fæði eða eldhúsi frá 1. sept. n..k Húshjálp, barna- gæzla eða lestur með skólabörnum kæmi mjög til greina. Tilboð sendist Mbl. fyrir 15. maí merkt: „X — 7500“. Skrifstofumaður 'óskasl Nýútskrifaður piltur með verzlunar- eða samvinnu- skólamenntim óskast sem allra fyrst. GEORG ÁMUNDASON & CO. Laugavegi 172. Skrifstofustulka Óskum eftir að ráða stúlku til skrifstofustarfa. Æskilegt að stúlkan sé vön algengum skrifstofu- störíum. MJÓLKURFÉLAG REYKJAVÍKUR Laugavegi 164. Skemmtílegar íbúðir 5 herbergja hæð í 4ra íbúða húsi við Brekkulæk. Múrhúðaður bilskúr fylgir. 4ra herbergja stór, en lítið niðurgrafin kjallaraíbúð í sama húsi. íbúðirnar seljast tilbúnar undir tréverk og húsið full gert að utan. Hvor íbúð hefir: sér inngang, sér hita- veitu og sér þvottahús. Gatan verður malbikuð í sumar. Mjög skemmtileg teikning til sýnis hér á skrifstofunni. ÁRNI STEFÁNSSON, HRL. Málflutningur — Fasteignasala Suðurgötu 4. — Sími 14314. Eftir kl. 20 — Sími 34231.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.