Morgunblaðið - 06.05.1965, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 6. maí 1965
MORGU N BLAÐID
23
t
—Alumínverksmiðjan
1 Framh. áf bls. 8.
Það yrði áskilið af hálfu Is-
lendinga, að Swiss Aluminium
ábyrgðist greiðslu skuldbindinga
verksmiðjufélagsins vegna orku-
kaupa og þá lágmarksgreiðslu
þess með sjálfskuldarábyrgð,
þannig að hægt verði að ganga
að því jafnharðan, ef dótturfé-
lagið skyldi bregðast. Frá hinni
skilorðslausu lágmarksgreiðslu
yrði því aðeins gerð undantekn-
dng, að afhending eða nýting á
xaforku yrði fyrir truflun af óvið
ráðanlegum ástæðum. I>að er að
sjálfsögðu mikilvægt samnings-
atriði, bæði fyrir aðilana og lán-
veitendur þeirra, hvað telja beri
óviðráðanlegar ástæður í þessu
sambandi og hver skuli vera
áhrif þeixra. Eru umræður um
jþau efni enn á byrjunarstigi.
Gert er ráð fyrir því, að grunn-
verð á raforku til verksmiðjunn-
ar verði 2,5 mill eða 10,75 aurar
á kwst. Má ætla, að þau kjör
muni reynast viðunandi fyrir ís-
lendinga og geti tryggt Búrfells-
virkjun traustan starfsgrundvöll.
Raforkuverðið verður tiltekið í
bandarískri mynt og að því leyti
gengistryggt. Mun það haldast
óbreytt fyrstu 15 árin, en breyt-
ist þá í samræmi við áorðnar
breytingar á reksturskostnaði
Búrfellsvirkjunar og síðan reglu-
lega á sama hátt á 5 ára fresti.
Verður orkuverðið þá endur-
skoðað með tilliti til breytilegra
kostnaðarþátta við orkuvinnsl-
una og því breytt til hækkunar,
ef framleiðslukostnaður á hverja
xaforkueiningu frá Búrfellsvirkj-
un hefur hækkað, en um lækkun
á orkuverðinu niður fyrir grunn-
verð verður ekki að ræða. Verði
samningar aðilanna framlengdir
fram yfir 25 ár, verður grunn-
verðið endurskoðað samkvæmt
nánar tilteknum reglum, eins og
síðar verður að vikið.
Af hálfu Alþjðabankans hefur
verið lögð áherzlu á nauðsyn
þess, að raforkuverðið verði
hærra en 2,5 mill á kwst. á fyrstu
starfsárum virkjunarinnar meðan
vinnslugeta hennar er ekki full-
nýtt. Eru fulltrúar Swiss Alum-
inium reiðubúnir til að fallast á
það fyrir sitt leyti, að slík til-
högun Verði viðhöfð, enda verði
þá í sköttum verksmiðjunnar
fullt tillit tekið til þeirrar hækk-
unar á reksturskostnaði, sem
þessi hækkun á raforkuverðinu
hefði í för með sér. Hefur að
undanförnu verið miðað við það,
að orkuverð yrði 3 mill á kwst.
fyrstu 5—10 árin. I>ó er nú talið
æskilegt af hálfu beggja aðila,
að þessi hækkun raforkuverðsins
vari ekki lengur en til þess tíma,
er verksmiðjan nær fullri stærð.
5. Skattamál
Það hefur frá upphafi verið
eitt meginviðfangsefni viðræðn-
anna að kanna, hvort hægt væri
að finna skattlagningu verk-
smiðjufélagsins hér á landi sér-
etakt form, sem báðir aðilar gætu
sætt sig við. Hefur því einkum
verið kannað, hvort unnt væri
eð semja um fastan skatt, sem
miðaður væri við almenna skatta
byrði á íslandi samkvæmt gild-
andi lögum og umreiknaður sem
ákveðið gjald af tiltekinni fram-
leiðslueiningu í verksmiðjunni.
Var hægt að gera sér nánari
grein fyrir möguleikum í þessa
átt eftir að Swiss Aluminium
hafði lagt fram nákvæmar skýrsl
ur um arðsemi verksmiðju sinn-
ar sumarið 964. Hefur niðurstað-
an orðið sú, að æskilegt væri að
freista þess að fara þessa leið.
í samræmi við þetta er nú gert
ráð fyrir því, að í stað almennrar
skattlagningar á íslandi verði
verksmiðjufélaginu g e r t a ð
greiða einn skatt eða framleiðslu-
gjald miðað við hvert tonn af út-
skipuðum málmi, er yrði tiltek-
inn með ákveðinni upphæð í
bandarískri mynt og að því leyti
gengistryggður. Skattur þessi
verði 20 dollarar á tonn fyrstu
15 ár hvers áfanga verksmiðj-
unnar, en eftir það 35 dollarar
á tonn, eða nánar tiltekið sem
hér segir:
1) Frá upphafi starfræksiu og
þar til 15 árum eftir að 1. áfangi
verksmiðjunar á að taka 'til
starfa $20,00.
2) Eftir það Og þar til 15 árum
eftir að 2. áfangi verksmiðjunnar
á að taka til starfa $27,50.
3) Eftir það og þar til 15 árum
eftir að 3. áfangi á að taka til
starfa $31,25.
4) Eftir þann tíma $35,00.
Skatturinn verður væntanlega
nokkru lægri fyrstu árin meðan
verksmiðjan er enn ófuilbyggð
og raforkuverð hærra en 2,5 mili
af þeim sökum.
Grunnskattur þessi er miðaður
annars vegar við almenna skatta-
byrði fyrirtækja á íslandi og
hins vegaT við áætlaðar tekjur
verksmiðjunnar miðað við nú-
gildandi heimsmarkaðsverð á al-
uminiummálmi, en það er 24,5
bandarísk cent á enskt pund.
Verður hann háður breytingum
til hækkunar eða lækkunar í
samræmi við breytingar á heims-
markaðsverðinu. Helzt hann ó-
breyttur meðan verðið helzt milli
22—27 centa á pund. Fyrir hvert
cent á pund, sem heimsmarkaðs-
verðið hækkar eða lækkar út
fyrir þessi mörk, skal skatturinn
breytast um 7 dollara til hækk-
unar eða lækkunar, eða sem svar
ar y3 úr centi. Við hækkun um
brot úr centi hækkar skatturinn
um samsvarandi brot af þessari
upphæð.
Skattbreytingar þessar verða
sjálfkrafa án tillits til þess, hvort
breyting verður jafnhliða á fram-
leiðslukostnaði verksmiðjunnar.
Breytingar geta því valdið stór-
kostlegri og jafnframt óeðlilegri
hækkun á skattbyrði verksmiðj-
unnar og hefur Swiss Aluminium
eindregið óskað eftir samnings-
fyrirvara, er tryggt geti aðstöðu
hennar að þessu leyti með sann-
gjörnum hætti. Er talið eðlilegt
að heimila fyrirtækinu að óska
eftir leiðréttingu, ef skattar þess
færu fram úr 50 af hundraði af
ágóða, þannig að skattbyrði þess
yrði ekki þyngri á neinu ári en
sem þessu nemur. Skuli félagið
eiga þess kost að bera fyrir sig
þetta hámark með því að leggja
fram rekstrargögn, er gerð séu
á hlutlægum grundvelli viðskipta
milli óskyldra aðila og fullnægi
að öðru leyti kröfum íslenzku
ríkisst j órnarinnar.
Jafnframt hefur Swiss Alum-
inium fallizt á þann fyrirvara, að
skattur fyrirtækisins yrði aldrei
lægri en sem nemur 100 þúsund
dollurum á ári af 1. áfanga verk-
smiðjunnar og 200 þúsund do.ll-
urum af verksmiðjunni full-
byggðri, og yrði þessi lágmarks-
skattur greiddur án tillits til
þess, hvort ágóði eða tap væri
af rekstri verksmiðjunnar.
Ætla verður, að ofangreint
skattfyrirkomulag geti orðið til
að leysa margháttuð vandamál í
sambúð fyrirtækisins við íslenzka
aðila og þá ekkj síður í eftirliti
þeirra með afkomu þess, þar sem
verksmiðjan verður liður í langri
framleiðslukeðju undir hand-
leiðslu Swiss Aluminium. Jafn-
framt benda líkur til þess, að
fyrirkomulagið standist mjög vel
samanburð við íslenzka skatta
samkvæmt núgildandi lögum, að
því er varðar arðsemi þess fyrir
þjóðarbúið. Kemur þar ekki sízt
til greina, að hér verður um að
ræða fastar greiðslur allt frá
fyrstu tíð. Á hinn bóginn hefur
þótt eðlilegt, að fyrirtækinu
verði gefinn kostur á að hverfa
frá þessu fyrirkomulagi og segja
sig undir íslenzk skattalög, enda
verði framtöl þess þá í megin-
atriðum byggð á hlutlægum
grundvelli viðskipta milli ó-
skyldra aðila. Hefur verið rætt
um, að fyrirtækinu skyldi heim-
ila'ð að velja þennan kost í eitt
skipti fyrir öll, eftir að afskriftir
þess væru vel á veg komnar, eða
að loknu 10. starfsári í fyrsta
lagi. Jafnframt var sá fyrirvari
gerður, að skattbyrði félagsins
samkvæmt íslenzkum lögum yrði
þá aldrei hærri en 50 af hundraði
og aldrei lægrj en 33,3 af hundr-
aði af ágóða þess.
Búizt er við því, að áðurnefnd-
ur grunnskattur verði innheimt-
ur með svipuðum hætti og nú er
um útflutningsgjöld. Þar sem
skatturinn er miðaður við hvert
tonn af útskipuðum málmi verð-
ur væntanlega gerður fyrirvari
til að tryggja það, að óeðlileg
birgðasöfnun hjá fyrirtækinu
geti ekki átt sér stað, án þess
að skattur verði greiddur af
málminum miðað við heimsmark
aðsverð á hverjum tíma.
6 Aðflutniingsgjöld
og aðrar greiðslur
Á fundum aðilanna að undan-
förnu hefur verið samkomulag
Um nauðsyn þess, að verksmiðj-
an yrði undanþegin aðflutnings-
gjöldum af byggingarvörum, hrá-
efnum og öðrum rekstrarvörum
til framleiðslunnar, eins og yfir-
leitt tíðkast í öðrum löndum.
Hefur verið rætt um það sem
heppilega lausn þessa máls, að
stofnað yrði með lögum iðnaðar-
fríhöfn hér á landi, er tæki til
starfsemi verksmiðjunnar. Á síð-
ustu fundum aðilanna hefur þó
fremur verið um það rætt, að
veitt yrði bein undanþága frá að-
flutningsgjöldum vegna starf-
semi verksmiðjunnar, og hefði
hún þá sérstaka tollvörugeymslu
fyrir undanþáguvörur. í hvoru
tilfellinu sem er, er gert ráð
fyrir því, að félagið greiði eðli-
legan kostnað af tolleftirliti og
tollmeðferð.
Undanþága þessi er ekki sízt
mikilvæg frá sjónarmiði Swiss
Aluminium að því er varðar vör-
ur til byggingar verksmiðjunnar.
Að því er varðar hráefni og rekst
ursvörur er fyrst og fremst um
að ræða útfærslu á núgildandi
heimild tollskrárlaga til niður-
fellinga á gjöldum af innfluttum
efnivörum og umbúðum til út-
flutningsframleiðslu.
Gert er ráð fyrir því, sem fyrr
segir, að hinn fasti skattur á
framleiðslu komi í stað allrar
almennrar skattlagningar á verk-
smiðjufélagið. Að sjálfsögðu mun
þó undanþágan ekki ná til allra
opinberra gjalda. Það hefur ekki
verið kannað til fulls í viðræðum
aðilanna, hvaða gjöld verði eftir
sem áður lögð á verksmiðjuna.
Þó er þegar gert ráð fyrir því,
að undanþágan muni ekki ná til
eftirfarandi gjalda:
1) Félagslegra gjalda, svo sem
til almannatrygginga, atvinnu-
leysistryggingasjóðs, bygginga-
sjóðs ríkisins eða annarra gjalda,
sem eru í eðli sínu hlunnindi til
starfsfólks og greidd eru af öðr-
um íslenzkum atvinnurekendum.
2) Gjalda, semxí eðli sínu eru
greiðsla fyrir þjónustu við verk-
smiðjufélagið.
3) Skráningar- og stimpil-
gjalda, sem almennt ex-u álögð.
Um stimpilgjöld af hlutabréfum
verksmiðjufélagsins er þess
vænzt af hálfu Swiss Aluminium,
að þeim verði stillt í hóf.
Gert er ráð fyrir samnings-
ákvæðum, er tryggi Swiss Alum-
inium gegn tvísköttun hér á
landi.
7. Samningstími
Ágreiningur aðilanna um lengd
samningstímans hefur verið eitt
erfiðasta viðfangsefni viðræðn-
anna að undanförnu. Hafa is-
lenzku fulltrúarnir jafnan lagt
áherzlu á það, að óeðlilegt væri
að gera bindandi samninga tiL
mjög langs tíma, einkum þar sem
búast mætti við að unnt yrði að
greiða upp stofnlán Búrfells-
virkjunar á 25 árum. Swiss Al-
uminium hefur hins vegar lagt
á það æ ríkari áherzlu, að samn-
ingstími yrði sem lengstur.
Samstaða hefur nú náðst um að
gengið yrði út fxá því, að samn-
ingar aðilanna verði gerðir til
25 ára frá þeim tíma, er 1. áfangi
verksmiðjunnar á að taka til
starfa. Jafnframt skuli hvor aðili
um sig hafa rétt til að krefjast
framlengingar á samningunum
um 10 ára skeið og að því loknu
um önnur 10 ár, enda fari fram
endurskoðun á raforkuverði og
skattamálum verksmiðjunnar í
hvort sinn, ef krafizt er.
Það hefur komið skýrt fram af
hálfu Swiss Aluminium, að æski-
legt væri að tryggja áframhald-
andi rekstur eða uppgjör verk-
smiðjunnar á einhvern hátt, eftir
að samningar félli niður. Jafn-
framt er ljóst, að þeir mundu
reiðubúnir til að afhenda íslend-
ingum endurgjaldslaust tiltekna
eignarhlutdeild í verksmiðjunni,
ef gerðir yrðu bindandi samn-
ingar til lengri tíma. Af hálfu
íslenzku fulltrúanna hefur verið
talið eðlilegra að láta með öllu
ósamið um slík atriði, og leggja
fremur áherzlu á að fá sann-
gjarnan samningstíma.
8. Endurskoðun skatta
og raforkuverðs
Áskilið er að aðilar skuli hafa
rétt til að krefjast endurskoðun-
ar á sköttum fyrirtækisins og
raforkuverði í hvort sinn, ef
samningar verði framlengdir
fram yfir hið umsamda 25 ára
tímabil.
Við endurskoðun skatta er gert
ráð fyrir því, að grunnskattur
á tonn af málmi frá verksmiðj-
unni verði endurmetinn á grund-
velli þeirrar almennu skatta-
byrði, sem þá er við lýði á ís-
landi, enda sé hún ekki hærri en
50 af hundraði, og skýrslna um
rekstrarafkomu fyrirtækisins á
þeim tíma og næstu ár á eftir,
er byggðar séu á fullnægjandi
heimildum.
Umræður um endurskoðun raf-
orkuverðs hafa einkum leitt til
þeirra niðurstöðu, að grunnverði
til verksmiðjunnar verði breytt
til samræmis við breytingar á
orkuverði á nálægum mörkuðum,
auk þess sem heppilegt sé eftir
atvikum að hafa hliðsjón af verð-
hreyfingum á aluminiummálmi.
í því sambandi hafa fulltrúar
Swiss Aluminium lagt megin-
áherzlu á nauðsyn þess, að
tryggja samkeppnisaðstöðu fyrir-
tækisins gagnvart Bandaríkja-
mönnum annars vegar og evr-
ópskum framleiðendum, og þá
einkum Norðmönnum, hins veg-
ar. Telja þeir sig geta fallizt á,
að grunnverðinu yrði þreytt til
samræmis við þann sem lægri
verði af neðangreindum valkost-
um, þó þannig að orkuverðið
til verksmiðjunnar ve'rði aldrei
lægra en 2,5 mill að viðbætt-
um áorðnum hækkunum vegna
breytilegra kostnaðarþátta:
1) 2,5 mill á kwst. að viðbættri
hlutfallslegri hækkun heildsölu-
verðs á raforku í Noregi eða frá
Tennessee Valley Authority, sem
verið hefur stærsti orkuframleið-
andi í Bandaríkjunum um all-
langt skeið.
2) 1,2% af heimsmarkaðsverði
á aluminium, en það jafngildir
í dag tæplega 3 millum.
9. Ýmis aðstaða verksmiðjunaiar
A. Lóð og höfn.
Swiss Aluminium hefur frá
upphafi talið æskilegt, að verk-
smiðjufélagið fengi keypta lóð
undir starfsemi sína, en í við-
ræðum aðilanna að undanförnu
hefur þó verið miðað við það, að
verksmiðjan yrði byggð á leigu-
lóð. Er nú gert ráð fyrir því,
að íslenzka ríkið fái sjálft eignar-
hald á landi og hafnarsvæði í
Straumsvík og láti fyrirtækinu
í té nauðsynlega lóð undir
verksmiðjubyggingar. Fyrirtæk-
ið muni síðan sjálft koma upp
nauðsynlegum tilfæringum á lóð-
inni að því er varðar vatn, hol-
ræsi, götur og rafmagn. Hafnar-
mannvirki á staðnum muni ríkið
byggja og sjá um rekstur þeirra,
en fá tekjur til að standa undir
kostnaðinum með hafnargjöldum,
er lögð verði á flutninga að og
frá verksmiðjunni. Auk þess má
búast við, að höfnin geti orðið
gagnleg uppskipunarhöfn fyrir
meiriháttar flutninga til Reykja-
ness.
Að því er sérstaklega varðar
vatn til starfsemi verksmiðjunn-
ar er 'gert ráð fyrir því, að hún
fái leyfi til þess að bora eftir
vatni á verksmiðjusvæðinu eða í
nágrenni þess, enda sjái hún þá
höfninni fyrir vatni án endur-
gjalds.
B. VarúðarráSstafanir.
Aluminiumbræðslur gefa frá
sér fluorgös, sem kunnugt er,
og geta þau haft skaðleg áhrif á
vissar gróðurtegundir í næsta
nágrenni verksmiðjunnar, eink-
um þar sem skýlt er fyrir vind-
um og loft kyrrt. Að áliti sér-
fræðinga er hverfandi hætta á
því, að skaðleg áhrif geti stafað
af aluminiumbræðslu, sem stað-
sett yrði í hrauninu sunnan Hafn
arfjarðar. Er því ekki gert ráð
fyrir því, að gerðar verði sér-
stakar ráðstafanir til hreinsunar
á útblásturslofti verksmiðjunnar
í byrjun. Hins vegar verður á-
skilið, að verksmiðjufélagið beri
alla áhættu af tjóni af útblásturs-
lofti eða öðrum úrgangi frá verk
smiðjunni í Straumsvík. Verði
tjón af þessum sökum, mundi það
vera fullkomlega skaðabótaskylt
og auk þess skuldbundið til að
grípa til nauðsynlegra varúðar-
ráðstafana, ef hætta yrði talin á
frekara tjóni.
C. íslenzkt vinnuafl og þjónusta
Swiss Aluminium er reiðubúið
til þess að takast á hendur skuld-
bindingar þess gfnis, að nota
skuli íslenzkt vinnuafl við bygg-
ingu og rekstur verksmiðjunnar
eftir því sem framboð og kunn-
átta leyfir. Jafnframt verði verk-
smiðjufélagið skuldbundið til að
þjálfa íslendinga til slíkra starfa
svo fljótt sem auðið er.
Swiss Aluminium er einnig
reiðubúið til þess að skuldbinda
verksmiðjufélagið til að nota is-
lenzkar vörur og þjónustu, þar á
meðal íslenzk skip, tryggingar-
félög og verktaka, bæði við bygg
ingu og rekstur verksmiðjunnar,
ef vörur þessar og þjónusta eru
fáanlegar á samkeppnishæfu
verði.
D. Gjaldeyrismál
Til þess að einfalda gjaldeyris-
eftirlit og meðferð gjaldeyris á
vegum verksmiðjunnar er gert
ráð fyrir því, að verksmiðjufé-
lagið þurfi ekki að yfirfæra til
íslands aðrar greiðslur fyrir
málm en þær, sem samsvara
rekstrarútgjöldum félagsins og
sköttum á íslandi á hverjum
tíma. Er þá jafnframt áskilið, að
félagið ráði jafnan yfir nægu
handbæru fé á íslandi til þess að
geta staðið við rekstrarskuld-
bindingar sínar.
Þess ber að geta, að greiðslur
félagsins fyrir raforku hafa hér
nokkra sérstöðu. Er búizt við því,
að þær fari fram í erlendri mynt
og verði lagðar á sérstakan banka
reikning, sem notaður verði til
að ráðstafa afborgunum á er-
lendum lánum til Búrfellsvirkj-
unar, meðan þær standa yfir.
Hér kemur einnig til sjálfskuldar
ábyrgð Swiss Aluminium á lág-
marksorkugreiðslum félagsins.
Loks er þess að gæta, að
Swiss Aluminium er reiðubúið til
að taka á sig einfalda ábyrgð á
öllum greiðsluskuldbindingum
verksmiðjufélagsins gagnvart ís-
lenzkum yfirvöldum og hinni
fyrirhuguðu Landsvirkjun. Ætla
má; að í þessu felist fullkomin
trygging fyrir greindu fyrirkomu
lagi á gjaldeyrismálum verk-
smiðjufélagsins.
E. Skuldbinding um samfelldau
rekstur
Swiss Aluminium telur sig
reiðubúið til að fallast á tilmæli
íslendinga um það, að verksmiðja
félagsins verði jafnan rekin með
fullum afköstum, eftir því sem
tæknilegar ástæður leyfa, nema
sérstakir markaðsörðugleikar
komi til. Er við því búizt, að
hægt verði að fá nægilega trygga
viðmiðun í þessu efni méð saman
burði við aðrar aluminium-
bræðslur á vegum Swiss Alumin-
ium, og þá fremur einstakar
verksmiðj.ur samsteypunnar al-
mennt. Ekki hefur verið kannað
til fulls á þessu stigi, hvaða við-
ut;lögum verði hægt að beita, ef
brigð verða á þessari skuldbind-
ingu, en að sjálfsögðu er nokkurt
aðhald fólgið í lágmarksskatti
þeim, sem fulltrúar Swiss Alu-
minium hafa þegar talið sig geta
fallizt á. Einföldustu viðurlögin
virðast hér hins vegar vera þau,
að skattleggja verksmiðjuna með
framleiðslugjaldi eins og hún
hefði verið rekin með fullum af-
köstum þann tíma, sem út af
skyldunni væri brugðið.
10. Ábyrgðir af hálfu Swiss
Aluminium
Á það hefur verið minnzt hér
Framhald á bls. 2ð