Morgunblaðið - 20.05.1965, Side 2

Morgunblaðið - 20.05.1965, Side 2
2 MOHCU N BLADIÐ Fimmtudagur 20. maí 1965 — Handritm Framhald af bls. 1 greitt það. Var þetta í fyrsta skipti sem notuð var heimild 73. greinar stjórnarskrárinnar um slíka frestun, ef þriðjung- ur þingmanna undirrit- aði frestunarskjalið. Aðal- hvatamaður mótmæl- anna var íhaldsþingmað- urinn Poul Möller. Enda þótt danska þingið hafi nú afgreitt handritafrum varpið öðru sinni, getur svo farið að um það verði nokk- wrt þref enn um sinn. f gærkvöldi höfðu samkvæmt NTB-frétt 50 þingmenn und- irritað ósk þess efnis að þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram um málið, en 60 þing- menn þarf til þess að af því geti orðið. Frestur til að skila undirrituðu þjóðaratkvæða- skjali er til laugardags, og eins og kemur fram í samtali Morgunblaðsins við K. B. And ersen, kennslumálaráðherra, sem birtist á öðrum stað í blaðinu, liggur ekki fyrir hvort andstæðingum afhend- ingarinnar tekst að fá tilskil- inn þingmannafjölda undir skjal sitt. Ef þjóðaratkvæða- greiðsla færi fram, yrðu 30% atkvæðisbærra manna í Dan- mörku að taka þátt í atkvæða greiðslunni og meiri hluti þeirra að greiða atkvæði gegn lögunum til þess að fella þau. hess má einnig geta, að Arnanefnd hefur ákveðið að leggja málið fyrir dómstólana til þess að fá úr því skorið, hvor hér sé um að ræða brot á dönsku stjórnarskránni. Þá má geta þess að lokum, að ekki er vitað hvort Árnanefnd skýtur málinu til dómstól- anna til að fá úrskurð um það, hvort hér se um eignarnáms- lög að ræða, en það mál er í athugun hjá stjórn Árnasafns, eins og kemur fram í samtali við prófessor Bröndum- Niel- sen, sem einnig birtist á öðr- um staff í blaðinu í dag. Hér á eftir fer frásögn frétta- xitara Morgumblaðsins í Kaup- mannahöfn um afgreiðslu máls- ins í gær. Umraeður og afffreiðsla Þá eru úrslitin ráðin, að minnsta kosti í danska í>jóð- þinginu, sem samþykkti síðdegis í dag með 104 atkvæðum gegn 58 frumvarpið um aflhendingu íslenzku handritanna. Þrír þing- menn sátu hjá við atkvæða- greiðsluna og 14 voru fjarver- andi. 99 BrÖKidum-Nielsen í samtali við l\lbl.: INIej, nu gaar den lös“ PRÓFESSOR Johannes Brönd um-Nielsen hefur ásamt starfs bróður sínum, Westergárd- Nielsen og þingmanninum Poul Möller, verið ákafastur andstæðingur fslendinga í handritamálinu á undanförn- um árum. Morgunblaðinu þótti rétt að eiga við hann stutt samtal í tilefni þess merka atburðar, að danska þjóðþingið hefur nú samþykkt handritafrumvarpið. Frétta- maður Morgunblaðsins sagði í upphafi samtalsins við hinn aldna prófessor: „Jæja, nú er handritamálið leyst“. „Nej“, svaraði prófessorinn, „nu gár den lös“. Síðan skýrði hann frá því, að annaðhvort yrði látin fara fram þjóðaratkvæðagreiðsla um málið eða það yrði lagt fyrir dómstólana. „Stjórnmála mennirnir verða að taka á- kvörðun um atkvæðagreiðsl- una“, sagði hann, „en Árna- nefnd hefur þegar ákveðið að leggja málið fyrir dómstólana — og fá úr því skorið, hvort lögin séu ekki brot á stjórnar- skránni“. „Hver borgar málshöfðun?“ spurði fréttamaður. „Það gera einstaklingar", svaraði prófessorinn ákveðið, „það hefur verið vel séð fyrir því“. Þá sagði prófessor Bröndum Nielsen, að Árnanefnd hefði fengið hæstaréttarlögmanninn Christrup til að fjalla um mál- ið fyrir sína hönd, og ákveða meðferð þess fyrir dómstólun- um. „Hann mun taka ákvarð- anir um það, hvort leggja skuli málið fyrir dómstólana sem eignarnámslög", sagði Bröndum-Nielsen ennfremur. „Þannig eiga stjórnmálamenn- irnir eftir að taka ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðsluna, Árnanefnd hefur einhuga (Jón Helgason var fjarverandi á þeim fundi) ákveðið að leggja málið fyrir dómstólana, en Christrup á eftir að taka af- Bröndum-Nielsen. stöðu til þess hvort farið verði með lögin sem eignarnámslög. Ég álít að lögin séu svo ó- stjórnlega illa úr garði gerð og þeim hafi verið þröngvað gegnum þingið með svo óað- laðandi aðferðum, að málið hefur hlotið að kalla á and- stöðu“. „Yiljið þér ekki óska ís- lendingum til hamingju nú á þessum tímamótum?" „Nei, engar hamingjuóskir", svaraði prófessorinn ákveðið, „það er ekki útséð um málið enn. Það hefur fátt komið mér á óvart og langt síðan við þótt umst sjá, að hverju stefndi í þjóðþinginu, þessvegna tókum við ákvörðun um málshöfð- un“. „Eruð þér í tilefni dagsins í slæmu skapi, prófessor?“ „Nej, slet ikke, málið hefur fengið þá meðferð í þinginu sem ég bjóst við. Það einasta sem komið hefur á óvart er möguleikinn á þjóðaratkvæða greiðslu. Og að lokum vil ég segja: Hér í Danmörku eru margir, sem spyrja bæði sjálfa sig og aðra: Geta íslendingar verið þekktir fyrir að þiggja gjöf, sem ekki er gefin • af dönsku þjóðinni en er aöeins pólitísk gjöf?“ Ekki er vitað, hvort lögin um afhendingu handritanna verða borin undir þjóðaratkvæði. Það er ekki fyrr en á laugardag sem útrunnin er sá frestur, sem and- stæðingar afhendingarinnar hafa til að fá 60 þingmenn til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu. Þó 58 þingmenn séu andvígir af- hendingarlögunum, er ekki víst að þeir séu allir fylgjandi þjóð- aratkvæði. Og þó lögin verði borin undir þjóðaratkvæði, er ekki þar með sagt að þau verði felld. Til þess þarf að minnsta kosti ein milljón kjósenda að greiða atkvæði gegn afhendingu. Þingfundurinn stóð í rúma tvo tíma og voru áhorfendabekk ir þéttsetnir. Fátt nýtt kom fram við umræðurnar, en oft urðu þar miklar orðasennur, einkum er þeir áttust við Poul Möller, taismaður íhaldsflokksins, og K.B. Andersen, kennslumálaráð- herra. Atkvæðagreiðslan fór fram að viðhöfðu nafnakalli, og greiddu jafnaðarmenn og róttæk ir frumvarpinu atkvæði allir sem einn, en óháðir allir á móti. Vinstri flokkur Axels Larsens og íhaldsflokkurinn voru klofnir í nfiálinu. íhaldsþingmennirnir Knud Thestrup og Hanne Budtz greiddu bæði frumvarpinu at- kvæði, eins og búizt hafði verið við ,en rithöfundurinn Hans Jörgen Lembourn og Christian R. Christensen, sem báðir eru þingmenn íhaldsflokksins, sátu hjá. Prófessor Morten Lange, úr flokki Axels Larsens, sat einnig hjá. í lokaumræðunum sagði tals- maður jafnaðarmanna, W. Dup-. ont, að lítið hefði orðið úr þeirri gífurlegu mótmælaöldu, sem Poul Möller hefði reynt að UM ALLT land var bjartviðri og logn eða hæg austlæg átt í gær. Suðvestanlands var hit inn sex til éllefu stig, en ná lægt frostmarki við norður- og austurétröndina. Lægðin suðaustur af Græn- landsodda (Hvarfi) færist í aukana, og var því gert ráð fyrir allhvassri suðaustanátt og lítils háttar rigningu við suðvesturströndina í dag. stofna til í sjónvarpsumræðu ný- lega. Aðeins tveir aðilar hefðu snúið sér til fulltrúa jafnaðar- manna, og ekki hefði verið ó- næðisamt hjá öðrum þingmönn- um af þessu tilefni. Um átta þúsund manns munu hafa snúið sér með mótmæli til skrifstofu Þjóðþingsins, og léti þá nærri að alls hefðu um tíu þúsund manns sent handritanefnd þings ins mótmæli. Ib Thyregod, þingmaður Vinstriflokksins, spurðist fyrir um það, hvaða afstöðu stjórnin tæki til þess að fresta afhend- ingu handritanna, þar til árangur hugsanlegra málaferla liggur fyrir. Sjálfur hefði hann tekið af stöðu til þess, hvort um væri að ræða eignarnámslög árið 1961, þegar hann undirritaði kröfu um frestun staðfestingar afhendingar laganna. Hann kvaðst enn á þeirri skoðun að um eignarnám væri að ræða, og þess vegna ekki vera fylgjandi þjóðarat- kvæðagreiðslu, því þjóðarat- kvæðagreiðsla gæti ekki staðfest eignarnámslög. Það væri erfitt fyrir dönsku stjórnina að kom- ast í þá aðstöðu að hafa skuld- bundið sig þjóðréttarlega til þess, sem ekki væri unnt að verða við rikisréttarlega- Poul Möller gagnrýndi með- feöð málsins hjá handritanefnd þingsins. Minnihluti nefndarinn- ar hefði verið fús til að vinna að lausn málsins með samningum, en meiriihlutinn vísað á bug sér hverri hugmynd um breytingu eða skerðingu á frumvarpinu, eins og það lá fyrir, Um tíu þúsund manns hefur sent þing- mönnum íhaldsflokksins mót- mæli gegn afihendingu. „Væri ekki sanngjarnt, ef hér á að vera um þjóðargjöf að ræ'ða, að beð- ið væri með gjöfina, unz þjóð- inni hefur verið veit ttækifæri til að láta í ljós álit sitt á mál- inu“, spurði Poul Möller enn fremur. Þingmenn lnaldsflokks- ins voru enn fúsir til viðræðna um lausn málsins á norrænum grundvelli og vinna að því að handritin ver’ði gerð að sam- eign Dana og íslendinga. Ilelveg Petersen, þingmaður róttækra, taldi að áframhaldandi barátta Poul Möllers gegn af- hendingu handritanna væri fjarri öllu lagi. Ekki væri orð á gerandi þeim tuttugu þúsund- mótmælum, sem borizt hefðu, þau væru alls óverulegur hluti atkvæðisbærra mann í landinu, sem væru hátt á þriðju milljón. í umræðum um frumvarpið hefðu ekki komið fram neinar þær upplýsingar, er tilefni gasfu til breytinga á því. Kvaðst Helveg Petersen í sjálfu sér vera fylgjandi þjóðaratkvæðagreiðsl- um, einnig um mál á borð við það sem nú er fyrir. En hann sagði að næg tækifæri hefðu gef izt til að ræða málið við kjós- eridur frá því að handritafrum- varpinu var fresta'ð 1961. Þjóðar atkvæðagreiðsla nú yrði til þess eins að fresta afgreiðslu máls- ins- Axel Larsen, þingmaður Sósíal iska þjóðarflokksins taldi þess lítinn kost að taka handritamál- ið nýjum tökum úr þessu. Af- hending handritanna væri sann- girnisatriði. Og enginn fótur væri fyrir fullyrðingunum um að vísindamenn í Danmörku stæðu uppi slyppir og snauðir, ef hand- ritin væru frá þeim tekin. Axel Larsen mælti gegn þjóðarat- kvæðagreiðslu og harmaði að enn skyldi ríkja úlfúð og beiskja, þegar handritafrumvarpið miðaði einmitt að því að efla norræna samstöðu. Áður en K. B. Andersen, kennslumálaráðherra, s v a r a ð i fyrirspurnum, tóku einnig til máls Morten Lange og Poul Dam, þing menn Sósíalíska þjóðarflokksins, og Færeyingurinn Poul Andrea- sen, en hann greiddi frumvai-p- inu atkvæði. Kennslumálaráðherrann sagði að ríkisstjórnin mundi fresta af- hendingu handritanna, þar til fyrir lægi árangur hugsanlegra málaferla. Ekki kvaðst ráðherr- ann geta fallizt á orð Pouls Möll- ers um að frekari samninga hefði verið þörf, og benti á að Árna- nefnd hefði að hans undirlagi átt viðræður við handritanefnd þjóð þingsins. Kvað hann Poul Möller beita kænskubrögðum til að fá handritaafhendingunni frestað. Tillaga hans um að leggja málið fyrir Grænlandsráð væri eitt dæmi um þetta, þjóðaratkyæða- greiðslan annað — og hvað væri það sem fyrir Poul Möller vakti? Sagðist ráðherrann aldrei hafa kynnzt undarlegri túlk- un á fyrirmælunum um þjóð- araatkvæðagreiðslu en þeirri, að vísindamenn ættu að setjast á rökstóla og ákveða, hvað þeir vildu af hendi láta. Per Hækk- erup, utanríkisráðherra Danmerk ur, og dómsmálaráðherrann tóku einnig til máls áður en umræð- unum lauk með snarpri orða- sennu milli Pouls Möllers og K. B. Andersens. Dýrgripir heim til Íslands Dr. Einar Ólafur sagði í frétta- auka í gær, að sérstakur samn- ingur hefði verið gerður um af- hendingu Flateyjarbókar og Kon ungsbókar að Sæmundareddu, sem væru hinir dýrlegustu grip- ir. Einnig sagði hann: „í Árna- safni er ennfremur Möðruvalla- bók, og í henni eru flestar ís- lendinga sögurnar, þá er þar Ormsbók af Snorra-Eddu og fleiri Snorra-Eddu handrit, mikið af kirkjulegum bókmenntum íslend inga, tvö aðalhandrit af Sturl- ungu, nær öll verðmæt handrit af Landnámu o. fl. o. fl. Þetta á allt að koma til íslands aftur, svo fremi að allt sé með eðlilegum hætti. Ég tel, að með samþykkt danska þjóðþingsins í dag, hafi náðzt merkur áfangi I handritamálinu", sagði Einar Ól- afur Sveinsson að lokum, „og fögnum við að sjálfsögðu af- greiðslu þessa máls“. Árásum á N-Viefnam verður að hætfa — segja Sovétleiðtogar og Shastri Moskvu, 19. maí (NTB). í SAMEIGINLEGRI yfirlýsingu leiðtoga Sovétríkjanna og Lals Bahadurs Shastris, forsætisráff- herra Indlands, sem gefin var út að aflokinni opinberri heimsókn hans til Moskvu segir m.a., að Bandarikjamenn verði þegar í stað að hætta árásum á N.-Víet- nam og, að endanleg lausn Víetnammálsins verði aðeins futtdin innan taknvarka Genfar- samkomulagsins um Indókína. Átökin á landamærum Ind- lands og Pakistan eru ekki nefnd, en lögð áherzla á að leysa eigi alþjóðlegar deilur, þar á meðal landamæradeilur, á friðsamleigan hátt með samningum, valdbeit- ing sé ekki vænleg til árangurs. í yfirlýsingu er staðfeSt, að Sovétríkin muni halda áfram að veita Indverjum efnahagslega og tæknilega aðstoð.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.