Morgunblaðið - 20.05.1965, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 20.05.1965, Qupperneq 16
16 MORGUNBLADID Fimmtudagur 20. maí 1965 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands. f lausasölu kr. 5.00 eintakið. íslenzka þjóðin þakkar og fagnar Tslenzka þjóðin þakkar ríkisstjórn og þjóðþingi Danmerkur einum rómi og heils hugar. Dagurinn í gær, 19. maí 1965, er einn stærsti dagurinn í langri sögu samskipta Dana og ís- lendinga. Þennan dag samþykkti þjóðþing Danmerkur með yíirgnæfandi meirihluta atkvæða afhendingu handritanna, hinna fornu, íslenzku þjóðardýrgripa, til íslendinga. Af þess- um degi mun standa ljómi í sögunni langt fram um aldirnar. Atburðir hans eru glæsilegt dæmi um það, hvernig þroskaðar menningarþjóðir leysa viðkvæm ágreiningsmál. Samþykkt danska þjóðþingsins í gær ber vott fágætu víðsýni og stór- hug — íslendingar þakka ekki aðeins ríkisstjórn og þjóðþingi Dana samþykkt lagafrumvarpsins um afhendingu handrit- anna. Við þökkum dönsku þjóðinni allri. Við þökkum lýðhá- skólamönnunum og miklum fjölda einstaklinga í öllum stétt- um í Danmörku fyrir skilning þeirra og framlag til harátt- unnar, sem var til lykta leidd með atkvæðagreiðslunni í þjóðþinginu í gær. íslenzka þjóðin gerir sér ljóst, að ekkert var eðlilegra en að nokkurs ágreinings gætti meðal Dana um þessa ráðstöfun. Á hverju máli eru a.m.k. tvær hliðar. Þess vegna ei ástæðu- laust fyrir okkur að fyllast beizkju í garð þeirra manna, sem andstæðir voru okkar málstað og lögðu fyrst og fremst áherzlu á að halda handritunum áfram í Danmörku. Afhending handritanna er enn ein sönnun vaxandi vin- áttu íslendinga og Dana. Þessar tvær náskyldu þjóðir hafa stöðugt verið að nálgast hvor aðra síðan þær mættust á jafn- réttisgrundvelli. Norræn samvinna innan Norðurlandaráðs, Norrænu félaganna og fjölmargra annarra norrænna sam- taka hefur átt sinn ríka þátt í því að treysta vináttutengslin og skapa gagnkvæman skilning og bróðurhug milli þjóðanna. Danskir stjórnmálamenn hafa komið fram af miklum drengskap og festu í afgreiðslu handritamálsins. Er því þó ekki að neita, að andstaða margra háskólamanna og fræði- manna í Danmörku gegn afhendingunni olli þingi og stjórn nokkrum erfiðleikum. ^f“ fslendingar hafa ríka ástæðu til þess að þakka fjölmörg- nm einstaklingum í Danmörku óeigingjarna og þróttmikla baráttu fyrir þeim árangri, sem nú hefur náðst. En hér verða engin nöfn nefnd. íslenzka þjóðin sendir hinni dönsku vina- þjóð. ríkisstjórn og þjóðþingi Danmerkur einlægar þakkir. Hún er þess fullviss að framtíðin eigi eftir að sanna, að sam- þykkt þjóðþingsins í gær hafi verið mikið gæfuspor, sem jafnan verði talið til stórviðburða í samskiptum norrænna manna. I Snjóflóðið í Zugspitze I NÆR fullvíst þykir að 30 | manns hafi farizt í snjó- I flóðinu mikla, sem féll úr | fjallinu Zugspitze skammt i fyrir sunnan Miinchen sl. I laugardag. Ekki hefur enn I tekizt að finna lík þeirra [ allra. Björgunarmenn unnu É dag og nótt í fjallshlíðun- | um fyrstu sólarhringana I eftir slysið, en á mánudags [ kvöldið þótti öll von úti [ um að nokkur væri á lífi [ og var leitinni hætt. |" Snjóskriðan féll skömmu eft I ir hádegið á laugardaginn. — [ Lenti hún m.a. á svölum við 1 gistihúsið Schneefernerhaus, [ þar sem nokkrir gestanna sátu [ og nutu maísólarinnar og [ hreif þá með sér. Nokkrir 1 skíðamanna í brekkunum fyr- [ ir neðan grófust undir skrið- \ unni og einn 10 manna vagn 1 svifbrautarinnar ,sem gengur 1 upp á hinn 2966 m háa tind j Zugspitze, grófst einnig í fönn. = Björgunarmönnum tókst að ná \ 21 manni lifandi undan snjó- \ skriðunni, en allir eru meira í eða minna slasaðir. Alls gróf- [ ust rúmlega 50 manns undir [ skriðunni. i Gistihúsið Schneefernerhaus [ er sérstaklega varið fyrir [ skriðuföllum og varð lítið tjón [ á byggingunum. Einn af rit- i urum gistihússins, 25 ára i stúlka, Astik Nink, var í eid- i húsi í kjallara þess er skrið- i an féll. Hún segir: „Ég stóð i með disk í hendinni og skyndi i lega kvað við mikið brak. — = Allt nötraði eins og jarð- | skjálfti væri í fjallinu og skelf i ingaróp bárust úr öllum átt- i um. Svartamyrkur varð í kjall i aranum." i Scneefernerhaus er það I , ■= . II11111II 1111111111111111111 llllllll III Mlll 11‘ ..............Illll.I MMMMMMMMIM' gistihús Þýzkalands, sem hæst liggur, 270 m fyrir neðan tind Zugspitze. Um 500 menn tóku þátt I leitinni að þeim, sem grófust í snjóskriðunni, lögreglumenn og hermenn, bæði þýzkir og bandarískir. Einnig aðstoðuðu margir þeirra 300 gesta gisti- hússins, sem voru svo lánsam- ir að verða ekki fyrir skrið- unni. Ein stúlka, sem var á svöl- unum við gistihúsið, er skrið- an féll, barst með henni í stól sínum um 300 m niður eftir fjallshlíðinni og fannst þar mjög lítið meidd. Snjóflóðið í Zugspitze er það mesta, sem fallið hefur í Þýzkalandi. Síðasta stórslys- ið, sem þar varð af völdum snjóflóðs var 1931 og létust þá 7 lögreglumenn. En frá 1946 til 1964 hafa samtals 167 menn látið lífið í snjóflóðum í Bæjaralandi. WmwmmMÉm. Svalirnar við Schneefernerhaus eftir að skriðan féll. Sovézkar eld- flaug;ar á Kýpur? verið til eyjarinnar sovézkar loft varnaeldflaugar. Skömmu síðar var tilkynningin borin til baka og sagt, að Kýpurbúar hefðu skil j að eldflaugunum aftur, sam- I kvæmt skipun grisku stjórnar- ' innar, en sú fregn fékkst ekki Utanríkisráðherra Sovétríkj- anna, Andrei^/Gromyko, er um þessar mundxr í heimsókn í Tyrk landi og talið er, að tyrkneskir ráðherrar muni ræða við hann eldflaugakaup Kýpurbúa og ým- is önnur atriði Kýpurmálsins. SKÝRT var frá því á Kýpur í gærkvöldi, að keyptar hefðu staðfest.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.