Morgunblaðið - 20.05.1965, Page 17
Fimmtudagur 20. maí 1965
MORGUNBLAÐIÐ
17
Verðmæti útflutnings SH yfir
1000 milj. kr. a sl. ari
■ jf *
llr ræðu Sigurðar Agústssonar, formanns SH
Góðir fundarmenn.
Um leið og ég býð ykkur vel-
komna á þennan 22. aðalfund
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna, segi ég hann settan.
Áður en gengið er til aðalfund-
arstarfa með kosningu fundar-
stjóra og fundarritara, vil ég með
nokkrum orðum minnast með-
lima samtakanna, sem látizt hafa
frá því að síðasti aðalfundur var
haldinn í maímánuði 1964.
Einn af mestu framkvæmda-
mönnum innan okkar samtaka,
Jón Gíslason, útgerðarmaður og
fiskvinnslustöðvareigandi í Hafn
arfirði, andaðist á Landsspítalan-
um í Reykjavík 23. júlí sl. eftir
þunga legu. Jón var aðalstjórn-
armeðlimur okkar samtaka um
langt árabil — og starfaði af heil-
um hug að velferðarmálum
þeirra.
Elías Þorsteinsson framkvstj. í
Kei'lavík — og stjórnarformaður
samtaka frystihúeigenda frá
stofnun Sölumiðstöðvarinnar
1942 lézt hér í Reykjavík 25.
marz sl., óvænt fyrir okkur vini
hans, sem starfað höfum með
honum fram til hádegis þennan
sama dag, sem andlát hans bar
að. Elías átti við vanheilsu að
stríða sl. 10 ár — og lagði meiri
störf á sig fyrir samtökin en
heilsa hans leyfði. Það var ein-
læg sannfæring hans og áhuga-
mál, að með samstarfi okkar inn-
an Sölumiðstöðvarinnar væri
þjóðarhagsmunanna bezt gætt,
hvað nýtingu sjávarafurða snerti.
Elías naut virðingar og trausts
allra meðlima og starfsfólks Sölu
miðstöðvarinnar — og er hans
sárt saknað af okkur öllum — og
þó mest af þeim sem lengst og
bezt kynni höfðu af honum.
Þorvaldur Ellert Ásmundsson,
framkv.stjóri á Akranesi og
stjórnarmeðlimur Sölumiðstöðv-
arinnar, lézt á sjúkrahsúinu á
Akranesi 4. apríl sl., en hann
hafið átt við vanheilsu að stríða
um eins árs skeið. Þorvaldur
Ellert var virtur af samborgur-
um sinum og öðrum sem kynni
höfðu af honum. Hann var vin-
sæll og sómakær í öllum störf-
um.
Við söknum þessara mætu
samstarfsmanna — og vottum
þeim þakklæti og virðingu fyrir
langt og gifturíkt starf í þágu
samtakanna.
Einn af mestu framámönnum
ísl. þjóðarinnar, Ólafur Thors,
fyrrv. forsætisráðherra, andaðist
hér í borg á gamlársdag 1964.
Hafði Ólafur verið veill á heilsu
undanfarin ár. Allir sem kynnt-
ust Ólafi virtu hann sem dreng-
skaparmann — og alþjóð viður-
kennir hann sem einn mesta
stjórnmálamann, sem uppi hafi
verið með þjóð vorri. Ólafur
Thors bar hag alþjóðar fyrir
brjósti. Hann hafði náin kynni
af útgerð íslendinga og beitti sér
fyrir stofnun Sölusambands ísl.
fiskframleiðenda á þeim árum, er
niðurlæging saltfiskmarkaðsins
var stærst. Ólafs Thors verður
lengi minnzt.
Ég vil biðja ykkur, góða íund-
armenn, að minnast þessara
ágætu manna með því að risa úr
*ætum.
Þá verður gengið til aðalfund-
arstarfa með því að kjósa fundar-
stjóra og fundarritara. Ég vil
leyfa mér að stinga upp á Jóni
Árnasyni alþm. og Huxley Ólafs-
•yni frkvstj. sem fundarstjórum
— og ef ekki koma aðrar uppá-
•tungur tel ég þá samþykkta
sem fundarstjóra. Sem fundarrit-
ara sting ég upp á Helga Ingi-
mundarsyni.
Skýrsla stjórnar S.H. ásamt
reikningum Sölumiðstöðvar Hrað
frystihúsanna fyrir árið 1964 hef-
ir verið útbýtt til fundarmanna
— og vil ég með nokkrum orðum
fylgja skýrslunni og reikningun-
um úr hlaði.
Það hefir skipzt á með skin og
skúrir í framleiðslu sjávarafurða
á sl. ári, eins og ávallt vill verða,
þegar um aflabrögð er að ræða.
Vetrarvertíð á Suð-Vesturlandi,
Vestmannaeyjum og á Hornafirði
vár mjög hágstæð og gæftir góð-
ar. Einnig var góður afli á Vest-
fjarðabátana á vetrarvertíðinni,
en aflabrögð á Norðurlandi og
Austurlandi rýr, nema á báta frá
þeim landshlutum, sem gerðir
voru út frá verstöðvum við Faxa-
flóa. Sumarafli á dragnótaveiðum
var víða allgóður, en humarveið-
ar með rýrasta móti. Síldveiðar
norðanlands og austan voru ágæt
ar — og stóðu lengur en dæmi
eru til um síldveiðar við strend-
ur íslands. Aflabrögð á síldveið-
um við Suð-Vesturland voru hins
vegar mjög rýr, bæði hvað haust-
og vetrarveiðar snerti.
Þá vil ég ræða hér nokkur
atriði varðandi framleiðslu og út-
flutning sjávarafurða frystihús-
anna á sl. ári.
Nokkur samdráttur varð á
heildarframleiðslu frystihúsa inn
an S.H. á árinu 1964, borið sam-
an við framleiðslu þeirra á árinu
1963. Á árinu 1964 voru aðeins
fryst 17,800 smál. af síld, í stað
26,400 smál. á árinu 1963, 8600
smál. minna. — Hinsvegar var
frysting á þorski um 3000 smál.
meiri á sl. ári en 1963, eða 19,300
smál.
Á árinu 1964 fóru í fyrsta skipti
í sögu samtaka okkar, verðmæti
heildarútflutningsins yfir 1000
millj. kr. Var heildarútflutnings-
magn frystihúsa innan S.H. 65.264
smál., að verðmæti 1038 millj.
kr., en hafði verið árið áður, hvað
magn snertir 72,337 smál., sem
var að verðmæti 927 millj. kr.
Vegna aukinnar hlutdeildar bol-
fiskaflans í heildarútflutnings-
magninu, varð útflutningsverð-
mætið 1964 111 millj. kr. hærra
en árið áður, þrátt fyrir rösk 7
þús. smál. minna útflutnings-
magn á því ári. Verðlag á út-
flutningsafurðunum 4 árinu 1964
fór og nokkuð hækkandi á erlend
um mörkuðum, sem einnig olli
hagstæðari útkomu á sölu afurð-
anna, eins og gefur að skilja.
Um einstök atriði vísast • til
skýrslu stjórnar S.H. varðandi
þessa framleiðslu og sölumál.
Ég vil geta þess, að starfsemi
vestan hafs hefir gengið mjög
vel á sl. ári, enda verðlag þar
mjög hagstætt fyrir afurðir okk-
ar. Mun framkvæmdastjóri okk-
ar, Þorsteinn Gíslason, sem er
mættur hér á fundinum gefa okk
ur skýrslu um starfsemina
vestra. Framkvæmdastjórar og
sölustjórar okkar munu einnig
gefa skýrslur hér á fundinum,
eins og boðað er í dagskrá fund-
arins. Rekstur S.H. var hagstæð-
ur í heild á sl. ári — og vil ég
votta framkv.stjórum, sölustjór-
um og starfsliði samtakanna
þakklæti mitt og meðlima S.H.
fyrir vel unnin störf.
Skipun útflutningsmála.
Á síðasta aðalfundi S.H. var
samþykkt svohljóðandi tillaga:
Sigurður Ágústsson.
„Aðalfundur S.H., haldinn í
rriaí 1964, telur það stórskaðlegt
framtíðarþróun íslenzkra mark-
aðsmála erlendis, að margir út-
flytjendur eigi að fjalla um
þessi mál, og varar við afleið-
ingum slíkrar stefnu. Það er álit
fundarins, að tilhögun þessara
mála sé bezt komið þannig, að
aðeins tveim stærstu framleiðend
um og söluaðilum þjóðarinnar sé
veitt leyfi til útflutnings frystra
sjávarafurða. Til að fyrirbyggja
óæskilega og fjárhagslega hættu-
lega samkeppni íslenzkra aðila í
sölu frystra sjávarafurða á er-
lendum mörkuðum, skorar fund-
urinn á ríkisstjórnina að endur-
skoða afstöðu sína í þessum efn-
um.“
Stjórn S.H. hefir unnið mark-
vist að þessum málum við hæstv.
ríkisstjórn og þó mest við hæstv.
sjávarútvegsmálaráðherra Emil
Jónsson. Vil ég með nokkrum
orðum gera grein fyrir viðræð-
um þeim og bréfum, sem farið
hafa fram á milli stjórnar S. H.
og ríkisstjórnarinnar, svo að
fundamenn fái nokkur kynni af
þessum málum.
Ríkisstjórninni var að sjálf-
sögðu send ályktun aðalfundar
frá í fyrra, svo og bréf þar að
lútandi. Undirtektir af hálfu rík-
isstjórnarinnar og forsvarsmanna
hennar hafa verið jákvæðar —
og verður að telja, að ríkisstjórn-
in hafi tekið ákveðna afstöðu
með því fyrirkomulagi, um sölu
frystra sjávarafurða — að þær
skuli fyrst og fremst fara í gegn-
um sölufélög frameiðenda
sjálfra. Þessu til sönnunar vil ég
vitna í ræðu, sem hæstv. forsæt-
isráðherra Bjarni Benediktsson
flutti í sl. mánuði, þar sem hann
sagði meðal annars:
„Nokkurt ósamkomulag virð-
ist upp komið á meðal forystu-
manna sjávarútvegsins um, hvort
lengur eigi við það sölufyrir-
komulag á afurðum hans, er
Ólafur Thors beitti sér fyrir, að
upp var tekið á kreppuárunum
eftir 1930. í þessu er úr vöndu
að ráða og skiptar skoðanir í
flokki okkar, þó að yfirgnæfandi
meiri hluti fiskframleiðenda hafi
verið sammála. Á meðan sá meiri
hluti helzt verulegur virðist hæp-
ið fyrir aðra að stuðla að því,
að sölusamtök þeirra rofnL“
Síðan þessi- ummæli voru við-
höfð, hefir það skeð, að sá aðili,
sem hér hefir einkum verið vitn-
að til, hefir nú lýst sig fylgjandi
samtakaleiðinni í framkvæmd
mála, með því að draga úrsagnir
sínar úr S.H. til baka — og ber
að fagna þessari ákvörðun hans.
Þá hafa okkur borizt tvö bréf
frá hæstv. sjávarútvegsmálaráð-
herra, þar sem tekin eru af öll
tvímæli um skipan útflutnings-
mála — en þar segir í bréfi dags.
p. febr. sl.: — „í tilefni af bréfi
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna og sjávarafurðadeildar SÍS
dags. 30. jan. sl. „vill ráðuneytið
taka það fram að ráðuneytið
mun ekki fyrst um sirin heimila
öðrum aðilum að bjóða og selja
frystar sjávarafurðir til jafn-
keypislandanna í Austur-Ev-
rópu.“
Og í bréfi dags. 7. þ.m. eða fyr-
ir 12 dögum frá sama ráðuneyti
segir:
„í tilefni af bréfi Sölumiðstöðv
ar hraðfrystihúsanna dags. 14.
des. sl., skal eftirfarandi tekið
fram:
Á fundi, sem haldinn var með
fulltrúum freðfiskútflytjenda
hinn 8. júní sl., var því lýst yfir,
í tilefni af fyrirspurn frá fulltrúa
S. H., að ekki væri fyrirhugað
að fjölga útflytjendum í freð-
fiski frá því, sem þá væri, og er
sú yfirlýsing enn í gildi.
Útflutningsleyfi eru því aðeins
veitt til annara en sölusamtaka
S.H. og SÍS, að freðfiskútflutn-
ingur þeirra sé frá frystihúsum,
sem þeir hafa flutt út fyrir að
undanförnu."
Af þessu sést að hæstv. ríkis-
stjórn hefir tekið ákvörðun um
þá stefnu í sölumálum frystra
sjávarafurða, sem við höfum
túlkað — og teljum til farsældar
fyrir þjóðina alla.
Á undanförnum árujn hefir
skipastóll útgerðarmanna stór
aukizt, til hagsbóta fyrir alla
þjóðina. Mikill hluti þessara fiski
skipa hafa verið byggð erlpndis,
en nokkur þeirra af innlendum
skipasmíðastöðvum. Ber að
stefna að því, að með byggingu
nýrri og stærri dráttarbrauta og
skipasmíðastöðva verði fiskiskip
okkar byggð innanlands, þar sem
telja verður brýna nauðsyn, að
innlendar skipasmíðastöðvar, sem
veita mikla og nauðsynlega þjón-
ustu, hafi nægilegt verkefni allt
árið.
Hinn aukni fiskiskipastóll
landsmanna er vissulega þarft og
ánægjulegt átak og hefir stór-
bætt möguleika til að ná afla tU
frystihúsanna, þó að enn séu
mörg frystihús, sem skortir hrá-
efni á ýmsum tímum ársins. —
Ýmsar hugmyndir eru uppi um
flutning á hráefni milli lands-
hluta, sem vissulega eru athygl-
isverðar. Við hljótum að fá lausn
á þessum vanda ,að geta fengið
slíd og annað hráefni flutt ó-
skemmt milli landshluta — og
það þó um sólarhringssiglingu sé
að ræða, svo unnt sé á þennan
hátt að fá síldina saltaða eða
frysta og þar með auka verðmæti
hennar, í stað þess að láta hana
í bræðslu á mun lægra verði.
Þetta átak, ef framkvæmanlegt
er, mundi bæta hag margra fisk-
vinnslustöðva, auk þess sem það
mundi bæta atvinnuþörf margra
byggðarlaga.
Til að þetta megi takast, verð-
ur að beina enn meira fjármagni
til flutninga og bæta móttöku
fiskvinnslustöðvanna. Er þess að
vænta, að Stofnlánadeild sjáv-
arútvegsins, sem verður að efla
stórlega vegna fiskiðnaðarins,
viðurkenni þessa nauðsyn og
vinni að útvegun fjármagns, til
að geta mætt eðlilegum kröfum
fiskvinnslustöðvanna í þessum
efnum.
Það hefir valdið og veldur
frystihúsaeigendum miklum erf-
iðleikum, hversu mikill skortur
hefir verið á stofnlánum. Upp-
bygging og viðhald frystihús-
anna kallar á mikið fjármagn ár-
lega, því það eru augljós sann-
indi, að frystihúsarekstur þarfn-
ast mikils fjármagns, ég vil segja
umfram aðrar greinar útflutn-
iingsframleiðslunnar, eins og t.d.
skreiðar- og saltfisksverkunar.
Þessi sannindi eru öllum kunn,
sem hafa haft með höndum verk-
un sjávarafurða til sölu á er-
lendum mörkuðum. Til viðbótar
þessu kallar hinn aukni fiski-
floti á meiri og betri þjónustu
af hendi frystihúsaeigenda, sem
sem nauðsynlegt er að geta
sinnt.
Á síðasta Alþingi voru fram-
kvæmdar töluverðar breytingar
á tollskránni, sem vissulega eru
til bóta í sambandi við rekstur
frystihúsanna. Vil ég sérstaklega
benda á lækkun tolla á vélum
til fiskiðnaðarins úr 35% niður í
10%. Hér er um stórvægilega
lagfæringu að ræða, sem ber að
viðurkenna og þakka. Þá er einn-
ig að benda á þá vaxtalækkun,
sem Seðlabanki íslands ákvað
fyrir nokkrum mánuðum —■ og
væri æskilegt að lengra yrði
haldið á þeirri braut, þar sem
vaxtabyrði hjá frystihúsaeigérid-
um er stór liður í rekstri þeirra.
Ég mun ekki hafa þessi orð
mín fleiri að sinni. Að sjálfsögðu
mun ég og aðrir stjórnarmeð-
limir, svo og framkv.stj. S.H.,
gefa þær upplýsingar í sambandi
við rekstur S.H., sem háttv.
fundarmenn kunna að æskja og
við getum leyst úr.
Þakka ég góða áheyrn.
IJngu læknarnir
Stjörnubíó sýnir um þessar mundir amerisku stórmyndina „Ungu
læknarnir" (The Interns). Með aðalhlutverkin fara Michael Call-
an, CUff Robertson, James MacArthur og Suzy Parker.