Morgunblaðið - 20.05.1965, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 20.05.1965, Qupperneq 25
r Fimmtuclagur 20. maí 198S MORCUNBLADID 25 Skrá yfír V-fslendingana LISTI yfir þá Vestur fslendinga, sem koma til Reykjavíkur nk. laugardag frá Winnipeg. Áætlað'- ur komutími til Reykjavíkurflug vallar er kl. 12 á hádegi. Gordon Guðjónsson Danielson, Box 324, Arborg. Kristín Rannveig Björnsdóttir Johnson, Winnipeg. Jochum Ásgeirsson, Winnipeg. Ingibjörg Lilja Jónsdóttir Ásgeirsson, Winnipeg. Njáll Ófeigur Arinbjarnarson Bardal, Winnipeg. Sigríður Sesselja Helgadóttir Bardal, Winnipeg. Guðbjörg Sigurðardóttir Sigurdson, Winnipeg. Inga Þórarinsdóttir Skaftfeld, Vancouver. Edward Þórarinsson Gíslason, Winnipeg. Bjarni Jónsson Goodman, Winnipeg. Sigríður Rannveig Helgadóttir Gordon, Selkirk. Krstín Magðalina Helgadóttir Halderson, Selkirk. Oliver B. Ólafsson Olsen, Calgary. Rose Helgadóttir Olsen, Calgary. Hrund Adamsdóttir Skúlason, WTinnipeg. Margrét Guðmundsdóttir Sigurdson, Winnipeg. Regina Guðmundsdóttir Sigurdson, Winnipeg. Guðrún Jónsdóttir Thorkelson, Winnipeg. Kristín L. Jónsdóttir Skúlason, Arborg. Vaidimar Daviðsson Valdimars- son, Langruth. Viktoria Jónsdóttir Valdimars- son, Langruth. Lára Berthóra Bergþórsdóttir Sigurdson, Winnipeg. Hansína Sigvaldadóttir Gunnlaugsson, Baldur. Clara J. M. Hólmkelsdóttir Jónson, Glenbóro. Anna Gunnlaugsdóttir Freeman Skaptason, Winnipeg. Guðrún Björg Björnsdóttir Ámason, Gimli. Vigdís Johnson, í Winnipeg. Málmfríður Einarson, Arborg. María Ólafsdóttir Sívertsen, Winnipeg. Guðríður Gíslason, Riverton. Halldóra Nikulasdóttir Peterson, Wmnipeg. John E. Guðmundsson Marteinson, Langruth. Laufey Kristjánsdóttir Fjeldsted Marteinson, Langruth. Torfhildur Hólm Crout, McCreary. Þorfinnur Egill Jónasson, Winnipeg. Guðbjörg Gunnarsdóttir Jónasson, Winnipeg. Stefan August Stefánsson Sigurdson, Arnes. Valdheiður Einarsdóttir Sigurdson, Arnes. Bergþóra Rafnsdóttir Nordal Gíslason, Leslie. Olive Ásgeirsdóttir Gíslason, Leslie. Kristjana Kristjánsdóttir Fjeldsted Eastman, Winnipeg. Lára Eðvaldsdóttir Olafson, Winnipeg. Maude McCreery, Winnipeg. Ethel Friðriksdóttir Skardal, Glenboro. Sveinn Johnson, Kinsota. Lára Sveinsön, Swan River. Guðrún Thorsteinson, Westbourne. Sína Lingholt, Vancouver. Lloyd A. Mathiasson Johnson, Vancouver. Harold Einarsson Haralds, Vancouver. Arne Björnstad, Kamloops. Séra Kolbeinn Sæmundsson, Seattle. Mrs. K. Sæmundsson, Seattle. Valgerður Eðvaldsdóttir Nussberger, Winmpeg. Jón Árnason, Winnipeg. Sigríður Ólafsdóttir Árnason, Winnipeg. Séra Philip Markús Ólafsson Pétursson, Winnipeg. Thorey Sigurgrímsdóttir n Pétursson, Winnipeg. Elizabeth Jónsdóttir Gillis Zimmerman, Winnipeg. Björn Ólafsson Johnson, Winnipeg. Karl Hansson, Winnipeg. Jónína Þorsteinsdóttir Johnson, Moosehorn. Steina Soffia Leader, Leslie. Ragnhildur Gísladóttir Guttormson, Islington. Kristín Ólafsdóttir Depoe, Winnipeg. Rósa Friðriksdóttir Lewis, Baldur. Petrína Regina Ólafsdóttir Pjetursson, Oak Point. Kristlaug Daviðsdóttir Finnbogason, Langruth. Magnus Jónasson, Wynyard. Guðrún Magnúdóttir Finnsson, Wynyard. Hanna Aradóttir Fjeldsted Samson, Ft. Coquitlam. Jakob Friðriksson Kristjánsson, ^ Winnipeg. Ólafur J. Magnússon Freeman, Winnipeg. Albert Stígsson Antonius, Baldur. Árni Jónsson Sveinsson, Baldur. Katrín Brynjólfsdóttir, Winnipeg. SAAB-bíllinn á hvolfi eftir áreks turinn. (Ljósm. Sv. Þ.) Harður áreksftur í gærkvöldi MJÖG harður árekstur varð á gatnamótum Kringlumýrarbraut ar og Miklubrautar um kl. 19 í gærkveldi, þegar Volkswagen- bíll, sem fór norður Kringlu- mýrarbraut, ók á fullri ferð inn í hægri hlið SAAB-bifreið- ar, sem var á leið austur Miklu- braut á vinstri akrein. Árekstur- Sofnaði í túninu og þúsundirnar hurfu t inn varð mjög harður, og tókst SAAB-bíllinn á loft, endastakkst og skutlaðist á þakinu nokkra metra. Hafði Volkswagen-bíllinn farið á milli tveggja bíla, sem biðu milli ,,eyja“ við gatnamót- in. Hjón með tvo syni sína, 11 og 12 ára gamla, voru í SAAB-bíln- um. Slasaðist maðurinn talsvert, en ekki alvarlega, að því er tal- ið var í gærkvöldi. í Volkswagen bilnum var einn maður, sem slapp ómeiddur. Báðir bílarnir eru stórskemmdir Fundum æðstu manna stórveldanna frestað London 19. mal (NTB) HAFT var eftir áreiðanlegum heimildum i London \ dag, að Alexei Kosygin, forsætisráðherra Sovétríkjanna, hefði slegið á frest fyrirhugaðri heimsókn sinni til Bretlands, en gert hafði verið ráð fyrir að hunn kæmi þangað í vor. Stjórnmálafréttarlturum í Moskvu kom þessi fregn ekki á óvart, en þeir eru þeirrar skoð- unar, áð Sovétleiðtogar hafi á- Kvikmyndasýning Varðbergs í Vestmannaeyjum VARÐBERG f Vestmannaeyjum efnir til kvikmyndasýningar í Samkomuhúsinu -á föstudags kvöld nk.'kl. 22. Sýndar verða þrjár kvikmynd ir: „Saga Berlínar", sem segir frá þróun mála í borginni frá styrj aldarlokum og fram til þess, að múrinn var reistur, „Yfirráðin á hafinu", sem fjallar um þróun í smíði herskipa á þessari öld o. fl. og „Endurreisn Evrópu", en hún segir frá helztu viðburðum í álf unni frá styrjaldarlokum og fram á þennan dag. Myndir þessar eru allar hinar fróðlegustu og allar með íslenzku talL Öllum er heim- 1U aðgangur. kveðið að leggja allar áætlanir um fundi æðstu manna austurs og vesturs á hilluna meðan deil- an um Víetnam sé óleyst, þó sé hugsanlegt að þeir undanskilji möguleika á fundum æðstu manna Sovétríkjanna og Frakk- lands. UNGUR Reykvíkingur fór út að skemmta sér með 20 þúsund kr. á þriðjudag. Keypti hann m.a. fimm flöskur af gini, og þegar leið á nóttina, hélt hann með vín- ið í leigubíl að Bringum í Mos- fellssveit, þar sem hann þekkti eitthvað tih Þangað kom hann milli kl. fjögur og hálf fimm á miðviku- dagsmorgun, en bóndi var ekki heima. Þar var hins vegar vinnu maður og aðkomumaður, og sett ust þeir þrír að drykkju. Um kl. níu að morgni vildi Reykvíkingurinn halda heim á leið. Gekk hann niður túnið og ætlaði út á veg, en syfjaði á leið inni og lagði sig til svefns. Hann vaknaði um kl. tólf á hádegi. Var þá aðkomumaðurinn hjá honum, en peningaveskið lá við hlið hans. f því voru um 800 krónur, og fannst eigandanum það full- lítið. Bar hann það á aðkomu- Tveir sexftán ára pilftar drukknir í stolnum bílum TVEIR sextán ára unglingar, ökuréttindalausir, voru teknir á stolnum bílum í fyrrinótt. Lögreglan veitti því athygii, að ljóslausum bíl vaar ekið eftir Tryggvagötu kl. 2 aðfaranótt mið- vikudags og stöðvaði hann. Undir stýri var sextán ára drukkinn piltur og með honum tveir yngri piltar. Kom í ljós, að þeir höfðu stolið bílnum í Nýlendugötu, og voru því rétt að hefja ökuferðina. Þá hringdi Hafnarfjarðarlög- reglan til Reykjavikurlögreglunn ar og til'kynnti óvenju hraðan akstur bifreiðar þar í bæ, sem virtist vera á leið til Reykjavíkur. Bifreið þessari var veitt fyrirsát á Miklatorg og hún stöðvuð. Út úr bílnum kom einnig sextán ára drukkinn piltur, og hafði hann líka tekið bílinn ófrjálsri hendi. Við yfirheyrslu kom í ljós, að :piltarnir fjórir hö.fðu í samein- ingu gert tilraun til þess að stela bíl á horni Tjarnargötu og Vonar- strætis, en ekki tekizt að koma vélinni í gang. Tvístraðist þá hópurinn, oig þremenningarnir stálu bíl á Nýlendugötu, eins og áður er sagt, en hinn fjórði náði sér í farkost á Laufásvegi og hélt í ökuferð til Vífilsstaða og Hafnarfjarðar með áðurgreindum afleiðingum. Þegar rannsóknarlögreglan spurði.piltinn, sem fór til Hafn- arfjarðar, hvort hann hefði ekið hratt, sagði hann: „Nei, ég keyrði ekkert hratt, ég fór aldrei yfir níutíu“. Hann er að læra að aka bíl og hefur hlotið nokkurra klst. tilsögn. Annar ökumannanna og annar farþeganna í fyrri bílnum hafa komizt í tæri við lögregluna áður. manninn, að hann hefði hirt pen inga úr veskinu, en sá þverneit- aði. Sagði hann hins vegar, að vinnumaðurinn á Bringum hefði tekið peningana. Var nú haldið heim að bæn- um. Vinnumaðurinn neitaði stuldinum, og bárust nú böndin að aðkomumanninum. Viður- kenndi hann þá a’ð hafa tekið peningana til handargagns, og ætlaði hann að geyma þá fyrir Reykvíkinginn. Aftur á móti neit aði hann að afhenda þá að sinni. Reykvíkingurinn ætlaði nú að ná í lögreglu um síma, en síma- tólið hafði þá verið losað frá símanum og falið. Eigandinn gekk þá ni’ður að Seljabrekku með vinnumann- inum og hringdu þeir til lögregl unnar i Hafnarfirði, sem kom upp að Bringum um kl. fjögur í gærdag. Þá var aðkomumaður inn hlaupinn í felur S bak við tóftir, en lögreglan náði honum, og við leit fundust um ellefu þús. kr. faldar í sokkum hans og annars staðar í fötunum. Eig- andinn hélt því fram, að þrettán þús- kr. ættu að vera eftir auk 800 krónanna. Seint í gærkvöldi voru Reyk- víkingurinn og aðkomumáður- inn hjá lögreglunni í Hafnarfirði Var beðið eftir því, að af þeim rynni, svo að hægt væri að halda rannsókn málsins áfram. Áfengisverðið í veitingahúsum EKKI reyndi á það í gær, hvort þjónar í veitingahúsurn halda áfram að selja áfengi á verði skv. nýrri gjaldskrá sinni, en það er hærra heldur en dómsmála- ráðuneytið telur heimilt. 1 gær var „þurr dagur", miðvikudagur. Félag framreiðslumanna hélt fund um málið í gær, en í dag mun dómsmálaráðuneytið að öll- um líkindum taka ákvörðun um aðgerðir í málinu, selji þjónar áfram eftir eigin gjaldskrá Sam- kvæmt henni mun „sjússinn“ hækka um 5—7%, eins og skýrt var frá í Mibl. í gær. — Sjónvarpsmálið Framhald af bls. 6 varp við Keflavíkurflugvöll ein- an, enda væri sjónvarpsleyfið til handa varnarliðinu við það mið- að að gefa varnarliðsmönnum kost á bandarísku sjónvarpi. En mál þetta hefði ekki enn verið rætt innan ríkisstjórnarinnar eða í miðstjórn Alþýðuflokksins. Hann kvað lökað sjónvarpskerfi á Keflavikurflugvelli ekki hafa komið til tals í umræðum vam- arliðsins og póst- og símamála- stjórnar. Hins vegar hefði það borið á góma meðal ráðamanna, en þótt alltof kostnaðarsamt fyr- ir Bandaríkjamenn. Ráðherra kvað sér ekki kunn- ugt um jafnfámennan eða á annan hátt sambærilegan hóp við íslendinga, er héldi uppi menningarlega sjálfstæðu sjón- varpi, sem ávinningur væri að. Hins vegar vissi íhann ekki held- ur um jafnfámenna þjóð sem héldi uppi háskóla. Luxembong, sem væri helmingi fjölmennara ríki en ísland, ætti ekki háskóla, en ræki sjónvarp. Þá kom það fram, að Norðmenn, sem reka eigið sjónvarp, hefðu etkki enn treyst sér til að reisa endur- varpsstöð fyrir Norður-Noreg, sem væri þó bæði minna og fjölbýlla landsvæði en Island. Sömuleiðis hefðu gamlar og grónar menningarþjóðir eins og Grikkir og ísraelsmenn ekki séð ástæðu til að koma sér upp sjón- varpi. Umræður á fundinum voru fjörugar, og meðal þeirra sem tóku til máls voru: Bárður Daní- elsson verkfræðingur, Guðlaug- ur Rósinkranz þjóðleikhússtjóri, Guðmundur Hagalín rithöfiund- ur, Hannes Pétursson skáld, Jó- hann Hannesson prófessor, Jón Sigurðsson formaður Sjómanna- sambands íslands, Leifur Ás- geirsson prófessor, Páll Kolka læknir, Ragnar Jónsson forstjóri, Sigurður Líndal hæstaréttarrit- ari, Sigurður A. Magnússon blaðamaður, Sigurður Nordal prófessor, Sigurjón Björns9on sálfræðingur, Stefián Júlíusson rithöfundur, Sveinn Einarsson leikhússtjóri, og Þórhallur Vil- mundarson prófessor. Fundar- stjóri var Sigurður Líndal. Fund inn sóttu rúmlega 40 manns, en til harks var boðað með sérstök- um boðskortum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.