Morgunblaðið - 20.05.1965, Side 31

Morgunblaðið - 20.05.1965, Side 31
Fimmtudagur 20. maí 1965 MORCU N BLAÐIÐ 31 142 skæruliðar Viet- Kong feildir í gær Loftárdsum á N-Vieinam haldið áfram Saigon, 19. maí (NTB-AP). BANDARÍSKAR flugvélar héldu í dag áfram loftárásum á N- Víetnam og tóku um 50 flugvélar þátt í þeim. Var árásunum beint að herstöðvum í Hcan Lao og Chanh Hoa, og eru l»ær sagðar hafa borið góðan árangur. • Sérstakur viðbúnaður var í Saigon vegna ótta við skemmdar- verk í tilefni 75 ára afmælis Ho Chi Minhs, forseta N- Vietnam, en fréttastofan N- Víetaam hafði tilkynnt í gær, að stuðningsmenn hans myndu halda daginn hátíðlegan með því að efla mótstöðuna gegn banda- rísku árásarmönnunum. Ekkert bar þó til tíðinda Talsmaður S-Víetnamhers í Saigon skýrði frá því í dag, að 57 Víet Kong skæruliðar hefðu fallið og átta verið handteknir í dag, er S-Víetnamher lagði til atlögu við þá um 590 km fyrir norðaUstan Sáigon. Einnig gerðu flugvélar hersins árás á skæru- liða kommúnista um 150 km norðaustur af borginni í dag og talið er að 85 hafi failið. Þrjár flugvélar tóku þátt í árásinni. Badaríkjamenn hófu loftárásir sinar á N-Víetnam að nýju í gær eftir fimm daga hlé. Meðan á hléinu stóð komu þeir til'boðum um samningaviðræður til Hanoi, en samkvæmt áreiðanlegum heim ildum, var þeim hafnað afdrátt- arlaust. Virðist því lítil von til þess að takast muni að koma •Víetnammálinu á viðræðustig í bráð. \tta cjervi- hnettir með einni eldflaug New York 19. maí (NTB) Bandaríski flugherinn hef- ur sent átta gervihnetti á braut umhverfis jörðu með einni eldflaug. Var þetta gert með leynd 9. marz s.l. og tókst tilraunin vel. Eru hnett- irnir allir á lofti í milli 902 og 940 km fjarlægð frá jörðu. Aldrei hafa fleiri gervi- hnettir verið sendir á loft með sömu eldflaug í Banda- ríkjunum og talið er, að Rúss ar hafi ekki framkvæmt sam- svarandi geimskot. Gervihnöttunum var skotið á loft með eldflaug af gerð inni Thor Agena. Indverjar og Pakistanbúar saka hvorir aðra um liðssafnað »1 i Nýju Delhi, 19. maí (NTB): í ORÐSENDINGU, sem birt var í dag í Nýju Delhi, og Indlands- stjórn hefur sent stjórn Pakistan, eru Pakistanbúar sakað'ir um að draga saman mikið herlið á landa mærum Indlands og A-Pakistan. Orðsendingin er dagsett 14. maí, og þar segir m.a., að herlið það, sem Pakistanbúar hafi safn- að saman við landamærin hafi haft í frammi ýmsar ögranir og framið ofbeldisverk. Hafi atferli hermannanna aukið mjög á ólg- una á landamærunum. I orðsend- ingunni segir ennfremur, að á- tandið á landamærunum geti haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir sambúð Indlands og Pak- Facpncaðcarlseti er Englandsdrottn- ing ekur um Bonn Bonn 19. maí (NTB-AP). MIKILL mannfjöldi safnaðist saman á götunum Bonni í dag til að fagna Elísabetu Englands- drottningu og Philip prins, er þau óku um. Segja fréttamenn að mannfjöldinn hafi verið meiri en við heimsóknir de Gaulles Frakklandsforseta og Kennedys fyrrv. Randaríkjaforseta til borg arinnar. Drottningin lagði i dag blóm- sveig að minnismerki um fórnar- lömb heimsstyrjaldarinnar og nazismans, og haldin var mót- taka henni til heiðurs hjá yfir- borgarstjóra Bonn, Wilhelm Dani els. Einnig heimsótti drottningin Tító til Moskvu Moskvu 19. maí (NTB) TÍTÓ Júgóslavíuforsetl hefur þegið boð um að heimsækja Sov- étríkin og er gert ráð fyrir að hann haldi þangað innan skamrr.s. Þetta er í fyrsta sinn, sem Tító fer til Sovétríkjanna eftir að Krúsjeff var vikið frá völdum. í júní s.l. kom Tító við í Len- ingrad á leið heim úr oþinberri heimsókn til Finnlands og ræddi þá við Krúsjeff. Tító heimsótti Moskvu síðast 1902. háskólann og sat hádegisverð í boði Ludwigs Erhards, kanzlara. istans. Fara Indverjar þess á leit, að Pakistanbúar kalli herliðið frá landamærunum. í dag vísaði indverska utan- ríkisráðuneytið á bug ásökunum Pakistanbúa þess efnis, að Ind- verjar hefðu safnað miklu her- liði á landamærunum. Meðan klögumálin ganga á víxl reyna Bretar að miðla mál- um í deilu Indverja og Pakistan- Úrskurður flug- málastjóra í dag? EINS og skýrt hefur verið frá í fréttum, varð það að samkomu- lagi milli Loftleiða h.f. og Félags íslenzkra atvinnuflugmanna, að Agnar Kofoed-Hansen, flugmála- stjóri, setti reglur um hámarks- flugtíma, vakttíma og lágmarks- hvíldartíma flugmanna á Rolls Royce flugvélum Loftleiða, þar til um annað kann að semjast, en báðir aðiljar munu hlíta regl- unum. Flugmálastjóri tjáði Mbl. í gær, að von væri á úrskurði hans í dag eða á morgun. Lundahl breytir framburði sínum Stokkhólmi, 19. maí (NTB): f DAG hófust í Stokkhólmi rétt arhöld í máli nazistaleiðtogans Björns Lundahls, en þeim var frestað eftir skamma stund. Var það verjandi Lundahls, sem fór fram á frcstunina og herma fregn ir, að hann hafi gert það vegna þess, að í gærkvöldi hafi hinn á- kærði breytt framburði sínum. Segir, að Lundahl haldi því nú fram, að hann sé ekki leið- togi nýnazistahreyfingarinnar, heldur sé það annar maður, sem ekki sé í Svíþjóð. Hafi þessi mað ur skipulagt starfsemina og m.a. samið fjölda þeirra skjala, sem Lundahl hafi undirritað. Síðar skýrði verjandi Lundahl frá því, að maðurinn, sem við væri átt væri Göran Granqwist, einn af þeim, sem afhentu „Expressen-* upplýsingar um nýnazistana. — Hefði hann gert það til að draga athyglina frá sjálfum eér og skella skuldinni á aðra. , Ekki hefur verið ákveðið hve- nær rétturinn kemur saman á ný. búa um landamærasvæðið i Kutch-héraði, þar sem bardagar blossuðu upp fyrir nokkrum vik- um, en að undanförnu hefur ver- ið vopnahlé á svæðinu. IMATO - ráð- herrar hjá Breta- drottníngu Elizabet, BretadTottning, með gestum sínum, fulltrúum á NATO-fundinum, sem haldinn var í London. Myndin var tek- in 12. maí. Lengst til hægri á myndinni sést utanríkisráð- herra íslands, Guðmuitidur I. Guðmundsson. Frumvarp um ríkis- styrk við sænsku blöð- in ekki lagt fram? Stokkhólmi, 19. maí (NTB): TALIÐ ER, að sænska stjórnin muni hætta við að leggja fyrir þingið frumvarp um ríkisstuðn ing við sænsku dagblöðin. En frumvarpið grundvallast á niður stöðum nefndar, sem sett var á fót til þess að rannsaka blaða dauðann í Svíþjóð. Stjórnin hefur leitað álits fé- laga blaðamanna og útgefenda og annarra aðila á frumvarpinu, og flestir hafa lýst sig andvíga rík isstuðningi með þeim hætti, sem nefndin lagði til. Meðal stjórn- málamanna í Stokkhólmi er talið nær fullívst, að stjórnin muni ekki reyna að þvinga slíkt frum varp gegnum þingið. Nefndin lagði, sem kunnugt er, til að blöðin hlytu styrkinn fyrir milligöngu flokkanna og honum yrði skipt í samræmi við atkvæða magn þeirra við síðustu kosning ar. Sérstök stofnun átti að sjá um að fénu væri raunverulega varið til blaðaútgáfu og hindra að ríkið gæti haft áhrif á blöð- in. Öll útgáíufélögin, sem látið hafa í ljós álit sitt, eru andvíg frumvarpinu, þar á meðal eig- endur blaðsins „Stockholmstidn- ingen‘, sem rekið er með miklu tapi. Utanríkisráðherrafundai Norð- urlanda haldinn í Helsingíors Helsingfors 19. maí (NTB). f DAG fór fram í Helsingfors utanríkisráðherrafundur Norður Enn barizt í Santo Domingo Santo jDomingo, 19. maí (NTB) | Barreras ávarpaði í dag mann- BARDAGAR héldu áfram í Santo fjölda, sem safnazt hafði saman Domiago, höfuðborg Dóminí- við þinghúsið, og lýsti því m.a. kanska lýðveldisins, í dag og var yfir, að menn sínir hefðu sigrað aðallega barizt í norðurhluta borgarinnar. Áttust við menn herforingjaráðs Imbertos Barrer- as og uppreisnarmenn, sem styðja stjórn Caamanos, ofursta- Var frá því skýrt í kvöld, að menn Barreras hefðu náð útvarpsstöð úr höndum manna Caamanos. í baráttunni við uppreisnarmenn. Lofaði hann hátiðlega, að hann myndi ekki koma á fót einræðis- stjórn, og mannfjöldinn fagnaði ákaft, er hann benti á, að hann hefði verið meðal þeirra, sem réðu Trujillo, einræðisherra, af dögutu. Ianda- Ilelztu málin á dagskrá hans voru fjárhagsvandræði Sam einuðu þjóðanna, Kýpurdeilan og áframhaldandi friðargæzla SÞ þar. Fundarmenn sátu kvöld verð í boði finnsku stjórnarinn- ar og héldu þar áfram viðræðum sínum, en opinber tilkynning um þær verður gefin út á morgun. Aðeins tveir utanríkisráð- herrar sátu fundinn, Thorsten Nilson, utanríkisráðherra Sví- þjóðar, og Ahti Karjalainin, ut- anríkisráðherra Finnlands. Utan ríkisrá'ðherrar hinna landanna sendu fulltrúa sína, og af íslands hálfu sátu fundinn Árni Tryggva son, sendiherra, og Niels P. Sigurðsson, deildarstjóri i utan- ríkisráðuneytinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.