Morgunblaðið - 04.07.1965, Side 2
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 4. julx 1965
J. H. Hambro aðalbankastjóri
Hambrosbanka heimsækir ísland
UM þessar mundir er staddur
hér á landi Mr. John Henry
Hambro, aðalbankastj. Hambros
banka í Bretlandi. Þessi banki
hefur lengi verið í miklum tengsl
nm við ísland, en hann er helzti
viðskiptabanki Norðurlanida í
Bretlandi og einn stærsti verzl-
unarbankinn þar í landi.
Hambrosbanki hefur haft tengsl
við ísland allt frá 1914 og var
í langan tíma eini viðskiptabanki
íslands í Bretlandi. Komst banka
sambandið í upphafi á við Lands-
banka íslands, en hefur einnig
komizt á við aðra banka hér, er
þeir voru stofnaðir. >á hefur
Hambrosbanki haft mikið sam-
band við íslenzka atvinnuvegi og
Iánað m.a. fé til fiskiðnaðar og
útgerðar. *
í>á hefur Hambrosbanki verið
helzta lánastofnun íslenzku ríkis
stjórnarinnar í Bretlandi og út-
vegaði þannig stórt lán fyrir um
tveim árum. Var það fyrsta er-
lenda lánið í Bretlandi frá stríðs
lokum, sem ekki var bundið við
útflutning frá Bretlandi eða ein
hverjum öðrum kvöðum. Loks
hefur Hambrosbanki lánað fé tif
margra íslenzkra togara. sem
smíðaðir hafa verið í Bretlandi.
J. H. Hambro bankastjóri er
fæddur 1904. Ættfaðir hans,
Joseph Hambro (1740—1848) var
sonur fátækra foreldra af Gyð-
ingaættum í Kaupmannahöfn.
Hann menntaðist í Hamborg, fór
síðan að starfa í verzlun í Kaup
mannahöfn og efnaðist skjótt.
Árið 1848 settist hann að í
Lundúnum.
Ættin greindist í tvennt. Fór
önnur grein hennar til Noregs
(Björgvinjar) en hin til Eng-
J. H. Hambro.
lands. Hefur samband milli
þeirra alltaf verið mjög mikið,
enda þótt margir ættliðir að-
skilji nú skyldleikann. Hefur
bankastarfsemi alltaf verið höf-
uðstarfsemi ættarinnar í Bret-
landi, en í Noregi . stjórnmála-
starfsemi og ritstörf. Einn þekkt-
asti afkomandi Hambroættarinn
ar þar var C. J. Hambro, sem
m.a. var forseti norska Stórþings
ins um skeið.
1 för með J. H. Hambro hér
eru kona hans og Moltesen fram
kvæmdastjóri þeirrar deildar
Hambrosbanka, sem annast
bankastarfsemi við ísland og
Danmörk.
Á föstudaginn var voru
Hambroshj ónin við laxveiðar í
Langá, ásamt forseta íslands.
>au fara utan að öllum líkind-
um n.k. þriðjudag.
Hvalveiðin
AKRANESI, 3. júlí — 157 hval-
ir hfðu veiðzt á hvalbátana fjóra
á siaginu klukkan tólf í dag. Þar
af voru fjórir nvalir á leiðinni
i land. >etta er álíka veiði og
var í fyrra á sama tíma. Einn
til tvo síðustu dagana hefur ver
ið nokkur þoka áhvalatniðum.
Ms Dettifoss tók 69 tonn af hval
ke1i alveg nýverið. Áður voru
farin 200 tonn hvalkets af þessu
árs framleiðslu.
— Oddur.
Tograinn Karlsefni í Keykjavíkurhöfn í gær.
(Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Karisefni með 250 tonn
af saltf iski til Esbjergs
Togarinn Karlsefnl kom af
tveggja mánaða veiðum við
Grænland í gærmorgun með um
250 tonn af saltfiski, sem átti
að sigla með áleiðis til Esbjerg
í gærkveldi. Aðrir togarar munu
ekki hafa veri ðað saltfiskveið-
um að undanförnu, enda þarf
miklu fieiri menn til þeirra en
á venjulegar veiðar. Ragnar
Thorsteinsison, framkvæmda-
stjóri útgerðarfyrirtækisins,
kvað Karlsefni ekki mundu far^
aftur á saltfiskveiðar að svo
stöddu.
Helgi Þórarinsspn, fram
kvæmdastjóri Sölusambands ís-
lenzkra fiskframleiðenda, kvað
sennilega nægan markað fynr
íslenzkan saltfisk í Esbjerg, en
ekki væri vitað um áframhald-
andi saltfiskveiðar eða sölur þar.
Herferð gegn hungri
Á síðasta þingi Æskulýðssam-
bands íslands var einróma sam-
þykkt, að samtökin skipuðu
nefnd, er starfi að framkvæmd
„herferðar gegn hungri“, (Free-
dom from Hunger Campaign),
en hún fer fram um allan heim
Utgjöldum Reykjavík urborgar
haldið mjög í skefjum
— Frá umræðu um reikninga
borgarinnar
Á FUNDI borgarstjórnar sl.
fimmtudag voru reikningar
Reykjavíkurborgar fyrir árið
1964 til annarrar umræðu. Af
hálfu minnihlutaflokkanna tóku
til máls, Guðmundur Vigfússon
(K), Björn Guðmundsson (F) ;og
Einar Ágústsson (F). Gerðu þeir
nokkrar athugasemdir við reikn-
ingana, en Geir Hallgrímsson,
bórgarstjóri varð fyrir svörum.
Borgarstjóri ræddi m.a. í ræðu
sinni þá gagnrýni, sem fram
hefði komið, að tekjur hefðu far-
ið fram úr áætlun og þar með að
tekjuáætlun hefði verið of væg.
Hann gat þess, að útsvör og að-
stöðugjöld væru þeir tekjuliðir,
sem farið hefðu fram úr áætlun.
I þvi sambandi minnti hann á,
að reikningarnir væru þannig
færðir, að til tekna kæmu, öll
álögð útsvör og aðstöðugjöld, en
þá hefði verið bætt við fjárhags-
áætlun 10% álagi fyrir vanhöld-
um, eins og heimilt er í lögum.
Aðeins væri dregið frá það, sem
fellt hefði verið niður af eldri út-
sVörum, en sú upphæð væri mun
lægri en vanhaldaálagið. Borgar-
stjóri taldi fyllilega koma til
greina að færa sérstakan van-
haldareikning, endá væri hér
ekki um raunverulegar ráðstöf-
unartekj ur að ræða. Tií saman-
burðar gat borgarstjóri þess að á
ríkisreikningi væri fært til tekna
aðeins það fé, sem greitt væri
inn á viðkomandi ári.
Sú gagnrýni hafði komið fram,
að lausaskuldir borgarinnar
hefðu aukizt of mikið. Borgar-
stjóri svaraði þeirri gagnrýni á
þann veg, að borgarsjóður þyrfti
á allmiklu rekstursfé að halda,
þar sem tekjur borgarsjóðs inn-
heimtust að miklum hluta á síð-
ustu mánuðum ársins, en gjöid-
in féllu jafnt og þétt allt árið.
Einhverjar lausaskuldir væru
því ekki óeðlilegar. Hrein eign
borgarinnar hefði aukizt um 130
milljónir króna og þegar það
væri haft í huga, væri skulda-
aukning um 30 milljónir króna
ekki óeðlileg. Skuldir borgar-
sjóðs við sjóði borgarinnar hefðu
lækkað, en það væri ekki óeðli-
legt, þótt borgarsjóður stofnaði
til skulda við sjóði borgarinnar,
enda væri það hagkvæmara fyr-
ir sjóðina að lána borginni með
útlánsvöxtum en að láta sjóðina
liggja á innlánsvöxtum í lána-
stofnunum.
Þá hafði það verið gagnrýnt að
rekstrargjöld borgarsjóðs hefðu
farið 3,3 milljónir fram úr áætl-
un. Borgarstjóri benti á, að sú
upphæð næmi aðeins 0,7% af á-
ætluðum rekstrargjöldum borg-
arinnar. Skýring á auknum út-
gjöldum væri einkum sú, að
vegna kauphækkana á miðju ári
(júnísamkomulagið) hefðu ýmis
útgjöld aukizt á árinu. Aukin
útgjöld vegna skrifstofuhalds frá
árinu áður ættu sér þær rætur,
að árið 1964 var fyrsta heila ár-
ið, sem hinar auknu kjarabætur
opinberra starfsmanna féllu á,
en hin nýju launakjör komu til
framkvæmda 1. júlí 1963.
Borgarstjóri gerði síðan gatna-
og holræsagerð nokkuð að um-
talsefni og sagði, að eigi hefði
verið unnt að vinna fyrir allt
það fjármagn, sem áætlað hefði
verið .á árinu 1964, vegna skorts
á vinnuafli. Unnið hefði verið
fyrir 108 milljónir króna. Það
væri óumdeilanlegt, að vel hefði
verið unnið að framkvæmdum í
þeim málum.
Borgarstjóri gat þess, að þörf
væri á, að gera sér grein fyrir
því, hvað unnt væri að gera til
að bæta rekstur bæjarútegrðar
Reykjavíkur. Það gæti eigi geng-
ið til lengdar, að BÚR tapaði 20
milljónum króna á ári eins og
1964 og borgarsjóður þyrfti að
taka á sig útgjöld að upphæð 15
milljónir króna.
Þegar á heildina er litið, sagði
borgarstjóri, og borið saman við
önnur sveitarfélög hefðu útgjöld
Reykjavíkurborgar ekki vaxið
mikið, enda væru útgjöldum borg
arinnar haldið niðri eins og
mögulegt væri án þess að þjón-
usta við borgarana væri skert.
Það væri hins vegar alltaf mats-
atriði, hvaða kröfur ættu að upp
fylla og hvað borgararnir vildu
í rauninni greiða miklar fram-
kvæmdir, þegar til kastanna
kæmi og skattreikningarnir birt-
ust. Ekkert væri gert, nema
borgararnir sjálfir stæðu undir
kostnaðinum. Útboð í veigamikl-
ar framkvæmdir hefðu sparað
borginni fé og sýnt, að eigi væri
unnt að fá framkvæmdirnar unn-
ar fyrir lægra verð, en raun bæri
vitni um. Nú væri á lokastigi
undirbúningur vegna aðalskipu-
lags borgarinnar. í því skipulagi
væri ekki eingöngu gert ráð fyr-
ir skipulagi einstakra borgar-
hverfa, heldur væri þar tekið
tillit til allra þeirra framkvæmda,
sem nútímaborgarfélag krefst.
Rpikningar borgarinnar voru
að lokum samþykktir með tólf
samhljóða atkvæðum.
á vegum Matvæla- og landbún-
aðarstofnunar Sameinuðu Þjóð-
anna (Food and Agriculture Org
anisation). Skal nefndin starfa
að fjársöfnun hér á landi til á-
kveðins verkefnis í þróunarlandi
er ákveðið verður í sameiningu
af hinni íslenzku framkvæmda-
nefnd HGH og Matvæla- og land
búnaðarstofnun Sameinuðu
Þjóðanna. Nefndinni til aðstoð-
ar starfar samstarfsnefnd, sem
skipuð er einum fulltrúa frá
hverju aðildarsambandi ÆSÍ.
Síðastliðið haust skipaði ÆSÍ
undirbúningnefnd til þess að
athuga möguleika á því, að sam
tökin tækju þátt í alheimsbar-
áttu þessari. f nefndina var skip
aður einn fulltrúi frá hverju
hinna pólitísku æskulýðssam-
banda, þeir Sigurður Guðmunda
son, sem var formaður néfndar-
innar, Elías S. Jónsson, Magnúa
Jónsson, Ragnar Kjartansson og
auk þess Örlygur Geirsson úr
stjórn ÆSÍ.
Á þinginu var samþykkt að
sömu menn skyldu eiga sæti i
fyrstu framkvæmdanefnd HGH,
og má því segja, að nfendin hafi
starfað óslitið um 8 mánaða
skeið að undirbúningi þeirra að-
gerða, sem fyrirhugaðar eru
næsta haust.
Nú hefur nefndin opnað skrif-
stcfu að Frikirkjuvegi 11. og
hefur verið ráðinr/ framkv.stj,
Jón Ásgeirsson.
xHingað til lands er væntanleg-
ur hr. Kjeld B. Juul fulltrúi frá
Evrópudeild HGH, til viðræðna
við hina íslenzku HGH nefnd og
fleiri aðiia.
Ávarp frá aðilum samstarfs-
nefndar birtist á bls. 23.
Aðalfundur IMorræna sam-
vinnusamb. haldinn hér
AÐALFÚNDUR Norrænia sam-
vinnusambandsins (Nordisk And
eisforbund, NAF) verður hald-
inn á Hótel Sögu dagana 4.—7.
júlí n.k. Á fundinum mæta um
hundrað fulltrúar, íslenzkir og
erlendir.
Tilgangur NAF er fyrst og
fremst að sjá um vöruinnkaup
fyrir aðildarsamtök sín á heims
markaðinum, á sem hagkvæmust
um kjörum. Aðalskrifstofur sam
bandsins eru í Kaupmannahöfn.
Umsetning NAF á árinu 1964
nam 511,6 milljónum danskra
króna og jókst á árinu um 24%.
Hluti S.Í.S. I umsetningunni
hækkaði um 4%. Eftir að sam-
vinnusamböndunum hafði verið
úthlutað tekjuafgangi, að upp-
hæð d.kr. 2,5 miílj. varð tekju*
afgangur á rekstrarreikningi d.
kr. 119.473. Að viðbættum eftir-
stöðvum frá fyrra ári, sem nema
d.kr. 326.984 er til ráðstöfunar
á aðalfundi d.kr. 446.457.
Af íslands hálfu á Erlendur
Einarsson sæti í stjórn NAF.
LÆGÐIN fyrir S. Græn- ast kl. 9 á Kirkjuþæjarxl.
land fór sér hægt í gær, en 14°, en kaldast á Kambanesi,
seig þó norður, og hæðin yf- 4°. Á Hveravöilum er nú
ir íslandi og hafinu suður byrjað að mælta hita, og var
undan lét nokkuð undan. Veð hann 10’ þár um morgúninn.
ur var blítt um allt land, hlýj