Morgunblaðið - 04.07.1965, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLADIÐ
Sunnuclagur 4. júlí 1965
f
EINS og skýrt hefur verið
frá í fréttum er ráðgert, að
13 nýjustu geimfaraefni
Bandaríkjanna komi til ís-
lands fyrri hluta þessa mán
aðar. Er ferðin þáttur í
þjálfun geimfaranna og
námi þeirra í jarðfræði. —
Koma þeir hingað til lands
vegna þess að ýmsir jarð-
fræðingar telja, að í hrauni
hér finnist líkar jarðmynd-
anir og á hinu dimma lág-
lendi tunglsins.
Hér á eftir fer stutt grein
eftir fréttaritara Associat-
ed Press um geimfarana og
ferð þeirra til íslands.
Huston, Texas.
Þrettán bandarískir geimfar
ar koma til íslands 11. júlí nk.
og dveljast þar í viku við
rannsóknir á hraunmyndun-
um, sem sumir vísindamenn
telja að likist yfirborði tungls-
ins. Er ferðin liður í námi
geimfaranna í jarðfræði, en
áður hafa þeir heimsótt í sama
tilgangi svæðið umhverfis Kat
ami-eldfjallið í Alaska og eld-
fjallasvæði í fimm öðrum ríkj-
um Bandarikjanna: Oregon,
Arizona, New Mexikó, Kali-
forníu og Hawaii.
Ráðgert er að geimfaraefnir.
ferðist um nágrenni Reykja-
víkur og rannsaki hraunmynd
anir. Ef tími vinnst til, heim-
sækja þeir fleiri staði á ís-
landi, þar á meðal Öskju og
Lakagígi. Með þeim í förinni
Frá jarðfræðirannsóknum bandarisku geimfaraefnanna í Grand Canyon, Arizona sl. vor.
verða jarðfræðingar geimvís-
indastofnunar Bandaríkjanna
(NASA) og fulltrúi upplýs-
ingadeildar stöðvarinnar, sem
skipuleggur mannaðar geim-
férðir Bandaríkjamanna.
Sem kunnugt er, liggur fs-
land nyrzt á hinum svonefnda
Mið-Atlantshafshrygg. — Dr.
Elbert King, einn af jarðfræð-
ingunum, sem kemur til ís-
lands með geimförunum, bend
ir á, að margar eyjar á þessum
hrygg séu frægar fyrir eldgos,
þar á meðal Azoreyjar og
Tristan da Cuhna. íbúar þeirr-
ar síðarnefndu urðu að yfir-
gefa hana fyrir nokkrum ár-
um vegna gífurlegs elgoss,
sem eyddi byggðina, en nú
hafa flestir þeirra flutt heim
aftur.
Síðan sagði dr. King, að
margir vísindamenn teldu, að
hraunmyndanir á íslandi líkt-
ust þeim jarðvegi, sem geim-
förunum myndi mæta á hinu
dimma láglendi tunglsins. En
það er á slíkum láglendissvæð
um, sem ráðgert er að Apollo-
geimför Bandaríkjanna lendi í
framtíðinni. bað fyrsta fyrir
1970.
Geimfaraefnin 13, sem til fs
lands koma, eru: Edwin E.
Aldrin, William A. Andres,
Charles A. Bassett, Alan L.
Bean, Eugene A. Cernan, Rog-
er B. Chaffee, Michael Coll-
ins, Walter Cunningham, Donn
F.Eisele, Richard F. Gordon,
Russell L. Schweikart, David
R. Scott og Clifton C. Willi-
ams. Þeir voru allir valdir til
geimferðaþjálfunar í október
1963, og hafa fyrst og fremst
verið þjálfaðir með tunglferð-
ir fyrir augum. Því er senni-
legt að einn úr þessum hópi
verði fyrsti teandaríski geim-
farinn, sem lendir á tunglinu.
í nær tvö ár hafa geimfara-
efnin notið tilsagnar í jarð-
fræði, og með náminu er verið
að búa þá undir rannsóknir á
yfirborði tunglsins. Þegar til
tunglsins kemur, er ráðgert
að geimfararnir safni jarðvegs
sýnishornum, og ef til vill
varpa þau ljósi á uppruna
fylgihnattar jarðarinnar. Er
því mikil áherzla lögð á að
geimfararnir nái sem mestri
þjálfun í jarðfræði.
Ráðgert er, að fyrstu geim-
fararnir, sem lenda á tunglinu
hafi með sér til baka til jarðar
um 30 kg jarðvegs af yfirborði
þess. Hluti tækjanna, sem
stjórnar lendingunni á tungl-
inu, verður skilinn eftir þar,
en jarðvegssýnishornunum
komið fyrr í þeirra stað. Veg-
ur þessi hluti tækjanna um
100 kg.
Talsmaður stöðvarinnar, sem
sér um þjálfun geimfaranna,
segir mjög mikilvægt, að þeir
viti hvernig steinar á jörðinni
séu útlits, því að sú vitneskja
geri þá hæfari til að velja
sýnishorn á tunglinu. Síðan
sagði talsmaðurinn:
„Þekking okkar myndi ekki
aukast mikið, ef þeir kæmu
með 30 kg af loftsteinum. Við
vitum þegar, að slíkum stein-
um rignir á tunglið, og við
höfum steina úr sama efni á
jörðinni".
Tveir geimfaranna, sem hingað eru væntaniegir, Eugene A.
Cernan og David R. Scott, ásamt Scott Carpenter (lengst t.
v.), en hann fór í geimferð 1962. Myndin var tekin, er þeir
voru í jarðfræðileiðangri í Arizona nú í vor.
Ted Foss, einn af jarðfræðingum geimvísindastofnunarinnar, útskýrir jarðmyndanir fyrir Alan
B. Shepard, fyrsta geimfara Bandaríkjanna, og William A. Anders, en sá síðarnefndi (iengst t.
h.) er i hópnum, sem kemur hingað til lands.
tsa
2;a—3;a herbergja
íbúð óskast til leigu sem fyrst. Tilboð sendist Mbl.
fyrir n.k. miðvikudagskvöld merkt: — „6037“.
ATHOCIÐ
að borjð saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunbtaðinu en öðrum
biöðum.
Atvinna
Duglegur og reglusamur maður getur
fengið atvinnu.
Kexvea’ksmiðfan Frón hf.
Skúlagötu 28.