Morgunblaðið - 04.07.1965, Page 25

Morgunblaðið - 04.07.1965, Page 25
MORCUNBLAÐIÐ 25 Sunnudagur 4. }«1f 1965 Bdk um dsnortna náttúru Evrdpu NÝKOMIN er út hjá Chanti- cleer Press önnur bókin í bóka flokknum „Meginlöndin, sem við byggjum". Fjallar hún um villt dýr, sem þar lifa. Bókin þá staði Evrópu, sem manns- höndin hefur látið ósnerta og I Villt fjallageit í Hvítufjöllum á vestan verðri Krít. er tæpar 300 bls., og myndir skipa þar stærstan sess. Höf- undur textans er þekktur, sænskur dýrafræðingur, Kai Curry-Lindahl, og einnig hef- ur hann tekið nokkrar mynd- anna, sem eru alls 250. — En Curry-Lindahl er yfirmaður náttúrufræðideildar norræna _ safnsins í Stokkhólmi. Á einum stað í bókinni seg- ir hann: „Það er ekkert eins fallegt á jörðinni og þeir fáu staðir, sem maðurinn hefur látið óhreyfða". Bókin hefst á inngangi um Evrópu, en síðan koma mynd- ir frá strönd Miðjarðarhafsins, þá löndunum við Svartahaf og þaðan til Atlantshafsstrandar- innar um Karpataf jöll og Alp- ana. ' Frá Portúgal er haldið með ströndinni til Nord Cap og Bretland látið fylgja, þá eru myndir frá Svíþjóð og Noregi, en síðustu myndirnar í bókinni eru frá íslandi og eyjunum við norðurheimskaut ið: Jan Mayen, Svalbarða, Franz Jósefs landi og Novaya Zemlya. Myndunum fylgja frásagnir af jarðfræði landanna, lofts- lagi, jurtagróðri og dýralífi. Þörf og göö bók Gróbur á Islandi eftir Steindór Steindórsson, frá Hlöðum Fyrir rösku ári kom út bók með þessu heiti, rituð af Stein- dóri Steindórssyni menntaskóla- kennara á Akureyri og gefin út «f Almenna bókafélaginu. Þeg- ar menn nú taka sér sumarleyfi til þess að ferðast um landið er þetta tilvalin bók að hafa með sér, sem fremi sem menn vilja vita eitthvað meira en almennt gerist um gróðurlendi landsins. Engin bók hefur verið til um þetta efni áður en þessi kom út. Bókin er þvi frumsmíð, gerð til þess að lýsa gróðurlendum ís- lands með þeirri nákvæmni, sem nú er kostur á. En höfundur byggir bók sína á 30 ára rann- sóknum á gróðurlendum lands- ins. Hefur hann kannað flest héruð þess og viðað að sér meiri þekkingu um þau en nokkur annar. í inngangi bókarinnar, sem er S2 blaðsíður, er margan fróð- leik að finna. Þar er fyrst greint frá llu því helzta, er ritað hef- ur verið um gróður og gróður- ránnsóknir frá því að Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson ferð- uðust um landið fyrir röskum 200 árum. Síðan er lýst hlutfall- inu milli hinna ýmsu lífmynda og tegundaflokka og greint frá fjölskrúðugustu ættunum. Enn fremur er skýrt frá flórunni í hinum ýmsu landshlutum og þeim mismun, sem á henni er. Þá er flóra landsins borin sam- an við flóru nágrannalandanna og síðast í innganginum setur höfundur fram skoðanir sínar * uppruna íslenzku flórunnar, en kenningar hans hafa grund- vallarbreytingu í för með sér á Þeim hugmyndum, sem taldar hafa verið réttar fram að þessu. Arið 1962 kom út bók á vegum Vísindafélags íslendinga eftir Steindór, þar sem hann setti þessa kenningu sína fram í heild. Sú bók er á ensku og í fárra höndum, en hún mun valda tímamótum 1 íslenzkri náttúrufræði. Eftir þennan skilmerkilega inngang bókarinnar kemur fyrst stuttur kafli um stöðu íslands í gróðurbeltum jarðar, en síðan hefst lýsing á hinum ýmsu teg- undum gróðurlendanna. Þeim er skipað niður í 12 aðalflokka, en þeim er svo sumum hverjum skipað í undirflokka til frekari skýrgreiningar. Hinir 12 flokkar eru þessir: Strandgróður, vatnagróður, gróð ur jarðhitasvæða, mýrlendi, gras og blómlendi, snjódældir, mó- lendi eða heiði, mosaþembur, hraun, skóglendi, bersvæðisgróð ur og loks hálendisgróður. Mýr- lendi og bersvæðisgróðri er hvorutveggja skipt í 6 undir- deildir, en aðrir flokkar eru án skiptinga, svo sem mólendi, skóglendi o.fl. Meginefni bókarinnar er því félagsfræði plantnanna, (öko- logi) og fjallar hún um, hvern- ig hinar ýmsu tegundir skipa sér niður í gróðursamfélög og hvernig þau mótist af lífsskil- yrðunum á hverjum stað. Kaflarnir um hin ýmsu gróð- urlendi eru auðlesnir, því að þeir eru skrifaði á Ijósu og léttu máli. 1 sumum þeirra eru fróð- legar lýsingar á sögu gróður- lendanna, t.d. skóglenda og ber- svæða, og gerir þetta kaflana enn aðgengilegri. Vitaskuld geta menn ekki haft full not af bókinni nema með því að þekkja nokkrar einkenn- isplöntur gróðurlendanna, en þær þurfa ekki að vera svo ýkja margar til að byrja með. Les- andinn mun ósjálfrátt læra að þekkja margaf plöntur til við- bótar án verulegrar fyrirhafnar um leið og hann fer að skoða gróðurlendin og lesa bókina. Þá má gera ráð fyrir, að menn hafi misjafnlega mikinn áhuga fyrir hinum ýmsu gróðurlendum, en þá er ekki um annað að ræða en að hlaupa yfir þau sem mönnum finnst minnst um vert og byrja á hinum, sem forvitnilegast er "ð skoða. Aðalatriðið er að byrja á því einfaldasta og léttasta og fika sig þannrg áfram. Því er nú verr, að þekking ls- lendinga á gróðri landsins hefur lengst af verið af mjög skornum skammti og er það raunar enn. Þetta er þeim mun furðulegra, þar sem þjóðin telur sig hafa verið landbúnaðarþjóð, og dreg- ið fram lífið á gæðum gróðurs- ins. Til þessarar fáfræði liggja auðvitað margar orsakir, m.a. sú, að fræðslukerfi landsins er tæpast gert ráð fyrir að menn læri nokkuð að gagni í náttúru- fræðum yfirleitt. Þá hefur og skort mjög á góðar kennslubæk- Hér sjást flugvélar úr fræg- ustu flugsveit bandaríska flot ans, Blue Angels, sem sýna Reykvíkingum listir sínar á miðvikudagskvöld. Sýningin fer fram yfir Skerjafirði, og mun bezt fyrir áhorfendur að stada í Nauthólsvík. ur í grasafræði, er svari kröfum tímans. Bók Steindórs er of stór og viðamikil til að verða kennslubók nema við búnaðar- skólana, en það er bráð nauðsyn að hann dragi helstu atriðin úr þessari bók og semji kennslu- bók um félagsfræði gróðursins, sem nota mætti til landsprófs Margir eru á þeirri skoðun, að það sé erfitt að þekkja plöntur og næsta tilgangsltíið. Kemur þetta ekki hvað sízt til áf því, að kennsla í grasafræði er oftast miðuð við að greina plöntur og færa þær til ætta, eins og gert er í hverri flóru. Slikt er byggt á misskilningi, því að það er að- eins nauðsynlegt að þekkja til- tölulega fáar plöntur þegar menn geta farið að hyggja að gróðursamfélögum og félags fræði plantanna. Því er eins var ið með þetta og stafrófið og lest- urinn. Enginn mundi hafa gam- an af að þekkja nokkra stafi, ef sá kynni ekki að lesa sér til gagns og ánægju. Eins er það með grasafræðina. Menn verða að þekkja nokkrar plöntur til að verða stautfærir og svo les- andi á bók náttúrunnar. Þeir, sem lesa þessa bók Steindórs Steindórssonar af alúð, geta orð- ið vel læsir á dásemdir gróðurs- ins á íslandi og skilningsbetri á þá nauðsyn að við verðum að umgangast gróður landsins með meiri varúð en hingað til. Hákon Bjarnason Landssamband veiði- félaga vill breytingar á laxveiðilögum Tillögur hafa verið lagðar fram til breytinga á laxveiðilög- unum. Þessar upplýsingar komu fram á aðalfundi landssambands veiðifélaga, sem haldinn var fyr ir nokkru. Aðalfundurinn gerði ákveðna samþykkt þar sem skor að er á Alþingi og ríkisstjórn að auka til muna starfsemi í þágu veiðimála. Aðalfundur landssambandsins sem haldinn var í Borgarnesi 20. júlí s.l., sátu fulltrúar veiðifé- laga úr þremur landsfjórðungum þrjú ný veiðifélög gengu í sam bandið á fundinum. Þórir Stein- þórsson, formaður Veiðimála- nefndar greindi frá tillögum Veiðimálanefndar og veiðimála- stjóra um breytingar á laxveiði- löggjöfinni. Þór Guðjóusson, veiðimálastjóri, flutti erindi um ástand og horfur í veiðimáluu- um. Eftirfarandi samþykkt var gerð á fundinum: „Þar sem ræktun og veiði göngufiska er sívaxandi og arð- bær þáttur í þjóðarbúskap ís- lendinga, ályktar aðalfundur Landsambands Veiðifélaga, halii inn í Borgarnesi 20. 6. 1965 a& skora á ríkisstjórn og alþingi: 1. að veita það ríflegt fé tH Veiðimálastofnunarinnar að hún geti sinnt aðkallandi verkefnum í rannsóknar- og upplýsingaþjón ustu á viðunandi hátt. 2. að séð verði fyrir, að flé sé fyrir hendi til að styrkja nauð synlega fiskvegagerð og veiðieft irlit. 3. að ríkisvaldið styðji með löngum og hagkvæmum lánuna eldisstöðvar fyrir nytjafisk.“ Kaus fundurinn þrjá menn þá Jörund Brynjólfsson, Kaldaðar- nesi, Guðmund Magnússon, Leir- vogstungu og Halldór Jónsson, Leysingjastöðum, til þess að fylgja tillögunni eftir til land- búnaðarráðherra og fjármála- ráðherra. Stjórn Landssambands veiðifé laga var endurkjörin, en í henni eiga sæti Þórir Steinþrórsson, skólastjóri, Reykholti, formaður Hinrik Þórðarson, Útverkum, og Óskar Teitsson, Víðidalstungu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.