Morgunblaðið - 04.07.1965, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 4. júlí 1965
CEORGETTE HEYER
FRIÐSPILLIRINN
— Ætli hún taki það ekki eftir
henni mönamu sinni, sagði Soffía
um leið og hún stóð upp og hristi
pilsið sitt. — Maður getur ekki
annað en tekið eftir því, hve oft
dæturnar líkjast mæðrunum.
Ekki í framan, heldur í öllu inn-
ræti. Þú hlýtur að hafa tekið eft-
ir þvi.
í>að var eins og honum kæmi
þetta eitthvað illa. — Nei, það
hef ég ekki, og ég held ekki, að
þetta sé rétt hjá þér.
— Jú, víst, þú þarft ekki ann-
að en líta á hana Cecy. Alveg
verður hún eins oig elskan hún
Lizzie frænka, þegar hún verður
eldri. Hún sá, að sannleikur þess-
ara orða hafði einhver áhrif á
hann, og þóttist hafa gefið hon-
um nægilegt umhugsunarefni í
bili. Hún færði sig að dyrunum
og sagði. — Jæja, ég verð að
fara að hafa fataskipti.
Hann stóð snöggt upp. — Nei,
bíddu.
Hún leit um öxl. — Nú?
Hann vissi ekki sjálfur, hvað
hann ætlaði að segja. — Ekkert.
Það skiptir engu máli. En næst
þeigar þú heimtar að kaupa
hesta, ættirðu heldur að segja
mér, hvernig þú vilt hafa þá.
Það er ekki heppilegt að hafa
ókunnuga menn fyrir ráðunauta.
— Já, en þú sagðist sjálfur
ekki vilja koma nærri því.
— Vitleysa. Þú hefur af engu
eins gaman og að láta mig hafa
á röngu að standa.
Hún hló, en fór út án þess að
svara honum. Þegar upp kom,
kom Cecilia þjótandi til að frétta
um væntanleg örlög sín.
— Ef hann talar yfirleitt við
þig, verður það til þess að vara
þiig við honum Alfred Wrax-
ton, sagði Soffía og sauð niðri í
henni hláturinn. — Ég sagði hon-
um út í æsar, hvernig sú skepna
hagar sér, og áminnti hann um
að gæta þín.
— Þú meinar það ekki?
— Víst meina ég það. Og ég hef
lokið miklu dagsverki, þó að það
hafi ekki allt verið eftir ströng-
ustu reglum. Oig viltu segja
Addie að Charles sé ekkert vond-
ur við hana. Og hann segir ekki
orð við mömmu þína um þetta,
sem gerzt hefur, og ég efast um,
að hann segi eitt orð við þig
heldur. Sú eina, sem hann kann
að segja eitthvert orð við, er hin
blessaða Eugenia hans. Ég vona,
að henni takist að gera hann
vondan.
7. kafli.
Cecilia gat beinlínis ekki trú
að því, að hún ætti ekki von á
einni skammadembunni frá bróð
ur sínum, og þeigar hún seinna
rakst á hann óvænt við hornið
í stiganum, greip hún andann á
lofti og reyndi að kikna ekki í
hnjánum. — Halló, sagði hann
og renndi augunum yfir fína
baUkjólinn hennar. Það er naum
ast þú ert fín. Hvert á að fara?
— Frú Sefton kemur eftir
kvöldmat til að fara með okkur
JAMES BOND
Soffíu í Almackklúbbinn, svar-
aði hún og 'varð fegin. — Mamma
treystir sér ekki í kvöld.
— Þú slærð allar hinar út með
öllum þessum fínheitum, sagði
hann.
— Hversvegna kemur þú ekki
með okkur? sagði hún og herti
upp hugann.
— Þá mundir þú ekki hanga
utan í honum Fawnhope, svaraði
hann þurrlega.
Hún hnykkti til höfðinu. — Ég
mundi nú ekki, hvort sem væri
vera allan tímann í vasa einhvers
herra.
— Nei, það mundirðu ekki
gera, svaraði hann rólega. En
þetta er bara ekkert fyrir mig og
ég ætla auk þess annað.
Hún hélt áfram, en var varla
kominn niður stigann, þegar
hann kallaði til hennar: — Ceci-
lia. Hún leit upp til hans, spyrj-
andi.
— Er þessi 'náungi, hann Wrax
ton eitthvað að angra þig?
19
Hún var næstum búin að fella
alvörusvipinn, en áttaði sig og
svaraði: — Ja, jæja, óg býst nú
við, að ég geti bitið hann frá
mér....... ef ég kærði mig um.
— Þú þarft ekki að taka nein
annarleg tillit í sambandi við
það, sagði hann. — Ég fullvissa
þig um, að ef Eugenia vissi um
þetta, yrði hún manna fyrst til
að fordæma hegðun hans.
— Þó það nú væri.
Enginn vissi um, hvort hann
hefði fundið neitt að við ungfrú
Wraxton, en hafi svo verið, hef-
ur það verið frekar meinlaust.
Að minnsta kosti virtist hún ekki
neitt buguð. En Soffía hafði eitt
ánægjulagt upp úr þessu. Næst
þegar ungfrú Wraxton fór að am
ast við Jacko, og láta í ljós við
frú Ombersley ótta sinn um að
fá að heyra það, einhvern dag-
inn. að hann hefði bitið börnin,
þá heyrði Charles til hennar og
greip fram í: — Bull og vitleysa.
— Ég held nú samt, að apabit
sé eitrað.
— Ef svo er, vildi ég, að hann
biti hann Theodór.
Frú Ombersley hreyfði ein-
hverjum andmælum, en Theodór,
sem var nýbúinn að fá skammir,
fyrir að brjóta rúðu með bolta,
hló bara. Ungfrú Wraxton fannst
hann ekki hafa fengið nægilega
refsingu fyrir annað eins afbrot,
og hafði þegar flutt ræðu um
það efni af mikilli alvöru. Char-
les hafði hlustað á, en hann sagði
aðeins: — Þetta er auðvitað satt,
en hann hitti nú skrattans vel.
Ég horfði á það sjálfur. Þetta til-
litsleysi við álit ungfrú Wraxton
gramdist henni og nú brá hún
fyrir sig einhverskonar glettni,
sem hún notaði við- börn og hélt
gamansama ræðu yfir Theodór
og benti honum á, að hann væri
heppinn ef uppáhalds dýrið hans
yrði ekki tekið af honum, fyrir
annað eins afbrot. Hann sendi
henni aðeins illt auga, en sagði
ekki neitt, en Gertrude greip
fram í: — Ég held þér sé bara
illa við Jacko, af því að hún
Soffía gaf okkur hann.
Þessi sanleiki af munni smæl-
ingjans hafði furðuleg áhrif á
alla viðstadda. Ungfrú Wraxton
fékk rauða bletti í kinnarnar,
frú Ombersley greip andann á
lofti, og Cecilia byrgði niðri í sér
hláturinn. Aðeins Charles og
Soiffía létu sem ekkert væri,
Soffía leit ekki upp úr saumum
sínum, en Charles sagði kulda-
lega: — Þetta var heiskulegt og
illkvittnislegt hjá þér, Gertrude.
Farðu aftur inn í kennslustofu,
ef þú getur ekki hagað þér vel.
Gertrude, sem yar farin að
geta skipt skapi, alveg eins og
eldra fólkið kafroðnaði og lagði
nú á skipulagslausan flótta út úr
stofunni. Frú Ombe^sley flýtti
sér að fara að tala um væntan-
lega: — Þetta var heimskulegt og
Ceciliu, til að heimsækja greifa-
frú Villacanas í Merton.
— Maður verður að sýna alla
kurteisi, sagði hún ,— og ég vona
bara, að það verði ekki rigning,
og ég vildi óska, að þú gætir
farið með okkur, Charles. Þetta
er unnusta hans ^ móðurbróður
þíns, skilurðu. Ég skal alveg
játa, að mér er ekki um að aka
út úr borginni án þess að karl-
maður sé með í för, þó að ég
viti, að það er hægt að treysta
honum Radnor, og svo hef ég auð
vitað tvo þjóna með mér.
— Góða mamma, þér ætti nú
að duga að hafa þrjá fílelfda
karlmenn til að vernda þig á
þessari hættuferð, svaraði Char-
les og brosti.
— Vertu ekki að pína hann
Charles til að fara, Lizzie frænka,
sagði Soffía og sleit úr nálinni.
— Sir Vincent hefur lofað að
ríða þangað með okkur, því að
hann hefur ekki séð hana San-
ciu síðan hann var í Madrid,
þegar maðurinn hennar var lif-
andi og hélt allar þessar ágætu
veizlur fyrir ensku liðsforingj-
ana. Nú varð ofurlítil þögn, en
þá sagði Charles: — Ef.þú vilt,
mamma, skal ég fara með ykkur.
Ég get tekið hana frænku í litla
vaigninum mínum, svo að ekki
verði of þröngt í ykkar vagni.
— Ég ætla nú að fara í mín-
um vagni, sagði Soffía einbeitt-
lega.
— Ég hélt, að þig langaði að
taka í þá gráu mína.
— Mundirðu lofa mér það?
— Gæti hugsazt.
— Nei, ég hef nú ehga trú á
loforðum, sem eru ekki ákveðn-
ari en svona. Farðu með hana
Ceciliu.
— Cecilia mundi miklu heldur
vilja vera í stóra vagninum með
henni mömmu. Ég skal lofa þér
að taka í taumana part af leði-
inni.
— Skárri er það nú rausnin,
sagði hún ertandi. Ég er alveg
steinhissa, Charles, og ég held
varla, að þú sért almennilegur.
—. Þetta verður áreiðanlega
alveg yndislegt ferðalag, sagði
— Þér hljótið að vera genginn af vitinu. Eftir jól þorir ekki
einu sinni konan mín að biðja mig um peninga.
ungfrú Wraxton. — Mér er næst
skapi að biðja yður að lofa mér
að sitja í hjá yður, frú Ombers-
ley.
Frúin var ofvel uppalin til
þess að láta þetta ganga fram af
sér, og svaraði með nokkurri
tregðu: — Já, alveg sjálfsagt,
góða mín, nema henni Soffíu
finnist við þá verða of mörg fyrir
greifafrúna að hýsa. Ekki vildi
ég kom henni í nein vandræði.
— Það er engin hætta, flýtti
Soffía sér að svara. — Hún lætur
nú ekki koma sér í ein eða nein
vandræði. Hún varpar öllum slík
um áhyggjum á brytann sinn.
Hann er franskur og hefur ekki
nema ánægju af að taka á móti
gestum, jafnvel svona litlum
hópi og við verðum. Ég þarf
ekki annað en skrifa henni og
sníkja póstáritun hjá frænda og
svo fær hún bréfið og fær það
brytanum.......ef hún þá nenn-
ir að hreyfa sig til þess...
— Mikið verður gaman að
hitta raunverulega, spænska
döntu, sagði ungfrú Wraxton.
— Það var rétt eins og Sancia
hefði verið einhver gíraffi, sagði
Soffía seinna við Ceciliu.
— Ég vildi, að ég hefði vitað,
að þú ætlaðir að fara með
mömmu, sagði hr. Rivenhall á
eftir, þegar hann fylgdi ungfrú
Wraxton út í vagninn. — Ég
hefði þá boðið sér sæti í kerr-
unni minni. En nú verður engu
breytt héðan af og það þykir
mér leitt. Ég hefði ekki sagst
ætla að fara, ef ég hefði ekki
heyrt, að Talgarth ætlaði að
verða einn í hópnum. Hamingjan
skal vita, að mér er fjandans
sama, hverjum hún frænka mín
giftist, en mér finnst samt, eins
og á stendur, verði maður að
gera það fyrir han frænda minn
að reyna að koma í veg fyrir
það samband.
' — Ég er hrædd um, að þessi
heimsókn hennar hafi valdið þér
auknum áhyggjum, elsku Char-
les. en það verður að fyrirgefa
mikið stúlku sem Kefur aldrei
kynnzt móðurumhyggj unni, en
annars var ég að vona að með
umsjá móður þinnar, mundi hún
reyna að laga sig eftir enskum
siðareglum.
O, ekki aldeilis, sagði hann.
— Mér er næst að halda, að hún
hafi nautn að því að láta okkur
öll vera eins og fest upp á þráð.
Og það er ekki að vita, uppá
hverju hún finnur næst, og vit-
anlega er mér sama, þó að hún
þekki hvern busa, sem gengur í
rauðum frakka........ en að vera
að gefa Talgarth undir fótinn er
einum of mikið. Það þýðir
minnst að segja, að hún kunni
sjálf að gæta sín....... og það
gerir hún sjálfsagt, en ég þori
að segja, að ef hún sést of oft
í för með honum, fær hún á sig
hverja kjaftakerlingu í allri borg
inni.
Eftir IAN FLEMINC
BUT OME OF THEM AT
THlS MOMEMT 15 PEAFEMEO
BY YOUS MEW
WIRELESS
SET.,._.
r WE FOUMD A VEEY POWEBFUL KAPIO PICIÍ-UP IM TUE
CHIMMEY. THE WIRES BUM UP TO BEHIMP THE MUMTZES^
ELECTEIC FIIZE WHECE TW5R6
— Ekki veit ég, hvernig það atvilc-
•ðist. Andspyrnuflokkurinn er hérna
í öllu sínu veldi.
— En einn úr þeirra hópi heyrir
ekkert á þessari stundu vegna hávað- lega uppi í íbúð Muntz-fjölskyldunn-
ans í nýja útvarpstækinu þínu.... ar, en það er þeim fyrir komið bak við
....Við fundum mjög öflugan út- rafmagnsarininn, þar sem einnig er
varpsrnóttakara í reykháfnum. Vitan- magnari.
Þórshöfn
Umboðsmaður Morgun-
blaðsins á Þórshöfn er Helgi
Þorsteinsson, kaupmaður og
í verzlun hans er blaðið selt
í lausasölu.
Reyðarfjörður
KRISTINN Magnússon,
kaupmaður á Reyðarfirði, er
umboðsmaður Morgunblaðs-
ins þar í kauptúninu. Að-
komumönnum skal á það
bent að hjá Kristni er blað-
ið einnig selt í lausasölu.
Seyðisfjörður
UMBOÐ Morgunblaðsins f
Seyðisfjarðarbæ er í Verzl.
Dvergasteinn. Blaðið er þar
einnig í lausasölu fram til
kl. 11,30 á .kvöldin. „Bar-
inn“, veitmgastofa, befur
blaðið í lausasölu.
AKUREYRI
Afgreiðsla Morgunblaðs-
ins er að Hafnarstræti 92,
sími 1905.
Auk þess að annast þjón-
ustu blaðsins við kaupend-
ur þess í bænum, er Akur-
eyrar-afgreiðslan mikilvæg-
ur hlekkur i dreifingarkerfi
Morgunblaðsins fyrir Norð-
urland allt. Þaðan er blaðið
sent með fyrstu beinu ferð-
um til nokkurra helztu kaup
staða og kauptúna á Norður-
landi, svo og til fjölda ein-
staklinga um allan Eyjaf jörð
Á Egilsstöðum
HJÁ Ara Björnssyni í Egils-
staðakauptúni er tekið á
móti áskrifendum að Morg-
unblaðinu. Þar í kauptún-
inu er Morgunblaðið selt
gestum og gangandi í Ás-
bíói og eins í Söluskála kaup
félagsins.