Morgunblaðið - 16.07.1965, Side 12
12
MORGUNBLADID
Fostudagur 18. júlí 1965
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
i'ramkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu kr. 5.00 eintakið.
ADLAIE STEVENSON
CJú óvænta frétt barst út um
^ heim í fyrradag, að Adlai
E. Stevenson, aðalfulltrúi
Bandaríkjanna hjá Samein-
uðu þjóðunum, hefði látizt þá
um daginn.
Adlai Stevenson var einn
þekktasti stjórnmálamaður
Bandaríkjanna hin síðari ár-
in. Hann var tvisvar tilnefnd-
ur frambjóðandi Demókrata-
flokksins til forsetakjörs, 1952
og 1956, en áður hafði hann
gegnt embætti ríkisstjóra í
Illinois-fylki. Stvenson náði
ekki kjöri forseta á móti hin-
um vinsæla Eisenhower, »n
þegar John F. Kennedy varð
forseti Bándaríkjanna, skip-
aði hann Adlai Stevenson að-
alfulltrúa Bandaríkjanna hjá
Sameinuðu þjóðunum, og því
starfi hefur hann gegnt sl. 5
ár, og til dauðadags.
Adlai Stevenson var einn
helzti leiðtogi frjálslyndra
manna í Bandaríkjunum. —
Hann átti traust og hollustu
milljóna manna um öll Banda
ríkin, sem aldrei gátu full-
komlega sætt sig við það, að
Stevenson yrði ekki forseti
landsins. Um hann hefur ver-
ið sagt, að hann hafi verið
bezti forseti, sem Bandaríkin
aldrei áttu.
Stevenson var mikill hæfi-
leikamaður og mælskumaður.
í þeim tveimur kosningabar-
áttuni, sem hann tók þátt í til
forsetakjörs, vöktu hinar fág-
uðu, viturlegu og vel fluttu
ræður hans mikla athygli.
Hann ferðaðist víða um heim,
og skrifaði margar bækur um
ferðir sínar. Sem aðalfulltrúi
Bandaríkjannc’ hjá Samein-
uðu þjóðunum var Adlai
Stvenson áhrifamikill mál-
svari lýðræðis, frelsis og
frjálsrar hugsunar á vett-
vangi alþjóðastjórnmála. —
Adlai Stevensons, verður
minnzt um heim allan sem
glæsilegs og hæfileikamikils
stjórnrnálamanns, og ákveð-
ins málssvara friðar og frelsis
í heiminum,
; HÆKKUN Á
GJALDSKRÁM
S.V.R. OG
HITAVEITUNNAR
Á fundi borgarstjórnar
Reykjavíkur í gærkvöldi
yar samþykkt nokkur hækk-
un á gjaldskrá Strætisvagna
Reykjavíkur og samþykkt var
að vísa til annarrar umræðu
tiílögu um hækkun á gjald-
skrá Hitaveitunnar. Hækkun-
in á gjaldskrá Strætisvagn-
anna nemur 15,9%, en fyrir-
huguð hækkun á gjaldskrá
Hitaveitunnar nemur 10%.
Gjaldskrár þessara fyrir-
tækja borgarinnar hafa ekki
verið hækkaðar síðan í des-
ember 1963, en á þeim tíma
sem liðinn er, hafa verulegar
hækkanir á rekstrarkostnaði
þeirra orðið, vegna hækkandi
kaupgjalds, og hækkaðs sölu-
skatts, en á þessu tímabili hef
ur söluskatturinn hækkað úr
3% í 7,5%, og hafa Strætis-
vagnarnir tekið þessa sölu-
skattshækkun á sig, án þess að
innheimta hana í auknum far-
gjöldum hingað til.
Það er auðvitað ljóst, að á
einhvern hátt verður að
standa undir auknum reksturs
kostnaði þessara borgarfyrir-
tækja. Ættu væntanlega allir
að vera sammála um, að
heppilegra er og heilbrigðara
að gera það á þann hátt að
hækka gjaldskrár þeirra, en
að innheimta þennan aukna
rekstrarkostnað í hækkuðum
útsvörum.
Þessi hækkun á gjaldskrám
Strætisvagnanna og Hitaveit-
unnar stendur í engu sam-
bandi við þá kjarasamninga,
sem nýlega hafa verið gerðir.
Tilraunir kommúnista til þess
að gera þessa hækkun nú tor-
tryggilega, og túlka hana sem
svik við nýgerða kjarasamn-
inga, ná ekki tilgangi sínum,
þegar af þeirri ástæðu, að
fulltrúum verkalýðsfélaganna
í Reykjavík var fullkunnugt
um það, þegar í upphafi samn
ingaviðræðnanna við atvinnu
rekendur, að óhjákvæmiiegt
mundi verða að hækká gjald-
skrár fyrirtækjanna vegna
aukins rekstrarkostnaðar. —-
Þetta hafa borgarfulltrúar,
bæði Sjálfstæðisflokksins og
einnig andstöðuflokkanna,
gert sér ljóst, sem bezt sést
af því, að fulltrúi Framsókn-
arflokksins greiddi atkvæði
með hækkunum í borgarráði
og Guðmundur Vigfússon,
borgarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins, gerði einungis tillögu
um það í borgarráði, að hækk
anirnar tækju ekki gildi strax,
en yrði frestað nokkuð, þótt
hanhviðurkenndi, að reksturs
kostnaður þessara fyrirtækja
hefði hækkað mikið frá því
gjaldskrá þeirra tók gildi í
desember 1963. Skrif komm-
únista um þetta undanfarna
daga eru því einungis áfram-
hald af tilraunum þeirra að
undanförnu til að skapa tor-
tryggni milli verkalýðsfélag-
anna og stjórnarvalda í land-
inu. Þær tilraunir munu ekki
takast, endd hafa fulltrúar
allra flokka í borgarstjórn í
raun viðurkennt nauðsyn þess
ara hækkana.
Ný, áður dþekkt tækni,
nýtt í „Mariner 4“
— og á jörðu niðri — fyrsta myndin
átti að berast i gærkvöldi — vitað
i dag, bvort sendingin heppnaðist
TÆKNI sú, sem notuð er við
sendingu mynda frá „Mariner
4“ til jarðar, er ný af nálinni,
og svo flókin, að bandarískir
vísindamenn telja, að ekkert
annað land muni ráða yfir
henni.
Myndunum er ekki sjón-
varpað, eins og venjulega hef-
ur verið gert, þegar myndir
hafa verið sendar frá geim-
förum, heldur er hver mynd
send í örsmáum ögnum, sem
rafeindaheilar „raða“ síðan
saman, til úrvinnslu í sérstök-
um rafskermum.
Þessi aðferð er tímafrek, svo
að myndirnar, sem „Mariner
4“ tók laust eftir miðnætti í
fyrrinótt (aðfaranótt fimmtu-
dags), 21 talsins, munu ekki
liggja fyrir framkallaðar, fyrr
en eftir 3. vikur.
Móttöku fyrstu myndarinn-
ar átti að ljúka um hálf tíu
leytið í gærkvöldi.
Dr. William H. Piekerinig,for
stöðumaður rannsóknarstofn-
unar þeirra í Pasadena, Kali-
forniu ( Jet Propulsion Labora
tory), sem að tilrauninni
stendur, hefur skýrt frétta-
mönnum svo frá, að það verði
ekki fyrr en í dag, föstudag,
a'ð hægt verði að ganga úr
skugga um það, hvort mynda-
takan hafi heppnazt. >á á
„Mariner 4“ að hafa sent þrjár
myndanna til jarðar.
Hins vegar á það að vera
ljóst fyrr, hvort Marz hefur
seglusvið, og sé svo, hvort
reikistjarnan er umlukin
geislabelti, líkt og jörðin.
Tæki um borð í „Mariner
4“ afla upplýsinga um seguí-
svið, geislun og önnur hálofta-
fyrirbrigði, s.s. geimryk, og
þessar upplýsingar áttiu að
berast til jarðar, strax að k»k-
inni ferð geimfarsins um-
hverfis reikistjörnuna.
Myndatakan gengur, eins og
áður segir, öðru vísi fyrir sig.
Hér er ekki um sjónvarp að
ræða. Til þess er fjarlægðin
milli jarðar og Marz of mikil,
215 milljón km. Tæki „Marin-
er 4“ vinna úr myndunum,
leysa þær upp í smáar agnir,
sem sérstök senditæki koma
síðan áleiðis til jarðar. Önn-
ur tæki, í rannsóknarstöðinni
Segulbandsupptakan á jörðu
ni’ðri er síðan send áfram
beint til Pasadena, þar sem
reikniheilar taka til starfa.
Þá tekur við sérstakur raf-
skermur, ekki ósvipaður
„Mariner 4“
í Pasadená, „raðá“ þeim síðan
saman aftur, unz mynd liggur
fyrir.
Myndatakan og séndingarn-
ar áttu að ganga þannig fyrir
sig: Hafi allt gengi’ð að ósk-
um, átti „Mariner 4“ að táka
21 mýnd, eins og áður greihir.
Er geimfarið lauk förinni fram
hjá bakhlið Mars, áttu tæki
að hafa komið myndunum á
segulband. >á átti sending
þeirra að hefjast, og sendingu
fyrstu myndarinnar að ljúka
á 8 klukkustundum og 20 mín
útum. Móttökustöðvarnar eru
þrjár, ein í Goldstone, Kali-
forniu, önnur í Jóhannesar-
borg, S-Afríku, og sú þriðja
í Madrid, á Spáni. Flyzt mót-
takan milli stöðvanna, eftir
því, sem jörðin snýst um
möndul sinn.
þeim, sem notaðir eru yið
sjónvarp,, aflmeiri miklu þó,
og „raðar" myndunum saman,
og kemur þeim á filmu, sem
síðan má framkalla á venju-
legan hátt.'
Þá munu sérfræðingar at-
huga myndirnar, sem síðan
verða birtar almenningi.
Það tékúr svo langan tíma
að senda hverja mynd á þenn
an hátt, að sendingu þeirra
verður ekki lokið, fyrr en
eftir 10 daga. Milli þess, sem
„Mariner 4“ sendir myndir,
senda tæki þess aðrar upp-
lýsingar í hálfa aðra klukku-
stund, hverju sinni. Er sjálf-
um sendingunum er lokið, líða
enn um tvær vikur, þar til alil
ar myndirnar hafa verið fram
kallaðar.
Þjóðhótíðoidags íslands
minnzt d þjóðþingi USA
f ÞINGTÍÐXNDUM bandaríska.
þjóðþingsins (The Congressional
Record) frá 17. júní í ár, birtist
ræða, sem Senator Quentin N.
Burdick frá Norður-Dakota
hafði flutt á þjóðþinginu þann
dag í tilefni af 21. árs afmæli
íslenzka lýðveldisins. Samtímis
birtist í þingtíðindunum kafli um
landnám íslendinga í Norður-
Dakota úr bók frú Thorstínu
Walters Modern Sagas, en kafl-
ann hafði Senator Burdick látið
prenta í þingtíðindunum ásamt
ræðu sinni til frekari áréttingar
máli sínu.
Ræða senatorsins hefir að
fyrirsögn: „Icelancric Independ-
ence Day“ (Lýðveldisdagur ís-
lands). Er hún sérstaklega vin-
samleg í garð íslands og vor fs-
lendinga, samin af glöggum skiln
ingi á brautryðjendabaráttu ís-
lenzkra landnema vestan hafs.
En kaflinn úr bók frú Þórstínu,
sem hér er um að ræða, fjallar
einmitt um tildrög stofnunar
landnámsins í Norður-Dakota,
og þá menn, sem þar komu mest
við sögu. Er það glögg og greina-
góð frásögn, eins og senatorinn
bendir á í ræðu sinni.
En Senator Burdick skuldun*
vér íslendingar beggja megia
hafsins þökk fyrir að hafa
minnst lýðveldisdags íslands eina
vel og drengilega og hann gerði
í umræddri ræðu sinni á þjóð-
þinginu, og fyrir að láta prenta
hana og framannefnda lýsingu á
landnámi íslendinga í Norður-
Dakota í sjálfum þingtíðindum
þjóðþingsins. Með því er landi
voru og þjoð sýrid bæði vinsemd
og virðing. Ríchárd Beck.