Morgunblaðið - 14.10.1965, Page 12

Morgunblaðið - 14.10.1965, Page 12
12 MÖkGUN BLAÐIÐ Fimmtudagur 14. o1-1'her 1965 VfcöW TUNGARÐINN TUNG/ GÁRÐI u Vinnur að jurtakynbdtum í Suðaustur-Asíu Rætt við Dr. Björn Sigurbjörnsson r YRIR nokkru var á ferð hér á landi dr. Björn Sigur- björnsson. Dvaldist hann hér I mánuð í sumarleyfi. Við not- um tækifærið og röbbum við hann nokkra stund. Dr. Björn er vel þekktur hér á landi fyrir starf sitt við Búnaðar- deild Atvinnudeildar Háskól- ans, þar sem hann vann að jurtaerfðafræði og kornrann- sóknum. Við spyrjum dr. Björn um starf hans erlendis og farast honum orð á þessa leið: — Ég vinn sem deildarstjóri við jurtakynbóta- og erfðafræði- deild, sem heyrir undir FAO og Alþjóðakjarnorkumálastofnunina. Bækistöð mín er í Vín. Þarna í Vín eru 800 manns við hverskon- ar kjarnorkurannsóknir. 25 km aunnan við Vín eru rannsóknar- stöðvar og þar hefir landbúnað- urinn allgóða aðstöðu. 90% af starfi þessara stofnana er fyrir þróunarlöndin og mitt svæði er í SA-Asíu og þess vegna er starfs svið mitt nær eingöngu hrís- grjónarannsóknir. Markmiðið er að auka framleiðsluna í þessum löndum, því stöðugt er þörf auk- innar fæðu vegna hinnar stór- felldu fólksfjölgunar. Fram- leiðsluaukningin er fengin með því að nota við hana geislun og afbrigði valin eftir því hve snemmþroska þau eru og hve mótstaðan. er mikil gegn sjúk- dómum, sem herja plöntutegund- ir þarna í stórum stíl. Minn þáttur í starfinu er að skipuleggja rannsóknarverkefnin með því að hafa samband við skóla og þá fáu lærðu, sem fyrir eru í hverju landi. Síðan hittast rannsóknarmennirnir á árlegum fundum og bera saman bækur sínar. Jurtakynbæturnar eru að sjálfsögðu mitt sérsvið. Mjög athyglisverður þáttur I þessu starfi er útrýming skordýra en sá þáttur heyrir þó ekki beint undir mína deild. Útrýmlng skor- dýranna tíðkast nú mjög með þeim hætti að stráð er miklum fjölda ófrjórra skordýra innanum Wn frjóu. Finna mörg hinna frjóu sér maka meðal hinna ó- frjóu en geta engin afkvæmi og þannig deyr skordýrategundin út, eftir að ófrjóum dýrum hefir ver- iS blandað saman við nægilega aft. — Hvað eru jurtakynbætur með geislum, dr. Björnr — Geislakorn er talsvert þekkt hér á landi. Korntegundir, sem. hafa verið valdar íil útsæðis eftir að stökkbreytingar hafa verið gerðar á þeim með geisiun, eru harðgerðustu korntegundir, sem nú spretta. Hér á landi þekkjum við Mary-kornið, sem er sænskt og framleitt af prófessor Gustav- son, sem talinn er faðir þessarar tækni, þ.e. jurtakynbóta með geislun. — Starf þitt er í fjarlægum heimshluta. Ferðalög hljóta því að vera snar þáttur í því? Dr. Björn Sigurbjörnsson. — Já. Ég ferðast geysimikið og nánast er starfið mest ferðalög, en nú tekur það ekki langan tíma að ferðast milli heimshluta. Ég hef á ferðum mínum farið til 30 ríkja. Þrátt fyrir þetta hef ég lengst verið í burtu frá heimili mínu í Vín aðeins tæpar 4 vikur. — En hvað ségir þú mér um sérfræðilega aðstoðarmenn? Er ekki erfitt að fá þá? — Við reynum eftir föngum að útvega sérfræðinga til ferða til hinna einstöku landa, þar sem skortur er sérmenntaðra manna. Eitt af hlutverkum mínum er að útvega ungum námsmönnum styrki til frekara náms og velja fyrir þá skóla og menntastofnan- ir er þeim henta bezt með tilliti til þess að við reynum að tengja námið saman við þau verkefni, sem við erum að vinna að. Einn íslendingur vinnur um þessar mundir verkefni sem þessi og stundar jafnframt nám. • — En hvað um starfsemi Alþ j óðak j arnorkus tof nunarinnar hér á íslandi? — Það ríkir fyrir því áhugi með ráðamönnum stofnunarinnar að hér á íslandi yrði sett upp ofurlítil verksmiðja til að geisla fisk svo flytja mætti hann á er- lendan markað í fersku ástandi. Hann yrði því hvorki frystur né saltaður, aðeins geislaður og að sjálfsögðu er það algerleg hættu- laus aðgerð á fiskinum fyrir þá sem hans neyta. Geislun er nú notuð við geymslu margra mat- vælategunda, svo sem á kartöfl- um, svínafleski og hveiti. •— Og hvað hyggstu svo starfa lengi að þessum málum erlendis, dr. Björn? -— Ég hef nú unnið við stofn- unina í 2 ár og verð a.m.k. eitt ár í viðbót, en við þann tíma er fjarvistarleyfi mitt frá Atvinnu- deildinni hér miðað. Hvað skeður að þeim tíma liðnum er enn allt óráðið. — Er starfið skemmtilegt og vel launað? — Þetta er bæði skemmtilegt starf og einnig býður það upp á fjölda verkefna, þar sem sér- kunnáttan nýtist út í æsar. í ann- an stað gefur starfið mjög sæmi- lega lífsafkomu, þar sem maður þarf ekki að leita sér aukastarfa til að geta lifað sómasamlega. Auk þess vinnur þarna úrvalsfólk allstaðar að úr heiminum. Ég er þarna eini íslendingurinn, segir Þáttur kólesterol- sins í bló&inu SEM kunnugt er^hefir hér á landi verið talsVert rætt um mataræði og einkum hættu þá er stafar af mik- illi neyzlu dýrafeiti og þá sérstaklega fyrir þá, sem hæga innivinnu stunda. Leidd hafa ve*ið rök og gagnrök í þessu máli í hinu heimskunna tíma- riti „World Helth“, sem út kom í júní-júlí í sumar eru mjög athyglisverðar grein- ar um það sem nýjast er í hjartarannsóknum. Einn kaflinn f jallar um kolester- ólið í blóðinu og fer hann hér á eftir: Mataræði er oftast kennt um, og á síðari árum hefur það komizt í tízku að benda ásakandi á kólesterol, þegar þessi mál hefur borið á góma. Enginn vafi leikur á því, að breytingar, sem benda til þess að kólesterol sé sökudólgur- inn, verða á slagæðum dýra, sem fá ríkulegt magn af kól- esteroli í fæðunni. En rann- sóknir, sem gerðar hafa verið á allra síðustu árum í fjöl- mörgum rannsóknarstofnun- um, hafa sýnt fram á, að kól- esterolinu sjálfu er ekki að kenna um hörðnun æðaveggj- anna, heldur er þarna óbeint samband á milli; þannig að aukið kólesterolmagn í blóð- inu er merki um truflanir á efnaskiptastarfseminni. Aukn- ing kólesterols í blóðinu er ekki eingöngu komin undir magninu, sem er í fæðunni, heldur því magni, sem mynd- ast við starfsemi líkamans. Magn og samsetning fitunn- ar í fæðunni virðist vera mikilvægt atriði. Dýrafeiti, sem inniheldur aðallega mett- aðar fitusýrur, eykur fitumagn blóðsins í rikari mæli en sama magn af ómettuðum fitusýr- um, og hið síðarnefnda getur jafnvel dregið úr kólesterol- innihaldi blóðsins. Vandamál- ið liggur samt engan veginn svona ljóst fyrir. Nefna má tvö einkennileg dæmi, sem ekki er hægt að skýra með framansögðu. Stríðsmenn Sam buru-ættbálksins í Kenya drekka 8—10 lítra af kúa- mjólk daglega um regntím- ann, og fjárhirðar í Sómalíu drekka úlfaldamjólk í svo rík- um mæli, að hún sér þeim fyr- ir 6.000 hitaeiningum (kalórí- um) eða 300 grömmum af dýrafitu á hverjum sólarhring. Hjá báðum þessum aðiljum er kólesterolmagn blóðsins næst um hið sama og lægsta meðal- tal, sem mælzt hefur í Evrópu, og hjá hvorugum fundust merki um harðnandi æða- veggi. df. Björn Sigurbjörnsson að lok- um. — vig. Vaxandi gengi grasmjölsins EKKI alls fyrir löngu birtist í Frey all-sérkennileg grein um grasmjölsrannsóknir á Norðurlöndum. Undirskrift greinarinnar var „Norden“. í tilefni þessa snerum við okk- ur til Gunnars Bjarnasonar, kennara á Hvanneyri, og báð- um hann segja okkur hvað nýjast væri í þessum efnum í heiminum, en hann fylgist manna bezt með þessum mál- um, af hlutlausum aðilum, vegna fóðurfræðikennslu sinn ar og samningu bókar um bú- fjárfræði. Gunnar segir svo frá: — Það er mikilvægt, að odd- vitar atvinnulífsins hafi trú á þekkingu og vísindastarfsemi. Ef brjóstvitsmenn og illa menntaðir menn ná vísindastofnunurn á sitt vald, verða þær að engu gagni eða til ógagns; geta hindr- að framkvæmdir og nýjungar með úrtölum og bölsýni. Grasmjölsverksmiðjurnar í landinu, að Hvolsvelli, Brautar- holti og Gunnarsholti, eru glæsi- legustu landbúnaðarnýjungar hér á landi. „Rationalisering“ í bú- skap er sú vísindagrein, sem menntuð lönd leggja mest kapp á þessi árin. Þetta eru verkvís- indi. Jóhann Franksson og Helgi Þorsteinsson voru hér brautryðj- endur í „rationaliseringu“ bú- skapar, sem nefna má slíku nafni. Þetta orð nær ekki niður til einyrkjabúskapar, þótt stór- kot megi kallast. Þar koma dyggðirnar, verklagni og hag- sýni að gagni. Brautryðjendur einkaframtaksins á þessu sviði voru hins vegar bræðurnir i Brautarholti, synir hins lands- þekkta bónda, Ólafs Bjarnasonar. Ef einhverjir menn halda, að þessar framkvæmdir séu afleið- ing af vísindalegum afrekum ís- lenzkra búvísindastofnana og fyr ir áeggjan þaðan, þá er það mjög fjarri sanni. Úrtölur og andróður var þeirra hlutur, ,en saga þeirra skal ekki frekar sögð, nema óskir komi fram um það. Mörgum iðju- verum er hjálpað af stað, þegar um nýjungar er að ræða, s. s. ætlunin er með gúrverksmiðju við Mývatn og alúmínverk- smiðju, en verksmiðjur til að framleiða úrvals-fóðurbæti úr is- lenzkum grösum fá enga aðstoð eða vernd. Það væri svo sem í lagi, ef það væri raunin með all- an atvinnurekstur, sem til gagns er í þessu landi. Lúzernumjöl og grasmjöl er i mjög vaxandi áliti meðal mennt- aðra búnaðarþjóða, og j/ísinda- menn á þessu sviði telja flestir, að hér sé um að ræða fóðuröfl- unarleiðir framtíðarinnar. í mörgum löndum er verið að rannsaka gildi lúzernumjöls í fóð urbæti mjólkurkúa, en sjónarmið eru breytileg, svo að ég ætla ekki að sinni að ræða nánar um það, en grasmjöl er notað nú þeg- ar í miklum mæli í kúafóður- blöndur í ýmsum löndum, eins og ég hef áður sagt frá í greinum. Hins vegar gegnir lúzernu- mjöl mjög mikilvægu hlutverki í fóðri svína og alifugla, og er ver- ið að gera ýtarlegar rannsóknir á þessu í Bandaríkjunum, og er þeim veitt athygli í búmenntuð- um löndum. Grasmjölið okkar er ennþá betra og fuilkomnara fóður en lúzernumjölið, og ættum við að geta notað það í miklu meira magni en lúzernumjöl e rnotað. Dr. T. J. Cunha við háskólann í Flórída, dr. Beeson við tilrauna- stöðina í Purdue, prófessor Wahl- strom vi8 tilraunastöð háskólans í Suður-Etakota og margir fleiri amerísk* vísindamenn hafa sl. ár unnið að rannsóknum á gildi lúzernumjöls og grasmjöls í fóðri svína. í júníhefti tímaritsins „Pig Farming" er sagt frá nýlegri bók dr. Cunha og tilvitnuð eftirfar- andi orð hans um gildi grasmjöla í fóðri svina: „Dúzernumjöl hefur í sér ein- hverja ennþá óþekkta „faktora**, er hafa mikilvægt gildi fyrir svín í uppvexti, sem verka mánuðum seinna á hæfileika gyltanna til að frjóvgast, ganga með fóstur og fóstra og fæða grísina eftir fæð- ingu. 5% af næringargildinu næg ir ekki til að þessar verkanir komi í ljós. 10 eða jafnvel 15% af lúzerunmjöli verður að hafa 1 fóðrinu til að þessir „óþekktu faktorar“ geri sig gildandi I fóðri, sem blandað er að mestu úr maísmjöli og soyamjöli". Öll- um tilraunum þessara manna ber saman um, að miklu betri árang- ur fáist í frjósemi gyltna, far- sæld um meðgöngutímann og eft- ir got, ef gefið er um 10% af lúz- ernumjöli í fóðrinu i stað aðeins 2—3%, eins og víða hefur verið venja að hafa, t.d. á Norðurlönd- um. Greinarhöfundurinn í „Pig Farming“, ritstjórinn Alan Ward, lýkur máli sínu með þessum orð- um: „Maður undrast og spyr, hvers vegna brezkir vísindamenn á sviði landbúnaðar hafa alger- lega sniðgengið (totally ignored) þessar sláandi niðurstöður, sem mætti hagnýta til aukins gróða fyrir svínakjötsframleiðendur (commercial pig breeders)". Vegna furðulegrar afstöðu nokkurra manna hér á landi til notkunar á grasmjöli í fóðri fugla, vil ég birta hér niðurstöð- ur rannsókna, sem gerðar voru á Framhald á bls. 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.