Morgunblaðið - 23.10.1965, Síða 2

Morgunblaðið - 23.10.1965, Síða 2
MORCÚ N BLABIB Laugar&agur 23. október 1961 Métmæiafuiidurinn í KefEavík — Leiðrétting rHr. ritstjóri! f Morgunblaðinu í dag er frá- !$ögn af umræðum á hinum marg- íræga mótmælafundi i Keflavík. , Er þar sagt m.a.: „Næstir töluðu Guðmundur Einarsson, framkv.- stj., Ragnar Haraldsson (svo), verkfræðingur, Daníel Einarsson, tæknifræðingur, og Páll Jónsson, gjaldkeri. Mæiti Guðmundur með vegaskattinum en hinir gegn“. !Þessa frásögn tel ég vera mjög snálurn blandna. Að vísu talaði Guðmundur með vegaskattinum og Páll gegn, en við Daníel lögð- um áherzlu á í ræðum okkar að vegaskattar ættu einmitt rétt á sér, væru þeir í fyrsta lagi inn- beimtir til að auðvelda áfram- haidandi hraðbrautagerð, í öðru lagi hóflegir, taldi ég í ræðu minni að hóflegt gjald væri ca. 20—30 kr. á fólksbíl báðar leiðir, og í þriðja lagi aðeins innheimtir þar sem hægt væri að halda inn- heimtukostnaði í skynsamlegu htutfalli við tekjur þær er hafa mætti af tollinum. Ég benti að vísu á í ræðu minni að miðað við 5>að gjald, er ég legði til, yrðu nettótekjur aðeins ca. kr. 4.000.- 000.00 að frádregnum innheimtu- kostnaði, sem ég áætlaði kr. 2.000.000.00, en umferð um veg- inn er samkvæmt upplýsingum vegamálastjórnarinnar ca. 1200 bílar á dag eða ca. 600 bílar hvora leið. Ég benti á að sömu tekjur mætti fá með 6 aura hækk un á benzínlítra, og gæti sú að- ferð komið til greina, þar sem unnið væri að vegabótum um land allt. í lokaorðum tók ég fram að þrátt fyrir óhagstætt hlutfall milli vegatollsins og inn- heimtukostnaðar mætti vel rétt- læta hann méð því að hann færi örugglega hraðvaxandi á næstu einu til tveim árum væri gjaldið haft í líkingu við það, sem ég taldi hóflegt. Yrði gjaldið hins- vegar haft of hátt drægi það mjög úr eðlilegri umferðaraukn- ingu vegna hinna stórkostlegu vegabóta. Daníel tók mjög í sama streng og las hann upp tillögu sína, okkar Guðmundar og Sveins Eirikssonar, svohljóðandi: Almennur fundur haldinn í Keflavík 19. október 1965 álykt- ar: 1. Þakka ber ríkisstjórninni, þingmönnum kjördæmisins, sér- staklega Ólafi Thors, samgöngu- málaráðherra, og vegamála- stjóra fyrir þann stóráfanga sem náðst hefur í samgöngumálum Is lendinga við lúkningu Keflavík- urvegarins. 2. Fundurinn skorar á hátt- virt Alþingi og rikisstjórn að gera nú þegar fimm ára hrað- brautaáætlun sem hefjist árið 1966 um áframhaldandi fram- kvæmdir í gerð varanlegra hrað- brauta, að minnsta kosti hundrað kílómetra langa vegalengd á þessu ttmabili. 3. Til að auðvelda lántökur og framkvæmd áætlunarinnar getur fundurinn fallizt á, að inn- Oivaiur maður ekur bíl á strætisvagn HARÐUR árekstur varð kl. i 22.19 í fyrrakvöld á Suðurlands- | braut gegnt Múla. Þar ök ölvað ur maður framan á strætisvagn. Tildrög slyssins eru þau, að strætisvagn var á leið austur j Suðurlandsbraut og sá þá stræt- j iavagnstjórinn Moskvitsbíl koma 1 á móti á öfugri akrein. Um þa'ð — Wilson Framh. aí bls. 1. Smith um fyrirhugað sjálf- stæði Rhodesíu. Ef engir samningar takast í Salisbury í næstu viku, er hætt við að Ian Smith láti verða úr þeirri fyrirætlun sinni að lýsa einhliða yfir sjálfstæði Rhodesíu. En Smith, sem er talsmaður flestra þeirra 250 þúsund hvítra manna, er í landinu búa, hefur krafizt sjálfstæðis landsins á grundvelli stjórnarskrárinnar frá 1961. í þessari stjórnarskrá er gert ráð fyrir að hvítir menn fari með öll völd í landinu, en blökkumenn ,sem eru nærri fjór- ar milljónir, fái þar engu ráðið. Brezka stjórnin er hinsvegar á því að veita Rhodesíu fullt sjálf- stæði, en ekki fyrr en tryggt hef- ur verið að völdin færist smám saman yfir í hendur meirihluta landsmanna. Meðan Wilson verður fjarver- andi gegnir George Brown, vara- forsætisráðherra, embætti hans. Tekur hann einrtig sæti Wilsons á þingi, en brezka þingið kemur saman til fyrsta fundar eftir sumarleyfi á þriðjudag. Sj álfstæðisfyrirætlanir Smiths hafa vakið mikla gremju í ná- grannaríkjunum í Afriku. Þjóðar leiðtogar Afríkuríkja sitja um þessar mundir ráðstefnu í Accra, höfuðborg Ghana. Var þar gerð ályktun varðandi Rhode- u í dag, en efni þeirrar ályktuuar hefur ekki verið birt. bil sem strætisvagnstjóranum tókst að stöðva vagninn skail Moskvitsbíllinn framan á honum. Skemmdust bilarnir báðir all- mikið, þó Moskvitsbíllinn sýnu meira. í honum var farþegi I framsætinu, maður á fimmtugs- aldri, og skarst hann í andliti og var fluttur á Landakotsspitala að lokinni skoðun á Slysavarð- stofunni. Ökumaður Moskvitsbílsins var öivaður, en hann meiddist litið. Reyndist lögreglumönnunum erfitt að ráða vi'ð hann og þurftu að handjárna hann, er hann hafði verið færður á Slysavarðstofuna til skóðunar. Þaðan var hann fluttur í Siðumúla. í strætisvagninum varð enginn fyrir meiðslum. heimt verði sanngjarnt vegagjald af notkun þessara hraðbrauta. 4. Vegagjald sé hluti fram- kvæmdaáætlunarinnar og hóf- legt, þannig að það nemi eigi méiru en helming þess sannan- lega hagnaðar sem skapast mið- að við notkun núverandi malar- vega. Innheimtukostnaði skal stillt í hóf, enda verði slík inn- heimta boðin út á frjálsum mark aði. 5. Til þess að hraðbrautir nái fullum tilgangi sínum og í sam- ræmi við þróun í samgöngumál- um annarra þjóða verði gerð hrað hrautanna þannig, að hámarks- hraði verði hækkaður verulega. Liðir 1, 3 og 4 voru felldir, en íiðir 2 og 5 voru hinsvegar sam- þykktir, og þótti okkur flutnings- mönnum því þrátt fyrir allt bet- ur af stað farið en heima setið. Mælist ég til að ofangreind leið rétting verði birt í blaði yðar, en æskilegast þætti mér að birtar yrðu ræður okkar Guðmundar og Daníels allra, eða a.m.k. útdrátt- ur úr þeim, en þær munu hafa verið teknar upp á segulband. Reykjavík, 22. október. Ragnar Halldórsson, verkfræðingur. Ræðismaður í Björgvin látinn RÆÐISMAÐUR íslands í Björgvin, hr. Trygve Ritland, andaðist þar í borg 9. þ.m., 65 ára að aldri, og var jar'ðsunginn 14. þ.m. JMýtt lagasafn LAGASAFN, íslenzk lög 1. apríl 1965, kemur í bókaverzlanir á mánudag næstkomandi. Prófessor Ármann Snævarr háskólarektor bjó safnið undir prentun, en útgefandi er dóms- og kirkjumáláráðuneytið. Bókaverzlanir snúi sér til að- alútsölu safnsins, sem vedður hjá Bókabúð Lárusar Blöndal. Dóms- og kirkjumálaráðuneyt ið, 22. október 1965. Ein myndanna á sýningu Sandelins. Kunnur sænskur lista- maður sýnir verk sín hér Tómstundaþátturinn TÓMSTUNDAÞÁTTUR barna og unglinga mun nú hefjast að nýju í Ríkisútvarpinu og verður sá fyrsti fluttur í dag, laugardag, kl. 5:35 síðdegis. Stjórnandi þáttarins ver’ður Jón Pálsson, sem hafði stjórn þáttar- ins á hendi árum saman. í DAG kl. 4 verður opnuð mynd- listarsýning í Bogasal Þjóðminja- safns. Sýnd verða svartlistar- myndir eins kunnasta svartlistar- manns Svía, Börje Sandelin. Börje Sandelin er fæddur 1926 og stundaði nám við Listahá- skólann í Stokkhólmi. Hann hef- ur haldið sýningar á öllum Norð- urlöndunum og hvarvetna vakið mikla athygli fyrir mjög persónu lega og ástríðufulla túlkun í myndum sínum. Sandelin hefur einnig gefið út nokkrar mynd- skreyttar ljóðabækur og hlotið lof gagnrýnenda fyrir. Einn helzti gagnrýnandi Dagens Ny- heter í Stokkhólmi hefur skrifað bók um svartlist Börje Sandelin og skáldbræður hans í Svíþjóð hafa ort honum Ijóð. Sandelin hefur verið áður hér á landi, eða í fyrrasumar á veg- um sænskra dagblaða og flutti hann fyrirlestra um dvöl sína hér í sænska útvarpinu og ann- aðist einnig sjónvarpsþátt um ísland auk þess sem hann skrifaði 110 TONNA PLASTBÁTUR Stokkhólmi, 22. okt. (NTB) Þriðja alþjóða fiskibátaráð- stefnan hefst í Stokkhóimi á morgun, en ráðstefnan er hald in á vegum FAO. Meðal nýj- unga, sem kynntar verða er 110 tonna fiskiskip úr plasti. 300 fulltrúar frá 40 löndum sækja ráðstefnuna. Þannig leit Moskvitsbíllinn út eftir áreksturinn við strætisvag ninn. Ljosm.: Sv. Þ. Börje Sandelin fjölmargar greinar um landið I sænsk blöð. Börje Sandelin mun hverfa af landi brott eftir fáeina daga, en sýning hans stendur til 31. októ- ber. — Johnson Framh. af bis. 1. an hann gekk undir uppskurð fyrir tveimur vikum og gall- blaðran var tekin úr honum. Hann þarf þó enn á mikilti hvíld að halda, og mun bráð- lega fara frá Washington til Texas og hvílast á búgarði sín- um þar. Mörg vandamál bíða þó úr- lausnar, m.a. varðandi samstöðu innan Atlantshafsbandalagsins, staða Vestur-Þýzkalands gagn vart kjarnorkuvörnum Vestur- veldanna, ástandið í Vietnam, Kasmir-deilan, og fjárlög næsta árs. — V-Þýzka stjórn<n Framhald af bls. 1. ráðherra. Og Hans Katzer, verð- andi húsnæðismálaráðherra, sæk- ist eftir embætti þjóðfélagsmála- ráðherra. Og Frjálsir demókrat- ar vilja ráðherraembætti rann- sóknarmála, sem Erhard ætlar yngsta ráðherraefninu, Gerhard Stoltenberg, sem er aðeins 37 ára. Ekki er vitað hvaða embættí Erhard ætlar fjórum ráðherrutn frjálsa demókrata, en mikill á- greiningur hefur ríkt með Er- hard og Erich Mende, leiðtoga frjálsra demókrata, um það atriði. Þegar kvartanir bóku að berast kanzlaranum frá ráðherra efnunum, kvaddi hann helztu stjórnmálaleiðtogana á sinn fund, og mun væntanlega taka ráð- herralistann til endurskoðunar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.