Morgunblaðið - 23.10.1965, Side 16

Morgunblaðið - 23.10.1965, Side 16
16 MORCUNBLAÐIÐ Laugardagur 23. október 199 JNttgtiiiWftfrife Ötgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Ey jólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnaríulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Askriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands. f lausasölu kr. 5.00 eintakið. HIÐ SAMEINANDI AFL ¥ dag hefst hér í Reykjavík ráðstefna Sjálfstæðisflokks- ins um sveitarstjórnarmál. í sambandi við þann fund verð- ur svo haldinn fundur í flokks ráði Sjálfstæðisflokksins. Fundurinn um sveitarstjórn armál er nýjung í starfsemi Sjálfstæðisflokksins. Hann hefur ekki áður kvatt til slíkrar ráðstefnu'. En á henni munu eiga sæti fulltrúar flokksins í sveitarstjórnum víðs vegar um land. Á því fer vel að sveitar- stjórnarmenn Sjálfstæðis- flokksins hittast nú og bera saman bækurnar. Á næsta ári fara fram kosningar til bæj- ar- og sveitarstjórna, og ber nauðsyn til þess að þær séu undirbúnar af árvekni og dugnaði.. Hin ýmsu bæjar- og sveitarfélög eiga að sjálf- sögðu nú, eins og jafnan áð- ur, við ýmis vandamál að etja. Af hálfu núverandi rík- isstjórnar hefur þó ýmislegt verið gert til þess að bæta aðstöðu sveitarfélaganna. Það er mjög þýðingarmikið fyrir almenning í landinu, að dugandi menn veljist til for- ustu innan bæjar- og sveitar- stjórna, og á málum þeirra sé haldið af framsýni og hygg- indum. ★ Nauðsynlegt er að góð sam- vinna ríki milli sveitarfélag- anna og ríkisvaldsins, og milli sjálfra sveitarfélaganna. Er áreiðanlega æskilegt að sú samvinna verði aukin til muna í framtíðinni. Stækkun sveitarfélaga kemur einnig mjög til greina vegna þess, hve örfámenn einstök sveitar- félög eru orðin. Þessi örlitlu sveitarfélög hljóta auðvitað oft og einatt að vera vanmegn ug þess að leysa viðfangsefni sín og tryggja fólkinu þá þjón ustu, sem nauðsynleg verður að teljast. Á flokksráðsfundi Sjálf- stæðisflokksins verður stjórn málaviðhorfið í landinu rætt, og afstaða tekin til margra þýðingarmikilla mála. í flökksráði eiga sæti allir þingmenn flokksins, mið- stjórnarmenn, fjármálaráð og kjörnir fulltrúar úr öllum kjördæmum. Flokksráðið tek- ur því jafnan þýðingarmikinn þátt í mörkun þeirrar stefnu, sem Sjálfstæðisflokkurinn berst fyrir á hverjum tíma. ★ Sjálfstæðisflokkurinn er í dag, eins og jafnan áður, hið sameinandi afl íslenzku þjóð- arinnar. Hann hefur haft for- ustu um hið mikla uppbygg- ingarstarf, sem unnið hefur verið í landinu á þeim tveim- ur áratugum, sem liðnir eru frá lokum síðari heimsstyrj- aldarinnar. Sjálfstæðisflokk- urinn skildi kall hins nýja tíma, og barðist af frjálslyndi og víðsýni fyrir fjölmörgum þjóðfélagslegum umbótum, sem gerbreytt hafa lífi ís- lenzku þjóðarinnar. Til þess ber því brýna nauðsyn, að ís- lendingar haldi áfram að treysta og efla Sjálfstæðis- flokkinn til þess að gera hann stöðugt færari um að gegna hinu mikilvæga forustuhlut- verki sínu í íslenzkum stjórn- málum. SUMARIÐ KVATT CJumarið hefur verið kvatt. í dag er fyrsti vetrardag- ur. Sumarið 1965 mun fá góð eftirmæli í íslenzkum annál- um. Yfirleitt má segja að það hafi verið hagstætt þjóðinni til lands og sjávar. Heyskap- ur var yfirleitt góður, sums staðar frábær, en kalskemmd- ir á Austurlandi sköpuðu aust firzkum bændum vandkvæði, sem bætt var úr með sameig- inlegum átökum. Sjávarafli var á þessu sumri mikill, síldarafli meiri en nokkru sinni fyrr, í skjóli nýrrar tækni og kunnáttu. Veðrátta’ var góð, sumarið bjart og fagurt, og sólfar jafn- vel meira en í mörgum ná- grannalöndum okkar suður í Evrópu. ★ Fyrir alla þessa árgæzku ber að þakka nú þegar vetur gengur í garð, og skammdegi er framundan. En grös eru ennþá græn og veður milt, þótt vatnsflaumur spilli veg- um og skapi erfiðleika í ein- stökum héruðum. Þótt skammdegisnóttin komi yfir þetta norðlæga land nú, eins og jafnan áður, er hún þó ekki eins skuggalöng og þegar fátækt og úrræðafeysi mótaði allt líf og starf fólksins. Yl- ur og birta í nýjum og glæsi- legum húsakynnum hefur leyst myrkrið í göngum gömlu torbæjanna af hólmi. Nýr tími er genginn í garð. Ofurveldi vetrarins hefur ver ið hrundið. Þess vegna geta íslendingar gengið einnig á móti Vetri konungi í bjart- sýnni trú á lífið og framtíðina. Byggingarsaga hljómleika salaríns í Lincoln Centre EINS ogr frá hefur verlð skýrt í fréttum, byggðu Bandarikja- menn fyrir nokkrum árum hljómleikasal í Lincoln Centre í New York, og var takmark- ið að gera hann að „bezta“ hljómleikasai í Lincoln Center ing hefur gengið allskrykkj- ótt, einkum vegna þess, að út- reikningar færustu hljóm- burðarsérfræöinga hafa eng- an veginn staðizt. Rúmlega 60 millj. ísl. kr. hefur verið var- ið í ótal breytingar síðan sal- urinn var fyrst tekinn í notk- un, en það var árið 1962. Hér á eftir fer ágrip af bygging- arsögu þessa salar. 1961: Framkvæmdastjórn Lincoln Centers tilkynnti að samastaður New York Phil- iharmonic myndi verða „bezti hljómleikasalur Bandaríkj- anna“. 1962: Hljómleikahcllin var opnuð. Gagnrýnendur voru þeirrar skoðunar, að hljóm- burðurinn væri ómögulegur; þurr, dimmur,. kaldur og flat- ur. Hinir 136 sexhyrndu end- urvarpsflekar í lofti salarins voru hækkaðir og lækkaðir, en það virtist ekki koma að neinu gagni. Hljómdreifing í salnum þótti afar ójöfn og hið skoplega var, að ódýrustu sætin á efstu svölum buðu upp á kársta ihljóminn. Hljóðfæraleikararnir kvört- uðu yfir því að heyra ekkert hvorir til annarrá á sviðinu og töldu að salurinn væri ekki annað en íburðarmikill 17.7 milljón dollara „glymskratti". Sögusagnir gengu um það, að hljómsveitir sem til borgar- innar kæmu, mundu snið- ganga þenna sal og leika held- ur í Carnegie Hall, sem hefur upp á mun mýkri hljóm að bjóða. Einleikarar voru felmtri slegnir og ræddu um að aflýsa tónleikum. Fram- kvæmdastjórn Lincoln Cent- ers hélt hins vegar fram, að það myndi taka eyrun nokk- urn tíma að venjast salnum. Hljómburðarfræðingur húss- ins, Leo Beranek, sem áður en bygging hófst hafði í fjögur ár rannsakað alla beztu hljóm leikasali heimsins , bað sér vægðar: „Ég spáði því í upp- hafi, að það mundi taka okk- ur eitt ár að ganga endanlega frá salnum.“ William Schu- man, forseti Lincoln Centers, hafði ekki annað að segja en „Hjálp!" 1963: Hópur af hljómburð- arsérfræðingum var kallaður saman og lítillækkun gróf um sig í sál Beraneks. Bilin milli hinna 250 kg. loftfleka voru að nokkru fyllt með svörtum krossviði og sömuleiðis var settur krossviður á hliðar- veggi sviðsins. Blýtjald var sett fyrir aftan hljómsveitina og á það var sett hljóðdeyf- andi trefjagler. Kostnaður við þessar breytingar varð alls 21.1 millj. ísl. kr. Sérfræðing- ur frá Bell símafélaginu var fenginn til að rannsaka hljóm burðinn með aðstoð rafheila. Rafheilinn „sagði“ aðal vanda- málin vera: skortur á bassa, ójöfn hljómdreifing og flökt- andi bergmál. Þetta var tekið til athugunar og nauðsynleg- ar umbætur gerðar. Gagnrýn- endur töldu rafheilann vera með „lausa skrúfu“, — eyru þeirra væru honum ekki sam- mála. Hljóðfæraleikararnir sögðu að nú væri engu líkara en að þeir væru að leika á botninum í stórri tunnu. — Eftir að hljómsveitarstjórinn George Szell hafði stjórnað í salnum í fjóra mánuði, hafði hann þetta að segja um fram- lag sérfræðinganna: „Hugsum okkur konu, haltan mann og rangeygðan kroppinbak með tvær vörtur. Allt sem þessir "sérfræðingar hafa gert, er að fjarlægja vörturnar!“ 1964: Þýzkur hljómburðar- fræðingur, Heinrich Keilholz, var fenginn til að taka að sér yfirstjórn. Loftflekarnir voru hækkaðir og bilin milli þeirra að fullu hulin með krossviði. Hinir upprunalegu sexhyrndu flekar voru nú ekki annað en loftskraut. — Bárumyndaðar plötur voru settar á hliðar- veggi sviðsins, salarveggir endurbyggðir og loftkælikerf- ið var hljóðdeyft. Kostnaður alls: 14.4 millj. ísl. kr. Gagn- rýnendur voru ennþá óánægð- ir; töldu að bérgmáls yrði enn þá vart og að bassinn, væri orðinn dapfur og hljómlaus. Almennt var þó álitið að hljómurinn væri orðinn mun mýkri en áðúr, en þó þyldi salurinn engan samanburð við Grosser Musikvereinssaal í Vín, Concertgebouw í Amster- dam eða Symphony Hall í Boston, en þessir salir voru állir byggðir áður en hljóm- burðarfræðin varð að vísinda- grein: 1965: Keilholz komst að þeirri niðurstöðu, að áklæði og gólfteppi drykkju allt of mikinn hljóm í sig. Hið gull- litaða gólfteppi var fjarlægt og svartur gólfdúkur settur í þess stað, Áklæði var tekið af öllum sætum og skinn sett í staðinn. Nýir hallandi endur- varpsflekar voru settir á veggi sviðsins. Kostnaður alls: 20 millj. ísl. kr. Gagnrýnendur eru nú loks ánægðir og hljóð- færaleikarar sömuleiðis. — Hljómurinn er nú líflegri, meiri styrkur hárra og djúpra tóna og bergmálið að mestu horfið. Dómur augans er aft- ur á móti neikvæður; þessi salur ,sem upphaflega var sér- lega glæsilegur hefur tekið miklum stakkaskiptum. Vegg- irnir minna helzt á tómstunda herbergi, bárumyndaðar vegg- plötur stangast á við sex- hyrndu loftflekana. Hinum nýju sætum svipar einna helzt til sæta í ódýru kvikmynda- húsi, En þrátt fyrir allt, býð- ur Philhapmonic-hljómleika- salurinn nú loksins upp á við- undandi hljómburð. „Ef við höfum lært eitthvað á þessu öllu saman “.andvarp- ar arkitekt salarins, Max Abramovitz, „þá er það það, að hljómburðarfræðin er enn- þá afar óáreiðanleg vísinda- grein“. (Þýtt úr „Time Magazine")

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.