Morgunblaðið - 23.10.1965, Side 25

Morgunblaðið - 23.10.1965, Side 25
Laugardagur 23. október 1965 MORCU N BLAÐIÐ 25 — Hefur þú tekið eftir því, að þegar kvenmaður biður um eitthvað, þá lækkar hún rödd- ina. — Já, og ef hún fær það ekki, hækkar hún röddina aftur. >f, — Konan mín segist ætla að skilja við mig, ef ég hætti ekki að leika golf. — Sú er góð. — Já, ég er viss um að ég mun sakna hennar. >f: r — Hræðilegt að frú Guðrún skuli vera búin að missa mann- inn eftir eins árs sambúð. — Þetta er að nokkru leyti henni sjálfri að kenna. Hún vissi vel áður en hún gifti sig að hann kunni engar umferðarreglur. SARPIDONS SAGA STERKA K— —-k— Teiknari; ARTHÚR ÖLAFSSON Síðan sigu sanian fylkingar, og hófst upp orrusta. Jarlsson hafði skipt liði sinu í þrjár fylk ingar, og var hann sjálfur fyrir einni, Serapus fyrir annarri, en Karbúlus fyrir hinni þriðju. Viktor konungur hafði og þrjár fylkingar. Stýrði hann sjálfur meginhernum móti jarlssyni. Aðra fylkingu hafði jarl sá, er Sörli hét, og var hann móti Serapusi, en fyrir hinni þriðju var kappi sá, er Njörfi hét, og skyldi hann þar að, er Karbúlus var fyrir. Gjörðist nú grimm orrusta með hrópi og háreysti og braki og brestum, þá er sverðin gnustu á hjálmunum og skjöld- unum. Verður nú eigi frá öllu sagt í einu, og skal fyrst skýra frá þvi, að Karbúlus ræðst á fylking Njörva og veður eftir henni endilangri með stórum höggum og drepur á tvær hend- ur allt hvað fyrir verður. Sér þá Njörvi, að eigi má svo búið standa, og sækir því móti Kar- búlus. Finnast þeir, og höggur Njörvi til hans. Karbúlus brá við skiidinum, og hrekkur sverðið út af og kemur á lær honum, svo hann verður sár. En er hann sér blóð sitt renna, verður hann óður og tekur sverðið tveim höndum og högg- ur í hjálm Njörva og klýfur hann í beltisstað. Þar eftir kast- ar hann skildinum á bak sér aftur og veður aftur fram um herinn, svo allt hrökk fyrir. >f Sköllóttur maður segir við annan mann: — Ég sé að þú liggur á hægri hliðinni, er þú eefur, því aft skeggið á þér er miklu þynnra þeim megin. — Já, og ég sé að þú stendur á höfði, er þú sefur, svaraði þá hinn. >f -— Það er svo kalt, þar sem við vorum, sagði heimskautafarinn viá keppinaut sinn, að ljósið á kertinu fraus og við gátum ekki slökkt það. — Ekki er ég hissa á því, anz- aði hinn. — Þar sem við vorum Irusu orðin af vörum okkar og við urðum að bræða þau til þéss að vita, hvað við vorum að segja. — Hvað ætlarðu að vilja til Ameríku? ---Ég ætla að safna mér pen- ingum fyrir fargjaldinu heim aftur. — Hvernig kynntust þið? — Það gerðist í strætisvagni fyrir fjórum árum. Andspænis mér sat ung stúlka og er vagn- inn tók eitt sinn krappa beygju, hentist stúlkan í fangið á mér og hefur setið þar síðan. Frúin: — Ég ætla að fá vindla. — Sterka eða veika? — Sterka, því annars mölvar eiginmaður minn þá strax í vasa s' Sjúklingurinn: — Ég er ákaf- lega lasinn. Mér finnst eins og það sé verið að lemja á hausinn é mér með hamri, stinga hníf í brjóstið á mér og stinga mig með nálum í fæturnar. Læknirinn: — Þér eruð með bðrum orðum eins og heil járn- vöruverzlun. ~K Bófinn (með skammbyssu á lofti): — Komið þér með vesk- ið og úrið eða þér skuluð hafa verra af. Prófessorinn: — Sjálfsagt herra minn (og réttir bófanum hvort tveggja). — En ég ætla bara að láta yður vita, að úrið 6einkar sér um 5 mínútur á sói- arhring. JAMES BOND —>f— —>f— Eftir IAN FLEMING löngu, þar til þú fáir að yfirgefa sjúkra- húsið. Ég hélt að ég gæti kannski farið með þig á baðströndina, sem ég fann. inn með þér á ströndinni þinni, þar eð likami minn er ekkert nema ör og mig langar ekkert til þess að hræða fólk. ég ætlaði aðeins að reyna að ..... ég vildi aðeins hjálpa þér að verða friskur, styn- ur Vesper. J Ú M B Ö - K— —-K— — Teiknari: J. MORA — Þetta datt mér í hug, sagði Júmbó og reyndi að opna dyrnar allt hvað af tók. Hún er lokuð og læst. En hver skyldi hafa áhuga á að loka OKKUR inni? — Og hvar erum við? spurði Spori. — f kjall- ara gistihússins? — Komið aðeins hingað, sagði prófessor Mökkur. — Ég er búinn að finna rifu á veggnum. Ef við skiptumst á að halda vörð um þessa rifu, þá hlýtur að koma að því að einhver gangi fram hjá, sem við getum fengið til þess að aðstoða okkur. — Júmbó hafði ekki staðið í margar mínútur, áður en hann rak upp undrunar- óp. — Komið og sjáið, Spori, hvíslaði hann æstur. Ég held að það sé kjötkveðjuhátið þarna hinum megin. Þetta er það stór- furðulegasta, sem ég hef séð í langan tíma ... KVIKSJÁ ——--K— —-K— Fróðleiksmolar til gagns og gamans j :: :1. . ' ... : FYRIRMVNDIN AÐ ROBIN- SON CRUSOE — Oft hafa rit- höfundar haft fyrirmyndir úr hinu daglcga lifi að skáldverk- um sínum. T.d. fékk Daniel Defoe hugmyndina að sögunni, sem allt ungt fólk hefur svo gaman af, Robinson Crusoe, þegar hann heyrði af skozkum sjómanni, Alexander Selkirk, sem dvalizt hafði árum saman á eyðieyju. Selkirk fór í leið- angur tii suðlægra hafa árið 1703, en eftir að hafa rifizt við skipstjóra þess skips, er flutti hann, tók skipstjórinn það ráð að setja hann á land á eyðieyju, sem hét Juan Fernandez. Á þessari eyju lifði Alexander næstu fjögur ár og fjóra mán- uði og tókst að bjarga sér og fleyta fram lífinu — oft þó með harmkvælum. Árið 1709 kom skip Woodes Rogers skipstjóra að þessari eyju til þess að sækja vatn. Þeir sendu bát í land og fundu Selkirk, sem slóst í för með þeim heim. Tiu ár- um siðar kom bók Defoe’s út. Bókin var Robinson Crusoe, hún varð metsölubók. Meðal persónanna í bókinni var með- al annars hinn innfæddi Frjá- dagur, sem að sjálfsögðu var uppfinning Defoe’s.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.