Morgunblaðið - 14.11.1965, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 14.11.1965, Qupperneq 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Sunnudagur 14. nóv. 1965 Hvnð um Mývutn? Að gefnu tilefni EINANGRUN er ekki lengur hlutskipti íslanz, eins og Fjöln- ismenn hefðu skrifað. Við bú- um nú við betri«útsýn til allra átta og meiri möguleika en nokkru sinni frá frístjórnar- árunum. Það er lærdómsríkt fyrir okkur sem nú lifum, í vel- sæld og viðgangi, að renna augum til þeirra tíma þegar horfellir og hungurdauði voru einu viðbrögð mannlífsins við náttúruslysum. Fjölnir minnist oft á slík mál, og þá ávallt í nytsemdarskyni, þannig að hann veltir því fyrir sér hvern- ig hægt sé að auka fólksfjölda 'hér á landi og þá verði auð- vitað ekki byggt á sandi held- ur traustri undirstöðu: bjarg- ræðisvegi þjóðarinnar verði að efla og gera fjölbreyttari. Það var rödd nýs tíma sem kvaddi sér hljóðs. Þó þeir Fjölnismenn þekktu vel land sitt og vissu að það er hart í horn að taka, ef út í þá sálma er farið, og þeim væru vel ljósar afleiðingar eldgosa: „öskufall, jarðskjálftar, sóttir, harðæri, peníngsfellir og mann- dauði, firir húngurs sakir“, vissu þeir sem var að lands- feðurnir áttu, vegna úrræða- leysis, vanþekkingar og mann- úðarhlutleysis — nema ailt þetta hafi komið til, drjúgan þátt í óáran þeirri sem lengst- um gekk yfir landið og felldi fólk eins og flugur. „Sum- ir hafa ætlað, að miklu meíra íllt hafi leitt í landi hjer af framantöldum og öðrum fleír- um, innri orsökum, sem mönn- um eru í sjálfsvaldi, enn af hin- um itri, er loða við landið sjálft". Og þeir benda á að á frístjórnarárunum hafi fólkinu t ekki fækkað þrátt fyrir eldgos, sóttir og hafísa“ — og munu það verið hafa meðfram af því, að fleíra varð þá til úrræða, so varist irði grandi, þegar óvæn- lega á horfðist“. i —★ — Island er gömul nýlenda. Það er því ekki að undra, þó fs- lendingar hafi ávallt litið út- lendinga — og þá ekki sízt næstu nágranna — tortryggnis- augum. Þeir hafa sem sagt ekki reynslu fyrir því á aldalöngum hnignunar- og niðurlægingar- tímum, að útlendingar séu neitt ofanteknir fyrir íslendingseðl- inu sem stundum er vitnað tll. eða þeir hafi verið smeykir við að ögra islenzkri föðurlands- ást, ef með þurfti. Nei, íslendingar hafa reynslu ný- lendunnar og hún liggur enn eins og sár kvíði í hugskotsholi margra. Það er því ekki undar- legt þó við eigum slíting í land með að viðurkenna þá stað- reynd að samskipti við aðrar þjóðir eru ekki aðeins æskileg heldur brýn nauðsyn. Og ekki einasta nauðsyn, heldur eðli- legt ástand sem við eigum ekki síður að græða á en aðrir. Saga siðustu áratuga hefur sýnt þetta svart á hvítu. Við þurfum hvorki að bera kinnroða fyrir þá sögu né höfum við ástæðu til tortryggni í annarra garð vegna reynslu síðustu áratuga. Við erum sjálfstæð þjóð með frístjórnarreisn í brjóstinu, en engin yfirþyrmandi ljót ör eftir mannúðarhlutleysið og ný- lendukúgunina. Ég segi ekki að við séum með öllu laus við örin, en ættum senn að verða það. Sú stund mun koma sem betur fer. Fjölnismenn voru ekki, á sínum tíma, hræddir við er- lenda aðstoð, að hún mundi kollvarpa hér öllu og leggja í rúst. „Þegar eitthvurt land gjet- ur ekki bjargast af efnum og atburðum sjálfs sín, verður við- leítni manna öll að miða til þess, að hafa aðfærslur frá öðr- um löndum, þar sem betur vegnar, so þá saki ekki“. Sem betur fer höfum við nóg að bíta og brenna og erum fremur spillt af dékri en skorti — og mundi forfeðrum okkar ýmsum þykja mikið til þess koma, hvernig draumar þeirra um betra land og farsælla líf hafa rætzt. Þó hefur vafalaust margt farið úrhendis hjá okkur, nú ekki síður en áður, og sumt virðist loða við landann eins og fyrrum: óframsíni, eiðslu- semi, regluleísi og ósiðsemi nefnir Fjölnir, þegar hann minnist á „þær tálmanir vel- geíngni vorrar, er ætíð munu loða við fólkið hjá oss, og hafa verður sífeldar gjætur á, að burtu verði rímt“. íslendingar eru þó a.m.k. lausir, við þann sálarkláða sem nefnist nízka eða nirfilsháttur og hefur ör- læti þeirra oft borið þess gleði- legt- vitni, nú síðast í herferð gegn hungri, enda er ekki hægt að ávaxta betur sitt óvissa ver- aldarpund en með því að láta af hendi rakna við fátæka og hungraða. Fólkið á Madagask- ar býr nú við ekki ósvipuð kjör og við fyrr á öldum. Þeirra Fjölnismenn eru víst ekki vaknaðir ennþá, svo það kemur í okkar hlut og annarra að vaka og vera á verði. Sá er munurinn á okkar öld og hin- um fyrri, þegar allir sváfu. Þetta fólk verður að bíða vitj- unartíma síns lengur en við sem áttum fornar íslenzkar bókmenntir að bakhjalli, auk merkrar sögu — og enn hefur það víst engan eignazt sem getur bent því á, að „sá guli er utar“ eða vakið það til um- hugsunar um að með fossinum megi bæta kjör lands og þjóð- ar „— hér mætti leiða líf úr dauðans örk“. Nei, líklega á þessi fjarlæga, fátæka þjóð enga Fjölnismenn og engan Einar Benediktsson — kannski á hún ekki heldur neina fossa að styðjast við. Líklega er hún enn verr á vegi sjödd en við nokkurn tíma höfum verið, en samt er ekki að sjá að hún fyrirlíti útlendinga, hati þá eða óttist meira en góðu hófi gegnir. — ★ — Einfaldir menn á dægursál- inni hafa á takteinum ein- faldar skýringar á öllum hlut- um. Einn helzti bókstafstrúar- maður hér á landi á margúrelt- ar skruddur Marx og Lenins lýsti því yfir fyrir skömmu, og það á opinberum vettvangi, að Bandaríkjamenn beri ábyrgð á öllu hungri í heiminum, hafi jafnvel reynt að breiða það út, a.m.k. sjái þeir svo um að ekki verði bætt úr skorti. Ástæðan er sú segir hinn mikli spámað- ur, að þetta ástand er vatn á myllu bandarískra auðhringa. Maður hefði þó haldið að auð- hringar þessir hefðu meiri á- huga á að fólk víðsvegar um heim hefði sæmileg peningaráð — þó ekki væri til annars en geta sölsað undir sig þessa pen- inga. En svona hafa nýlendu- kúgun og niðurdrepsár hlaup- ið á sálina í okkur. — ★ — Meðan andinn sefur, sefur líka framkvæmdin, sögðu Fjölnismenn. Sem betur fer eiga þessi orð ekki við okkar tíma. Andinn hefur ekki sofið og framkvæmdirnar eru alls staðár augljósar staðreyndir. En betur má, ef duga skal. Ef nauðsyn bar til þess á tímum Fjölnismanna að auka fjöl- breytni bjargræðisveganna, sem þeir kölluðu svo, er sú nauð- syn ekki minni nú. Þó margt hafi verið gert, er enn fleira ógert. Fallvötnin bíða þess enn að orka þeirra sé leyst úr læð- ingi — landið á kröfu á því að framkvæmdin sofi ekki. Samt er tímanum sóað í endalaust þjark um fánýta hluti. Umræðurnar um alúmínvtrk- smiðju virðast vera til fyrir- myndar. Þær hafa tekið lang- an tíma og hinir færustu menn verið til nefndir af okkar éiálfu; allir flokkar hafa haft hönd í bagga og þjóðin í heild hefur fylgzt með viðræðunum — ekki skal rasað um ráð fram. Slík vinnubrögð eru traustvekjandi og vonandi að vel takizt til, þegar málinu verður ráðið tií lykta, hvort sem við gerum samning við Svisslendinga eða ekki. Hlutur Islands verður ekki fyrir borð borinn, ef ekki verður slakað á þessum vinnu- brögðum. — ★ — Auðvitað vilja margir hér á landi ekki hefja stóriðju nú, ýmist af framan greindum ástæðum eða af ótta við hús- bændur sína fyrir austan tjald. En ástæða er til að varpa fram þeirri spurningu, hvort ekki sé kominn tími til að við förum að vaxa upp úr þessum gamal- gróna ótta við útlendinga eða köstum fyrir borð harla óraun- hæfri og oftast uppblásinni and- úð á öðru fólki. Eins og mögu- leikarnir blasa við okkur, stoð- ar ekki lengur að láta nema við óskir einar. Þegar Jón Þorláks- son vildi, í kringum 1930, láta gera jarðgöng gegnum Dráttar- hlíðina og virkja þann veg ork- una úr Efra-Sogi, reis upp með- al þjóðarinnar postuli mikill og fáraðist yfir þessari skýjaglópa- hugmynd, Kallaði hann göngin ávallt síðan í blaði sínu: jarð- gatið mikla. Þetta þótti auðvit- að fyndið í kjötveizlum hrifl- unga, því þá var föðurlands- ástin ekki á lægra plani en nú tíðkast. Löngu síðar voru göng- in grafin eins og Jón vildi, og orkan úr Þingvallavatni flytur nú meiri yl og blessun til lands- ins barna en annars var hugs- anlegt. Fyndnin varð að veru- leika, ómengaðri staðreynd, og nú man enginn lengur eftir jarðgatinu mikla. Og „postul- inn“ sjálfur húkir nú einn við sitt ginnungagap og skrifar vikustaglsgreinar um „Uppeldis fræði dýranna.“ Þótti engum mikið. Ekki er úr vegi að minna hér á, að önnur aðalorsökin fyrir þingrofinu fræga 1931 var sú, að koma átti í veg fyrir að veitt yrði ríkisábyrgð fyrir lántöku Reykjavíkur til virkjunar Sogs- ins en sú hugmynd var að dóml þáverandi ffamsóknarmanna jfjóðhættuleg glæframennsku. Þetta fólk kallaði sig umbóta- fólk og talaði hátt um „þjóð- legan metnað." Og í fullri al- vöru. Eða hver man ekki eftir skrif- unum um Sementsverksmiðj- una? Hún átti að eyðileggja Faxaflóamiðin og eitra andrúma loftið á Akranesi, ef ég man rétt. Nú þykir sjómönnum einna eftirsóknarverðast að sigla í kjölfar sanddæluskipa; þar sem þau dæla úr hafsbotni, þangað sækir fiskurinn. Auk þess er Sementsverksmiðjan nú undirstaða margháttaðra fram- kvæmda sem dregizt hafa úr hömlu. Hvernig eigum svo við, aumir leikmenn, að trúa öllum þess- um bægslagangi, svo ekki sé minnzt á eituráhrif og land- ráðahjal? — ★ — Og nú er í ráði að vinna kísil- gúr úr Mývatni. Andrés í Ásbúð kallaði heimili sitt: himnaríki á jörð, og hékk skilti þess efnis yfir útidyrunum á húsi hans I Hafnarfirði. Nú er Andrés all- ur, og ekki held ég að honum hefði þótt fara illa á því, að nafngiftin færðist yfir á Mý- vatnssveit. Hún er eina himna- ríkið á jörð sem ég þekki. t Slútnesi einu vaxa a.m.k. 70 tegundir plantna, eða hartnær fimmtungur æðrf plantna á ís- landi. Þar verpa níu eða tíu andategundir og fjöldi annarra fugla. Eyjan, eins og vatnið allt og négrenni þess, er náttúru- unaður og fuglaparadís. í árbók Ferðafélags íslands (1934) er minnzt á nokkrar sjaldgæfar jurtategundir sem vaxa við Mývatn, og má nefna ýmis konar burkha, naður- tungu, ferlaufasmára, birki- fjólu, skrautpunt, Mývatns- drottningu, auk ýmis konar fífla. Endurnar skipta tugum þúsunda. Flestar andategundir íslenzkar verpa við vatnið og margar tegundir sjást vart ann ars staðar á landinu. Af anda- tegundum sem þarna eru má nefna duggönd og skúfönd, sem eru algengastar, hrafnsönd, há- vellu og toppendur. Hrafnsönd er að vísu víðar en hérlendis, en á íslandi er hún hvergi nema við Mývata og í nær- Frá MývatnL Frá Námaskarði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.