Morgunblaðið - 14.11.1965, Side 11
Sunnuctagtrr tí. nóv. 1965
MORGUNBLAÐIÐ
11
sveitum. Og húsönd, sem er
ihvergi á íslandi nema þar, á
hvergi annars staðar heimkynni
nema á fjallavötnum í Kletta-
fjöllum.
Á margan hátt virðist það
hagkvæm og eftirsóknarverð
atvinnuaukning fyrir byggðar-
lagið að vinna kísilgúr úr Mý-
vatni og full ástæða til að
virkja orkuna í Námaskarði.
Slík vinnsla yrði þjóðarbúinu
einnig allsæmileg tekjuaukn-
ing. f>eir sem um málið hafa
fjallað fullyrða að bygging
verksmiðjunnar og vinnsla úr
botnleðju vatnsins muni ekki
geta valdið neinum spjöllum á
náttúrunni á þessum óviðjafnan
lega stað. Auðvitað verðum við
að trúa því að nægilega vel sé
um hnútana búið, því engum
íslendingi ætti að geta dottið
í hug að taka þá áhættu að
spilla Mývatnssveit fyrir nokk-
ur hundruð inilljónir króna.
Verður að fara eins varlega að
öllu og unnt er. Ef Mývatns-
sveit spillist, glötum við mesta
dýrgripnum í náttúru landsins.
Mývatnssveit er að sínu leyti
einstæð í náttúrunni, eins og
handritin eru sérstæð í bók-
mennta- og menningarsögunni.
Ef við gioprum Mývatnssveit,
náttúru hennar og einstæðu
fugla- og jurtalífi, úr höndun-
um á okkur yrði það ámóta
slys og ef einhverjum dytti í
hug að selja öll forn handrit
íslenzk sem minjapjötlur í
túristaverzlun. Og við verðum
harðar dæmdir af komandi kyn
slóðum en forfeður okkar sem
notuðu, af harmsögulegri nauð-
syn, handritapjötlur utan um
sína göngulúnu fætur. Slíkt
náttúruslys eigum við erfitt með
að fyrirgefa. Hvað þá ef Mý-
vatn færi í súginn — og það á
velsældartímum, þegar við
þurfum engu að fórna vegna
hungurs eða örbirgðar. Náttúru
vemdarráð, sem aðeins er ráð-
gefandi nefnd án famkvæmda-
valds, hefur ekki enn fengið end
anlegar niðurstöður, byggðar
á ítrustu vísindalegum athugun-
um, um það að Mývatni og ná-
grenni sé engin hætta búin af
væntanlegri kísilgúrvinnslu.
Slík fullvissa ætti þó að vera
forsenda þess að leyft sé að
hefja þar stóriðju.
Vonandi þurfum við ekkert
að óttast. En til þess verður
eetlazt að svo vel verði frá
öllu gengið að ekkert óhapp
getí komið fyrir, enda hlýtur
okkur að vera það í lófa lagið
á þessari tækni- og vísindaöld.
Þegar minkur og netaveiði leggj
ast á eitt um tillitsleysi við fugl
og fisk, er ekki út í hött að
óska þess að vísindalegar rann-
BÓknir eða ályktanir sýni svart
á hvítu, að við getum látið út-
þvæld vígorð úrtölumanna lönd
og leið í þessu máli. í>á verður
kísilgúrverksmiðja skemmtileg
nýbreytni í atvinnulífi þjóðar
innar: eftirsóknarverð viðbót
við draumsýn Einars Benedikts
eonar og Fjölnismanna.
Annars væri verr af stað far-
ið en heima setið.
Matthías Johannessen.
Sjáið hið krystal-tæra VAUTIER munnstykki
Hreint og stöðugt í munni yðar, það er með hin-
um sérstæða H54 filter — sem gefur yður hreinni
og mildari reyk, en þér trúið, að gæti verið mögu-
legt. Það er engin furða, hvers vegna svo margir
sígarettu-neytendur skipta yfir til VAUTIER
vindla . . . þeir eru framleiddir í Svisslandi úr
bezta tóbaki, sem völ er á.
Vindlarnir með munnstykki og filter
Framleiddir með allri þeirri þekkingu og
nákvæmni, sem Svisslendingar eru frægir fyrir.
TÆPANOL
froðu-hreinsari
er hreinsiefni af vönduðustu gerð, og fjar-
lægir fljótt og vel öll óhreinindi og bletti,
samtímis því að það ský.ir og fegra r litina.
TÆPANOL hreinsar teppi, húsgögn, máln-
ingu o. fl. o. fl.
TÆPANOL
froðu-hreinsari
er afbragðs hreinsiefni á allt bílaáklæði.
Haldið bílnum ávallt hreinum og ferskum
að innan. Bíllinn er góður vinur yðar og
hjálpartæki. Hreinn bíll veitir yður aukna
vellíðan við aksturinn. TÆPANOL er fljót-
virkt og öruggt hreinsiefni.
Verksmiðjan SÁMIR
Hlíðargerði 13. — Símar: 34764 og 21390.
TÆPANOL
froðu-hreinsari
hleypur ekki úr vistinni þegar verst gegnir.
Húsmæður, loksins er vandinn leystur.
TÆPANOL auðveldar yður barárttuna við
öll óhreinindi. TÆPANOL er sérefni, fram-
leitt samkvæmt þýzku sérleyfi. TÆPANOL
fæst í flestum málningar og nýlenduverzlun-
um svo og benzínafgreiðslum.
Leiðarvísir fylgir hverri pakkningu.
Einu sinni TÆPANOL, alltaf TÆPANOL.
Einkaumboð fyrir Efnaverksmiðjuna
INTERFICO, Danmörku.