Morgunblaðið - 14.11.1965, Side 28

Morgunblaðið - 14.11.1965, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 14. nó’a. 1965 ^ ^ *** «**» ^ ^ ^ •, Langt yfir skammt eftir Laurence Payne — Hvað hét hún nú? Jeanette eitthvað .... var ekki svo? — Musgrove. Það verður auð- velt að finna hana ef hún er lif- andi og enn auðveldara ef hún er dauð. Ef ég maetti missa þig skyldi ég senda þig til Skotlands til að tala við hana sjálfa .... þú ættir víst ekki að hafa neitt á móti því? Saunders urraði eitthvað 6- skiljanlegt, og eftir því sem um ferðin strjálaðist, steig hann fastar á bensínið, rétt eins og Musgrove væri á hælunum á honum. Nokkrum mínútum síðar studdi ég fast á bjölluna hjá hr. David Dane, sem var út af fyr- ir sig meinlaust en vakti synd- samlegan hávaða, er hundkvik- indið kom þjótandi niður alla stiga og ýlfraði ákaft við hurð- ina. Saunders beygði sig í keng og sönglaði eitthvað huggandi á móti, gegn um hurðina, en hund urinn virtist ekkert skeyta því en hamaðist á hurðinni með auknum ákafa. Ég gat ekki ann að séð en milli Saunders og dauðans væri ekki nema þunn fjöl. — Þú æsir hann upp, benti ég honum á. — Ég, sem er einmitt að reyna að róa hann! — Þér tekst það að minnsta kosti ekki betur en vel. Ég horfði á úrið mitt. Klukk- an var ekki nema rétt yfir hálf- fjögur. Dane var sýnilega ekki kominn heim enn. Hávaðinn var afskaplegur og glumdi upp og niður stigann, líkast því sem hundaat væri í fullum gangi í þjóðminjasafn- inu. Ég hnippti í höndina á Saunders: — Komdu, kall minn, við erum sýnilega að spilla friðn um hérna. Þegar við bjuggumst til ferð- ar, opnaðist íbúð nr. 6 um svo □--------------------n 26 □--------------------c sem þumlung, og tvö augu horfðu forvitin á okkur. Og rödd sagði, ótilkvödd: — Hann er líklega ekki heima. Og þá þekkti ég vingjarnlegu konuna, sem við höfðum hitt í stiganum í gær, en þá hafði hún verið með flannalegan, rauðan hatt á höfði og hafði gefið okk- ur upplýsingar um ,hvernig veðrið væri. — Mér þykir leitt ef við höf- um gert yður ónæði, sagði ég. Dyrnar opnuðust nú alveg og konan brosti. — Það eruð ekki þið, sem ger ið ónæði, heldur hann Snooky, og svo beygði hún sig fram að hurðinni og hvíslaði: — Róleg- ur nú, Snooky. Og það varð þögn, rétt eins og eitthvert járn tjald hefði verið dregið niður. Ég leit til Saunders, en sagði við konuna: — Þér virðist hafa lag á honum. Hún yppti öxlum að þessum hrósyrðum, og útskýrði, að þau Snooky þekktust vel og skildu hvort annað. — Ég bið yður afsökunar á að hafa gert yður þetta ónæði, sagði ég aftur, — en við erum frá lögreglunni og erum að rann saka dauða ungu stúlkunnar hérna í næsta húsi. Hún fórnaði höndum. — Ó, já! Það var alveg hræði- legt! Veslings stúlkan! Og hr. Dane þekkti hana vel, held ég. Veslings pilturinn. Ég er viss um, að hann verður alveg frá sér! Ég laumaði fætinum inn í dyragættina. — Ekki gætuð þér víst séð af fáeinum mínútum, frú.... — Bates. — Þér kynnuð að geta hjálp- að okkur. Hún leit tvíráð af mér og á Saunders, sem ég tók eftir að var að reyna að beita persónu- töfrum sínum. Konan ákvarðaði sig og bauð okkur inn í stofu, þar sem fæt- urnir á okkur ætluðu alveg að sökkva í rauða gólfábreiðu. Við settumst í þægilega hæginda- stóla og mér varð starsýnt á tekönnu úr silfri sem stóð skammt frá mér. Frú Bates hlýt- ur að hafa tekið eftir þessu, því að hún spurði okkur, hvort ekki mætti bjóða okkur tebolla, og þegar við þágum boðið,- fór hún fram til að ná í bolla. Ég sendi Saunders augnagotu og fékk á móti steingert augnatillit, sem gaf helzt til kynna, að ég hefði ruðzt inn á konuna í þeim ein- um tilgangi að verða mér úti um tesopa. Þegar við vorum seztir með bollana, sagði ég: — Ég vil nú ekki tefja yður um of, frú Bat- es, heldur voru það bara nokkr- ar hverdagslegar spurningar um hann hr. Dane hérna uppi. Aftur kom á hana einhver vafasvipur. — Hann er vonandi ekki í neinum vandræðum? Ekki vildi ég að minnsta kosti stuðla að því. Þetta er góður drengur og Samvinnutryggingar hafa í nokkur ár getað tryggt bændur fyrir margs konartjónum eða slysum á fólki, sem þeir verða bótaskyldir fyrir. Nýlegt dæmi um alvarlegt slys á býli í nágrenni Reykjavíkur hefur staðfest, að hverjum bónda er nauðsyn að hafa ábyrgðartryggt. Þá hafa bændur sjálfir orðið fyrir alvarlegum slysum, bæði við störf sín, og utan heim- ilis, án nokkura tryggingabóta. Nú teljum vér hins vegar, að sérstök ástæða sé til fyrir bændur að draga ekki lengur að ganga frá ábyrgðar og / eða slysatryggingu og fela Samvinnutryggingum þar með ábyrgðina. SAMVINNUTRYGGIN GAR ÁRMÚLA 3, SÍMI 38500 - UMBOÐ UM LAND ALLT góður sambýlismaður . . . og á- gætis leikari í þokkabót, bætti hún við með móðurhreim í rödd inni. — Ég er viss um, að þér gæt- uð ekkert sagt okkur um hann, sem gæti komið honum í vand- ræði, fullvissaði ég hana og fann til vonbrigða um leið, — en eins og þér skiljið, gerir kunn- ingsskapur hans við ungfrú Twist það að verkum, að við hljótum að fræðast eitthvað meir um hann, í sambandi við andlát hennar. En vegna ná- býlisins, hljótið þér að þekkja hann sæmilega vel — að minnsta kosti sé ég, að hundur- inn hans gegnir yður — og kannski gætuð þér nú sagt okk- ur hversu vel hann þekkti ung- frú Twist? — Jú, hann hefur sjálfsagt þekkt hana vel . . . hún var hér hálfgerður heimagangur. Hún varð hálf-vandræðaleg á svipinn. — Ég er hrædd um, að ég sitji býsna oft hérna við gluggann — ég er ekkja, skilj- ið þér og ég er hér alein með páfagauknum mínum. Hún benti á feitan, grænan páfagauk, sem húkti á priki í skrautlegu búri og leit ólundarlega á okkur. —• Hann er mér til mikillar huggunar, verð ég að segja, en ég vil nú gjarna vita, hverju fer fram, og héðan get ég séð bæði framdyrnar og út á göt- una. Þetta er nú ekki annað' en venjuleg forvitni, en mér þyk- ir vænt um fólk og vil gjarna sjá, hverju fram fer hjá því. Ég lét skilning minn á þessu í ljés með því að kinka kolli. Ég var sjálfur eitthvað svipað- ur . . . . nema hvað mér þótti ekkert vænt um fólkið. Hún hélt áfram: — Hann David er svoddan kvikasilfur. Hann á fjöldann allan af kunn- ingj um og er alltaf að hafa boð, og það eru nú heldur betur háv- aðasamar samkomur. Ekki að ég hafi neitt á móti því........... ég vil gjarna, að imgt fólk skemmti sér og kunningjar hans eru allir kátir . . . þetta er mest leikarafólk, skiljið þér, og maður sér nú alltaf gegn um fingur við það. En hann er ó- sköp almennilegur í sambandi við þessi boð sín. Hann varar mig alltaf við því, að nú verði dálítill hávaði, og stundum get ég ekki annað en hlegið með sjálfri mér, þegar ég heyri það skríða niður stigann, klukkan tvö og þrjú á nóttunni, skrxkj- andi og hlæjandi, og David sussa á það og segir því að hafa hægt um sig. Og næsta dag hringir hann hjá mér og biðst af sökunar. Hann er mjög góður og nærgætinn. Hann er yfirleitt allra bezti drengur. Eg var farinn að verða óþol- inmóður. Mig langaði ekkert að heyra hvaða ,,bezti drengur“ hann væri. Ég hafði þegar skap mér skoðun á honum ,sem var býsna ósvejgjanleg, og þetta virtist ekki vera annað en tíma eyðsla. Ég stakk nefinu niður í bollann og saup vel á. • • w bi) 73 • ^>4 ns 3 3 — IDL S3 •1—5 X «5 BJ eö xo V u © r* 'd u cð VI bu ou !> bu © Gólfflísar % *o twS>5. Æg o nyfflyw HEIMSÞEKKTAR s 3 u 3 '3 rrt ■ Í3 'O O Deliplast a w o o • p-4 > Deliflex H •— «4-1 Plastino Gólfdúkar Frá Deutsche Linoleum-Werke AD. sem er stærsti framleiðandi gólfefna í Evrópu. Leitið upplýsinga hjá byggingavöruverzlun yðar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.