Morgunblaðið - 20.11.1965, Síða 6

Morgunblaðið - 20.11.1965, Síða 6
6 MORCUNBLAÐIÐ Laugardagur 20. nóv. 1965 Grímseyingar líta bjartari augum 3 framtíðina en oft áður - segir oddviti þeirra Alfreð Jónsson FYRIR nokkrum dögum hitti blaðamaður Mbl. Alfreð Jóns- son, oddvita í Grímsey, á götu hér í miðbænum. Var hann á hraðri ferð, eins og yfirleitt allir sem til borgarinnar koma utan af landi, til þess að út- rétta fyrir heimabyggðir sínar. En það varð að samkomulai að hann kæmi við á Morgun- blaðinu er tækifæri gæfist áður en heim yrði haldið. Við það stóð Alfreð. — í>ú verður auðvitað að sæta lagi til að komast heim, því ekki er Drangur daglega í förum? — Nei, nei, þess þarf ekki lengur. — Að vísu heldur Drangur sínu striki með tveim ferðum til okkar í mánuði hverjum. En í sumar og haust hefur Norðurflug Tryggva Helgasonar flugmanns á Akur- eyri, haldið uppi flugferðum til okkar og farið reglulega einu sinni í viku. Sannast að segja hefur þessi stórmikla samgögu bót gjörbreytt allri aðstöðu Grknseyinga. Það hefur víst aldrei setið læknir í Grímsey frá því sögur hófust, og ekki auðhlaupið að fá lækni jafnvel í neyðartilfellum. Síðan Norður flug kom til sögunnar hefur verið hægt að leita til Akur- eyrarlækna um læknishjálp, sem þá hafa komið flugleiðis að vörmu spori, ef á hefur þurft að halda. En þó vel hafi tekizt með þetta flug, og það svo að við þama norður við Heim- skautsabug höfum fengið dag- blöðin að sunnan samdægurs, — þá hefur ferþegaflugið ekki staðið imdir sér. Hef ég talað máli Norðurflugs við forstjóra 'Skipaútgerðarinnar, því allar umsóknir um fjárhagslegan stuðning til samgöngumála, þurfa að hljóta meðmæli for- stjóra Ríkisskips. Vænti ég þess að hann sýni málinu velvilja, meðfram af því að samgöngur Skipaútgerðar ríkisins til okk- ar hafa ekki íþyngt útgerðinnL Við bindum því miklar vonir við, að Alþingi vilji styðja svo sjálfsagða samgöngubót sem hið vikulega flug er fyrir okkur í Grímsey. En úr því að við erum að tala um samgöngubætur, kemur mér til hugar símasambandið sem er milli okkar og „meginlands- ins“. Það er nú þannig, að við verðum að tala á bátabylgjunni •vonefndu. Annað er ekki um að ræða. En við munum hrein- lega hoppa yfir í nútímatækn- ina á þessu sviði og sleppa öll- um fyrri stigum ört batnandi símþjónustu. Næsta vor verður komið á beint símasamband til okkar með sama fyrirkomulagi og t.d. Vestmannaeyjar. Hafa forráðamenn Landssímans sagt okkur að þetta geti jafnvel orð- ið í marzmánuði næstkomandg — strax eftir að Siglufjörður er kominn í beint samband. Hér er um að ræða mjög merkileg þáttaskil í sögu Grímseyjar, er sá dagur rennur upp, að þeir, sem þess óska heima, geta feng- ið að njóta fullkominnar síma- þjónustu, sem í dag er aðeins þekkt af orðspori. Þá sagði Alfreð frá því, að í Grímsey er neyzluvatns aflað á sama hátt sem í Vestmanna- eyjum, þ.e.a.s. rigningarvatni er safnað í stóra geyma. Við von- um að nú sé að komast skriður á að borað verði eftir vatnL Þorleifur Einarsson jarðfræðing ur hefur athugað og rannsakað möguleikana á því að bora eftir vatni. Hann hefur bent á þrjá staði á eyjunni, sem hann telur mjög líklega. Jarðborunardeild hefur tekið málið að sér, og nú vonum við að það dragist ekki öllu lengur, að hægt verði að senda kjarnabor út til okkar svo hægt verði að ganga úr skugga' um hvort vatnsæðam- ar sem Þorleifur telur vera, geti séð okkur fyrir nægu vatni, sagði Alfreð. I Grímsey er því sem næst einn trillubátur á hverja fjöl- skyldu og hver fjölskylda hefur einnig kindur og flestar hafa kýr. — Trillubátarnir, sem eru 15, stunda eingöngu handfæra veiðar og allur fiskur sem á land kemur, fer í salt. — Einn aðili, Haraldur Jóhannsson kaupir fiskinn og verkar. Hefur þessi saltfiskútgerð verið ábata söm og þar sem þetta er aðalat- vinnuvegur fólks, hefur afkom- an verið ágæt. — Hafnarskilyrð in mætti bæta, sagði Alfreð, — því á vetrum geta ekki allir bátarnir verið í öruggu lægi, og þarf að setja þá. í sumar er leið voru mælingamenn frá Vitamálunum að mælingum í höfninni, og eru þær fyrsti þátt urinn í því verki, að óhjá- kvæmilegt er — að stækka og bæta höfnina hjá okkur. Vonum við að hægt verði að byrja á - • -íHhé-.: i'.: -iHWntffiHiriiir Höfnin í- Sandvík í Grimsey. stækkun hafnarinnar áður en langt um líður. Grímseyingar eru harðir sjósóknarar og róa helzt árið um kring, — fara út hvenær sem gefur, og stundum þurfa þeir ekki að fara nema rétt útfyrir höfnina til að kom- ast í fisk. — Hvernig er með skólamál- in hjá ykkur? — í dag eru 16 börn á barna- fræðslustigi heima í Grímsey. Strax og þau hafa lokið barna- fræðsluprófL verðum við að senda börnin að heiman í hér- aðsskólana. Barnaskólinn hefur verið til húsa í aflóga verzlun- arhúsi niðri við höfnina. Er íþað hús með öllu óhæft til kennslu, þó orðið hafi að not- ast við það. Skólinn var áður' í Þinghúsinu, en það var orðið svo lélegt að hætta varð að hafa skólann þar. Þar er þó enn til húsa Fis^e-bókasafnið. Það ligg ur þar hreinlega undir skemmd um, þó skömm sé frá að segja. Nú er í smíðum nýtt skólahús sem jafnframt verður félags- heimili. Er það hús komið und- ir þak, rúmlega 400 ferm. Við vonum að hægt verði í vetur og næsta sumar að koma hús- inu svo langt að hægt verði að taka til afnota stofur þær, sem nota á til kennslu, þegar næsta skólaár hefst. Við höfum verið mjög heppin í Grímsey, að til okkar réðst sem kennari Jakob Pétursson, sem áður var í Flatey á Breiðafirði. — Hefur hann áunnið sér traust manna og virðingu. Fiske-safnið verð- ur flutt í skólahúsið strax og tök eru á þvi. Að lokum sagði Alfreð Jóns- ÍT „Vínstúkur“ Maður nokkur skrifar langt bréf um noikun ýmissa orða — og er bréfið of langt til þess að birta það í heild. Hann er að ónotast út í nefnd málvöndunar manna, (mig minnir að það hafi verið heil nefnd), sem fann upp á því að kalla „bar“ vín- stúku. Maðurinn er sennilega bindindissinnaður, e.t.v. stúku- maður — og kann því illa að Vita af mönnum staupa sig í stúku. Af einíhverjum ástæðum voru „vínstúkumenn“ ekki óánægðir með nýyrðið, yfirleitt ekki — held ég. Þeir hafa sennilega verið ánægðir með að geta kom izt í stúku án þess að vera stúkumenn. Sem sagt, nú geta allir orðið eins konar stúku- menn. Ég held, að orð þetta fesitist í málinu og það lætur ekki illa í eyrum, finnst mér. ic Teprulegt Bréfritari fettir lfka fingur út 1 það, að Herra og Frú er bætt frarnan við nöfn fólks á bréfum — eftir því sem við á. Segir hann, að íslenzk manna- nöfn gefi undan,tekningalitið til kynna hvort um karl eða konu sé að ræða — og er það lauk- rétt. Hins vegar gefa nöfnin yf- irleitt ekki til kynna hvort kon ur eru giftar eða ógiftar. En það kemur e.t.v. engum við hvort eð er. Um þetta má sjálfsagt deila mikið — og væri það ekki ó- merkara deiluefni en margt annað, sem við finnum upp á til að rífast um. En mér finnst ákveðin virðing og kurteisi fel- ast í því að ávarpa fólk á þenn an hátt: Herra, frú eða ungfrú. Síður en svo teprulegt, miklu fremur nauðsynlegg kurteisL þegar ókunnugir rœðast við. Eirahvern greinarmun verðum við að gera á fólkL sem við þekkjum vel — og því, sem við þekkjum ekki — og það gerum við m.a. með þéringu. Ég held, að örlítil formfesta og meiri ög un í samskiptum fólks skaðaði okkur minna en margt annað, mn. í utanáskrift bréfa. ÍC „Hæstvirtur“ Loks kemur bréfritari með eina skemmtilega athugasemd: „Eitt íslenzkt orð virðist vera að breyta verulega um merk- ingu, Það er orðið „hæstvirtur.“ — Ástæðan er vafalaust sú, að þingmenn vorir nota orð þetta jafnan, þegar þeir ávarpa and- stæðinga sína í þriðju persónu — um leið og þeir ausa yfir þá svívirðingum. Gott dæmi um það hvemig fólk, sem hlustar á eldhúsdagsumræður, notar þetta orð nú á nýjan hátt: Kerling rak rukkarann öfugan út og hrópaði á eftir honum — Snautaðu í burtu, hæstvirtur diéskotans drullusokkurinn þinn.“ Já, það er greinilegt, 'að þessi kerling hefur lært eitt- hvað af þingmönnunum okkar — og má segja, að eldhúsdagur sé ekki til einskis. it Blessuð mjólkin Og hér kemur annað bréf cam \riil alrlri cfnvma lpiniólir! Alfreð Jónsson. son oddviti: — Það er stað- reynd, þrátt fyrir allan flótta úr strjálbýlinu til bæjanna, þá getum við í Grímsey sagt aðra sögu. Fólki hefur vegnað svo vel, að frá því árið 1960 og þar til nú, hefur íbúum Grímseyj- ar fjölgað um 20 eða úr um 60 uppí 82. — Jafnvel höfum við orðið að synja væntanlegum „innflytjendum“ svo sem frægt er orðið af blaðaskrifum. Eg tel ekki ástæðu til að ræða það mál. Væri það gert af þeim aðilum sem gjörst þekkja mála vexti á Akureyri og heima i Grímsey, yrði málið ekki leng- ur blaðamál, — því miður fyr- ir ykkur blaðamennina. Eg tel fullvíst ,að þegar á allt er litið, geti Grímseyingar nú litið bjartari augum til fram tíðarinnar þar heima, en oft áður, jafnvel þó ekki sé farið lengra aftur í tímann en svo sean 10—15 ár, sagði Alfreð Jónsson oddviti að lokum. „Aðeins nokkur orð um aðra einkasöluna — Mjólkursamsöl- una. Ég er einn af þeim, sem verð sjálfur að sjá mér fyrir kvöldmatnum. Ef ég kemst ekki frá vinnu fyrr en um kL 6 e.m. fæ ég hvergi mjólk, nema á okurverði. Lítil hyrna á 4 til fimm krónur. Nú eru nokkrar matvöruibúðir opnar til kl. 10 á kvöldin en mjólk er ekki hægt að kaupa í höfuð- borginni eftir kl. 6. Og svo er klukkan þeirra í mjólkunbúð- unum alltaf á undan klukk- unni t.d. hjá Silla og Vaida — hurðin í lás og gardínan niður- dregin. Og þá er bara að kaupa mjólk á 16 til 20 kr. lítrann. Hvað skyldi vísitalan verða með því mjóikurverði. En ég fæ bara laun etftir dagverði mjólkur, og þessvegna missir vinnuveitandi minn oft af dýr- mætum starfskröftuim mínum svo ég geti hlaupið út og keypt mjólk á vísitöluverði. Ég held að „Smjörfjall“ KUjans mundi minnka að mun ef nokkrar mjóliburbúðir væru opnar til kl. 10 og mætti segja mér, að það mundi borga sig fyrir Ríkis- sjóð að selja mjólk til þesa tima á skaplegu verði, heldur en að halda áifram að láta „Smjörfjallið“ vaxa, ef Mjólk- ursamsalan sér sér ekki fært að gera það.“ Kaupmenn - Kanpfélög Nú er rétti tíminn til að panta Rafhlöðúr fyrir veturinn. Bræðurnir Ormsson hf. Vesturgötu 3, Lágmúla 9. Sími 38820. r

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.