Morgunblaðið - 20.11.1965, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 20.11.1965, Blaðsíða 19
Laugarífagtíir 20. nóv. 1965 MORGU N BLAÐIÐ 19 Enn um sjúkrahús- mál Sunnlendinga ÞANN 6. Okt. birti Mbl. og Suð- urland um sama leyti greinarstúf frá mér undirrituðum, þar sem ég bar saman þær tvær landspild ur, sem koma til greina að byggja væntanlegt sjúkrahús Sunnlend- inga á, Árbæjarland og Þóris- Ihóla, ásamt nokkrum spuming- um, sem ég lagði fyrir sjúkra- Ihússtjórnina um leið. í stað þess að svara þessari grein minni eins og siðuðum mönnum sæmir í op- inberri þjónustu rjúkið þið upp til handa og fóta og heimtið heil- ibrigðismálaráðherra austur að Selfossi augsýnilega til þess að fá hans stimpil á ykkar gerðir. Þið kærið ykkur ekikert um að ræða þetta mál fyrir opnum tjöld um heldur kusuð þið að skýla ykkur við aðra og láta líta svo út, að endanleg afgreiðsla þessa maáls sé verk heilbrigðism ráð- herra og hans ráðuneytis en ekki ykkar. Þetta minnir mann á óknyttastráká, sem staðnir eru að einhverjum óknyttum og hlaupa svo inn í bæ og hanga J>ar í pilsfaldi móður sinnar og iþora ekki að koma út eða líta upp á nokkurn mann. En ykkur væri hollt að at- huga, að sjúkrahúsmálið er ekki neitt einkamál ykkar heidur varðar það okkur alla, Sunn- Jendinga, og við látum okkur Iþað miklu varða, að því sé ráð ið vel og giftusamlega. Þið hafið hampað því mjög í greinum ykkar að þetta mál hafi Iþurft að kanna mjög vel og ræki- lega, og svo hafi verið gert. Að (því tilefni langar mig að bera fram nokkrar spumingar og von- ast eftir svari ykkar við þeim. 1. Hafið þið tilkvatt nokkra sérfræðinga til þess að rannsaka og meta landkosti og legu pessara tveggja staða: Sé svo: Hverjir gerðu það og hvenær fór sú rt- hugun fram? 2. Þegar þið fenguð heilbrigðis m.ráðherra hingað austur um daginn, sýnduð þið honum þá báða þessa staði og skýrðuð frá kostum og ókostum þeirra beggja? 3. Áleit heiibrigðism.ráðherra sjúkrahúsið betur sett inni í þorp inu við Þórishóla en í Árbæjar- landi um 2 km. utan við þorpið? . Áleit heilibrigðism.ráðih. ejúikrahúsið betur se1t á suðar- Ibakka árinnar í ausandi vatns- austri í norðanáttum og klaka- klambri í frostum en úti í Ár- bæjarlandi á norðurbakka árinn- ar, þar sem allt slíkt er útilokað? 5. Taldi heilbr.m.ráðh. sjúkra- húsið betur sett við Þórishóia sunnan árinnar og eyranna í ánini, þar sem moldarmökkurinn stendur af eyrunum í norðan- áttum, þegar lítið er í ánni held ur en úti á Árbæjarlandi, þar eem grasi gróið land er allt i kring? 6. Áieit hann, að sjúkrahúsið væri betur sett með aðeins um 60 stiga heitt vatn úr hitaveitu K.Á., eem háð er rafmagnstruflunum og notkun almennings á hita- veitusvæðinu en með 90 stiga heitt vatn, í Árbæjarlandi, sem óháð er rafmagni og kæmi sjálf- rennandi inn í hús með 10-20 m fallhæð og væri óháð annarri eyðslu? 7. Kynntuð þið heilibrigðism, ráðh. gjafabréf það, frá Kf. Ár- nesinga, sem þið hafið hampað •vo mjög undanfarið og teljið að liggi fyrir lóð og heitu vatni við Þórishóla sjúkrahúsinu til handa? 8. Áleit heiibrigðism.ráðherra sjúkrahúsið betur sett með ueyzluvatn frá vatnsveitu Sel foss, sem oft á tíðum er alltof lít- ið (tilfinnanlegur vatnsiskortur er hér oft) en úr sinni eigin lögn i ÁrbæjarLandi þar sem mikil falibæð er og enginn annar not- Það skyldi þó ekki vera, að þið hafið leynt hann öllu þessu? Og enn vil ég spyrja: Þið sláið því föstu í greinargerð ykkar 1. júlí sl. að KÁ hafi gefið sjúkra- húsinu heitt vatn eftir þörfum úr hitaveitu sinni. Nú er það vitanlegt, að hitaveita K.Á. er að eins um 60 stiga heit þarna aust. urfrá og nægir það hvergi nærri til upphitunar húsa í miklum frostum. Sjúkrahúsið yrði því að hafa varakyndistöð. Og hver á að borga þann aukakostnað? Ætlar K.Á. að gera það? Þar er víst mjög algfengt að reikna með, að vatnið sé nýtt níður í 45-40 stig til upphitunar húsa og yrðu þá aðeins um 20 stig til upphit- unar úr hitaveitu K.Á. en úti á Árbæ er heita vatnið um 90 stig og yrði því 50 stig til upphitun- ar þar. Og það munar um mlnna. Og ekki ætti að þurfa að lýsa því hvílíkur geysimunur það er við- komandi þvottum sjúkrahússins þar sem allan þvott þarf að sjóða að hafa til umráða 90 stiga heitt vatn eða að öðrum kosti aðeins um 60 stig. Og enn segið þið í áðurnefndri greinargerð: að selji K.Á. hita- veituna, þá sé kaupandi háður þessari kvöð þ.e. að skaffa sjúkra húsinu heitt vatn eftir þörfum. Er það þá ætlunin, að Selfossibú- um einum sé ætlað að skaffa sjúkrahúsinu uppbitun um aldur og ævi ,ef hreppurinn keypti hitaveituna? Sjúkrahússtjórn get ur reitt sig á, að Selfossbúar eru fæstir hrifnir af þv' og þakka fyrir gott boð. Árið 1956 samþykkti þáverandi heiibrigðismálaráðherra, Ingólfur Jónsson, lóð við Þórishóla undir sjúkrahúsið, en um aðra lóð var þá varla að ræða, þó að kunnug- ir renndu grun í, £ J þar yrði stundum svalt og næðingssamt norðanáttinni. • En í fyrra við tilkomu gjafabréfs Árbæjar- manna sköpuðust n\ viðhorif í málinu, sem ég og margir aðrir fögnuðu, því að þar voru gjör- ólíkar aðstæður, eins og ég hefi sýnt fram á. En sjúkrahússtjórn- nin hefur ekki svo mikið sem litið á þennan stað nema nokkur hluti hennar, enda er mikið efa- mál, að allir nefndarmenn sjúkra hússtjórnarinnar viti, hvar þessi Árbæjarblettur er, hvað þá að sýslunefndirnar hafi kynnt sér hann. Sjúkrahúsistjórnin talar um, að menn þurfi að sýna einhug og einingu í þessu máli. En hafi henni verið alvara með það, hefði hún átt að haga sér öðru vísi, og vita má bún það, að á meðan hún færir ekki skýr og augljós rök fyrir ágæti Þórishóla framyifir Árbæjarland, verður engin eining um þetta mál. Að lokum vil ég spyrja: Ætlar sjúkrahússtjórnin að svara þess- ari grein — eða ætlar hún að panta heiibrigðismálaráðherra hingað austur að Selfossi í ann- að sinn? Björgvin Þorsteinsson Selfossi. IMercedez Benz Kvikmyndasýning í Gamla Bíó í dag laugardaginn 20. nóv. kl. 3 e.h. — Aðgangur ókeypis. Börnum óheimill aðgangur nema í fylgd me i fullorðnum. Ræsir h.f. Húsgögn Seljum næstu daga á framleiðsluverði. Sófaborð á kr. 1200.— Útvarps- og sjónvarpsborð á kr. 500.— Kommóður á kr. 2500.— Smíðastofan VALVIÐUR S.F. Dugguvogi 15 — Sími 30260. Sjálfstæðiskvenna- félagið Hvöt Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt heldur fund í Sjálf- stæðishúsinu mánudagskvöldið 22. nóv. kl. 8,30 e.h. x Fundarefni: 1. Félagsmál. 2. Frú Ragnhildur Helgadóttir fyrrv. alþingis- maður segir frá þingi bandalags Evrópu- kvenna í Vínarborg, en hún var þar fyrir nokkru síðan. 3. Sýnd verður kvikmynd um frystingu mat- væla, frú Sigríður Haraldsdóttir húsmæðra- kennari sýnir myndina og skýrir hana. 4. Frjálsar umræður. Allar sjálfstæðiskonur velkomnar meðan húsrúm leyfir. — Kaffidrykkja. STJÓRNIN. Til sölu Michican bílkrani, selst með góðum kjörum ef samið er strax, mikið af varahlutum. Einnig Ford 1953 með 8 manna húsi til sýnis að Ártúnshöfða sími 33318. Jarðvinnsla Tökum að okkur að fjarlægja moldar og grjóthauga, höfum stórvirk tæki, einnig útvegum við rauðamöl og fyllingarefni. Fljótvirkar vélar í að grafa fyrir húsgrunnum í tíma eða ákvæðisvinnu. Upplýsingar í síma 33318. AUKIN ÞÆGINDI - AUKIN HÍBÝLAPRÝÐI Við erum sammála um KENWOOD Konan mín vill Kenwood Chef sér til aðstoðar í eldhúsinu . .. og ég er henni alveg sammála, því ekkert nema það bezta er nógu gott fyrir hana. KENWOOD CHEF er miklu meira og allt onrtað en venjuleg hrœrivél — Engin önnur hrærivél býður upp á jafnmikið úrval ýmissa hjálpartækja, sem létta störf húsmóðurinnar En auk þess er Kenwood Chef þægileg og auðveld í notkun, og prýði hvers eldhúss. 1. Eldföst leirskál og/eða stálskál. 2. Tengilás fyrir þeytara, hnoð- ara og hrærara, sem fest er og losað með einu léttu handtaki. 3. Tengilás fyrir hakkavél, græn- metis- og ávaxtarif járn, kaffi- kvörn, dósaupptaka o. fl. 4. Tengilás, lyftið tappanum, tengið tækið, og það er allt. 5. Tengilás fyrir hraðgengustu fylgitækin. — Aðrir tengilásar rofna, þegar lokinu er lyft. 6. Þrýstihnappur — og vélin opn- ast þannig, að þér getið hindr- unarlaust tekið skálina burt. KENWOOD CHEF fylgir: Skál, þeytari, hnoðari, hrærari, sleikjari og myndskreytt upp- skrifta- og leiðbeiningarbók. Verð kr: 5.900.— Viðgerða- og varahlutðþ]énusta Sími 11687 21240 Hekla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.