Morgunblaðið - 23.11.1965, Page 10
10
MORGU N BLADIÐ
Þriðjudagur 23. nóv. 1965
Verðum að fylgja hinni
öru þróun í flugmálunum
Rætt við norska útgerðarmanninn og flugvéla-
eigandann Ludvig. G. Braathen
NÚ FYRIR helgina var stadd
ur hér góður gestur frá Nor-
egi, Ludvig G. Braathen út-
gerðarmaður og flugvélaeig-
andi ásamt konu sinni. Braath
en var á Ieið vestur um haf
og í erindum útgerðarfélags
síns og flugfélags. Braathen
er íslendingum að góðu kunn
ur fyrir samvinnu sína við
Loftleiðir og gjafir til ís-
lenzkrar skógræktar. Hann
er og einn af kunnustu at-
hafnamönnum Noregs, hefir
starfað þar að útgerð í 55 ár
og rekið eigin útgerðarfyrir-
tæki í 40 ár og nú hefir hann
rekið flugfélag í nær 20 ár.
Hann er einnig þekktur fyrir
alþjóðleg afskipti af flugmál-
um, var m.a. forseti sambands
flugfélaga í einkaeign, sem
hefir aðsetur í París, um
tveggja ára skeið. Hvarvetna
vekur Braathen athygli sem
hann fer fyrir einurð sína og
mikla athafnasemi. Hann er
einn þeirra manna sem trúir
á einstaklingsframtakið en
gerir sér far um að halda
samvinnu við hvern þann er
styður að vexti og viðgangi
framfaramála bæði í sínu
heimalandi og annars staðar
lagt kosta sem svarar 100 millj
norskra króna.
Auk áætlunarflugsins innan-
lands í Noregi stundar flugfloti
Braathens leiguflug um allan
heim. Ógetið er enn hins mikla
viðgerðarverkstæðis sem Braath-
en á á Sola-flugvelli við Stavang-
ur og er eitt hið fullkomnasta í
Evrópu. í>að er 22000 fermetrar
að stærð og annast viðgerðir fyr-
ir ýmsa aðra en eigin flugflota
Braathens, m.a. Loftleiðir og
hluta norska herflugflotans.
>ótt Braathen hafi verið mik-
ilvirkur í flugmálum er skipa-
floti hans allmyndarlegur og
einkum eru tankskip hans þar
áberandi. Tvö hin stærstu þeirra
eru 58 þúsund tonn en alls er
skipaflotinn Vt milljón tonna að
stærð.
Alls munu vinna um 1000
manns hjá Braathen við flugvél-
arnar einar, er hinar 3 nýju þot-
ur hafa verið teknar í notkun.
Talið berst nú að nýjungum
á sviði flugmála og leggur
Braathen ríka áherzlu á, að fylgj
ast verði af mikilli kostgæfni
með framþróuninni í þeim mál-
um. Samkeppnin harðnar stöð-
ugt á því sviði. Hefir hann gert
víðtækar og mikilsverðar áætl-
anir í þeim efnum fyrir nútíma-
flug um Noreg, en það er hið
svonefnda Super Sonic-flug, þar
sem hraðinn verður gífurlega
aukinn og vélar smíðaðar sem
fara með 2—3000 km. hraða á
klukkustund og aðeins tekur á
• fylgjast yrði með þróuninni
hvort sem manni líkaði það bet-
ur eða ver. i>egar hafa verið mikl
ar umræður um nýjan stórflug-
völl í Danmörk á Salthólma og
Svíar hafa uppi ráðagerðir um
slíkan flugvöll á Skáni. Danska
áætlunin um Salthólmaflugvöll-
inn nemur ekki minna en 1,6—2
milljörðum danskra króna íyrir
flugstöðina eina og auk þess
þarf að gera neðanjarðargöng
þangað, svo og brú til Málmeyj-
ar og er gert ráð fyrir að allt
fyrirtækið kosti 5—6 milljarða
danskra króna. Svíar hafa hafn-
að samvinnu við Dani í þessu
efnL
í þessu sambandi hefir Braath-
en bent á að Norðmenn verði
sjálfir að byggja eigin stórflug-
völl á Sola og hefir hann gert
áætlun um kostnað í því sam-
bandi. Hann telur Sola einn hag-
stæðasta fiugvöll sem um er að
ræða til þessara framkvæmda í
Evrópu. Þar er flogið inn frá sjó
og út yfir haf og verður því
vandamálið með hávaðann lítið
þar, en hvort sem flugvöllúr
verður á Skáni eða Saltholma
verður ekki hjá því komizt að
umferðin valdi miklum hávaða
í þéttum byggðarlögum og þá
einkum í Kaupmannahöfn, er
hinar hraðfleygu flugvélar fara
þar yfir. Til þess að gera Sóla
að stórvelli þyrfti kostnaður ekki
að nema meiru en sem svarar 70
milljónum norskra króna. Flug-
brautir eru þar þegar um 2600
í víðri veröld.
Mbl átti þess kost að ræða við
hann nokkra stund í íbúð hans á
Hótel Sögu. Flugmál urðu að
sjálfsögðu ofarlega á baugi í sam
tali okkar og til fróðleiks lesend-
um er rétt að rekja sögu flug-
félags hans i stórum dráttum og
samkeppni hans við SAS, sem
kunnugt er, er sameignarfyrir-
tæki Norðurlanda, Svíþjóðar,
Danmerkur og Noregs.
Flugfélag Braathens er hið
fyrsta sem tekur upp reglulegt
áætlunarflug beint frá Evrópu
til hinna fjarlægari Austurlanda.
Var það hafið sem leiguflug ár-
i8 1947, og stóð það um 3ja ára
skeið, en síðan sem sérleyfi fram
til ársloka 1954, er norska stór-
þingið tók það af honum til að
afhenda það SAS.
í dag rekur Braathen innan-
landsflug á 6 leiðum í Noregi og
flýgur allt norður til Þránd-
heims, en hefir nú sótt um að
fá að fljúga til Norður-Noregs
en ákvörðun hefir enn ekki ver-
ið tekin um það af norsku flug-
málastjórninni.
Þá hefir Braathen átt sem
kunnugt er mjög heillaríkt og
gott samstarf við Loftleiðir og
hefir það samstarf nú staðið í
tæp 14 ár.
Flugfloti Braathens er nú alls
16 flugvélar. Nú hefir hann gert
samning um kaup á þremur
Boeing 737 þotum, sem taka 112
farþega hver og fljúga með 940
km. hraða á klst. Þær þurfa ekki
meira en 1600 km. flugbrautir
og eru búnar tveimur þrýsti-
loftshreyflum. Þá á hann 7
Friendship-vélar samskonar og
vél Flugfélags íslands og hin átt-
unda verður afhent honum inn-
an skamms. Ennfremur eru í
flota hans 7 DC-6-B vélar og ein
Skymastervél, en með þeirri
gerð véla hóf hann á sínum tíma
Asíuflugið. Floti Braathens verð
ur með tilkomu nýju þotanna um
einn þriðji af stærð SAS-flotans.
Hinar nýju þotur munu saman-
þriðja tíma að fljúga frá Noregi
til Bandaríkjanna. Braathen tók
það fram að hann væri ekki sér-
lega hlynntur þessum mikla
hraða, en það bæri að líta á, að
m. langar en þurfa að verða um
4000 m.
Talið berst nú að dvöl þeirra
Braathenshjóna hér á landi, en
þau hjón hafa setið boð forsetans
60LF OG VEGGFLISAR
úti og inni
HÉÐINN =
Vélaumboð - Seljavegi 2 - Sími 24260.
Aðalsafnaðarfundur
Nessoknar
í Reykjavík verður haldinn föstudaginn 26. nóvem
ber nk. kl. 8,30 síðdegis í Félagsheimili Neskirkju.
FUNDAREFNI:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefnd Nessóknar.
Átthagafélag Akranes
og Bolvíkingafélagið
efna til sameiginlegrar kvöldvöku í Tjarnarbúð
(Odfellow) niðri, föstudaginn 26. nóvember nk. og
hefst hún með félagsvist kl. 9 um kvöldið.
Mætið stundvíslega til að geta verið með frá byrjun.
Stjómirnar.
Braathen og
hr. Ásgeirs Ásgeirssonar, svo og
Ingólfs Jónssonar, samgöngu-
málaráðherra. Einnig höfðu þau
hjón boð inni fyrir forseta ís-
iands, samgöngumálaráðherrann,
stjórn Loftleiða og skógræktar-
stjóra.
Á föstudaginn fór Braathen,
ásamt form. Skógræktarfélags
íslands og skógræktarstjóra, upp
í Skorradal til að sjá þar skóg-
inn, sem ræktaður hefir verið
fyrir höfðinglegt gjafafé hans og
sannfærðist hann um að hinn 9
ára gamli skógur þrífst vel og
hann segir að enginn vafi sé á
að sá skógur eigi mikla og góða
framtíð. Hann kvað það hafa
glatt sig hve vel trén hafi vaxið
og hann kveðst vilja hvetja fs-
frú hans
lendinga til aukinnar skógrækt-
ar, því það verði okkur í fram-
tíðinni mikill þjóðfélagsfengur.
Braathen á sjálfur stóran skóg
í Noregi, sem er 2500 hektarar.
Til samanburðar má geta þess að
Braathenlundur í Skorradal er
30 hektarar en svo er annar
Braathenskógur að vaxa í Hauka
dal í Biskupstungum sem verður
víðlendari.
Braathen lauk samtali sínu við
Mbl. með því að róma allar mót-
tökur hér og lýsti ánægju þeirra
hjóna yfir að hafa hitt vini sína
hér. Kvaðst hann sannfærður um
að hann og fyrirtæki hans myndi
áfram halda vináttu og góðum
viðskiptum við íslendinga báð-
um til hags og ánægju.
Atvinnurekendur
Vélstjóra, sem er vanur smíðum og verkstjórn,
vantar húsnæði fyrir vélaverkstæði ca. 100—200
ferm. á jarðhæð. Til greina kæmi að annast viðhald
á vélakosti þess fyrirtækis sem gæti látið í té við-
unandi vinnupláss. Fyrirspurnir óskast sendar Mbl.
merktar: „Morgunstund gefur gull í mund — 6175“.
Nauðungaruppboð
Vélbáturinn Garðar GK 61, eign Faxafisks h.f. o. fl.
verður seldur á nauðungaruppboði, sem fram fer að
kröfu Fiskveiðasjóðs íslands á skrifstofu embætt-
isins föstudaginn 27. þ. m. kl. 11,30. —
Uppboð þetta var auglýst í 38., 39. og 40. tbl. Lög-
birtingablaðsins.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði.