Morgunblaðið - 03.12.1965, Blaðsíða 2
MOHCU N BLADIÐ
Föstudagur 3. des. 1965
í-—;--------------r
| 260 þús. söfnuðust h|á
barrtaverndarfélögunum
X.ANDSSAMBAND ísl. barna-
■verndarfélaga gekkst fyrir fjár-
söfun 1. vetrardag til styrktar
Starfsemi hinna einstöku félaga.
AlIIs söfnuðust rösklega 260 þús.
Icrónur, þar af 155 þús. kr. I
Heykjavík, 40 þús. á Akureyri,
16 þús. á ísafirði, 13 þús. í Kefla-
vík og á Akranesi, en nokkru
minna á öðrum stöðum. Lands-
sambandið þakkar fólki auð-
sýndan skilning í áhugamálum
ifélaganna.
Á síðastliðnu hausti gekkst
landssambandið fyrir landsfundi
foarnaverndarfélaganna. Viðfangs
efni fundarins var uppeldi ungra
foafna. Flutt voru 5 framsöguer-
xndi um þetta mál og eru þau nú
endurflutt í Ríkisútvarpinu. Þá
ílutti séra Eiríkur J. Eiríksson
ifyrirlestur: Æskan í dag og
vandamál hennar. Meðal annarra
ólyktana, sem gerðar voru á
ilandsfundinum, eru þessar:
1. Landsfundur Landssambands
Klúbbfundur
Heimdallar
HEIMDALLUR FUS efnir til
kliúbbfundar í Tjarnarbúð á
xnorgun og hefst funöurinn kl.
12.30. Gestur fundarins að þessu
sinni verður Sveinn Benedikts-
son, framkvstj., og mun hann
ræða um síldariðnað og síldar-
markaði. Er ekkí að efa að
marga Heimdallarfélaga mun
fýsa að hlýða á mál Sveins og
eru félagsmenn hvattir til að
fjölmenna og taka með sér gesti.
ísl. barnaverndarfélaga, haldinn
í Reykjavík 16. og 17. sept 1965,
fagnar stofnun fóstursystkina-
heimiiisins Skála við KaplaskjóLs
veg og telur, að þar sé stigið
mikilvægt spor í rétta átt. Marg-
háttaðar rannsóknir með ýmsum
menningarþjóðum hafa sannað,
að hið hefðgróna skipulag á upp-
eldi munaðarleysingja, að börnin
dvelji aðeins stutt aldursskeið á
einu heimili, en flytjist síðan til
hins næsta og svo koll af kolli,
er úrelt og getur ekki náð full-
um árangri í uppeldi bamanna.
Fundurinn leyfir sér því að skora
á hið háa borgarráð að fjölga
eftir þörfum fóstursystkina-
heimilum af sömu gerð og Skáli
og beina þannig uppeldi þeirra
barna, sem borgin þarf að annast,
inn á þá braut, sem nútíma sér-
fræðingar á þessu sviði telja
börnunum vænlegasta til þroska
og manndóms.
2. Landsfundurinn tekur undir
þá tillögu Kvenréttindafél. ís-
lands, sem samþykkt var í okt.
1964, þar sem skorað er á borgar-
stjórn Reykjavíkur að setja á
stofn heimili fyrir einstæðar
mæður, sem yrði dvalarstaður
þeirra um óákveðinn tíma eftir
fæðingu barnsins.
3. Landsfundurinn lítur svo á,
að fjölga þurfi leikskólum og
dagheimilum í bæjum og búa
sem bezt að þeim, bæði að 'því
er varðar starfsfólk og allan út-
búnað. Fundurinn telur því
brýna nauðsyn að efla Fóstru-
skóla Sumargjafar, svo að hon-
um verði kleift að sérmennta
nægilega margar fóstrur fyrir
leikskóla og dagheimili í landinu.
(Frá Landssambandi ísL
barnaverndarfélaga.).
Firmakeppni
lokið
NÝLOKIÐ er firmakeppni hjá
Bridgefélagi Hafnarfjarðar. Tóku
20 firmu þátt 1 keppninni og urðu
þessi efst. Apótekið (Sævar
Magnússon), Alþýðuhúsið (Sæ-
mundur Björnsson), Rafveitan
(Einar Guðnason), Bókabúð
Böðvars (Árni Þorvaldsson),
Bókabúð Olivers (Jón Jónsson),
Lögfræðiskrifstofa Árna Gunn-
laugssonar (Viggó Björgúlfsson),
Lögfræðiskrifstofa Árna Grétars
Finnssonar (Gísli Guðmundsson).
Næstkomandi miðvikudag hefst
sveitakeppni og verður spilað í
Alþýðuhúsinu kl. 8.
gær og gekk vindur þá til
norðausturs á landinu. Var
sums staðar hvasst við suður-
ströndina, en lítil úrkoma náði
til landsins. Veður fór kóln-
andi um leið og birti í lofti á
Vesturlandi, og var blotinn
liðinn hjá.
Veðurhorfur kl. 10 í gær-
kvöldi: Suðvesturland til
Breiðafjarðar NA-gola og létt-
skýjað. SV-mið til Breiða-
fjarðar NA-kaldi og sums
staðar stinningskaldf létt-
skýjað. Vestfirðir: NA-kaldi,
léttskýjað sunnan til, sums
staðar smáél norðan til. Vest-
ast léttskýjað. Norðurmið:
Austfjörðum og sums staðar
NA-kaldi og smálé. Norðaust-
urland og miðin: NA-gola og
skýjað, sums staðar smáél.
Austfirðir miðin, Suðaustur-
mið og Austurdjúp: NA-kaldi
eða stinningskaldi, allhvasst á
miðunum, dálítil él. Suðaust-
urland: NA-kaldi eða stinn-
ingskaldL víðast léttskýjað1.
Horfur á laugardag: NA-
kaldi og dálítið frost um allt
land, bjart veður sunnan
lands og vestan, en smáél
norðan til á Vestfjörðum, á
á Norðurlandi.
Þytur fékk gullverðlaun
Hnekkti 27 ára gömlu mefti
A KAPPREIÐUM, sem haldn
ar voru í Skógarhólum á
Þingvöllum 27. júní setti
Þytur Sveins K. Sveinssonar
úr Reykjavík íslandsmet á
300 m. stökkspretti og
hnekkti þar með 27 ára
gömlu meti. Á miðvikudags-
kvöldið afhentu hestamanna-
félögin, sem að mótinu stóðu,
Sveini K. Sveinssyni, verð-
launapening við hátíðlega at-
höfn, að viðstaddri undirbún
ingsnefnd kappreiðanna og
stjórn Landssambands hesta-
manna.
Þytur er 8 vetra bleikur
hestur úr Hornafirðinum.
Hann hljóp 300 m. á 21,4 sek.
Metið sem hann hnekkti átti
Sleipnir úr Reykjavík, sem
hljóp á 22,2 sek. Raunar
hnekkti Þytur þessu meti
tvisvar á kappreiðunum í
Skógarhólum, því hann hljóp
tvo spretti, þann fyrri á 21,8
og þann síðari á 21,4. Knapi
var Aðalseinn Aðalsteinsson
á Korpúlfsstöðum.
Fyrsta viðurkennda metið
á 300 m. spretti var sett á
hvítasunnukappreiðum Fáks
1. júní 1025, er Sörli úr Borg
arfirði hljóp vegalengdina á
22,6 sek. Móðnir frá Deildar-
tungu tók við að honum sem
methafi á hvítasunnukapp-
reiðum Fáks 1927 og hljóp
á 22,4 sek. Eftir það stóð met
ið óhaggað í 11 ár, þar til
Sleipnir, 7 vetra foli úr Rvík
hnekkti því 6. júní 1938 og
hljóp á 22,2 á hvítasunnu-
kappreiðum Fáks. Það met
stóð svo í 27 ár, þar til Þyt-
ur hnekkti því £ sumar.
Hestamannafélögin átta,
sem stóðu að Skógahólamót-
inu, létu gera verðlaunapen
Þytur og Aðalsteinn. Myndin
ing með svipuðu sniði og aðr
ir verðlaunapeningar á þessu
móti. Er það gullpeningur
með áletruninni: Skógahóla-
kappreiðar 27. júní 1965, og
hinum megin: Þytur Sveins
K. Sveinssonar, lands.met,
21,4 sek.
Að mótinu í sumar stóðu
8 félög: Andvari í Garða-
hreppi; Fákur í Reykjavík;
var tckin við hesthús Fáks. —
Ljósm.: ól. K. M.
Hörður í Kjósarsýslu; Ljúfur
í Hveragerði; Logi í Biskups
tungum; Sörli í Hafnarfirði;
Sleipnir á Selfossi og Trausti
í GrímsnesL
Pétur Hjálmsson (t.h.), formaður undirbúningsnefndar Skógaarhólamótsins, afhendtr Svetni
K. Sveinssyni verðlaunapeni nginn. — Eiginkona Sveins, Inga Valborg Einarsdóttir og knap-
inn, Aðalsteinn Aðalsteinsso n, horfa á.
Fjórar
barnabækur
frá ísafold
KOMNAR eru út fjórar nýjar
barna- og unglingabækur hjá
ísafold. Þær eru þessar:
Hvít jól, eftir Ragnheiði
Jónsdóttur. Hefir Reignheiður
valið í þessa bók 14 jólasögur,
sem hún hefur samið á ýmsum
tímum, þá fyrstu fyrir mörg-
um árum. Flestar sögurnar eru
öðrum þræði þjóðlífslýsingar.
Viltu segja mér, barnasögur
eftir Halldór Pétursson, prýdd-
ar teikningum eftir Halldór
Pétursson listmálara. í bókinni
eru þrjár sögur, Dóri Iitli, Sag-
an af litla risanum og Jósunum
hans og Berjaferðin.
Þrir pörupittar, eftir Ingi-
björgu Jónsdóttur. Drengirnir
heita Gísli, Eiríkur óg Helgi, og
eru því nafnar þeirra Bakka-
bræðra. Bókin er myndskreytt.
Disa og ævintýrin, eftir Kara
Tryggvason. Kári hefur skrifað
fjölmargar barnabækur, og
munu margir kannast við Dísu-
bækur hans. Bókin er í flokkn-
um „Barnabækur ísafoldar“.
Hún er prýdd fjölda teikninga
eftir Björn Björnsson.
Vórður
Akureyri
VÖRÐUR, F. U. S. á Akureyri
heidur kvöldverðarfund í Sjálf-
stæðishúsinu (litla salnum, uppi)
föstudaginn 3. des. kl. 19.
Þór Vilhjálmsson, borgardóm-
ari, flytur erindi. — Kvikmynda
sýning o. fL
FÉLAGSHEIMIU
í kvöl<±
Leshringnr
um NATO 1969
+ + +
KvLkmyndasýnmg
+ + +
Fjölmennið í
félagsheimiiið
HEIMDALLAR