Morgunblaðið - 03.12.1965, Blaðsíða 11
Fostudagur 3- des. 1965
MORG UN B LAÐIÐ
11
Loftleiðir h.f. ætla frá og með vori kom-
anda að ráða allmargar nýjar flugfreyjur
til starfa. í sambandi við væntanlegar
umsóknir skal eftirfarandi tekið fram:
□ Umsækjendur séu ekki yngri en 20 ára
— eða verði 20 ára fyrir 1. júní n.k.
Umsækjendur hafi góða almenna
menntun, gott vald á ensku og ein-
hverju Norðurlandamálanna — og
helzt að auki þýzku og/eða frönsku.
□ Umsækjendur séu 162—172 cm. á hæð
og svari líkamsþyngd til hæðar.
□ Umsækjendur séu reiðubúnir að sækja
kvöldnámskeið í janúar — febrúar n.k.
(3 — 4 vikur) og ganga undir hæfnis-
próf að því loknu.
r ^ *
□ A umsoknareyðublöðum sé þess greini-
lega getið, hvort viðkomandi æski eftir
sumarstarfi einvörðungu (þ. e. 1. maí
— 1. nóvember 1966) eða sæki um
starfið til lengri tíma.
□ Allir umsækjendur þurfa að geta hafið
störf á tímabilinu 1. — 31. maí 1966.
□ Umsóknareyðublöð fást í skrifstofum
félagsins, Lækjargötu 2 og Reykjavík-
urflugvelli, svo og hjá umboðsmönnum
félagsins út um land, og skulu um-
sóknir hafa borizt ráðningardeild fé-
lagsins fyrir 20. desember 1965.
OFiitmm
!^í;sÍt©ípS:
■'•'Œ: .- tf.
' 't ^ I ^
:■'' " ■:i:,
& 3» i*
■■ ■ ■ • • -
Árshátíð Sjálístæðisfélaganna
í Hafnariirði
verður haldin í Sjálfstæðishúsinu n.k. laugardag 4. desember og
hefst kl. 21.00.
Dagskrá:
1. R æ ð a .
2. Leikararnir Gunnar Eyjólfsson og
Bessi Bjarnason skemmta.
3. D a n s .
Aðgöngumiðar seldir í dag, föstudag í Sjálfstæðishúsinu
milli klukkan 5 og 7.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna.
myndabók
um
Reykjavík
REYKJAVÍK í DAG
Sérstæðasta landkynningarbókin. Sanngjarnasta verðið.
Bókin sýnir, með 34 nýjum litmyndum, það markverðasta í hinni
ört vaxandi borg okkar.
Bókin, sem er sérprentuð á ensku, er skemmtileg kveðja til vina
og viöskiptamanna erlendis.
Verö m/sölusk. kr. 100,—
Útgefandi: LITBRÁ H.F,