Morgunblaðið - 03.12.1965, Síða 8

Morgunblaðið - 03.12.1965, Síða 8
8 MORCUNBLADIÐ Fostu'dagur 3. des. 1966 Mikilsvert að sameina krafta í að sporna gegn verðbólgunni Dýrtíðaraukníng, samspil kaupgfalds og verðlags í GÆR loam fjárlagaírumvarpið fyrir árið 1966 til annarrar am- ræðu. Fyrstur tók til máls fram- sögumaðux meiri hluta fjárveit- ingarnefndar Jón Ámason og sagði liann að svo ætti að hoita, t að nefndin stæði öll saman um !| þær hreytingar- 1 tillögur er lagð- ! ar hefðu verið / fram í hennar ] nafni, en stjóm- | arandstaðan | hefði þó áskilið sér rétt til að ‘ standa ekki að ölium þeim tillögum er fluttar væru, en sér væri ókunnugt um hvaða tillögur það væru. Framsögumaður sagði, að fjár- veitinganefnd hefðu horizjt 440 erindi ifirá ýnmun aðilum, en sníða hefði orðið srtakk eftir vexti með fjárveitingar, þó á mörgum sviðum væri um þjóð- merk mál að ræða. Fjárveitina- nefnd hefði fengið frá Efnahags- stofnun ríkisins áætlun um tekj- ur ríkissj óðs og væri heildar- myndin sú, að tekjur ríkissjóðs yrðu ekki meiri en gert væri ráð fyrir í frumvarpinu, þó að sjálf- sögðu gæti orðið um nokkrar t>reytingar að ræða. Jón skýrði einnig txreytingartM- lögur þær er frá nefndinni komu, en helztar þeirra eru, að fram- lag ríkissjóðs til þátttöku íslands í heimssýningunni í Kanada 1967 verður hækkað um 1 millj. kr., styrkur til bygginga sjúkrahúsa og lækniSbústaða annarra en ríkissjúkrahúsa verði hækkaður um 634.606 kr. og sagði flutnings maður að þær tillögur væru mið- aðar við, að styrkir til sjúkra- húsa og sjúkraskýla greiddust á átta árum en til læknisibústaða á iimm árum. Þá er lagt til að inn fcomi nýr liður, samkvæmit lækna skipunarlögunum að upphæð 900 þús. kr. og einnig nýr liður um eftirlit með deytfilyfjum að upphæð 110 þús. kr. Við 13. grein væri m.a. lagt til að framlag til hafnarmannvirkja og lendingabóta yrði hækkað um 1. millj. kr.,«til viðhalds húsa og ithsgvallarsvæðisins á Reykjavík- urflugvelli hækki um 500 þús. kr. og tekinn verði nýr liður upp hjá Skipaskoðun ríkisins til að kaupa tæki sem mælir ryðmyndiun í stálskipum 100 þús. kr. Liðirrinn til áhaldakaupa hjá Stýrimanna- sfcódanum hækki um 195 þús. og inn komi nýr liður, er heimili 600 þús. kr framlag til byggingar umferðarmiðstöðvar í Reykjavík. Breytingartillögur við 14. gr. frunwarpsins eru m.a. þær, að þar korni inn nýir liðir er geri iráð fyrir 250 þús. kr. tU reikn- insstofnunar háskólans og 120 þús. kr. vegna Evrópumóts í frjálsum fþróttium. Þá er einnig gert ráð fyrir að hækka fjóra liði hijá Þjóðminjasafninu og hækka framilag til tónlistarskóla um 228.606 þús. kr. Þá er einnig lagt tn, að taka rekstnarhalla Sin- íóníuMjómsveitarinnar og Þjóð- leikhússins inn í fjárlög, en hing að til hefur aðeins verið heimild á fjárlögum að greiða hann. Breytingartillögur við 16. gr. er m.a. að hækka fjárveitingu til andurbóta á gömlum íbúðarhiús- um á presitssetrum um 500 þús. kr. og framlag til biskiupsskxifstof stofunnar um 35 þús. kr. Við 16. grein er gert ráð fyrir að hækka framlag tU viðhalds á húsmæðra- skólanum á Laugalandi og Varma landi um 180 þús. kr. og bæta inn nýjum dið til Efnarannsóknar stotfu Norðurlands 150 þús. kr. Við 16. gr. eru breytingartU- lögur m.a. þær að hækka fram- lag tU Landssambands iðnaðar- manna um 300 þús. kr. og tekinn verði upp nýr liður: Til rann- sókna vegna rotvarnar bræðsiu- síldar 280 þús. kr. Við 17. grein er helzta breytingartillagan að liðurinn tU byggingarstyrks dag- heimila hækki xun 200 þús. kr. og að Æskuiýðssambandi ís- lands verði veitt 150 þús. kr. til að standa undir kostnaði við söifnunina .Herferð gegn hungri“. Þá er einnig lagt tU að nýr liður að upphæð 250 þús. kr. verði tekinn upp í 20. gr. tU bygtging- ar fbúarhúss fyrir tforstöðumann vinnuhælisins á Kviabryggju og •tekinn inn 140 þús. kr. fjárveit- ing til byggingar jarðskjálfta- stöðvar á Akureyri. Halldór E. Sigurðsson (F) framsögumaður 1. minnihluta fjárveitinganefndar, sagði m.a. að þetta fjárlagafrumvarp bæri giögg einkenni þeirrar stefnu er núverandi ríkisstjórn hefði dyggi lega fylgt á valdatíma sinum en hún einkenndist af verðíbólgu. Allt valdatímalbU núverandi stjómar hetfði árferði verið gott og aflabrögð og framleiðsla meiri en nokkru sinni fyrr. Tékjur ríkissjóðs hefðu verið í samræmi við þeitta góða árferði og farið 1021 millj. kr. fram úr áætlun fjárlaga síðustu fimm ára, og ékki ætti iþví ríkisstjórnin við neinn að sakast nema sjálfa sig hivemig stjórn hennar í fjármál- um ríkisins hefði farið. Sagði Halldiór að þetta fjárlaga frumvarp bæri öll einkenni fyrri fjárlaga- frumvarpa þess- arrar ríkisstjórn ar en þau væru, að bætt -væri við nýjum sköttum, að minna yxði varið tiil uppbyggingar og rekstr arfcostnaðar, og eyðsla væri hæOokuð. Samfcvæmt þessu fjár- lagafrumvarpi mundu útgjöldin verða um 4 miUjarðar og væri þar með um að ræða 4—5 íalda hækkiun frá 1958 og nærri þre- földun frá 1960. Nýjar álögur í sambandi við fjárlögin mundu verða um 230 millj. kr., og hefðu skattur og tollar hækkað um 380% síðan 1958. Þá ræddi Halldór nokkuð um sparnað ríkissjóðs, sem hann fcvað ríkisstjómina hafa verið óspara á fyrirheit um. Ekki bæri þó á eifndum á þeim fyrirbeitum og væri talað um að fjármálum ríkissjóðs yrði ekki breytt með sparnaðarsparðatíningi. Það væri nú samt svo að ríkisstjómin hefði tekið upp margvíslegan sparðatáning tU að afla ríkissióði tekna. Halldór vék að breytingartU- lögu Framsóknarmanna þess efn is að framlag ríkissjóðs til vega mála yrði ekki niður fellt og sagði að því hefði verið lýsit yfir að það væri alveg útilókað að þetta framlag yrði feilt niður. Það væri nú eigi að síður stað- reynd nú og við gætu Framsókn- armenn ekki sætt sig. Geir Gunnarsson (K) gerði grein fyrir þreytingartillögum þeim er hann gerir við fjárlaga- frumvarpið, en þær gera m.a. ráð ífyrir að farmiðaskattur verði feUdur niður sv» og sendiráðið í Kaupmannahöfn. Geir ræddi um stj órnarstefnu ríkissitjórnar- innar, og sagði að af henni hefði leitt ör verðbólgulþróun og hefði hún verið það ör, að á milli fjár lagaafgreiðslna, hefði orðið að grípa tU nýrra úrræða, þar sem hin fyrri hefðu ekki enzt til næstu fjárlagaafgreiðslu. Þetta fjárlagafrumvaip staðfesti einnig að þær niðurskurðaraðtferðir, sem í upphafi hefðu verið boðað- ar sem bráðabirgðaráðstafanir væru nú staðfestar sem varanleg ákvörðun. Á sparnaði örlaði ekki, og niðurskurðurinn næði ekki til ónauðsynlegra rekstrarliða, held- ur einungis til hinna nauðsynleg- ustu framkvæmda svo sem skóla- bygginga. Rædidi Geir síðan um vegamáilin og sagði m.a. að með því að fella niður fjárframlag ríkissjóðs tU vegamála væri rof- ið það samkomulag, sem varð milli allra þingflokka um af- greiðslu vegalagana. Einnig ræddi hann um farmiðaskattinn og sagði m.a. að ísJand mundi vera aðili að alþjóðasamþytakt þar sem ákvæði um að slíkir skattar skuli óheimilir. Gerði hann síðan grein fyrir breytingar tillögum sínum. Magnús Jónsson fjármálaráð- herra, kvaðst vera ánægður með þann skilning sem komið hefði fram hjá meiri hluta fjárveit ingarnefndar um nauðsyn þess að haida fjárveit ingum innan ramma þess að fjárlög yrðu afgreidd halla- laus. Tiliögur minnihlutanna væru hinsvegar ekki innan þess ramma, iþar sem tiUögur Geirs Gunnarsisonar miðuðu t.d. að 165 milij. kr. útgjaidaukningu fyrir rikissjóð. Fjármálaráðherra sagði, að það væri athyglisvert að tillögur minnihlutanna féllu saman við það sem hann hefði vakið athygli á við fyrstu um- ræðu fjárlaga, að það væru verð- bólgan og dýrtíðin sem kæmu verzt við fjárhag ríkisins. Dýrtíð araukningin væri vissulega ekk- ert annað en samspil kaupgjalds og verðlags, en það hefði skapað megin vandann í þessum etfnum, og menn hefðu ekki komið sér saman um hvernig ætti að leysa þetta mál. Eíkki væri það tfjárlaga afgreiðslan á hverjum tíma sem skapaði þessa þróun, heldur kæmi þar tU að taka atfleiðingum hennar. Mikið gleðiefni væri það, ef hægt væri að £á ríkari skiln- ing á því að það væri í allra þágu að þessi mál yxðu leyst. Segja mætti að einn þátuurinn í þessum vanda nú, sé hvað fjár- festingin er ör miðað við fram- boðið á vinnuafli, og hyggilegt væri að takmarka hana þannig að hún leiddi ekki ofþennslu af sér. Það hefði verið fordæmt af stjórnarandstöðunni að binda fé sem veita ætti aðhald í þessum efn um. Talað væri um það að hægt væri að leysa vandann með sparnaði, en á því sviði væri vissulega hægara að segja en gera, þó ekki skyldi draga úr því að spamaður væri góðra gjalda verður og hafa yrði opin augun um hvað hægt sé að gera í þeim efnum. Benda mætti á það að fjárveitinganefnd fengi árlega fjölda af kröfum um aukna fjár- veitingu, sem ekki væru teknar til greina, og sæist m. a. þvi hvort ekki væri reynt að spyma við fótum. Hitt væri svo annað mál, að etf menn þyrftu að leggja í mikilvægar skipulagsbreytingar á stjómkerfinu væri ef til vill' hægt að fá út úr því mikilvægan sparnað og mætti sem dæmi nefna breytingar á lögsagnarum- deemium og kirkjusóknum. Ráðherra sagði að það væri nú gagnrýnt að ríkisstjórnin skyldi skera af opinberum framkvæmd- um, en slíkt væri ekkert eindæmi og ætti formaður framsóknar- flokksins að muna það, að oft hefði orðið að grípa til slíkra að- gerða, þótt ekki mættu þær telj- ast góðar. Hitt mætti og segja að situndum gæti verið þarft og gott að draga úr opinberum fram kvæmdum, en þá yrði líka að vera hægt að leggja fyrir fé, sem hægt væri að nota á erfiðari tím- um. Varðandi vegamálin sagði ráðherra að ekki væri þar efnis- lega um nein svik að ræða, þar sem útvegað hefði verið það fé sem ráðgert var að verja til vegamála. Halldór Ásgrímsson tók einnig til máls, en síðan gert hlé á fundi. A laugardag næstkomandi munu vistkonur á Elliheimilinu Grund hefja sölu á ýmis konar prjónavörum og bastmunum o. fl., sem þær sjálfar hafa gert. — Hér er um að ræða peysur, sokka og húfur og jafnvel listvefnað, sem ætlunin er að selja og er hér sýnilega um vandaða vöru að ræða. Verð á þessum prjónavörum er ótrúlega lágt. Sala þessa prjónavarnings stend- ur frá klukkan 2 á laugardag og sunnudag. Jólabazar á vegum Styrkt- arfélags vangefinna KONIJR í Styrktarfélagi vangef- inna hafa jólabazar og kaffisölu íTjarnarbúð (Oddfellowhöllinni) næstkomandi sunnudag, þ. 5 des. Þar verður á boðstólum fallegt úrval af allskonar jólavarningi, sem konurnar hafa unnið, og er verði mjög í hóf stillt. Ennfrem- ur er þar á boðstólum kaffi og ljúffengar kökur. Konurnar í Styrktarfélagi van- gefinna eru flestar mjög vel kunnugar þeim margvíslegu vandamálum, er vangefið fólk og aðstandendur þeirra hafa við að stríða. Félagsskapur þeirra hefur það markmið að leggja eftir mætti lóð á vogarskálina, til að styrkja þá öryrkja, sem hér um ræðir. öllu því fé er inn kemur á þessum jólabazar og kaffisölu verður varið til styrktar vangefn- um. Frá kvenfél. Bústaóasóknar EINS og mörg undanfarin ár efn* ir Kvenfélag Bústaðasóknar til bazars nú á jólaföstunni. Hafa konurnar fengið inni í Víkings- heimilinu og bjóða muni sína þap á sunnudaginn kemur frá kl. 4. — Eins og ávallt kennir margra grasa á söluborðunum, ýmis kon- ar prónavörur eru þar í mörgum gerðum, fatnaður ýmis konar á þörn, jólaskraut má einnig finna þar og margt, margt fleira. Þá verða einnig á boðstólum jóla- kortin, sem út eru gefin til stuðn- ings bygingu Bústaðakirkju, en ágóði allrar sölunnar fer tU þess að stuðla að því, að draumurinn um eigin kirkju og starfshús megi sem allra fyrst rætast. Konurnar, sem með dugnaði sín um og smekkvísi, hafa undirbúið bazarinn, vona, að allir, sem líta til þeirra á sunnudaginn kemur, muni finna þar eitthvað, er þeir gjarna vilja eiga, og styrki þann- ig um leið gott málefrn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.