Morgunblaðið - 03.12.1965, Síða 13

Morgunblaðið - 03.12.1965, Síða 13
Föstuðagur 3. des. 1965 MORGUNBLAÐIÐ 13 Stutt pils og pelsar f Á mikilli sýningu hjá hinu fræga pelsafyrirtæki Birger Christensen I Kaupmanna- höfn, var þessi stúlka meðal gesta. Eins og nærri má geta vakti hún mikla eftirtekt fyrir klæðnað sinn, og munu víst fáir hafa séð pilsin svona stutt, a.m.k. ennþá. En hvað sem þvi líður þá hefur ung- frúin fallega fótleggi, og er í hópi þeirra, sem finnst það sjálfsagt að ganga í svona i stuttum pilsum, en líklega eru í ekki allir sammála henni í því. , En óneitanlega tekur stúlkan hér á myndinni sig ljómandi vel út í dragtinni sinni, sem hún hefur sjálf saumað. Á hinum myndunum eru tvær sýningarstúlkur danskar, þær Maud og Birgit, sem sýna tvo | pelsjakka á fyrrnefndri sýn- k ingu. I TÍZKUFRÉTTIR — þá er það vegna þess að ég er svo hamingjusöm Þessi mynd var tekln af Ingrid Bergman í hyrjun september síðastliðnum, þegar hún varð 50 ára. „Ingrid Bergman er ekki falleg ef maður skoðar vel hvern drátt í andliti hennar út af fyrir sig. Hún er með of stórt nef, munnur hennar er of breiður og hinn hái en þokkalegi líkami hennar mundi ekki taka sig vel út í bikini-baðfötum. Hár hennar er fremur þunnt og slétt. En hún varpar frá sér geisl- um og þegar hún brosir, er eins og kveikt sé á ljóskastara. >eg- ar hún hlær, fyllir hlátur henn- ar allt húsið. Hún hefur hressi- lega framkomu, sem orkar á mann eins og Chanel nr. 5.“ Um snyrtivörur segir Ingrid Bergma-n: „Ég nota eiginlega ekkert af snyrtivörum, nema þegar ég er að vinna. Áður fyrr notaði ég púður og varalit, en mér fannst það gera mig eldri en ég var. Ég hreinsa húðina altlaf vel á kvöldin áður en ég fer að sofa og nota gott næturkrem. Hrukk- ur hugsa ég ekki um. Það er langt síðan ég hætti að stríða við hárið á mér, ég þvæ það tvisvar í viku og set það upp eða læt það falla niður á axl- irnar. í kvikmyndum hef ég allt- af haft fallega hárgreiðslu, og við gjarnan hafa það líka þess á milli, en ég get ekki verið með hárgreiðslukonu á hælunum alla daga. Sem betur fer á ég ekki í neinum erjum við vigtina, ég borða bara þegar ég er svöng og fer gjarnan í langar göngur og kýs fremur stiga en lyftur." Þetta segir Ingrid Bergman, og er ekki að efa, að margar Jcon- ur á hennar aldri vilja gjarnan hafa sömu sögu að segja. Þessa mynd sendi Gunnar Larsen okkur frá París, og er hún af Pálínu Jónmundsdóttur, feg urðardrottningu Íslands 1964. Pálína lét taka þessar mynd af sér og ætlar að senda tU allra helztu ljósmyndara Evrópu. fSLENZKA sýningarstúlkan og ljósmyndafyrirsætan Telma Ing- varsdóttir, er í röð vinsælustu sýningarstúlkna í Danmörku. — Þegar Telma lét klippa sig um daginn, birtist mynd af henni í Ekstrablaðinu, sem sýndi nýju hárgreiðsluna, og neðan undir myndinni stóð, að nú væri Telma kominn með drengjakoll og enn- fremur var nákvæm lýsing á fötunum sem hún var í hvar þau voru keypt og hvað þau kost- uðu. Á meðfylgjandi mynd sjáum við Telmu í hennar eigin föt- um (aldrei slíku vant), og þá virðist hún helzt kjósa léttan klæðnað, svart pils með hlið- arvösum, rauð-grænköflótta skyrtublússu, rauða ullarsport- sokka með svörtum röndum og svarta lakkskó með lágum hæl. KVIKMYNDALEIKKONAN Ingrid Bergman átti 29. ágúst síðastliðinn 50 ára afmæli. Þrátt fyrir aldurinn hefur hún aldrei notið jafn mikilla vinsælda og nú. Dagblöðin í London keppast við að lofsyngja „eilífa æsku“ hennar, eins og þau komast að Ingrid Bergman 29 ára orði, og um þessar mundir leik- ur Ingrid Bergman 29 ára gamla etúlku á leiksviði Cambridges leikhússins í London. Blöðin hafa mjög lofað fegurð leikkonunnar og spyrja hvernig kona, sem hefur verið gift þrisv or sinnum, á fjögur böm og hefur upplifað fjölda ævintýra í kvikmyndaheiminum, geti ver- ið svona ungleg. Og Ingrid Bergman svarar: „Sumt fólk segir að ég sé ung- legri í dag en ég var fyrir 5 ár- um. Það er sennilega vegna þess að ég er svo hamingjusöm. Ég hef alls ekki neitt á móti því oð verða gömul.“ í blaðinu „Sun“ skrifaði blaða- kona ein eftirfarandi um Ingrid Bergman: Ef ég er ungleg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.