Morgunblaðið - 03.12.1965, Qupperneq 30
30
MORGU N BLAPIÐ
Föstudagur 3. des. 1965
Tékkarnir unnu KR með
þekktri taktik reyndra liða
Máðu fyrst forystu 10 mín.
fyrir lok en útfærðu enda-
sprettinn vel
TÉKKARNIR unnu sinn fyrsta leik af fimm er þeir leika
hér á landi. í gærkvöldi lögðu þeir KR-inga að velli, skoruðu
28 mörk gegn 25. Leikurinn var harður og á köflum allharð-
ur, en sjaldan sáust góðir leikkaflar. Tékkneska liðið hreif
aldrei viðstadda, t.d. sást fallegu línuspili vart bregða fyrir
hjá þeim. Þeir treystu — eins og KR-ingar — mest á lang-
skotin og eyðurnar, sem opnast kynnu í vörn mótherjanna
og leikurinn varð því einvígi í skotum, enda urðu mörkin 53
— eða tæplega mark á mínútu — og ber þó að geta þess sér-
staklega að markverðir beggja liða stóðu sig með miklum
séma og forðuðu minnst annarri eins marksúpu og gestir
urðu vitni að.
★ Liðin
Tékkneska liðíð lék hratt og
var mjög samstillt í sínum hraða
samleik, en samleikurinn var allt
of sjaldan ógnandi. Að vísu var
vörn KR góð — og því við erfið
an mótherja að fást. Vafalaust
hafa þrengsli í húsinu sett annan
svip á leik Tékkanna en þeir
koma til með að sýna. Að minnsta
kosti vonum við það. Og taktisk-
íjir er leikur liðsins. Harka í vörn
Beztir Tékka
náði tvívegis í leiknum góðu for-
skoti (öll lið telja 3—4 mörk gott
forskot) en notuðu sér það aldrei
til sálrænna yfirbur'ða á sama
hátt og Tékkarnir gerðu undir
lokin er þeir í eina skiptið náðu
forystu, sem eitthvað hélzt.
Bezta hlið KR var varnarleikur
inn. Hann var vel skipulagður,
en hið sama verður ekki sagt
um sóknarleikinn og á skipulags-
og hraður leikur ef staða liðsins
í mörkum er slæm, en þegar í
stað rólegheit og leiktafir ef li'ðið
kemst yfir.
í þessari taktik höfðu þeir yf-
irburði yfir KR-inga, sem aldrei
skildu sinn vitjunartíma. KR
Ætla að
setja
heimsmet
TVEIR kínverskir frjáls-
íþróttamenn búast við að setja
ný heimsmet á næsta keppn-
istímabili. I>að eru hástökkv
arinn Chich Chin og sprett-
hlauparinn Chien Chia Shuan.
í viðtali við franska frétta-
menn í Peking sag’ði hástökkv
arinn, sem er 23 ára gamall
að hann „snemma á næsta ári“
myndi bæta heimsmet Brumm
els í hástökki 2,28 m. Nýlega
stökk Chich Chin 2,25 m og er
því í 2. sæti á afrekaskrá
heimsins.
Spretthlauparinn er 27 ára
og jafnaði heimsmetið í 100 m
hlaupi, sem er 10,0 sek. nýlega.
Hann kvað það setlun sína að
hlaupa undir 10,0 sek. næsta
ár. Til áð takast það þarf
hlauparinn að halda 36 km
meðalhraða miðað við klst.
leysi þar má fyrst og fremst
skrifa þetta þriggja marka tap.
★ Forskot KR
KR-ingar ná'ðu 3ja marka for
skoti á 6 fyrstu mínútunum. Skor
aði Gísli tvö en Karl eitt úr víti.
Kom Gísli Tékkunum á óvart
með sínum lágu skotum með út-
réttum handlegg, en þau eru
bönnuð víðast nema á íslandi og
þó líklega einnig af sumum
dómurum hér.
Síðan var skipzt á mörkum, en
aftur komast KR-ingar í 3ja
marka forskot er 8 mín. eru af
leik, og enn litlu síðar stendur
8:4. Eru þá 11 mín. af leik.
Tékkar jafna
í>á tók Karl Jóh. driffjöður
KR-li‘ðsins og ógnvaldur varnar
hvers liðs, sér hvíldarhlé. Og
skiptust nú fljótt veður í lofti.
Tékkarnir skora 4 mörk á tveim
mínútum, og staðan varð jöfn
8:8.
Hvíld Karls varð ekki lengri.
Hann kom aftur til leiks og ein-
stefnuakstri Tékka linnti. Kom-
ust þeir samt þrívegis í 1 marks
forystu en KR-ingar jöfnuðu ætíð
næstum þegar í stað. Komust
svo KR-ingar í 12:11 og misstu
ekki forystu eftir þa'ð, en jafnt
stóð 12:12, 13:13, 14:14 og 15:15.
slík var barátta leiksins á þess-
um tíma — hörð barátta og oft
skemmtileg en aldrei fallegur
handknattleikur; gott einstakl-
ingsframtak en annað ekki. Rétt
fyrir hlé náðu KR-ingar enn
einu sinni forskoti 16:15 og svo
stóð í hléi.
• Sem sagt meira en mark á mín-
útu í fyrri hálfleik.
★ Aftur forskot KR
’ Aftur í byrjun síðari hálf-
leiks ná KR-ingar undirtökunum
og komast á 5. mín í 3ja marka
forskot 19:16.
Ekki sýndu KR-ingar lit á því
að nota sér þessa aðstö'ðu, sem
hverju liði er svo þýðingarmikil
í jöfnum leik. Með yfirveguðum
leik og ílanlausum er hægt að
nota þá til að brjóta mátt mót-
herjanna. En KR-ingar héldu
hráðanum og skotum upp á von
og óvon, sem ýmist voru vanhugs
uð og komust aldrei að marki,
eða auðveld fyrir markvörðinn.
Og Tékkarnir náðu sókn og á 13.
mín. hafa Tékkar jafnað leik-
inn 21:21.
A" Taktiskur tékkneskur
endasprettur
Tékkarnir ná forystu eftir
vítakast og skora annað mark
litlu síðar svo staðan er 25:23
þeim í vil. Þá upphófu þeir takt
ikina, sem varð KR að falli öðru
fremur í leiknum; fóru sér hægt
í sókninni og skutu ekki nema í
öruggu færi. Nálgaðist leikur
þeirra leiktafir — en forysta
þeirra jókst upp í 27:23 og það
sem verra var sigurvilji KR dvín
aði. Eigi að síður skorúðu KR-
ingar tvö næstu mörk, en Tékk
ar hið síðasta svo lokastaðan var
28:25 fyrir Tékka.
Lið Tékkanna var mjög jafnt
en þó skáru sig úr Arnost Klim-
cik (nr. 2), Arnost Ranik (nr. 6)
og Bedrich Chiner (nr. 10). Mark
verðirnir bá'ðir Novak (sem varði
KARL — driffjöður KR-inga.
fyrst og síðast) og Konecný átti
sinn þátt í sigrinum.
Hjá KR bar Karl Jóh. af að
vanda, en Gísli Blöndal og Sig-
urður Óskarsson áttu og ágætan
leik svo og Herbert Haraldsson.
Eigi má gleyma Sveini Kjartans-
syni markverði og Sig. Johnny,
sem vörðu á tíðum hin ótrú-
legustu skot.
Mörk Tékkanna skoruðu: Ran-
ik 7 (2 úr víti), Chiner 5, Klim-
cik 5 (1), Bielický og Konrad
4 hvor, Hadrava 2 og Janik 1.
Mörk KR skorúðu: Karl 10,
Gísli 8, Reynir 3. Herbert 2 og
Heinz og Pétur 1 hvor.
Dómari var Björn Kristjánsson.
Hann slapp í heild vel frá leikn-
um en dæmdi þó hvergi nærri
lýtalaust. — A. St.
Heimsmet í 5 km hlaupi
KIPCHONG Keino, sem kíll es um 1,4 sek. fl
aður hefur verið „undrabarn- Margoft hefur Keino veitt í
ið frá Kenía“ setti á þriðju- Ciarke harða keppni og verið /
daginn heimsmet í 5 km. eins og skuggi hans. Væntan- I
hlaupi á móti, sem haldið var lega hefur þvi gleði hans orð- V
í Auckland í Nýja Sjálandi. ið mikil er honum loksins l
Hann hljóp á 13:24.2 mín. tókst að sjá uppfyilingu óska ?
og bætti hið fræga heimsmet draumsins — að ná metinu. T
Ástralíumannsins Ron Clark- Og hér slítur hann snúruna. 1
' ^ -4
240 keppa á skólamóti
SÍÐARI hluti hins fyrra sund-
móts skólanna 1965—1966 fór
fram mánudaginn 29. nóvember
sl. í Sundhöll Reykjavíkur.
Úrslit urðu þessi:
Sundkeppni stúlkna, 10x33%
metra bringusund
Gagnfræðaskóli Hafnarfjarðar
Flensborg 4.58,5
Gagnfræðask. Selfoss 5.01,2
Gagnfræðadeild Austur-
bæjarskóla 5.01,6
Gagnfræðask. Keflavíkur 5.13,3
Gagnfræðask. v/Hagatorg 5.24,9'
Gagnfræðsdeild Hlíðask. 5.30,3
Gagnfræðadeild Lauga-
lækjarskóla 5.32,7
Gagnfræðadeild Mýrar-
húsaskóla 5.53,0
Beztan tima á þessari boðsunds
vegalengd yngri flokks á Gagn-
fræðaskóli Keflavíkur 4.55,1 mín.
Sundkeppni pilta: 10x33% m.
Gagnfræðadeild Austur-
bæjarskóla 9.29,2
Gagnfræðadeild Vogaskóla 9.44,9
Gagnfræðadeild Lauga-
lækjarskóla 10.23,1
Beztan tíma í yngri flokki á
þessari boðsundsvegalengd á
Gagnfræðaskóli Hafnarfjarðar —
Flensborg 9.17,3.
Keppendur voru alls 240.
Miðor seldir
í nýju
íþrótlnhöllina
í DAG hefst forsala aðgöngu-
miða að leik Reykjavíkurúrvals-
ins og tékkneska liðsins Karvina,
sem há'ður verður á morgun í
nýja íþróttahúsinu í Laugardal.
Verða miðarnir seldir í Bókabúð
Lárusar Blöndal í Vesturveri og
Skólavörðustíg. Er fólki ráðlagt
að kaupa sér miða tímanlega, þar
sem mikil eftirspurn er eftir mið
um að leiknum.
Sala áðgöngumiða að leik FH
og Tékkanna, sem fram fer á
sunnudaginn, byrjar á morgun,
laugardag, í Nýju Bílastöðinni í
Hafnarfirði.