Morgunblaðið - 31.12.1965, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 31.12.1965, Qupperneq 2
2 MORGUN BLAÐIÐ Föstudagur 31. des. 1965 Vextir við innlánsstoffnanir VEXTIR við innlánsstofnanir, sem gilda frá 1. janúar nk. sbr. fréttatiikynningu Seðlabankans í dag. I. Innlánsvextir: 1) Almennar sparisjóðsbækur 7% á ári. 2) Sparisjó'ðsbækur með 6 mán- aða uppsögn 8% á ári. 3) Sparisjóðsbækur með 12 mán aða uppsögn 9% á ári. 4) 10 ára sparsjóðsbækur 914% á ári. 5) Sparisjóðsávísanabækur 4% á ári. 6) Innstæður á hlaupareikningi, □--------------------------□ * Agúst Markús- son látinn BINN af eldri borgurum Reykja- víkur sem margir þekkja, Ágúst Markússon, veggfóðrarameistari, lézt í Landakotsspítala í gær. Ágúst var fæddur í Reykjavík 30. júlí 1891 og var því á 75. aldursári, þegar hann lézt. Hann starfaði alla tíð hér í borg. Á yngri árum tók hann virkan þátt í íþróttalífi og var meðal stofn- enda Ungmennafélags Reykja- víkur. Hann tók auk þess þátt í tónlistarlífi bæjarins og var með- al stofnenda lúðrasveitarinnar Hörpu, sem hér lék um eitt skeið. Ágúst Markússon var vel lát- inn maður, en hlédrægur. Hann setti svip á samtíð sína og um- hverfi og var í hópi bezt metnu iðnaðarmanna. reiknings- og viðskiptalánum 3% á ári. II. Útlánsvextir: 1) Vextir af víxlum: a) víxlar, er eiga að grei'ðast upp innan 90 daga 9% á ári. b) framlengingarvíxlar og víxlar, sem samið er uin til lengri tíma en 90 daga 914% á ári. Heimilt er að taka allt að !4 % hærri vexti á ári en að ofan greinir, þegar samið er um lengri lánstíma en 360 daga, víxill fer í vanskil eða greiðist ekki sam- kvæmt samningi.' Framanskráðir vextir eiga einnig vi'ð um sýningarvíxla með eftir á greiddum vöxtum, í sam- ræmi við raunverulegan láns- tíma. 2) Hlaupareikningsvextir: Af skuldum á hlaupareikning um, reiknings og viðskipta- lánum reiknist fast viðskipta gjald (þóknun) af upphæð lánsheimildar 3% á ári. Auk vi'ðskiptagjaldsins skal reikna dagvexti mánaðarlega eftir á 7% á ári. 3) Afurðalánavextir: a) víxlar endurseljanlegir Seðlabankanum með veði í útflutningsvörum 6% á ári. b) aðrir endurseljanlegir víxl ar 7!4% á ári. c) víxlar með 2. veðrétti í út- flutningsafurðum, er nemi hæst 30% af endurseljan- legu láni, svo og víxlar veittir með veði í væntan- legum afla (útgerðarlán) 8% á ári sömu lán, en í hlaupareikn ingsformi (með eftir á greiddum vöxtum) 8!4% á ári. Seðlabankinn endurkaupir víxla skv. a. og b. lið með % % lægri vöxtum á ári en viðskipta- bankarnir taka. 4) Vextir af öðrum lánum, þar með talin afborgunarlín og skuldabréfalán. a) lán með fy.rsta flokks fast eignaveðstryggingu að mati lánsstofnunar eða sjálfsskuldarábyrgð ríkis- sjóðs 9!4% á ári. b) öll önnur lán, þar með tal- in fasteignaveðslán, hand- veðslán og lán tryggð með ábyrgð 10% á ári. 5) Vanskilavextir (dráttar- vextir): 1% á mánuði éða brot úr mánuði. Vaxtatilkynning bankans kemur í heild í Lögbirtingablaðinu. Verzlunarskólanemendur Munið nýársfagnaðinn, sem haldinn verður sunnudaginn 2. janúar í Fálagsheimili Heimdall ar og hefst kl. 8,30 e.h. VEITINGAR SKEMMTIATRIÐI DANS LOFTVOG stóð í gær hátt yfir Norður-Grænlandi, en lægðin suður af íslandi var óðum að grynnast. Lægðin, sem sést sumar og austar á kortinu var vaxandi, en hún ætti ekki að valda áttabreyt- ingu hérlendis. Helzt eru því horfur á A og NA átt nú um áramótin. í stórum dráttum ætti að verða bjart á N og V-landi, en él austan lands og á SA-landi. Þó gæti lægðin SV í hafi valdið vaxandi élj- um eða jafnvel sjókomu á suðurströndinni. Hiti verður sennilega rétt ofan við frost- mark á suðaustanverðu lap,d- inu en vægt frost um allt norðanvert landið. I blaði nr. 2 er sagt frá jólum nokkurra íslendinga í erlendum borgum. Af því tilefni birtum við hér myndir af jólaskreytingum í tveimur þessara stórborga London og New York. Hin kunna verzlunargata í London, Oxford Street, var prýdd ljósum og upplýstum jólapökkum í margvíslegum litum. Og í Park Avenue í New York skein geysistór ljósstjarna uppi á hinni 59 hæða Pan American byggingu, og er hún lýst með 344 ljósum, en niðri á götunni eru upplýst jólatré. ^ gerir Johnson forseti út sendimenn að kynna friðartilboð Bandaríkjamanna Washington, 30. des. NTB. AP. Tveir sendimenn Johnsons Bandaríkjaforseta eru nú á ferð um Evrópu og hinn þriðji vestan hafs þeirra erinda að kynna ráða mönnum friðartilboð Bandaríkj- anna í Vietnammáiinu og afstöðu þeirra til þess, þeir Arthur J. Goldberg, aðalfulltrúi Bandaríkj anna hjá SÞ., Averell Harriman, sérlegur sendimaður forsetans og McGeorge Bundy, ráðgjafi John- sons um öryggismál ríkisins Kom Harriman til Varsjár i gær öllum að óvörum og átti þar viðræður við gamlan vin, Wladyslaw Gomulka, formann kommúnistafÞJkksins og Adam Rapacki, utanríkisráðherra, en hélt í dag áfram förinni til Júgó- slavíu en er vaentanlegur til Parísar um áramótin. Goldberg gekk á fund Páls páfa VI. í Róm suður og hitti einnig að máli frá- farandi utanríkisráðherra Ítalíu, Amintore Fanfani. McGeorge Bundy hélt í gærkvöldi flugleið- is til Ottawa til viðræðna við Pearson forsætisráðherra. Arthur J. Goldberg, aðalfulltrúi Bandaríkjanna hjá SÞ., kom ó- vænt til Rómaborgar í gær og átti klukkustundar viðræður við Pál páfa VI. og ræddi við Fan- fani, fráfarandi utanrikisráðherra og Aldo Moro forsætisráðherra. Ekki kvaðst Goldberg fara með neinn sérstakan boðskap af fundi páfa, en taldi viðræður þeirra hafa verið hinar gagnlegustu og sagðist myndu gefa Johnson for- seta skýrslu um fundinn er heim kæmi. , Averell Harriman átti tveggja klukkustunda fund með gömlum vini sínum, Wladyslaw Gomulka, formanni pólska kommúnista- flokksins, í Varsjá í gær og sagð ist ekki kominn þangað austur annarra erinda. Hann ræddi þó einnig við Adam Rapacki utan- ríkisráðherra og lét vel af þeim viðræðum. Harriman hélt til Júgóslavíu í dag til fundar við Tito forseta en ekki er vitað hvert för hans er næst heitið, þó líklegt sé talið að hann muni fara til Parísar áður en hann fer aft- ur vestur að ræða við Maurice Couve de Murville utanríkisráð- herra um árangur fyrri viðræðn- anna. McGeorge Bundy, sérlegur ráð gjafi Bandaríkjaforseta, í öryggis málum og utanríkismálum, flaug í gærkvöldi til Ottawa til við- ræðna við Lester Pearson, for- sætisráðherra Kanada um friðar tilboð Bandaríkjamanna og hugs anlega samninga í Víetnam. Tilkynningin um för McGeorge Bundys er fyrsta opinbera til- kynningin sem gefin hefur verið út um þessar sendiferðir manna Johnsons í sambandi við styrjöld ina í Víetnam. Sagði blaðafull- trúi forsetans, Bill Moyers, að ferðir þessar og viðræður mið- uðu að því, að kynna og skýra friðarviðleitni Bandaríkjanna og gaf í skyn að von væri á meira af slíku. Tollabreyffingar hjá báðum efnahagsbandalög. 1. jan. SAMKVÆMT Rómarsáttmálam um á að lækka innri tolla Efna- hagsbandalags Evrópu um 10% þann 1. janúar 1966. Eftir þá lækkun verður búið að lækka innri tolla bandalagsins um 80% frá því tollalækkunin hóíst L jan úar 1957. Endanleg niðurfelling tollanna verður 1. júií 1967. Þá gerir Róm arsáttmálinn ráð fyrir, að næsti áfangi í samræmingu ytri tolla veíði um þessi áramót, Mismun- úr á ytri tollun bandalagsríkj- anna verður minnkaður um 30%, þannig, að þar, sem þejx hata verið of háir, lækka þeir, en þar, sem þeir hafa verið of lágir, hækka þeir. Auk þessa á að koma til fram kvæmda um þessi áramót 10% lækkun á innri tollun Fríverzlun arbandalags Evrópu (EFTA), en það bandalag breytir ekki ytri tollum meðlimaríkjanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.