Morgunblaðið - 31.12.1965, Síða 11

Morgunblaðið - 31.12.1965, Síða 11
yostudagur 31. des. 1965 MORGUNBLAÐIÐ 11 Dr. Ketill Ingölfsson: Nokkur orð um Mutter Courage KETII.L Ingólfsson, höfund- ur þessarar greinar er fædd- ur í Reykjavík 1936. Hann varð stúdent við Menntaskól ann í Rvik 1956. Hann nam eitt ár við Háskóla Islands en stundaði síðan nám í theoretiskri eðlisfræði við háskólann i Zurich. Varði hann doktorsritgerð við þann skóla og fjallaði rit- gerðin um kjamaeðlisfræði. Auk náms í theoretiskri eðlis fræði lagði Ketill stund á pianónám við tónlistarhá- skólann í Ziirich en hann hafði áður lokið prófi frá Tónlistarskólanum í Reykja- vík og haldið píanótónleika. „Auf was ich aus bin, ist mich und meine Kinder durch- zubringen mit meinem Wag- en.“ (6. mynd). (Það sem mér er umhugað um er að koma mér og börn- unum í gegn ásamt vaginum). ÞEIM, sem lengi hefur dval- Izt með öðrum þjóðum, er það öðrum fremur mikið undrun- ar- og gleðiefni að verða við heimkomu til föðurhúsa var þeirrar miklu menningarvið- leitni, sem hér á landi ríkir. Það er í rauninni eitt af undr- um veraldar, að reist skuli hafa verið slík menningarborg sem Reykjavík á 64. breiddar- gráðu. Þegar Þjóðlekihúsið ræðst í það stórvirki að flytja Mutter Courage eftir Bert Brecht og það tekst með þeim ágætum, sem raun ber vitni, hlýtur sérhverjum leikhúsunn anda að verða hlýtt um hjarta ræturnar. Sú kynslóð, sem nú er uppi, hefur lifað margar styrjaldir og þolað fyrir þær miklar þján ingar. Enda þótt þjóðir Evr- ópu hafi furðu fljótt hafizt upp úr rústunum, er skuggi styrj- aldanna enn sýnilegur. Þá er og ennþá barizt á öðrum víg- velli og þó í fjarlægjum heims hluta sé getur enginn talið sig óhultan í þeim hildarleik. Okkur er því öllum hollt að sjá styrjöldina frá sjónarhóli þeirra, sem ekki komast á for- síður dagblaðanna, — fórnar- dýra ofbeldisins. Bert Brecht hefur að við- fangsefni sögu þrjátíu ára stríðsins. Hvernig tekur hann á hinum frægu sögupersónum þeirrar styrjaldar? Herforingj- ar þeir, sem fram koma í frá- sögn hans eru vesælar per- sónur. Oxenstjerna höfuðsmað- ur er næsta vitgrannur, enda þarf hann hrausta og djarfa fylgismenn. Ofurstinn afgam- all er elliær og nær með erfið- ismunum að standa uppréttur. Af þeim sigursæla höfuðs- manni Tilly fréttum við aðeins í tilefni af greftrun hans. Hinir æðri stríðsmenn koma alls ekki fram. Valdið á sér engan persónugerfing. Það yfirstígur hvem þann, sem ætti að vera fulltrúi þess. Ofbeldið nærist af þeim sem þola, og um þol- andann er hér talað. Þegar tjaldið fellur yfir frá- sögn Brechts, er styrjöldin enn ekki á enda. Mutter Cour- age, sem misst hefur öll börn sín í hit styrjaldarinnar, held- ur áfram stríðsverzluninni. Hún trúir á stríð fram til þess síðasta og veit ekki, að hún er sjálf eitt af fórnardýrum þess. Brecht krefst þess, að menn leggi niður virðingu sína fyr- ir manndrápurum. Dýrðar- ljóminn um afrek þeirra verði að hverfa, því að viðurkenn- ing á mætti þeirra nærist að- eins á aðdáun og ótta fórnar- dýranna. Sök Mutter Cour- age er sú, að hún gefst upp fyrir valdinu. Hún lýtur þar lægst, þar sem hún hvetur unga hermanninn til þess að guggna í réttlátri reiði. Hún er sjálf fórnardýr, en með undirgefni sinni lýsir hún sig samþykka því ástandi. Til þess að yfirvinna neyð sína leggst hún í flet með sínum rétta óvini, ofbeldinu. Þegar lherese Giehse a frumsynmgu í Schauspielhaus þann 19. apríl 1941. Zurich Fræ þola langa geymslu í sjó Tilraun dr. Sturlu Friðrikssonar DR. STURLA Friðriíksson skýrir 1 nýúitkiomnuim Náttúrufræðinigi frá fjöruikálsfundi í Surtsey og tilraunum, sem hann gerði með fræ þess og fimim annarra plantna, tiil að athuga seltuþod (þeirra, með tilliti til þess að vita ihvont möguieiki væri á að þessar jurtir gætu borizit með sjó til nýrra landa. Þau fræ sem fúndusit í fyrstu í Surtsey virtust ii'tt spírunar- Ihæf og af því hefði mátt ætla, að fræ gæti ekki borizit sjóleiðis til Suntseyjar með óskertri spírun- enhæf'ni og enn síður lengri vega lengdir. En þá fundust í júní 1965 ailknargar fjönkálsplöntur, Fjörukál spírandi í Surtsey. spíraðar aÆ fræi í fjörukamlbi norðan við Surtseyjanlónið, og vonu þær fyrstar æðri plantna tii að vaxa í Surtsey. Ekki varð ævi þeirra löng, því Syrtlingur spúði yfir þær ösku á meðan þær voru enn á æskusikeiði og er vaxtar- staðurinn nú þakinn 50 sm. ösku- lagi, Segir Sturla það ekki óeðli- leg tilviljun að fjörukálið skyldi vera fyrsti landnemi æðri piantna í Surtsey. Það sé strandpianta og fræ þess mjög vel varið korki, en útbreiðsla plöntunnar fari einmitt fram með fræflutningi í fjörutoorði og því eðlilegt að fræið þoii seltu sjávar nægilega* lanigan tíma, til þess að geta bor- izt til Surtseyjar. Hafi jafnvel verið áii’tið, að fjörukáiið sé ein þeirra tegunda, sem allöruggiega heifur getað borizt hingað sjóveg frá Amerí'ku, þar sem útbreiðlslu svæði utan íslands séu strendur Ameríku og Azoreyjar. Ekki er vitað hvaðan fjörukálið barst til Surtseyjar, sennilegt að það hafi komið frá næstu fjörukáissvæð- um í Heimaey, sem eru í 20 km. fjarlægð. Til þess að leita svars við þeirri spurningu, hvert sé seltuþoi fiæja annarra tegunda og hverjir séu möguleikar þess, að aðrar tegundir geti n-umið land á Surtsey eða borizt um lengri sjó- veg, tók Sturla fræ 6 tegunda og geyimdi þau í glösum fylltum af sjó við 2 stig C. Þetta voru strandjurtir og 3 algengar meia- jurtir eða . baldursbrá, katitar- tunga og fjörukál og lambagras, molskriðnablóm og nmúsareyra Um árangur segir Stuiia m.a.: „Yfinleitt virðisit sel'tan lítil álhrif hafa á spírunarbæfni fræs- ins, jafnvei eftir geymslu í fjóra ménuði við 2 stig C. Að átta món- uðum liðnum virðisit spírunar- bæfni hins vegar tekin að minnka nokkuð og fræ mel- skriðnablómsins spíraði þá alils edcki.“ í greininni í Nálttúrufræðingn- um birtist tafla með árangri tii- munanna. Þar segir Sturla einn- ig: „Af framangreindu er því ljóst, að fræ þessara sex tegunda, sem vaddar voru úr flokki meia- og strandjurta, geta þolað að liggja lengi í sjó án verulegs spírnar- tjóns eða alit að 2i24 dögum. Á þeim tíma getur sams konar fræ bægdega borizt langar leiðir með hafstraumuim miili landa, og hefði óefað geta borizt tid íslands frá meginiandi Evrópu og Amer- íku. Akranesi, 30. desember: MS. SELFOSS kom hingáð í dag og lestaði 100 tonn af frosnum fiski á Ameríkumarkað. Síldarbátarnir liggja allir í heimahöfn. — Oddur. ' hún að lokum dregst áfram með söluvagninn í leikslök, hefur hún enn ekki kannazt við, að hún er sjálf seld. ,,Yfirleitt má fullyrða, að sorgarleikur taki þjáningar mannkynsins léttari tökum en gamanleikur". Þessi orð Bert Brechts eru eflaust flestum leikhúsgestum íslenzkum tor- skilin orð. Frásögn hans er að vísu ekki gamanleikur í venju- legum skilningi þess orðs, en ber þó glögg merki gaman- semi, jafnvel kæti. Fyrir það verður alvaran enn dýpri. Leikritun Brechts krefst nýs stíls í leikflutningi. Þar sem ekki verður talið, að nein hefð sé hér á landi fyrir slíkum leik, verður árangur leikara Þjóðleikhússins þeim mun at- hyglisverðari. Frú Helga Valtýsdóttir fer með aðalhlutverkið af mikilli snilld. Athyglisvert er að bera leik hennar saman við leik hinnar miklu fyrirmyndar í þessu hlutverki, einnar mestu leikkonu á þýzka tungu, Ther- ese Giehse. Fyrir hana var tit- ilhlutverkið upprunalega skrif að og hún stóð á sviði Schau- spielhaus Zúrich í Sviss þann 19. apríl 1941, þegar leikritið var flutt í fyrsta sinn. Til þess að lýsa afstöðu þessarar leik- konu til hennar eigin listsköp- unar skulu hér tilfærðar nokkr ar setningar úr bréfi hennar til gagnrýnandans Hans Mayer þann 25. ágúst 1945: ,,Ég vara við, að leikarar sjái um of í gegn um eigin vinnubrögð. Margur hefur með sliku óhrein lyndi komið afkvæmi sínu á kaldan klaka. Það er því erf- itt að koma orðum að því, hvað fram fer í leikundirbún- ingi okkar leikara .... Hve óskýr eru ekki mörkin milli tæknilegra og Ustrænna vinnu bragða .... Fyrst verðum við. að standa föstum fótum á jörðinni, réttlætisins megin, með óflekkuðum huga og óeig ingjörnum skilningi á raun- veruleikanum. í þessari stöðu á svo að hefja leikinn.“ Ther- ese Giehse hefur leikið Mutter Courage í öllum höfuðleikhús- um þýzkumælandi þjóða og leikur hennar hefur mótað leik allra þeirra leikkvenna sem síðan hafa tekið við bessu hlutverki. Helga Valtýsdóttir er glæsilegur fulltrúi íslands í þessum leikkvennahóp. Það er ekki ætlun mín að gagnrýna hér aðra leikendur, en þeir fóru yfirleitt ágætlega með hlutverk sín. Ég vildi að- eins að lokum bera fram ofur- litla athugasemd til háttvirtra leikhúsgesta: Þegar leikrarar sýna slíka samvizkusemi og al- vöru í starfi sínu, finnst mér, að áhorfendur geti lagt sig meira fram og sýnt ofurlitið meiri hluttekningu. Smekkur og skap leikliúsgesta ber uppi sýningu ekki síður en snilli leik anda. Það eru fleiri þátttak- endur í leik en þeir, sem i sviði standa. Helga Valtýsdóttir á sviði Þjóðleikhússins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.