Morgunblaðið - 16.03.1966, Síða 2

Morgunblaðið - 16.03.1966, Síða 2
MORGU NBLAÐIÐ Miðvikudagur 16. marz 1966 Norðurstjarnan hœftir starfsemi um tíma Saldarbirgðir verksmiðjunnar þrotnar 3NORÐURST.TARNAN, niður- Jagningarverksmiðjan í Hafnar- firði, sem nú hefur starfað í liálft ár, hefur orðið að hætta starfsemi sinni nú um stundar- sakir vegna hráefnisskorts. Samkvæmt upplsýingum, sem Mbl. aflaði sér hjá Andrési Pét- urssyni, framkvæmdastjóra verk smiðjunnar, þá þrutu síldarbirgð ir verksmiðjunnar sl. föstudag, en hún er eingöngu byggð upp fyrir „kippers“, og var því ekki um annað að ræða en að loka verksmiðjunni. Andrés sagði, að nú væri ekki um annað að ræða en biða eftir Ferðabók Eggerts og Bjarna á 16.500 kr. A bókauppboði Sigurðar Bene diktssonar í Þjóðleikhúskjallar- anum í gær kom það í ljós, að eiginhandarhandrit Einars Be diktssonar á brúðkaupskvæ. sem hann orti mágkonu sinni, Sigríði Zoega, hafði verið dreg- ið til baka af núverandi eig- endum þess. Reyndist saman- burður á ritinu og ritlt'ind Ein- ars á Dómabókum Rangárvalla- sýslu óhagstæður brúðkaupshand ritinu. Eins og getið var í Mbl í gær voru 118 númer á uppboðinu, þar af 104 í eigu Snæbjarnar Jónssonar bóksala. Fóru bæk- urnar á misjafnt verð eins og gengur, en hæst verð fékkst fyr- ir bók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar, — Reise igennem Island —, 1.-2. hluta i upprunabandi, eða kr. 16.500. Frönsk útgáfa sömu bókar fór ’-’-ónur. !sur Jóns Trausta, út- i Reykjavík 1903 fóru á 4100 kr., en frumútgáfan mun fágæt. Tímarit Jóns Péturssonar, 1.-4. árgangur, Reykjavík 1869- 73 fór einnig á 6000 kr. Búnað- arritið Gestur vestfirðingur í við hafnarbandi fór á kr. 8000, og sömuleiðis íslenzk sagnablöð, heil með öllum titilblöðum. Skammabæklingur Ara Guð- mundssonar um Skjila Magnús- son landfógeta fór á kr. 3000, en bók Bayard Taylor’s, Egyptaland og ísland og gjafaeintak af Dag- bók Islandsferðar eftir W. J. Hooker á kr. 6000 hvor. Litkvikmynd um Rómeó ogr Júiiu sýnd á vegum Heimdallar í kvöld í kvöld verður sýnd í Félags- 2*4 klst. Öllum er heimill ó- keypis aðgangur meðan húsrúm leyfir. Heimdallur hefur ákveðið að taka upp reglulegar sýningar á úrvalskvikmyndum og er sýn- ing sú, se'm að ofan getur er sú fyrsta af þeim. Er ungt fólk ein- dregið hvatt til þess að láta þetta tækifæri ekki fram hjá sér fara. heimili Heimdallar, Valljöll, sér- staklega falleg brezk, litkvik- mynd, Romeó og Júlía með nokkrum úrvalsleikurum svo sem Claire Bloom og Laurence Harvey. Sýningin hefst kl. 8.30 stund- vislega og er sýningartími um Jarðgöngin um Stráka hálfnuð Siglufirði, 15. marz. JARÐGÖNGIN, sem verið er að vinna að því að gera gegn um fjallið Stráka, eru nú orðin 350 metra Iöryg, og nálgast þau nú að vera hálfunnin. Er áætluð lengd þeirra um 7—800 metrar. Byrjað var á verkinu s-1. haust, og hefur verið unnið þarna á þremur átta tíma vöktum allan sólarhringinn. Má segja að verk- ið hafi gengið að áætlun fram að þessu, enda þótt eindæma óhagstætt tíðarfar og mikið fann fergi á Hvanneyrarströnd hafi dag og dag tafið flutning manna og tækja frá kaupstaðnum sjálf- um á vinfiustað. Gert er ráð fyrir, ef allt geng ur samkvæmt áætlun, að hægt verði að aka hinn nýja Stráka- veg, og þar með hin einu raun- verulegu jarðgöng á vegakerfi landsins, næsta haust. Fyrirtækið, er hfur með gerð jarðganganna að . gera, er Efra- fall ,og yfírverkfræðingurinn hér Sigfús Thorarensen. — Stefán. að síld veiddist til þess að verk- smiðjan gæti aftur hafið starf- semi sína. Andrés greindi enn- fremur frá því, að forráðamenn verksmiðjunnar væri nú að at- huga, hvernig hægt væri að koma í veg fyrir það að starf- semi verksmiðjunar stöðvaðist, ef slíkt endurtæki sig að síldar- birgðirnar þrytu. Kvað Andrés það hafa komið til tals, að hefja niðursuðu á þorskhrognum og niðursuðu á reyktri þorsklifur, meðan ekki fengist síld, en það þætti herra- mannsmatur t.d. í Frakklandi. En Andrés sagði, að þetta væri aðeins á frumstigi ennþá — til þess að geta farið út í þetta, þyrfti verksmiðjan að kaupa nýjar vélar, og einnig þyrfti að kanna markaðsmögu- leika á þessari vöru frekar. Þess vegna settu þeir enn allt traust sitt á það, að sildin færi að veið- ast. Myndin er tekin á fundi Islendingafélagsins í Seattle. Með Brynjólfi eru formaður íslendingafélagsins, Sig (Sigurbjörni) Johnson, sem á marga vini íReykjavik, og Olga kona hans. Brynjólfur að enda sigur- tör um Íslendingahyggðir BRYNJÓLFUR Jóhannesson er nú að enda sigurför sína um byggðir Vestur-lslend- inga. segir í fréttabréfi til Mbl. frá Islendingafélaginu í Seattle, sem dagsett er 10. marz. Það kvöld á Brynjólfur að skemmta í San Francisco og laugardaginn á etfir á hann að koma fram á í>orra- blóti Jslenzk-ameríska félags ins 1 Los Angeles. „Hér í Seattle gerði hann marz-fund félags okkar að ó- gleymanlegum atburði", seg- ir í bréfinu. „Þó á virku kvöldi væri, var troðfullt hús — langsamlega fjölmenn asti fundur hins ársgamla fé- lags okka>r“. í blaðinu Lögberg-Heims- kringla er líka mikið og lof- samlega skrifað um Brynjólf. Þar segir m.a. að 26. febrúar hafi hann farið til Nýja Is- lands og skemmt vistfólkinu á Betel í tvær klukkustund- ir og veitt því mikla gleði. Sr. Philip M. Pétursson ók honum þangað ásamt Will og Jónu Kristjánsson en hún ann aðist undirspil fyrir hann. „í Arborg var Unitara- kirkjan troðfull af fólki og þar hafði Brynjólfur langa skemmtiskrá, og varð fólkið svo hrifið og hyllti hann svo ákaft, að hann varð að koma fram oftar en einu sinni að skemmtiskránni lokinni, segir blaðið. Og ennfremur: í leik Brynjólfs felst mikil list — en erfiði líka og er ekki ólík- legt að hann hafi verið orðinn nokkuð þreyttur etfir tvær samkomur sama daginn". — Brynjólfur flaug svo vestur til Vancouver um hádegi þriðjudaginn 1. marz. Flugsýn kaupir nýja flugvél FLUGFÉLAGIÐ Flugsýn hefur nú parntað nýja flugvél frá Banda ríkjunum, af gerðinni Piper Cherokee, og mun flugvél þessi væntanlega verða notuð til kennslu. Ennfremur hefur Flug- sýn í hyggju að festa síðar kaup á tveimur öðrum flugvélum af líkri gerð, sömuleiðis til kennislu, en Ieyfi fyrir þeim eru enn ekki fengin. Jón Magnússon hjá Flugsýn tjáði Mbl. að ástæðan fyrir þess- um flugvélakaupum, væri að Flugsýn væri nú að endurnýja kennsluflugvélakost sinn, en hann væri nú ónógur, miðað við að um 150 manns stunduðu flug nám hjá félaginu. Flugsýn á nú Fagridalur ruddur Ferðir milli Egsisstaða cíij Seyðisf jarðar á ný þrjár kennsluflugvélar, en Jón sagði, að flugfélagið myndi selja eina þeirra, er hinar þrjár nýju kæmu til landsins. Jón sagði ennfremur, að Flug- sýn gengist fyrir þremur bókleg- um námskeiðum, siglingafræði; atvinnuflugmanns- og einkaflug- mannsnámskeiðum, og tækju um 100 manns þátt í þeim. Astæðan fyrir þessari miklu aðsókn í flug skólann, taldi Jón vera hinar miklu mannaráðningar Flugfé- lags íslands og Loftleiða, en þau réðu um 15—20 manns til sín á hverju vori. Fékk þorsk og loðnn í snma knstínn Akranesi, 15. marz. 34 TONN af þorski og 602 tunn- ur af loðnu fékk Jörundur II. í eina og sömu nót, í einu og sama kasti, grunnt út af Jökli. Skips- menn sáu þyrsklinga og smástút unga um 18—-20 tommu langa bylta sér með hausaköstum og sporðaslætti, króaðir inni í loðnu nótinni. Haldið ekki að það hafi veriið handagangur í öskjunni, þegar þeir voru að háfa? — Oddur. UNNIÐ hefur verið að því hér í dag að moka Fagradal, og ætti hann að verða orðinm fær öllum bifreiðum á morgun. Þá er einn- ig byrjað á því að ryðja veginn upp í Hollormsstað. Samgöngur hafa legið að mestu niðri milli Egilsstaða og Seyðisfjarðar síðan í janúar, þar sem snjóbíll, sem haída átti uppi samgöngum þar á milli, hefur verið í ólagi. En nú er snjóbíll- inn aftur kominn í lag, og mun hann fara þrisvar sinnum í viku milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða. Eins og áður hefur komið fram i fréttum, hefur verið mikill snjór hér í kring í vetur, og það t.d. tafið byggingarframkvæmd- ir hér í þorpinu, þar sem erfið- lega hefur gengið að koma bygg ingarvörum liingað á staðinn. — FréttaritarL LÆGÐIN við suðurströndina olli breytilegri átt sunnan- lands. Þar rigndi alls staðar framan af degi, en síðdegis stytti upp vestan til um leið og lægðin færðist austur með landinu. Norðanlands var hæg austlæg átt og snjókoma alls staðar, hiti nálægt frost- marki inn til landsins, en kaldast 4ra stiga frost í Grímsey. Sunnanlands var hitinn víðast 4—5 stig og komst í 8 stig á syðstu stöðv- unum, Stórhöfða og Loftsöl- um.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.