Morgunblaðið - 16.03.1966, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 16. marz 196f
MORGU NBLAÐIÐ
7
Djákninn á Myrká. — Málverk eftir Ásgrím Jónsson.
LR ÍSLEMZKUM ÞJÖÐSÖGLMI
í fyrri daga var djákni einn
að Myrká í Byjafirði; ekki er
þess getið, hvað hann hét.
Hann var í þíngum við konu,
sem Guðrún hét; hún átti að
sumra sögn heima á Bægisá,
hinumegin Hörgár, og var hún
þjónustustúlka prestsins þar.
Djákninn átti hest gráföx-
óttan og reið hann honum jafn
an, — þann hest kallaði hann
Faxa. — Einhverju sinn ber
svo til litlu fyrir jól að djákn
inn fór til Bægisár til að bjóða
Guðrúnu til jólagleði að Myrk
á, og hét hann að vitja henn
ar á ákveðnum tíma og fylgja
henni til gleðinnar aðfanga-
dagskvöld jóla. — Guðrún
hugði gott til jólagleðinnar á
Myrká. Þegar leið á daginn,
fór hún að búa sig, og þegar
hún var vel á veg kominn með
það, heyrði hún að það var
barið. Fór þá önnur kona til
dyra, sem hjá henni var, en
sá engan úti, enda var hvorki
bjart úti né myrkt, þvi tungl
óð í skýjum og dró ýmist frá
eða fyrir. í>egar stúlka þessi
kom inn aftur og kvaðst ekki
hafa séð neitt, sagði Guðrún:
„Til mín mun leikurinn gerð-
ur, og skal ég að vísu út
ganga“. — Var hún þá al-
búin, nema hún átti eftir að
fara í hempuna. Tók hún þá
til hempunnar og fór í aðra
ermina, en fleygði hinni erm
inni fram yfir öxlina og hélt
svo í hana. — begar hún kom
út, sá hún Faxa standa fyrir
dyrum og mann hjá, er hún
ætlaði, að væri djákninn.
Ekki er þess getið, að þau hafi
átt orðræðu saman. — Hann
tók Guðrúnu og setti á bak og
settist síðan sjálfur á bak fyr
ir framan hana. Riðu þau þá
svo um hríð, að þau töluðust
ekki við. Nú komu þau til
Hörgár, og voru að henni skar
ir háar, en þegar hesturinn
steyptist fram af skörinni,
lyftist upp hattur djáknans og
aftanverðu, og sá Guðrún þá
í höfuðkúpuna bera. í þeirri
svipan rak skýin frá tunglinu.
— f»á mælti hann: —
„Mánin líður
dauðinn ríður.
Sérðu ekki hvítan blett
í hnakka mínum,
Garún, Garún?“.
En henni varð bilt við og
þagði. — Ekki er sagt af sam-
ræðum þeirra fleirum né ferð
um, fyrr en þau komu heim
að Mynká, og fóru þar af baki
fyrir framan sáluhliðið. Seg-
ir hann þá við Guðrúnu:
„Bíddu hérna, Garún, Garún,
meðan ég flyt hann Faxa,
Faxa
upp fyrir garða, garða.“
Að því mæltu fór hann með
hestinn, — en henni varð lit-
ið inn í kirkjugarðinn. Sá hún
þar opna gröf og varð mjög
hrædd, en tekur þó það til
bragðs, að hún grípur í klukku
strenginn. — í I>ví er gripið
aftan í hana og varð henni þá
það að happi, að hún hafði
ekki fengið tíma til að fara
nema í aðra hempuermina;
því svo var sterklega til þrif-
ið, að hempan gekk sundur
um axlarsauminn á þeirri erm
inni, er hún var kominn i. —
En það sá hún síðast til ferða
djáknans, að hann steyptist
með hempuslitrið, er hann
hélt á, ofan í gröfina opna, og
sópaðist moldin frá báðum
'hliðum ofan yfir hann.“
(Ingibjörg borvaldsdóttir I
Belgsholti, 1807.)
Áheit og gjafir
’ Aheit og gjaiir til GaulverjabæJaT-
kirkju, árið 1965: Gjafir: Frá Kven-
JEélagi Gaulverjabæjarhrepps 5.000; irá
Páli Guömundssyni og Elinu, Baugst.
3.000; frá börnum Siggeirs Guðmunds
sonar Baugst. 2.000; fár Vigdísi Magn-
ijsdóttur 1.000; frá Sigríði Jónsdóttur
500. Til Qrgelsjóðs: Frá Erlendi Jóns-
sá NÆST beztti
Steinn Steinarr lá banaleguna.
l>á kom til hans prestur einn og spurði, hvort hann gæti gert
nokkuð fyrir hann.
„Ekki strax“, svaraði Steir.n og brosti.
syni, til minningar um Guðlaug Jóns-
son hringjara frá Eystri Hellu 2.100;
frá Kristínu Andrésdóttur, til miim-
ingar u<m sama 600; frá Ingibjörgu
Árnadóttur 300; frá Systkinunum frá
Vestri-Loftstöðum 2,9000. Áheit: Frá
M.Þ. 1.000; frá Guðmundu Jónedóttur
500; fré V.G.V. 100; frá A.Ö. 50; frá
Sigrún Gunnarsdóttir 25; frá Tómasi
syni 500; frá N.N. 200; frá Jóni Ólafs
Tómassyni 1.000; frá Stefáni Jasonar-
syni 100. Samtals kr. 20.875.00.
í>ökkum innilega fyrir ofangreindar
gjafir og áheit og hvern annan stuðn-
ing og hlýhug er kirkju vorri hefir
verið sýndur á liðnum árurn.
Sóknarnefnð Gaulverjabæjarsóknar.
sYS.
£g uátti svo sem viU, að þú værir að leyna mig EENHVER JU! ! J
Starfsstúlkur óskast
Starfsstúlkur vantar í Vífilsstaðahæli nú þegar.
Upplýsingar gefur forstöðukonan í síma 51855.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Útboð
Óskað er tilboða í framkvæmdir við lagningu vatns-
veitu í Hnífsdal á komandi sumri. — Útboðsgagna
má vitja á skrifstofu vora, Borgartúni 7, Reykja-
vík, gegn kr. 2000,00 skilatryggingu.
Innkaupastofnun ríkisins.
Lppboð
Samkvæmt ákvörðun skiptaréttar Reykjavíkur fer
fram opinbert uppboð á hluta í húseigninni Bald-
ursgötu 9, hér í borg, eign dánarbús hjónanna Þór-
unnar og Benedikts Elfar á eigninni sjálfri í dag,
miðvikudaginn 16. marz 1966, kl. 2 síðdegis.
Yfirborgarfógetinn í Reykjavík.
KR. KRISTJÁNSSON.
Jarðhæð í Hlíðunum
Til sölu er 3ja herb. jarðhæð, 110 ferm. á einum
bezta stað í Hlíðunum. — Sér inngangur. — Sér
hitaveita. — Teppi á stofu og skála.
Skipa- og fasíeignasaian
KIRKJ.L1 HVOI.I
Sirnar: 119!« ojt nS42
Verzlunarhúsnæði
Til leigu ca. 100 ferm. verzlunarhúsnæði í hverfi
í Austurbænum, sem er í hraðri uppbyggingu. —
Hentugt fyrir allskonar byggingavörur.
Lögfræðiskrifstofa
ÁKA JAKOBSSONAR, HRL.
Austurstræti 12. 3. hæð. - Símar 15939 og 18398.
50 íslenzkir skemmtikraftar
í Austurbæjarbíói
fimmtudaginn 17.
marz kl. 11,15.
Aðgöngumiðar á kr.
100,00 seldir í Aust-
urbæjarbíói frá kL
4 í dag.
Skrifstofa
skemmtikrafta
Pétur Pétursson.
IMýleg kjötverzlun
í fullum gangi í eignarhúsnæði í einu af nýju hverf-
um borgarinnar er af sérstökum ástæðum til sölu.
Öll áhöld og tæki, m.a. vél til kjötiðnaðar fylgja.
Vaeg útborgun. — Nánari upplýsingar gefur:
IMýja fasteignasalan
Laugavegi 12 — Sími 24300.