Morgunblaðið - 16.03.1966, Blaðsíða 8
8
Miðvikudagur 16. marz 1966
MORCU HBLADIÐ
dSaanaai
Lánaákvæbi atvinnuleysis-
tryggingasjóös verði rýmkuð
Á mánudag mælti Þorvaldur
Garðar Kristjánsson lyrir áliti
heiibrigðis- og félagsmálainefnd-
ar á frumvarpinu um atvinnu-
leysistryggingar. Sagði hann að
hér væri um að ræða frumvarp
tii breytingar á lfigum frá 1956
um atvinnuleysistryggingar. Ár-
ið 1956, þegar sú löggjöf var
sett hefðum við haft almanna-
tryggingar, þar sem almenninugr
hefði verið tryggður gegn af-
leiðngum þess að missa stárfs-
getu sína fyrir elli, sjúkdóma,
slys eða örorku. En á þeirri tíð
hetfði vantað veigamikinn hlekk
f tryggingarkerfi okkar og sá
hlekkur hefði verið settur með
aetningu laga um atvinnuleysis-
tryggingar. En svo mikilvægt
sem það hefði verið að greiða
bætur til þeirra sem hefðu verið
atvinnulausir, lægi það í augum
uppi ,að mikilvægast af öllu
hlyti að vera það, að koma í
veg fyrir atvinnuleysi. Að sínu
áliti ætti ekki að greiða mönn-
um bætur fyrir það að ganga
atvinnlausir fyrr en í síðustu
lög. Það ætti að gera flest sem
mögulegt væri til þess að koma
í veg fyrir atvinnleysið sjálft.
>jú hefði það verið svo, að
almannatryggingalögin frá 1956
hefðu ekki skap
að einungis að-
stöðu til þess að
greiða bætur
þeim, sem yrðu
fyrir atvinnu-
leysi, heldur
hefðu þau skap-
að að vissu leyti
betri aðstöðu til
koma í
veg fyrir sjálft atvinnlepsið.
Þetta gerðist með þeim miklu
sjóðmyndunum, sem hefðu orð-
— Alþingi
Framhald af bls 1
úr dýrtíð í landinu. Séð verður
til þess, að iðnaðurinn í land-
inu njóti í þessu sambandi eðli-
legs aðlögunartíma og ráðstaf-
anir gerðar í lánamálum og á
annan hátt til að gera honum
auðveldara að tileinka sér ýmsa
tækni og aukna hagræðingu og
framleiðni til eflingar þessari at-
vinnugrein í frjálsari viðskipt-
um.
í þriðja lagi: Haldið verði
áfram að efla Iðnlánasjóð, svo að
iðnaðinum skaþist viðunandi
stofnlánaaðstaða, jafnframt því
sem gert er ráð fyrir, að aðstaða
hans í bankakerfinu haldist til
jafns við aðrar atvinnugreinar.
Samtímis hefur verið sköpuð að-
staða til umbóta á sviði lána-
mála með lögum og reglugerð í
samráði við bankana til að
breyta lausaskuldum iðnaðarins
í löng og hagkvæmari lán.
í fjórða lagi: Kíkisstjórnin
hefur stuðlað að því að hefjast
megi 1 landinu nýjar atvinnu-
greinar á sviði iðnaðarins, þar
sem horfur eru á, að verð og
gæði standist erlenda samkeppni,
og þjóðhagslega mikilvægt, að
slíkar atvinnugreinar eflist, svo
sem innlend stálskipasmíði, sam-
fara endurbyggingu gamalla og
úreltra dráttarbrauta, og efling
fiskiðnaðar, m. a. með niðursuðu
og niðurlagningu síldar til út-
flutnings.
í fimmta lagi: Sett hafa verið
lög um rannsóknir í þágu at-
vinnuveganna og þar með stór-
efldar rannsóknir á sviði iðnað-
arins, á vegum tveggja stofnana.
Fyrsta lagi Rannsóknarstofnun
iðnaðarins, sem vinna á að rann-
sóknum til eflingar og hagsbóta
fyrir iðnaðinn í landinu og rann
sóknum vegna nýjunga á sviði
iðnaðar og annarrar framleiðslu,
rannsóknum á nýtingu náttúru-
auðlinda landsins í þágu iðnaðar,
og veiti nauðsynlega þjónustu og
kynni niðurstöður rannsókna í
vísinda- og fræðsluritum. í öðru
lagi Rannsóknarstofnun bygg-
ingariðnaðarins, sem vinnur að
endurbótum í byggingariðnaði og
lækkun á kostnaði við mann-
virkjagerð, hagnýtum jarðfræði-
rannsóknum og vatnsvirkjunar-
rannsóknum, kynni niðurstöður
rannsókna, veiti upplýsingar um
byggingarffæðileg efni og aðstoð
við eftirlit með byggingarefni og
byggingarframkvæmdum.
í sjötta lagi: Stefnt er að virkj-
un stórfljóta landsins, byggingu
stórra orkuvera, sem verði grund
völlur og orkugjafi fjölþættrar
iðnvæðingar í landinu. Orkuver
landsins séu eign fslendinga, en
til þess að virkja megi í stórum
stíl og undir lántökum verði
risið á sem hagkvæmastan hátt,
er tryggi ódýrari raforku, og til
þess að styrkari stoðum sé rennt
undir atvinnulíf landsmanna,
verði erlendu áhættuf jármagni
veitt aðild að stóriðju, ef hag-
kvæmt þykir samkvæmt mati
hverju sinni og landsmenn brest
ur fjárhagslegt bolmagn eða að-
staða.
í sjöunda lagi: Ríkisstjórnin
hefur leitað og mun leita sam-
ráðs og samvinnu við samtök iðn
aðarmanna, Félag íslenzkra iðn-
rekenda og Landssamband iðn-
aðarmanna, um hagsmunamál
iðnaðarins og stefnir að því að
efla samstarf þessara aðila við
iðnaðarmálaráðuneytið og þær
stofnanir iðnaðarins, sem undir
það heyra, svo sem rannsóknar-
stofnanir iðnaðarins og Iðnaðar-
málastofnun íslands.“
Frumvarp það sem hér er flutt
stefnir að því að lögfesta og
framkvæma nokkur þeirra mark
miða, sem ríkisstjórnin vill beita
sér fyrir.
Samhliða öðrum frumvörpum,
sem nú eru lögð fyrir Alþingi
til þess að koma betri skipan og
samræmdari stjórn á fjárfest-
ingarlánasjóði atvinnuveganna,
felast í þessu frumvarpi tillögur
um veruiega eflingu og nýskip-
an Iðnlánasjóðs.
í fyrsta lagi er gert ráð fyrir
að fimmfalda árlegt framlag rík-
issjóðs til Iðnlánasjóðs, úr 2
millj. kr. í 10 milljónir króna.
Þessi aukning á ríkissjóðs-
framlaginu er bæði við það mið-
uð að efla almenna lánastarf-
semi og hag Iðnlánasjóðs og eins
til að mæta þeim öðrum megin-
tilgangi þessa frumvarps að
mynda nýjan lánaflokk í því
skyni að veita sérstök hagræð-
ingarlán, sem væru við það
miðuð að bæta aðstöðu fyrir-
tækja til aukinnar framleiðni og
til þess að aðlaga sig nýjum við-
horfum vegna breyttra viðskipta
hátta, svo sem tollabreytinga og
fríverzlunar og nýrrar tækni.
Með frumvarpinu er eldri lán-
tökuheimild Iðnlánasjóðs, sem
var 100 millj. kr hækkuð í 150
millj. króna, og veitt ný lántöku-
heimild vegna hagræðingarlána
allt að 100 millj. króna. Aukið
ríkissjóðsframlag skapar m. a.
aðstöðu til þess að veita hag-
kvæmari lán en ella og taka á
sjóðinn nokkra byrði, sem kynni
að leiða af lægri vöxtum og
lengri lánum til útlána en láns-
fé sjóðsins væri við bundið.
Með framangreindum breyt-
ingum á lögum um Iðnlánasjóð
er stefnt að því að stórefla að-
stöðu hans til styrktar iðnþróun
í landinu, en það er framhald á
þeirri eflingu Iðnlánasjóðs sem
átt hefur sér stað hin síðari ár.
ið samkvæmt þessum lögum. Um
síðustu áramót hefði verið tal-
ið, að eignir atvinnuleysistrygg-
ingasjóðs hefðu numið á 8.
hundrað millj. kr. árið 1964
hefðu atvinnuleysistrygginga-
sjóður haft um 123 millj. kr. í
tekjur. Það gæfi auga leið, að
það væri ekki sama hvernig
svo miklum fjármunum væri
varið, eða hvernig þessi sjóður
væri ávaxtaður.
I lögunum frá 1956 væru
ströng ákvæði um lánveitingar
sjóðsins, þannig að stjórn hans
væri ekki heimilt að ávaxta fé
sjóðsns í útlánum eða vaxta-
bréfum nema gegn ábyrgð rík-
issjóðs eða annarri öruggri trygg
ingu. En síðan þetta ákvæði
hefði verið sett hefðum við feng
ið reynslu af starfsemi þessari
og hefði það komið í ljós, að
þessi ákvæði um tryggingar á
útlánum sjóðsins væru til traf-
ala, þegar haft væri í huga það
sjónarmið að veita lánin þangað
sem þörfin væri mest að afstýra
atvinnuleysi. Þar kynni að vera
erfitt að veita fullkomnar trygg-
ingar og einnig að erfitt væri
að greiða háa vexti. Með tilliti til
þess að bæta úr þessu væri
frumvarp þetta komið fram.
1 frumvarpinu vær lagt til að
lánaheimild sjóðsstjórnarinnar
yrði rýmkuð frá því sem nú
væri. í fyrsta lagi væri lagt til,
að þegar í hlut ættu staðir sem
ættu við að stríða verulegt at-
vinnleysi, væri hægt að veita
þeim lán sem verði vaxtalaus,
eða með lágum vöxtum um
lengri eða skemmri tíma. í öðru
lagi gerði frumvarpið ráð fyrir
að sjóðsstjórninni sé heimilt að
ákveða að slík lán yrðu afborg-
unarlaus tiltekið árabil. Og í
þriðja lagi væri lagt til, að ekki
þyrfti aðra tryggingu fyrir slík-
um lánum en ábyrgð hlutað-
eigandi sveitarfélags. Slík lán
máettu þó ekki nema hærri fjár-
hæð samtals á ári hverju en
sem næmi fjórðungi vaxtartekna
sjóðsins.
Framsögumaður sagði að loks
væri lagt til í frumvarpnu, að
sjóðsstjórn skyldi leita umsagnar
stjórnar Atvinnubótasjóðs áður
en hún veitti lán samkvæmt
þessari lagagrein. Væri hér að-
eins gert ráð fyrir því að at-
vinnubótasjóður, sem hefði það
hlutverk að leysa úr vandræð-
um vegna atvinnuskorts, hefði
aðstöðu til þess að fylgjast með
þeim ráðslöfunum, sem sjóðs-
stjórn atvinnuleysistrygginganna
kynni að gera samkvæmt þessari
lagaheimild.
Framsögumaður vék síðan að
breytingartillögum- þeim, er heil
brigðis- og félagsmálanefnd var
sammála um að gera á frum-
varpinu. Eru þær helztar að
biðtíma verður nokkuð breytt
frá því sem frumvarpið gerir
ráð fyrir, til rýmkunar bóta-
réttar frá því sem er í gildandi
lögum, Þá er breytingartillaga
sem miðar að því atvinnuelysis-
bætur verði alls staðar hinar
sömu og jafnháar slysadagpen-
ingum.
Að lokum sagði Þorvaldur
Garðar, að það væri augljóst
mál, að það kæmi margt til álita
um breytingar á lögum um at-
innuleysistryggingasjóðinn. Sá
sjóður hefði orðið til uipp úr
verkfallinu mikla 1955 og það
hefði þurft að semja þá löggjöf
með tiltölulega stuttum fyrir-
vara. Herfði verið gert ráð fyrr
því að þau lög yrðu endurskoð-
uð eftir tMÖ ár. Sú enduskoðun
hefði hinsvegar ekki farið fram
á Alþingi enn. 1960 hefði verið
skipuð nefnd til að endurskoða
lögin, en sú endurskoðun væri
ekki komin fram. Þar væri þó
Framhald á bls. 11
Fermingargjafir
Vinsælar
fermingargjafir
Tjöld, margs konar
Vindsængur
Svefnpokar
picnic-töskur
Gassuðutæki
Ferðaprímusar
Bakpokar.
Aðeins úrvals vörur.
Geysir hf.
Vesturgötu 1.
Hafnarfjörbur
Nýkomið til sölu:
Tvær nýl: og glæsilegar 3ja og
4ra herb. íbúðir í 2ja hæða
um 96 ferm. húsi á rólegum
og góðum stað í suðurbæn-
um. Stórt geymsluloft fylg-
ir efri hæðinni.
4ra herb. góð íbúð á neðri
hæð í steinhúsi í Garða-
hreppi við Hafnarfjarðar-
veg.
Hefi kaupanda að góðri 4—5
herbergja íbúð í Kópavogi,
fullgerðri eða tillbúnni undir
tréverk.
ÁRNI GUNNLAUGSSON hrl.
Austurgötu 10. Hafnarfirði
Sími 50764 kl. 9—12 og 1—4
I
TIL SÖLU
Talleg 2 ja herb.
íbúð f háhýsi
við Sólheima
Ólafur
1» or g rímsson
HÆSTAR ÉTTAFU-ÖGM AOUR
Fasteigna- og verðbréfaviöskifti
Austurstraeti 14, Sfmi 21785
Til sölu m.a.
3ja herb. rúmgóð kjallaraíbúð
í steinhúsi við Barðavog.
Tvöfalt gler, sérinngangur,
sérhiti. Ræktuð og girt lóð.
Glæsileg 6 herb. ibúðarhæð
í háhýsi við Sólheima.
Raðhús við Kaplaskjólsveg
seljast fokheld og eru til-
búin til afhendingar strax. 1
Garðhús á Flötunum í Garða-
hreppi selst fokhelt með
uppsteyptum bílskúr og tvö
földu gleri. Fullfrágengið að
utan.
Glæsilegt einbýlishús við
Lindarbraut, Seltjarnar-
nesi, selst fokhelt og er til-
búið til afhendingar strax.
Skipa- & fasleignasalan
KIRKJUHVOLI
Simar: 14916 or 13842
Vantar stóra húseign vel-
staðsetta fyrir góðan kaup-
anda með mikia útborgun.
Ti! sölu
3ja herb. íbúðir á hæð og í
risi við Lindargötu. Útb. kr.
250 þús.
3ja herb. nýinnréttuð og
teppalögð lóð við Ránar-
götu. Sérhitaveita.
3ja herb. góðar kjallaraíbúðir
við Barmahlíð, Efstasund og
víðar.
4ra herb. nýleg íbúð rétt við
Meistaravelli.
4ra herb. ódýr rishæð við
Efstasund.
5 herb. rishæð í Kópavogi. —
Sérlþvottahús og hiti, bíl-
skúr.
Einbýlishús með 6—7 herb.
íbúð á hæð og í risi í Smá-
íbúðahverfi, nýmálað og vel
umgengiið. Nýr 40 ferm.
bílskúr.
Stór glæsileg efri hæð á fögr-
um stað við sjávarsíðuna.
4 svefnherbergi m. m. —
Þvottahús á hæðinni. Sér-
hiti. Fallegt útsýni.
Upplýsingar aðeins á skrif-
stofunnL
AIMENNA
FASTEI6HASALAN
ÍINDARGATA^SlMI^Jtl^O
Húseigendur
r Æ
Oskum eftir
góðum ein-
býlishúsum og
íbúðum til sölu
f borginni og
nágrenni
Mátflutningsskrifstofa
Fasteigna- og verðbréfasala
GÍSLI G. ÍSLEIFSSON hrL
JÓN L. BJARNASON,
fasteignaviðskiptL
Hverfisgata 18.
Símar 14150 og 14160.
Sjómenn
Til sölu er 3,5 tonna trilla með
nýrri vél, Simrad dýptarmæli,
línuspili með afdráttarkarli,
sjódælu við vél. Gott verð og
greiðsluskilmálar.
FASTEIGNAMIBSTÖÐIN
Austurstræti 12.
Símar 14120 og 20424.