Morgunblaðið - 16.03.1966, Qupperneq 19
Miðvikudagur 1G. fnarz 1966
MORGUNBLAÐIÐ
19
Kristjana Úladóttir
bæði yngri en hún: Þórarinn
kvæntur Jónínu Sigurðardóttur
á Hoffelli í Vestmannaeyium, og
Guðbjörg gift Kristni Jónssyni
kaupmanna á Húsavík. Þrír
bræður eru enn á lífi: Sigurður
forstjóri í Vestmananeyjum,
Kristján bókhaldari og Árni
blaðamaður, báðir í Reykjavík.
Hjá Sigurði var Kristjana öll
árin í Vestmannaeyjum og engir
reyndust henni jafn tryggir vinir
Gurðot Ruin
Gunnorsson
HÚN VAR fædd að Víkinga-
vatni í Kelduhverfi 23. marz
1891. Foreldrar hennar voru Óli
J. Kristjánsson og Hólmfríður
Þórarinsdóttir, sem þá bjuggti
þar á nokkrum hluta jarðarinn-
ar. Voru þar þá á heimilinu for-
eldrar hans, Kristján Árnason
umboðsmanns, Þórðarsonar á
Kjarna og Sigurveig Guðmunds
dóttir Árnasonar bónda í Ær-
lækjarseli, bæði hálfsjötug að
aldri og hætt búskap. Þar var
einnig móðir Sigurveigar, Ólöf
Sveinsdóttir Guðmundssonar á
Hallbjarnarstöðum, fædd 16.
september 1799. Eru það kunnar
og fjölmennar ættir, sem komnar
eru frá þeim Þórði á Kjarna og
Sveini á Hallbjarnarstöðum.
Foreldrar Hólmfríðar voru
Guðbjörg Guðmundsdóttir, Vig-
fússonar, bónda á Grásíðu og Þór
arinn Þórarinsson, albróðir
Sveins amtsskrifara, föður séra
Jóns hins kaþólska (Nonna).
Faðir þeirra bræðra, Sveins og
Þórarins, var Þórarinn bóndi í
Kílakoti, Þórarinssonar bónda á
Víkingavatni, Pálssonar, Arn-
grímssonar sýslumanns á Laug-
um, af Hrólfsætt hins sterka.
Kona Þórarins í Kílakoti var
Björg skáldkona Sveinsdóttir,
Guðmundssonar á Hallbjarnar-
stöðum, og komu þar saman ætt-
ir þeirra hjónanna Óla og Hólm-
fríðar. Sveinn á Hallbjarnarstöð
um var greindur maður vel og
skáldmæltur. Gekk skáldskapar-
gáfan í arf til Bjargar dóttur
hans, og dóttursonar hans Krist-
Bjarni Beinteinsson
LÖGFRiEÐINGUH
AUSTURSTRÆTI 17 (silli ft VALDll
SÍMI 13536
jáns Jónssonar Fjallaskálds og
Bjarna bróður hans. Og víða ból
ar enn á hagmælsku í þeirri
ætt. Hafði Kristjana ekki farið
varhluta af því, þótt hún flíkaði
því lítt, en Kristján bróðir henn
ar er þjóðkunnur fyrir lausa-
vísur sínar.
Kristjana ólst upp hjá foreldr-
um sínum, sem bjuggu á ýmsum
bæjum í Hverfinu. Var hún
snemma vanin við alla algenga
sveitavinnu, eins og þá var títt,
því að þá urðu allir að vinrta
baki brotnu og börnin snemma
vanin á að forðast sérhlífni.
Klingdi þá oft í eyrum þeirra:
„Sá, sem ekki nennir að vinna,
á ekki heldur mat að fá“. Bar-
áttan fyrir daglegu brauði var
hörð á þeim árum, og þess var
krafizt að allir leggðu fram alla
krafta sína. Það var harður, en
góður skóli, því að kveifarskap-
ur var fordæmdur og úrræða-
leysi ljótur galli.
Þegar Kristjana var 15 ára
brugðu foreldrar hennar búi og
fluttust til Húsavíkur. Systkinin
voru þá sex og dreifðust þau
brátt í ýmsar áttir. Kristjana
komst vonum bráðar að verzlun
Aðalsteins Kristjánssonar á
Húsavík og komu þá nýir hæfi-
leikar hennar í ljós, hvort held-
ur hún vann að afgreiðslustörf
um eða bókhaldi. Viðskiptavin-
ir spurðu gjarna eftir henni, þvi
að hún var rösk við afgreiðsluna
og hreinskilin, og það er talinn
bezti starfsmaður hvers fyrirtæk
is er allir spyrja eftir. Bókhald
lék henni þegar í höndum og
var snyrtimennsku hennar þar
við brugðið, en hitt bar þá af
hvað hún skrifaði fagra rithönd
og varð það brátt annálað um
alla sýsluna þar sem þá voru þó
beztu skrifarar landsins.
Eftir margra ára starf þarna
fluttist Kristjana til Vestmanna
eyja og dvaldist þar síðan til
æviloka. Vann hún í fjölda ára
í skrifstofu bæjarins, og fór það
sem fyrr, að hún var sú, er allir
spurðu eftir þeir er þangað áttu
erindi. Þótti það með ólikindum
hve fljótt hún varð kunnug öll-
um rekstri bæjarins og hve létt
henni veittist að veita upplýsing
ar og svara fyrirspurnum um ým
islegt, sem ekki var þó innan
hennar verkahrings. Hún var og
hamhleypa til allrar skrifstofu-
vinnu og örugg svo af bar. Vann
hún sér því hylli jafnt yfirboð-
ara sem annarra.
Fyrir nokkrum árum varð
heilsa hennar fyrir áfalli og beið
hún þess ekki bætur síðan. Alla
ævi hafði hún verið kjarkmikil
og glaðlynd á hverju sem gekk,
einbeitt og hlaðin mikilli lífs-
orku. Þess vegna urðu nú þung-
bær hin snöggu umskipti til
heilsuleysis. Hún andaðist- í
sjúkrahúsi Vestmannaeyja hinn
6. marz sl., tæplega 75 ára að
aldri, og hafði verið einhleyp
alla ævi.
Kristjana átti fimm systkin og
voru tvö dáin á undan henni,
Kveðjo
Fæddur 1. sept 1941.
Dáinn 19. jan. 1966.
Gengin er sól til sævar,
söngur dagsins hljóður.
Hniginn í vetrarvalinn,
vorsins ljúfi gróður.
Brotitð er blað í sögu,
beðurinn hinzti ruddur.
Hugljúfur drengur horfinn,
hafinu skattur greiddur.
Skal þó í hófi harma,
hugljúfan son og bróður.
Fortíðin fyrnist ekki,
framundan nýjar slóðir.
Þó ómi nú undir niðri,
angurvær hörpustrengur.
í minningu okkar ertu,
ávallt hinn glaði drengur.
Þökkum við bros og birtu,
blessum nú liðnar stundir.
Bjart er á bak við húmið,
bíða þar endurfundir.
Þá verður gott að gleðjast,
ganga í návist þinni.
Huganum hærra beina,
heillast af framtíðinni.
sem hann og Ragnheiður Jóns-
dóttir kona hans, þegar mest á
reið. Þau systkinin höfðu alla
jafna verið mjög samrýmd og
mun Kristjana ekki hafa getað
hugsað sér að skipta um heimili,
því svo var henni kært heimili
bróður síns. En nú hefir hún
kvatt það til fulls og var hún
jarðsungin að Landakirkju í gær
af séra Þorsteini L. Jónssyni.
Vinur.
Eilífð þig örmum vefur,
óttan er framhjá liðinn.
Árdegið á þig kallar,
útrunnin hinzta biðin.
Sól yfir sundum blikar,
sérðu við gleggri kynni.
Von þín að veruleika
verða í þettað sinnL
Biðjum við guð að blessa
bróður og soninn kæra.
Vjð sem að eftir erum,
eigum svo margt að læra.
Eilífðin friðar faðmi,
felur eins ríka og snauða.
Þakklæti okkar áttu,
út yfir gröf og dauða.
Kveðja frá
foreldrum og systkinum.
ÞETTA GERDIST
IJANUAR
VEÐIIR OG FÆRÐ
Farþegaílugvél teppist tvo sólar-
hringa á Norðfirði vegna óveðurs (8).
9—12 stiga frost í Rykjavík (21).
Frostið komst niður í 16,6 stig í
Reykjavík eina nóttina, og er það
1 fjórða skipti á þessari öld (26).
Vegir spillast um land al'ltt vegna
fcríðar og snjófoks (26).
Fáviðri gengur yifir Reykjavík.
Bvassviðri og snjókoma um a 1 lt
land (30).
ÚTGERÐIN
Togarinn Röðull selur fyrir hæsta
ineðalverð, sem fengist hefur á Bret-
Jandsmarkaði, kr. 19,23 hvert kg. (6).
Bæjarútgerð Reykjavíkur fær
|>ýzka síidarflotvörpu (7).
Línuveiði við SV-land að byrja (13).
Ágæt haustvertíð Vestfjarðabáta
(14).
Síldarverksmiðjan i Bolungarvík
Kaupir síld í Skotlandi (19).
FRAMKVÆMDIR
232 stiga hiti í borholu á Nesja-
völlum (4).
42 nýbýli stofnuð hér á iandi s.l
ár (5).
Tveir verktakar leggja hitaveitu í
Smáíbúðarhverfi (5).
Nýr veitingastaður tekinn til starfa
i Hótel Holti (11).
Hlutafélag stofnað til starfrækslu
gíldarverksmiðju á Seyðisfirði (12).
992 íbúðir í byggingu í Kópavogi
á s.l. ári (13).
Ákveðið er að skipið Susanne Reith
verði endnrbyggt (14).
17 ný íslenzk skip skráð 1966, sam-
taLs 13.736 rúmleetir. 20 skip í smíð-
um fyrir íslendinga (15).
Miklar framkvæmdir í Neskaup-
•tað (19).
Blikkandi ljós sett við gangbrauitir
yfir götur á 12 stöðum í Reykjavík
(á32).
SjáLfvirk símstöð tekin í notikun á
Siglufirði (22).
Ungur Vestmannaeyingur, Sigmund
J. Jóhannsson, finnur upp nýja gerð
bumarflokikunarvélar (22).
Norskit fyrirtæki vill selja oikkur
tilbúin einbýlishús (23).
Reisa á fjórða áfanga Vogaskóla
(23).
16 tilboð berast í túrbínur Búr-
fellsvirkj unar (25).
Átta verkalýðsfélög sameinast um
f élagsheimili (25).
Hlutafélag stofnað til starfrækslu
síldarniðurlagningarverksmiðj u á
Egilsstöðum (27 ).
MENN OG MÁJLEFNI
Þórarinn Jónsson og Karl O. Run-
ólfsson hljóta verðlaun Tónlistar-
sjóðs ríkisútvarpsins og Agnar í>órð-
arson og Jökull Jakobsson verðlaun
Rithöfundasjóðs útvarpsins (14).
Borgarstjórn færir Árna Óla rit-
stjóra 100 þi'u. kr. heiðursgjöf (8).
Brezki skipstjórinn Richard Taylor
kominn hingað til þess að sitja af
sér 45 daga fangelsisdóm (12).
Sænska ljóðskáldið Gunnar Eke-
löf hlýtur bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs (13).
Gunnar Schram, umdæmisstjóri á
Akureyri skipaður ritsímastjóri (18).
Fjölmargir útlendingar koma til
íslands í atvinnuleit (18).
Lögfræðingarnir Björn Svein-
björnsson, Jón Finnsson og Jón Hall-
varðsson hljóta rétt sem hæstaréttar-
lögmenn (19).
Bjarki Elíasson og Óskar Ólason
skipaðir yfirlögregluþjónar í Reykja-
vík og Sigurður M. Þorsteinsson,
Sverrir Guðmundsson og Guðmund-
ur Hermannsson aðstoðaryfirlögreglu
þjónar (19).
Jón Axel Pétursson ráðinn banka-
stjóri við Landsbankann (22).
Ríkharður Jónsson, Svavar Guðna-
son, Þorsteinn Jónsson (Þórir Bergs-
son) og Þorvaldur Skúlason flytjast
upp í efsfca flokk við úthlutun lista-
mannalauna (25).
Philip prins kemur við á íslandi
24. marz n.k. (26).
Kvenna- og karla-landslið í bridge
valin (27).
Friðrik Ólafsson sigraði á alþjóð-
legu skákmóti 1 Reykjavík (28).
IJens Otto Krag og Helle Virkner
verða gestir B1 aðamannafélags íslands
á pressuballinu í ár (29).
Menntamálaráðherra svarar spum-
ingum um akademíu og hækkun lista
mannalauna (29).
Hlutu fangelsisdóma fyrir skjala-
fals og fjarvik (30).
féragsmAl
Nefnd endurskoðar fyrirkomulag
læknaþjónustu (6).
Önnur umræða um fjárhagsáætlun
Reykjavíkur (7). Niðurstöðutölur
rekstursreiknings 842 millj. kr. (8j.
Baldvin Tryggvason endurkjörinn
formaður Fulttrúaráðs Sjálfsitæðisfé-
laganna t Reykjavík (8).
Guðjón Sv, Sigurðsson endurkjör-
inn formaður Iðju í Reyikjavík (9).
Sigurður Sigurðsson endurkjörinn
formaður Félags ísl. myndlistarmanna
(U).
Guðmundur H. Garðarsson endur-
kjörinn formaður V.R. (11).
Karl Sigurbergsson endurkjörinn
formaður Skipetjóra- og stýrimanna-
félagsins Vísis á Suðurnesjum (12).
Þorvaldur G. Kristjánsson kjörinn
formaður liögfræðingafélags íslands
(12).
Stefán Jónsson endurkjörinn for-
mttður Landsmálafélagsins Fram í
Hafnarfirði (16).
Bjálfstæðismenn halda verkálýðs-
ráðstefnu við Djúp (18).
Rithöfundasamband íslands mælist
til þess að útlán bóka íslenzkra rit-
höfunda verði óheimil úr almenn-
ingsbókasöfnum nema greiðsla komi
fyrir (10).
Eðvarð Sigurðsson endurkjörinn
formaður Dagsbrúnar (19).
Arinbjörn Kolbeinsson endurkjör-
inn formaður Félags íslenzkra bif-
reiðaeigenda (22).
Læknar vilja sérstakt heilbrigðis-
ráðuneyti (22).
SVFI ekki aðili að vænfeanlegum
samfeökum um umferðaröryggi (23).
Unnið að upplýsingasöfnun um
greiðslu fyrir bókaútlán (25).
Stofnað landssamband um bar-
áttu gegn umferðarslystun (85).
Þing Norðurlandaráðs haldið í
Kaupmannahöfn (29).
BÓKMENNTIR OG LISTIR
Þjóðleikhúsið og Leikfélag Reykja-
víkur hefja yfingar á nýjum leiikritum
eftir Halldór Laxness (5).
Kleppur — Hraðferð. ný revía t
Sigtúni (5).
Þjóðleikhúsið sýnir barnaleikritið
„Ferðin til Limbó", eftir Ingibjörgu
Jónsdóttur og með lögum eftir Ingi-
björgu Þorbergs (6).
ínski dans- og söngflokikurinn Feis
Eireann sýnir í Þjóðleikhúsinu (9).
Bandaríski fiðiuleikarinn Freedell
Laok leikur með Smfoníuhijómsveit-
inni (13).
ISvavar Guðnason tekur þóifet t
sýningu Grönningen í Charlottenborg
(13).
Leikfélag MA sýnir gamianleilkinn
„Einn þjónn og tveir herrar" eftir
Carlo Goldini (29).
Leikfélag Reykjavíkur sýnir „Hús
Bernörðu Alba", eftir Fererico Garci'a
Lorca (23).
SLYSFARIR OG SKAÐAR
Þrítugur maður, Heimir Baldvins-
son frá Arnaratöðum í Bárðardal
drukknar, er bifreiji hans lendir fram
af bryggju á Akureyri (4).
Varðskipið Þór lendir á hliðina,
er dráttarvagn í slippnum í Reykja-
vík bilar. Skipið skemmist nokkuð og
dráttarvagnlnn mikið (4).
Húsið nr. 36 við Nesgötu t Nes-
kaupstað skemmist allmikið í eldi
(5).
Nýr þýakur togari, Fehmarn frá
Kiel, leitar hér hafnar vegna skyndi-
legs leka, sem kom að skipinu (6).
Strandferðaskipið Hekla skemmir
báðar skrúfurnar i is á Akureyrar-
pol'li (8).
Karl Njálsson, 42 ára, Þverhollti 18,
Akureyri, bíður bana, er planiki fauk
í höfuð hans (7 og 8).
Vatnsæð bilar á Akureyri (9).
Bilun á útvarpssendi á Eiðum (9).
Fernt slasast allmkið t hörðum ár-
rekstri í Grafnlngi (11).
Skólahús Skarðshrepps í Skaga-
firði brennur, bækur lestrarfélagsins
og skjöl hreppsins eyðileggjast (11).
Jóhannes Jónsson, bóndi, Tyrfings-
sfeöðum Akrahreppi, 43 ára, híöur
bana í bílslysi (12).
Andrés Sigurðsson, bóndi í Aspar-
vík á Ströndum verður fyrir voða-
skoti og bíður bana (14).
Brezki togarinn Wyre Conquerer
strandar á Höfðabrekkufjöru, og næst
aftur á flot (19,—23).
Rafmagnsskortur nyrðra vegna
krapasttflu í Laxá (18).
Flugvél frá Flugsýn ferst i Norð-
fjarðarflugi og með henni flugmenn-
irnir Sverrir Jónsson og Höskuld-
ur Þorsteinsson (19).
Gamalit Ibúðarhús að Néðra-Hálsl
í Kjóœ brennur (19).
Ungur sjómaður, Þráinn Magnús-
son, Hverfisgötu 83, hverfur af tog-
aranum Marz (20).
Mikið tjón í bruna á bænum Finn
mörk í V.-Hún. (22).
Garðar Gunnarsson, 25 ána, Mið-
bæ, Haukadal í Dýrafirði, drukknar
af vélbátnum Þorgrimi (22).
Nokkrar skemmdir á síldarverk-
smíðjunni í Bolungavík vegna bruna
(25).
Auðunn Eiriksson, póstur, týnist i
stórhríð á leiðinni milli Þórshafnar
og Raufarhafnar (25).
Plastverksmiðja, bílaverkstæði og
tveir hráolíugeymar við Lagarfljóts-
brú urðu eldi að bráð (27).
Stórtjón í fáviðri í Reykjavík og
víða úti um land. Þök fjúka af hús-
um, bíLar fjúka af vegum, skip
slitna upp og fleiri skemniþir (30).
ÍÞRÓTTIR
100 þús. gestir greiddu 5 millj, kr.
í aðgangseyri að knattspyrnuleikj-
um hér s.l. ár (6).
FH vann Noregsmeistarana í
handknatMeik, Fredensborg, með 19-16
(8) og 16:13 (11).
Pólverjar sigruðu Islendinga i
landsleik í handknattleik með 27 19
(16).
íslendingar töpuðu fyrir Dönum i
landsleik i handknattleik karla með
12:17 (20).