Morgunblaðið - 25.03.1966, Síða 1
32 siður
53. árgamgur.
7lt. tbl. — Föstudagur 25. marz 1966
Prentsmiðj'a Morgunblaðsins.
Filippus hertogi gengur niður úr flugvél siifhi á Reykjavíkurflugvelli
forsaetisráðherra, dr. Bjarni Benediktsson, taka á móti honum.
í gær kl. 18:30. Brezki sendiherrann, Halford-MacLeod,
(Ljósm. Mbl. Sv. Þ.).
Filippus
prinz á
íslandi
FILIPPUS prinz, hertogi af
Edinborg, kom til íslands í
gær. Flugvél hans, tveggja
hreyfla skrúfuþota af Andov-
er-gerð úr brezka flughernum
lenti á Reykjavíkurflugvelli
kl. 18:30. Hún fór frá Gæsa-
flóa á Labrador í gærmorgun
og kom við í Syðri Straum-
firði á Grænlandi á leiðinni
hingað, en hertoginn hefur
verið á mánaðarlöngu ferða-
lagi um ýmis ríki Vesturálfu,
síðast Bandaríkin og Kanada.
Handhafar forsetavalds, dr.
Bjarni Benediktsson, forsætis
ráðherra, Gizur Bergsteinsson
forseti Hæstaréttar íslands,
og- Birgir Finnsson, forseti
Sameinaðs Alþingis, tóku á
móti hertoganum í afgreiðslu
Flugfélags Islands, ásamt
Halford-MacLeod, sendiherra
Breta á islandi, Sigurjóni Sig-
Framhald á bls. 3
Þyrla, sem flutti forseta
íslands, lenti á kornakri
Talið vax, að rnn vélarbilun væri að ræða,
en svo vor ekki — Forsetinn skoðaði
í gær hamrahöllina á Masada
Fréttaskeyti til Morgunblaðsins,
Tel Aviv, 24. marz —
Emil Björnsson.
U M hálfsexleytið í morgun,
eftir íslenzkum tíma, lagði
forseti íslands, hr. Ásgeir Ás-
geirsson, upp frá flugvellin-
um í Tel Aviv, með íslenzk-
um og ísraelskum fylgdar-
mönnum.
Áfangastaður var fjallið
Masada í Júdeueyðimörkinni.
Var flogið þangað í tveimur
þyrlum, en flugferðin átti að
taka fimmtíu mínútur.
Er flogið hafði verið í
stundarfjórðung, gerðist það
rétt hjá hafnarborginni Ash-
Salazar oy l\EATO:
Samvinna aðeins við þá,
sem samvinnu vilja
Lissabon, 24. marz (NTB):
Dr. Antonio Salazar, forsætisráð-
herra Portúgals, segir í viðtali
við handariska blaðið The New
Vork Times að vestræn ríki megi
ekki taka» samvinnu Portúgals,
sem gefinn hlut.
í viðtalinu, sem portúgalska
utanríkisráðuneytið birti, segir
Salazar að Portúgal sé eitt þeirra
ríkja, er inynduðu Atlantshafs-
bandalagið, og að landið hafi
ætíð unnið dyggilega með banda
laginu. Og ráðherrann bætir því
við að þessi samvinna hafi leitt
yfir landið áhættur og fórnir,
sem aldrei hafi fengizt bættar.
Salazar segir að NATO í dag
geti ekki gegnt því hlutverki,
Framhald á bls. 3
dod, um fjörutíu km suður af
Tel Aviv, að við, sem ekki vor
um í sömu þyrlu og forsetinn,
sáum þyrlu þá, er hann var
farþegi í, lækka flugið snögg-
lega, og lenda á kornakri.
Þóttumst við strax vita, að
eitthvað væri að. í ijós kom,
að kviknað hafði á peru í
mælaborði, sem gefið gat til
kynna, að um vélarbilun væri
að ræða. Athugun leiddi þó
síðar í ljós, að varúðarútbún-
aðurinn hafði bilað, og að um
vélarbilun var ekki að ræða.
í forsetaþyrlunni voru m.a.
Emil Jónsson, utanríkisráðherra,
Hans G. Andersen, sendiherra,
og forsetaritari, Þorleifur Thor-
iacíus. Engan sakaði, enda var
aðeins lent af öryggisástæðum.
Samt þótti ekki tryggt að
halda áfram ferðinni í þeirri
þyrlu, og kom forsetinn, með
fylgdarliði sínu, yfir í hina þyrl-
una. Gekk ferðin snurðulaust eft
ir það.
Lent var uppi á klettaviginu
eða hamrinum Masada, sem er
Framhald á bls. 3
Viðræðun-
um í Róm
lokið
Páll páfi VI og dr.
Ramsey erkibiskup
hvetja til einingar
kristinna
Róm, 24. marz, (AP-NTB)
Dr. Michael Ramsey, erki-
hiskup af Kantaraborg, er nú
farinn til Genfar eftir söguleg
ar viðræður við Pál páfa VI.
Röm. Fyrir brottförina gáfu
páfinn og erkibiskupinn út
sameiginlega yfirlýsingu, þar J
sem þeir skuldbinda sig tii »4.
starfa að einingu milli róm-
ersk kaþólskra manna og
fylgjenda brezku biskupa-
kirkjunnar.
Bætti dr. Ramsey því við
síðar, að eitt þeirra mála, sem
leysa þyrfti, væri skoðun Páfa
ríkisins á blönduðum gifting-
um, þ.e. þegar annar aðilinn
er rómversk kaþólskur, en
hinn fylgir brezku biskupa-
kirkjunni.
Sameiginlega yfirlýsingin
var gefin eftir að kirkjuleið-
togarnir tveir höfðu flutt sam
eiginlega bæn í St. Páls
dómkirkjunni. Segjast þeir
í yfirlýsingunni vilja boða til
alvarlegra viðræðna fulltrúa
Páfaríkisins og brezku bisk-
upakirkjunnar í þeim tilgangi
að vinna að einingu. Pessar
viðræður eiga ekki eingöngu
að snúast um trúarleg mál,
heldur öll þau vandamál, sem
ágreiningur er um.
Báðir aðilar þekkja til futlt
ustu þær miklu hindranir
fyrir því að unnt verði að
taka upp fulla samvinnu á ný,
rúmum fjórum ölduin eftir að
brezka biskupakirkjan sagði
sig úr lögum við kaþólsku
kirkjuna. Engu að síður
standa þeir saman um þá á-
kvörðun að vinna að ábyrgum
viðræðum samfélaganna
tveggja um öll málefni kirkj-
unnar. En á þeim sviðum er
ástæða til að ætla að sam-
vinna leiði til aukins skilnings
og miskunnsemi. Einnig vilja
þeir sameiginlega reyna að
finna lausnir á öllum þeim
vandamálum, sem blasa við
þeim, er trúa á Krist í heimi
nútímans, segir í yfirlýsing-
unni.
Kínverjar saka Rússa um sam-
særi með Bandaríkjunum
Búizt við óhróðursherferð í sambandi við
flokksþingið í Moskvu
Moskvu og Peking, 24. marz
(NTB)
KÍNVERJAR sökuðu í dag
leiðtoga Sovétrikjanna um að
vera í samsæri með Bandarikj-
unum. „Það er hinn einfaldi sann
leikur“, segir Dagblað Alþýðunn
ar í Peking, er það skýrir frá
þvi að Pekingstjórnin hafi neit-
að að senda fulltrúa á fiokks-
þing kommúnistaflokks Sovét-
rikjanna.
í Moskvu er haft eftir dipló-
matiskum heimildum að svo geti
farið að þessi neitun Kinverja
geti endanlega neytt leiðtoga
Sovétríkjanna til að slíta sam-
bandi við Kína, en heldur er
það talið ósennilegt. Þar er einn
ig uppi orðrómur um að tais-
verðar breytingar verði gerðar
á Æðsta ráðinu á þessu 23. flokks
þingi, sem hefst 23. þ.m.
ÖIJ kínversik blöð biitu neit.un
Kinverja um að sækja flokks-
þingið í Moskvu á áherandi stöð
um. Og fréttaritarar, sem máluim
eru kunnir, telja sennilegast að
greinin í Dagblaði Alþýðunnar,
sé aðeins sú fynsta af mörgiAn
árásargreinum, sem þar verði
birtar á naestunni. Hámarki mun
þessi árásarstefna þó ná meðan
á flokksþinginu stendur.
Kínverjar eru bersýnilega á því
að hafa sem mest áhrif með gagn
rýnj á Sovétríkin, án þess sjálf-
ir að þurfa að senda fulltrúa á
ráðstefnuna. Reikna má með að
fulitrúar annarna Asíurikja
Framhald á bls. 3