Morgunblaðið - 25.03.1966, Blaðsíða 4
4
MORGU NBLAÐIÐ
t
Föstudacrur 25. marz 1966
ALLTMEÐ
IMSKIP
A NÆSTUNNI ferma skip vor
til íslands, sem hér segir:
Brottfarardagar:
ANTWERPEN:
Tungufoss 8. apríl*
.... foss 15. apríl
Tungufoss 25. apríl*
HAMBORG:
Brúarfoss 29. marz
Askja 7. apríl**
Dettifoss 19. apríl
Askja 29. apríl**
ROTTERDAM:
Askja 4. apríl**
Dettifoss 15. apríl
Askja 26. apríl**
LEITH: w
Gullfoss 8. apríl
Gullfoss 29. apríl
GAUTABORG:
Rannö um 28. marz
Fjallfoss 4. apríl**
. . i . foss um 15. apríl
Fjallfoss 26. apríl**
HULL:
Bakkafoss 7. apríl**
Bakkafoss 20. apríl
Tungufoss 29. apríl**
LONDON:
Bakkafoss 4. apríl
Bakkafoss 18. april
Tungufoss 27. apríl
KAUPM ANNAHÖFN:
Katla
Gullfoss
Gullfoss
Fjallfoss
NEW YORK:
Selfoss
Goðafoss
Brúarfoss
‘'OSLÓ:
Fjallfoss
Fjallfoss
KRISTIANSANO:
ísborg
.... foss
GDYNIA:
Skógafoss
KOTKA:
Skógafoss
VENTSPILS:
Lagarfoss
28. marz**
6. apríl
27. apríl
um 28. apríl**
6. apríl
12. apríl*
6. maí
5. apríl**
30. apríl
28. marz*
um 17. apríl
4. apríl
12. apríl
19. apríl
* Skipin losa á öllum aðal-
höfnum, Reykjavík, Isa-
firði, Akureyri og Reyðar-
firði.
**Skipin losa á öllum aðal-
höfnum og auk þess í Vest-
mannaeyjum, Siglufirði, —
Húsavík, Seyðisfirði og
Norðfirði. Skip, sem ekki
eru merkt með stjörnu losa
í Reykjavík.
Vinsamlegast athugið, að vér
áskiljum oss rétt til breytinga
á áaetlun þessari, ef nauðsyn
krefur.
HE EIMSKIPAFÉLAG
fSLANHS
B O S C H
SPENNUSTILLAR
Bweðurnir Ormsson
Lágmúla 9.
Sími 3-88-20.
því við, að fyrir löngu minntist
hann á það í þessum dálkum,
hve algengt væri að flyglar
væru útataðir í fingraförum og
handsvita, svo að ekki virðist
sú ádrepa hafa orðið til mikils
gagns.
• Hvað er orðið að
Helgafellspresta-
kalli
Egill Sigurðsson biður
Velvakanda fyrir eftirfarandi
bréf og fyrirspurn:
„Ég heyrði í útvarpi og sá
í blöðum í haust sagt frá presta
skiptum í Stykkishólmspresta-
kalli og nú siðast frá innsetn-
ingu nýs prests í embættið. Nú
vil ég spyrja: Hvað er orðið af
Helgafellsprestakalli?
Snorri goði mun hafa reist
kirkju að Helgafelli um árið
1000 e. K. Hann hefur líklega
verið búinn að taka skírn fyrir
það ár, það sýna orð hans á Al-
þingi, er kristnir og heiðnir
deildu um trúmál, og maður
kom og sagði jarðeld uppi í
Ölfusi, sem stefndi á bæ Þór-
odds goða. Heiðnir sögðu það
von, að goðin reiddust hinum
nýja sið, en Snorri sneri þá af
laginu með hinni frægu spurn-
ingu: Hverju reiddust goðin, er
hraunið brann, það er nú
stöndum vér á? Nokkrum árum
seinna hafði hann jarðakaup
við Guðrúnu Ósvífursdóttur, og
þá og síðan hefur kirkja staðið
að Helgafelli. Klaustur var þar
í kaþólskum sið og mikið skrif-
að þar, meðal annars hin fræga
Skarðsbók, heyri ég sagt, en
hún slapp við bókabrunann.
Fyrsti lútherski presturinn þar
gerði þrjár brennur af skjölum
klaustursins. Hvað skyldu -^»ar
hafa farið margir dýrgripir í
eldinn? Skammsýnin og trúar-
ofstækið riðu þar ekki við ein-
teyming.
Presturinn sat að Helgafelli,
þar til séra Eiríkur Kúld varð
prestur þar fyrir 106 árum.
Hann bjó fyrst á Þingvöllum í
Helgafellsveit og byggði þar
stórt timburhús, en reif það sið
an og flutti til Stykkishólms.
Þar stendur það enn (Gamla
próf astshúsið).
Síðan hafa Helgafellsprestar
búið í Stykkishólmi. Séra As-
mundur Guðmundsson, síðar
biskup, gaf út predikanir sínar
árið 1920 og tileinkaði þær
söfnuðunum í Helgafellspresta-
kalli. Kirkja hefur staðið um
aldir í Bjarnarhöfn semannexía
frá Helgafelli. Bænahús voru á
bæjum í sveitinni, Svelgsá og
Staðarbakka, og máske víðar.
Stykkishólmur átti kirkjusókn
að Helgafelli, þar til á 9. tugi
19. aldar, að þar var byggð
kirkja, og skömmu síðar verð-
ur hann sérstakur hreppur.
Nú spyr ég: Hvenær var
Helgafellsprestakall lagt nið-
úr? Vóna ég, að biskupsskrif-
stofan eða aðrir réttir aðiljar
veiti mér svar.
— Egill Sigurðsson".
Svar við þessari spurningu
verður að sjálfsögðu birt í þess
um dálkum.
• Kámugur konzert-
ílygill o. fl. um
hljómleikahald
Maður, sem sækir að
jafnaði tónleika hér í borg,
kvartar undan því, að konzert-
flyglar og jafnvel fleiri hljóð-
faeri séu ekki nógu vel hirt.
Hann segist fyrir skömmu hafa
sótt hljómleika, sem haldnir
voru á vegum Tónlistarfélags-
ins í Austurbæjarbíói, þar sem
heimsþekktur píanóleikari kom
fram. Hljóðfærið hafði sums
staðar verið spegilfægt, svo að
glampaði á það, en hliðin, sem
sneri fremst að áheyrendum,
hafi verið alsett fingrafara-
kámi og öðrum óhreindum, svo
að það truflaði jafnvel salar-
gesti í því að njóta slaghörpu-
leiksins. Sennilega hafi flygill-
inn verið gljáfægður fyrir tón-
leikana, en svo hafi láðzt að
strjúka honum, eftir að flutn-
ingaverkamennirnir höfðu kom
ið honum á sinn stað á sviðinu.
— Svona kæruleysi eigi ekki
að þola, segir maðurinn í bréfi
sínu, og bætir því við, að í vet-
ur hafi færzt í vöxt hávaði á
hljómleikum, — hóstar, ræsk-
ingar og pappírsskrjálf, en ann-
ars hafi verið búið að venja
fólk nokkurn veginn af því. Sé
leitt til þess að vita, ef þetta
ætli nú að fara að taka sig upp
að nýju. Kvefað fólk eigi ekki
að sækja tónleika. Að lokum
brýnir hann fyrir hljómleika-
gestum, að börn eigi þeir ekki
að hafa með sér á konzerta.
Þau eigi af eðlilegum ástæðum
erfitt með að sitja grafkyrr og
þegja, heldur séu þau á ein-
lægu iði allan tímann, hvísl-
andi að foreldrum sínum og
jafnvel flissandi að tilburðum
stjórnenda eða einleikara.
— Velvakandi getur bætt
• Dr. Bjarni Sæ-
mundsson og síldin
„Jón í Götu“ sendir Vel-
vakanda bréf, sem ber yfir-
skriftina: „Þetta sagði hann“,
Bréfið er svona:
„Flestum mönnum skemmti-
legri var dr. Bjarni Sæmunds-
son, og skemmtilegt var allt,
sem hann skrifaði. Ég saknaði
hans mjög við fráfall hans, og
svo mun hafa verið um flesta
þá, er kynni höfðu af honum.
Vitaskuld er slíkt ekki annað
en vitleysa, en aldri tekst mér
að losna við þá tilfinningu, að
hann sé eini fiskifræðingurinn,
sem við höfum átt. Og í þann
aldarfjórðung, sem liðinn er
frá láti hans, hafa vitanlega
nýjar rannsóknir leitt margt
það í ljós, er hann gat ekki
hafa þekkt.
Oft er það gott, sem gamlir
kveða. Og nokkurum árum
fyrir dauða sinn, og því lík-
lega fyrir um það bil þremur
áratugum, sagði hann eitt sinn
við mig: „Allir okkar fiskstofn-
ar ganga til þurrðar — nema
síldin; það verður seint hægt
að vinna á henni“. Þessi orð
hins gætna og fróða manns
hafa lengi verið mér íhugunar-
efni. Og ég hygg, að, því miður,
hljóti hann að hafa haft rétt
fyrir sér. En hvað mundi hann
segja um síldina núna? Ekki
óraði hann fyrir því, að unnt
yrði að sjá hana á hafsbotni,
elta hana yzt út í höf og ausa
henni þar upp. í hans tíð var
engan farið að dreyma um
slíkt.
— Jón í Götu“.
Guðmundur og Ágúst
Vöruflutningar Akranes, Reykjavík.
Afgreiðsla Reykjavík
Verzlunarsambandið sími 38566.
Akranes sími 2217 heimasímar 1373 og 1186.
Til kaups eða leigu
Vörugeymsla og íbúðarhúsnæði óskast. Vöru-
geymsla um 300 ferm., íbúðarhúsnæði fyrir 2 eða
3 fjölskyldur. Húsnæði þetta þarf ekki að vera allt
á sama stað. Tilboð óskast merkt: „0125 — 9576“
leggist á afgr. Mbl.
íbúð óskast
3ja herb. íbúð óskast til leigu á góðum stað
í Reykjavík. Há leiga í boði og mikil fyrirfram-
greiðsla, aðeins tvennt í heimili (fullorðið). Tilboð
óskast send blaðinu fyrir 30. þ.m. merkt: „Leiga
— 8470“.
Lokað
Höfum lokað á laugardögum fyrst um sinn.
Gler og listar hf
Dugguvogi 23. — Sími 36645.
Vantar háseta
á netabát í Keflavík.
Upplýsingar í síma 1200.
Sendisveinn óskast
á ritstjórn blaðsins. — Vinnutími kl. 1—6.