Morgunblaðið - 25.03.1966, Síða 30
30
Föstudagur 25. marz 1966
MORCUNBLAÐIÐ
Cassius Clay:
Eg hætti ef ég tapa
fyrir Chuvalo
EFTIR tæpa viku, eða 29.
marz n.k. mætast þeir í hnefa-
leikakeppni Cassius Clay og
Kanadamaðurinn George Chuv-
alo og er heimsmeistaratitillinn
í veði. Það eru ekki margir sem
ætla Chuvalo sigur í þeirri við-
ureign, en í herbúðum hans hef-
ur verið vel unnið. Forráðamenn
hans hafa fyrir nokkru krækt
sér í þjálfara sem áður þjálfaði
Cassius Clay ©g nú hafa þeir
ráðið Joe Louis sem ráðgjafa, en
Haukar
unnu
Fram
I GÆRKVÖLDI urðu þau
óvæntu úrslit á tslandsmótinu
í handknattleik, að Haukar
unnu Fram með 20:18. Var
sigurinn verðskuldaður. Hauk
ar léku vel á köflum, áttu gott
línuspil, en leikurinn var þó
engan.veginn þeirra bezti í
vetur. — Fram átti hinsvegar
lélegan leik, enda mun liðið
lítt samæft um þessar mund-
ir.
Um tíma í fyrri hálfleik
stóð 9:4 fyrir Hauka, en í
leikhléi 10:9. Fram jafnaði
nokkrum sinnum í seinni hálf
leik og komst einu sinni mark
yfir, en Haukar tryggðu sér
sigurinn.
hann hefur fylgst vel með Clay
undanfarin ár og þekkrr hann
og hnefaleikagetu hans út í æs-
ar.
Af þessum sökum er talin á-
stæða til að ætla að Chuvalo
geti átt leynivopn í pokahorninu
er hann mætir Clay.
Joe Louis segir að Chuvalo
skorti hraða, en á hinn bóg-
inn hafi honum aldrei til
þessa tekizt að nota högghæfi
leika sína til fullnustu. Louis
er sannfærður um, að hann
geti kennt Chuvalo ýmsa
hluti, sem munu koma hon-
um vel er til kappleiksins
kemur og Clay á óvart.
Framkvæmdastjóri Cassiuar
hefur viðurkennt að Joe Louis
þekki vel hæfileika Clays og geti
því orðið Chuvalo að góðu liði
og að sannarlega sé Chuvalo
heppinn að hafa Joe Louis í horn
inu þjá sér í hringnum. En samt
segist hann sannfærður um sig-
ur Clays og að Clay verði fyrsti
móti Chuvalo sem sigri hann á
rothöggi.
— Chuvalo er of hægfara og
getur því ekki varizt höggum
Clays sem koma jafn óvart og
höggormshögg, segir hann.
— Ég dreg mig til baka og
hætti allri hnefaleikakeppni,
ef ég tapa fyrir Chuvalo,
sagði Cassius Clay í gær er
hann lauk æfingum sínum
fyrir leikinn. Siðasta æfing-
in var mjög erfið. Hann lék 9
lotur við þrjá sterka mót-
herja og tók hlaupaspretti á
milli.
En þrátt fyrir erfiðar æfing
ar er Clay 98.5 kg að þyngd
en það er 4.5 kg meira en
hans bezta keppnisþyngd er.
•■P-
Landsleikir í handbolta
I UNDANKEPPNI fyrir heims-
meistarakeppnina í handknatt-
leik, sem fram fer í Sviþjóð í
janúar á næsta ári, sigraði ung-
verjalanid Frakkland á sunnu-
dag með 31—17, en í hálfleik var
staðan 9—8 Frakklandi í vil.
Leikur þessi hafði þó enga
þýðingu, því að bæði liðin höfðu
tryggt sér þátttökurétt í aðal-
keppninni alllöngu áður. Loka-
staðan í riðlinum varð því þessi:
Ungverjaland efst með 7 stig,
Frakkland með 4 stig, Og Spánn
með 1 stig.
í öðrum undanleik fyrir heims
meistarakeppniAa sigraði V-
Þýzkaland Belgíu með 37—18 en
í hálfleik var staðan 19—9 fyrir
Þjóðverjana.
Með þessu hefur V-Þýzkaland
örugglega tryggt sér réttinn til
þátttöku í aðalkeppninni, því að
iþað hefur nú hlotið 12 stig. Sama
má segja um Sviss, því að það
hefur nú hlotið 8 stig, en Hol-
land hefur hlotið 4 stig og
Belgía ekkert, og öruggt að tvö
síðastnefndu munu ekki komast
í aðalkeppnina.
Tékkóslóvakía sigraði nú fyrir
skömmu Noreg í sams konar
undanleik fyrir heimsmeistara-
keppnina með 22—20. Þessi úrslit
gera það að verkum að bæði
liðin komast í aðalkeppnina, þar
lem Noregur gat tapað með 29
marka mun og verið þó ofar
Austurríki. í hálfleik var staðan
19—7 Tékkum í vil.
Fyrri leikur þessara landa,
sem fram fór í Tékkóslóvakíu,
Framhald á bls. 31
Inniæf ingar í golfi fyrir
byrjendur og aðra
Æft 'i íþróttahúsinu á Laugardalsvelli
GOLFKLÚBBUR Reykjavík-
ur hefur í vetur gengizt fyrir
inniæfingum í litla iþróttasaln-
um í Laugardal. Þar hefur ver-
ið komið fyrir pöllum, er kúlan
liggur á, og slá kylfingamir kúl-
unni síðan í net sem strengt
hefur verið í salnum. Eiga þess-
ar inniæfingar að koma golf-
mönnum að góðum noturn, þeg-
ar vora tekur, og hægt er að
fara að æfa úti, og eins eru þeir
byrjendum nauðsynlegar.
Fréttamaður íþróttasíðunnar
brá sér inn í Laugardal, og fylgd
ist stutta stund með æfingunni.
Hann hitti þar að máli Kára
Elíasson, sem tjáði fréttamann-
inum, að Golfklý-ibburinn hefði
þarna æfingar tvisvar í viku.
Væru þær á miðvikudögum kl.
7-8 fyrir karlmenn og unglinga,
en fyrir konur kl. 8-9.30 sama
dag. Þá væru æfingar á föstu-
dögum fyrir karlmenn kl. 8-10.
Byrjendum væri heimilt að
koma hvorn daginn sem væri.
Kári kvað leiðbeinendur ásamt
sér vera þá Arnkel B. Guðmunds
son og Einar Guðnason.
Þeim er áhuga hafa fyrir golfi
jr
A 3. hundrað taka
þátt í skólamótinu
MÓT skólanema í frjálsum
íþróttum verður fjölmennasta
mót sinnar tegunidar er haldið
hefur verið. Hafa á 3. hundrað
tilkynnt þátttöku. Mótið fer
fram í KR húsinu á sunnu-
dag og hefst kl. 2.
Benedikt Jakobsson aðalfor-
stöðumaður mótsins sagði
blaðinu svo frá í gær, að
vegna fjölda þátttakenda hafí
verið gripið til þess ráðs að
hafa keppnl stúlkna, sem eru
um 70 og kepnná sveina, sem
einnig eru um 70, kl. 2, en
drengir, unglingar og full-
orðnir eru boðaðir kl. 4. Eru
þeir samtals á annað hundrað,
sem í þeim flokkum keppa.
Búast hefði mátt við enn
meiri þátttöku ef færð hefði
verið góð. Þannig koma Snæ-
fellingar og Akureyringar
ekkí vegna ófærðar og Sel-
fyssingar og Hrútfirðingar
boða þátttöku með fyrirvara
vegna færðar.
Þess er óskað að íþrótta-
kennarar nemendanna komi
til mótsins og aðstoði við
framkvæmd keppninnar.
eða hafa hug á að leggja það
fyrir sig, gefst því ágætt tæki-
færi þarna til þess að æfa und-
ir leiðsögn reyndra golfmanna,
og vera vel undir sumarið bún-
ir, þegar svo vel fer að viðra að
hægt sé að stunda golf úti. Er
NÚ fer að styttast í knatt-
spyrnuleikina. í Englandi og
víðar er nú tekið að vora og
grænka og vellirnir á sæmi-
legu standi. Hér sézt mark-
vörður Sunderland, Jimmy
Montgomery, „hefja sig til
flugs“ til að reyna að bjarga
skoti Graham Leggat h. innh.
Fulham (á jörðinni) er hann
skorar annað mark Fulhams.
Myndin er tekin á velli Ful-
ham, Craven Cottage í Lond-
on s.l. laugardag. T.v. er mið-
Vörður Sunderlands, Charlie
Hurley. Fulham vann leikinn
3—0. (AP)
því full ástæða að hvetja alla þá
sem stunda vilja golf, að sækja
þessar æfingar.
Hvernig er staðan?
f GÆR fóru fram tveir leikir í
1. deild karla í handknattleiks-
meistaramótinu, sem nú er að
nálgast lokastig. í gær birtum
við stöðuna í yngri flokkunum,
en hér á eftir fer staðan í eldri
flokkunum.
í gærkvöldi mættust Fram og
Haukar og siðan Valur og KR.
Úrslit úrðu: Haukar — Fram
20:18. — Valur — KR 25:21.
Eftir þessa leiki er staðan þann
ing í mótinu:
1. deild.
FH 7 6-0-1 12 156:140
Fram 8 6-0-2 12 211:172
Valur 8 4-0-4 8 190:202
Haukar 9 4-0-5 8 202:203
Ármann 7 2-0-5 4 163:187
KR 9 2-0-7 4 186:204
2. deild karla
ÍR 6 5-0-1 10 170:143
Þróttur 6 5-0-1 10 136:119
Víkingur 6 4-0-2 8 126:106
ÍBK 7 2-0-5 4 148:170
ÍA 7 0-0-7 0 88:130
Eftir eru fjórir leikir, ÍBK —
Þróttur, Víkingur — ÍA, ÍR —
Víkingur og ÍR — Þróttur. Rétt
er að geta þess að markatafla
þessi gefur ekki rétta mynd af
stöðu félaganna. Þar sem ÍA hef
ur gefið þrjá leiki.
1. fl. karla
Fram
Víkingur
Þróttur
Valur
ÍR
A
3
3
1
2
3
riðill
3-0-0
2-0-1
1-0-0
0-0-0
0-0-0
Leikir, sem eftir eru
riðli eru: Víkingur —
Valur — Þróttur, ÍR —
Fram — Þróttur.
56:25
42:39
17:8
17:30
34:64
í þessum
Þróttur,
Valur og
B-riðill
FH
2 2-0-0 4 30:17
KH 2 1-0-01 2 22:14
Ármann 1 0-0-1 0 3:13
Haukar 1 0-0-1 0 8:19
Riðill þessi hefur gengið held-
ur rólega og eru eftir þrir leik-
ir. KR — Haukar, Ármann —
FH og Ármann — Haukar.
1. deild kvenna
Valur 3 3-0-0 6 42:17
FH 3 3-0-0 6 33:20
Fram 3 1-0-2 2 19:23
Ármann 3 1-0-2 2 26:32
Breiðablik 3 0-1-2 1 23:39
Víkingur 3 0-1-2 1 17:33
Nokkrir leikir eru enn eftir I
deildinni, Víkingur — Fram, Ár
mann — FH, Valur — Breiða-
blik, en þessir leikir fara fram á
laugardaginn kemur, 36. marz.
Loks síðasta umferðin Víkingur
— Ármann, Breiðablik — Fram
og Valur — FH.
2. deild kvenna
KR 1 1-0-0 2 10:2
ÍBK 1 1-0-0 2 15:10
Þór 2 0-0-2 0 12:25
Aðeins þessi þrjú lið taka þátt
í keppninni og er því aðeins einn
leikur eftir og það er jafnframt
úrslitaleikur deildarinnar ■miUi
KR og ÍBK og fer hann ,.i
23. apríl.
1. flokkur kvenna, engin riðla-
skipting
Valur 3 2-01 4 20:8
Fram 2 2-0-0 4 7:4
FH 2 1-0-1 2 6:5
Ármann 2 1-0-1 2 10:12
Víkingur 3 0-0-3 0 8:22
Valur er efst í þessum flokki,
en hefur leikið einum leik meira
en Fram, sem er með sömu stiga-
tölu. Þessir leikir eru eftir: Fram
— Ármann, Valur — FH, Víking
ur — Fram og FH — Ármann.