Morgunblaðið - 26.04.1966, Blaðsíða 1
32 síður
i\ Mikið fjolimnni var á fyrsta fundi borgarsijóra í Lídó sL sunnudag. 550-600 manns var á fundinum.
1200 -1300 MANNS A TVEIMUR
FUNDUM BORGARSTJÓRA
— „Marka t'imamót i samskiptum stjórnenda og borgara"
„ÞESSI fundur markar tíma-
mót í samskiptum stjórn-
enda «g borgara og færir þau
á málefnalegri og lýðræðis-
Jegri grundvöll en áður hef-
ur þekkzt“, sagði Arinbjörn
Kolbeinsson, læknir, fundar-
stjóri á fyrsta fundi borgar-
stjóra Geirs Hallgrímssonar,
með íbúum Reykjavikur. sem
haldinn var í veitingahús-
inu Lídó sl. sunnudag. 550
—000 íbúar Smáíbúða-, Bú-
staða-, Árbæjar- og Háaleitis-
hverfis sóttu fundinn og í
gærkvöldi var haldinn fyrir
troðfullu húsi að Hótel Sögu,
annar fundurinn af sex, sem
Geir Hallgrimsson hefur boð-
»ð til en sá fundur var fyrir
íbúa Mela- og Vesturbæjar-
hverfis. Mættu þar um 700
manns.
Borgarstjóri flutti ræðu á
báðum fundunum og ræddi
málefni borgarinnar almennt
©g hverfanna sérstaklega. —
Frú Auður Auðuns flutti
ávarp á fundinum í Lídó og
Úlfar Þorðarson, læknir, á
fundinum að Hótel Sögu. —
Síðan svaraði borgarstjóri
fyrirspurnum fundargesta,
sem yfirleitt fjölluðu sérstak-
lega um málefni hinna ein-
stöku hverfa.
Það var samdóma álit allra
þeirra, sem þessa fundi sátu,
að með þeim hefðu þáttaskil
verið mörkuð í íslenzkum
stjórnmálum og fjölmargir
fyrirspyrjenda létu í ljósi á-
nægju með að fá þannig
tækifæri til að spyrja og
koma á framfæri við borgar-
stjóra ábendingum um mál-
efni borgarinnar og hinna
einstöku hverfa hennar. Geir
Hallgrímsson kvaðst fagna
þessu tækifæri til þess að
heyra álit borgaranna á starfi
og framkvæmdum borgar-
stjórnar og lét í Ijós ósk um
góða samvinnu í framtíðinni.
Fundurinn í Lídó
Borgarstjóri ræddi í upphafi
ræðu sinnar á'lmennt um skipu-
lagsmál, gatnagerð, hitaveitu,
rafmagnsmál, fegrun borgarinn-
ar, skóiabyggingar, barnaheim-
ili, æskulýðsmál, heil'brigðismál
og húsnæðismál í borginni en
vék siðan sérstakiega að mál-
efnum hverfanna, sem boðuð
voru til þessa fundar.
Gatnagerð
Á þessu ári verður Háaleitis-
brautin fullmalbikuð að Brekku-
gerði og Grensásvegur milli
Suðurlandsbrautar og Mikiu-
í KVÖLD efnir Geir Hall-
grímsson, borgarstjóri, til
þriðja fundarins, sem hann
hefur boðað til með íbúum
Reykjavíkur um málefni
Reykjavíkur. Fundurinn í
kvöld verður í Sigtúni og
hefst hann kl. 20.30. Er
hann ætlaður íbúum Mið-
og Austurbæjarhverfis.
Á fundinum í kvöld mun
Geir Hallgrímsson flytja
brautar og að Skóiagerði. Nyrðri
akbraut Mikiutorautar að Suð-
url^ndsbraut, en syðri akbraut-
in endurbyggð.
Hitaveitan
Ekki hefur tekizt fyililega að
halda hitaveituáætluninni, sem
gerð var 1962, en skv. henni
átti framkvæmdum að vera lok-
ið fyrir árslok 1965, en munu
dragast nokkuð fram á þetta ár.
Hitaveita hefur verið lögð í öll
hverfi að Grensásvegi en 3 verk-
takar annast framkvæmdir í
Smáíbúða- og Bústaðahverfi. —
Auk þess eru smávægilegar
ræðu og svara fyrirspurn-
um fundargesta, en Birgir
ísl. Gunnarsson hdl. flyt-
ur ávarp. Fundarstjóri
verður Kristján Guðlaugs-
son hrl. og fundarritarar
Gerður Hjörleifsdóttir,
kennari og Þorkell Þor-
kelsson bifreiðastjóri.
I anddyri Sigtúns verða
til sýnis uppdrættir af að-
alskipulagi Reykjavikur og
framkvæmdir eftir i Holtunum
og Múlunum.
Fegrun hverfanna
Haldið verður áfram fram-
kvæmdum við Miklubraut og
skrúðgarður er fyrirhugaður
við Grundargerði. Áherzla verð-
ur lögð á opin svæði við skól-
ana, sem skapa möguleika á sam-
starfi skóla og iþróttafélaga til
nýtingar þeirra.
Skólar
Við höfum orðið áþreifanlega
varir við það, sagði borgar^tjóri,
að erfitt er að áætla þörf hverf-
anna fyrir skóla. Þegar fyrsta
áfanga Álftamýranskóla var lok-
Framhald á bls. 10
jafnframt er sýnt líkan af
miðbænum eins og hann
er fyrirhugaður í framtíð-
inni. Líkan þetta hefur vak
ið mikla athygli á þeim
tveimur fundum, sem þeg-
ar hafa verið haldnir.
Borgarstjóri hefur nú
haldið tvo fundi af þeim
sex, sem hann hefur boðað
til. Báðir þessir fundir
hafa verið mjög fjölsóttir
Mig-21
yfir
N-Vietnam
Saigon, 25. april, — NTB.
LM helgina varð bert að Norður-
Vietnam hefur fengið MIG-21
orrustuþotur frá Sovétrikjunum.
Lenti vélum þessum saman við
bandariskar Phantom-orrustu-
þotur yfir N-Vieíniam á laugar-
dag og skaut ein Phantom-vél-
anna eldfiaug að þeim en hitti
ekki og hurfu MIG-21 vélarnar
brottu við svo búið.
Bandaríkin játuðu í dag að 10
bandarískar vélar hefðu týnzt
yfir N-Vietnam síðustu sjö sólar
hringa, og hafa ekki fleiri vél-
ar farizt á einni viku síðan hafn-
ar voru ioftárásir á N-Vietnam
fyrir rúmu ári. Einnig tilkynnti
herstjórn Bandaríkjamanna að
tvær sprengjuvélar af gerðinni
F-105 hefðu týnzt á sunnudag en
ekki var sagt hver hefðu orðið
afdrif þeirra.
Nokkru fjær varð önnur loft-
orrusta og áttust þar við banda-
rískar vélar og orrustulþotur »f
gerðinni MIG-17 og voru tvaer
skotnar niður. Ekki hefur komið
til loftorrustu yfir N-Vietnam
fyrr í ár.
Bandaríkjamenn telja að um
16 orrustuiþotur af gerðinni MIG-
21 séu nú í Norður-Vietnam. Véi
ar þessar fljúga helmingi hraðar
en hljóðið og eru búnar tveim
fallbyssum auk eldfiauga. Banda
rísku Phantom-véiarnar fljúga
nokkru hraðar og eru sagðar
Framhald á bls. 2
og húsfyllir á báðum fund-
unum. Fjöldi fyrirspurna
hefur borizt og fundar-
gestir óspart látið í ljós
ánægju með þá nýjung,
sem nú hefur verið tekin
upp. Eru því íbúar Mið- og
Austurbæjarhverfis hvatt-
ir til að fjölmenna á fund-
»nn í Sigtúni í kvöld og
beina til borgarstjóra fyr-
irspurnum um málefni
hverfisins og borgarinnar
almennt.
FUNDUR MEÐ ÍBÚUM MIÐ- OG
AUSTURBÆJARHVERFIS I KVÖLD
— Hefst ■ Sigtúni klukkan 20.30
%
x
>