Morgunblaðið - 20.05.1966, Side 4
4
MORGUNBLAÐID
Fostudagur 20. maí 1066
BÍLALEIGAN
FERÐ
SÍMI 34406
SENDUM
LITLA
bílttleigan
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
Sími 14970
< iíá
RAUDARÁSST(6 31
SÍMi 22022
Volkswagen 1965 og ’66.
BIFREiBALEIGAK
VECFERÐ
Grettisgötu 10.
Sími 14113.
Fjölvibkar skusðgröfus 7 ö
L v
T R m
K
í ,i N AVALT TIL REIflU.
SÍmi: 40450
aireeipílfici
úá^SiMI 33924
Eignist nýja vini
Pennavinir frá 100 löndum
óska eftir bréfasambandi við
yður. Gppl. og 150 myndir
sendar ókeypis.
Correspondence Club Hermes
1 Berlin 11, Box 17, Germany
BOSCH
SPENNUSTILLAR
Brœðurnir Ormsson
Lágmúla 9.
Sími 3-88-20.
merkt eða „mæld með augun-
um“. Og það sama gildir bvort
ökumaður er á 8 metra breiðri
eða 14 m breiðri akbraut.
Lögin gefa engum færi á að
beygja til hægri frá vinstri
vegbrún, svo fremi að akbraut-
in sé ekki þvi mjórri.
ýr Bamatónleikar
Á miðvikudaginn var sagt
frá því hér í blaðinu, að
skemmtilegdr barnatónleik-
ar sinfóníuhljómsveitarinnar
hefðu verið haldnir í Háskóla-
bíói daginn áður — og þar
sagði: „Ekki var mjög margt
á þessum tónleikum og er það
hin mesta synd“.
Kennari og faðir hringdi til
okkar og sagði, að rétt væri
að vekja athygli á því í þessu-
sambandi, að efnt væri til
barnatónleika og barnaópera
sett á svið einmitt í miðjum
vorprófum skólanna. Sagðist
kennarinn fullviss um það, að
barnatónleikar mundu vel
sóttir, ekki aðeins eihu sinni
— heldur oftar, ef forystu-
menn á því sviði gættu þess
að geyma ekki tónleikana þar
til öll börn væru önnum kaf-
in í prófum.
Þetta er þörf ábending og
vonandí tekst betur til næst.
Á Kvenpalli
Það var ekki af verra
taginu, sem blasti við í póst-
kassanum í morgun. Enn einn
Tími í viðbót, gratis auðvitað,
sem blessaðir Framsóknar-
mennirnir skenkja okkur núna
mitt í Móðuharðindunum. Ekki
minnkaði gleði mín, þegar út
úr Tímabunkanum féll blað
eitt, og viti menn, þar blöstu
við hinar föngulegustu konur.
Hjartað tók kipp, ný fegurðar-
samkeppni eða hvað? Æ, nei.
Ekki var því að heilsa. Þetta
var auðvitað enn einn þáttur í
viðleitni Framsóknarmanna til
að leiða mig og aðra Reykvík-
inga í allan sannleikann eftir
50 ára reik okkar í viilu og
svima. Að hugsa sér, þessar
góðviljuðu konur, sem við
blöstu- í nefndu blaði voru þá
komnar alla leið hingað í bæ-
inn okkar til frelsunar. Svo
segja menn, að góðsemdin fari
minnkandi í henni veröld. Ég
segi nei!
Og ekki vantaði þessar
góðu konur forystuhæfileik-
ana, ó ekki. Sumar þeirra
höfðu meir að segja kom-
izt í nefndir í Félagi fram-
sóknarkvenna í Reykjavík!
Hér var þvi ljóst, að forystu-
hæfileikar fléttast saman við
fórnfýsina. Þegar hér var kom
ið sögu var ég orðin svo hug-
fangin, að ég tók til við að
rifja upp alla umhyggju Fram-
sóknar fyrir okkur Reykvík-
inga á liðnum árum. Varð mér
þá hugsað til framsýni þeirra
hér á árunum, þegar þeir fram
kvæmdu þingrofið til að forða
okkur frá virkjun Sogsins,
sællar minningar. Þá rifjaðist
einnig upp fyrir mér, hversu
þeir hafa ávallt viljað spara
okkur það ómak að vera að
kjósa allan þennan fjölda Al-
þingismanna héðan frá Reykja
vík. Minntist ég í því sam-
bandi göfugrar réttlætisbar-
áttu þeirra við, að tugur Reyk-
víkinga skyldi vera jafnoki
eins Seyðfirðings, til áhrifa á
landsmálin. En þetta er nú
kannski misskilningur, því um
daginn var víst einhver að tala
um að það væri réttlætiskrafa
að fjölga í borgarstjórninni?
Lamell - Parkett
Eikarparkettið sænska er hægt aö iá í
13,15 og 23 mm þykktum, bæði tígla og
borð. Kemur pússað og lakkað og er auð-
velt að leggja. Einangrar gegn gólfkulda
á jarðhæð. Hagstætt verð.
Byggir hf.
Simi 34069.
Hvað um það, ég óska allan
Framsóknar-kvenþallinn vel-
kominn til höfuðstaðarins. Það
fer vel á því, að slíkir kven-
kostir skuli fjölmenna svo
hingað til „Siberíuþorpsins".
Að vísu viljum við Reykvík-
ingar ekki koma til þeirra,
vegna þess að við ætlum að
halda áfram að gera borgina
að eftirsóknarverðum stað
fyrir þær og aðra að búa L
Og á meðan svo er mun
okkur áreiðanlega ekki skorta
áfram flutning siikra frelsis-
englá hingað, mér og öðrum
„Grimsby-Iýð“ til sáluhjálpar.
Með kveðju og hræðri þökk.
Keykvikingur.
■ýr í umferðinni
í fyrradag birtum við
fyrri hluta bréfs frá „gömlum
lögregluþjóni“. Hér kemur
síðari hlutinn:
„Þess ber að gæta, sé kyrr-
stætt ökutæki eða önnur hindr
un í veginum,, (t. d. við vinstri
vegarbrún), að aka ekki án
aðgæzlu til hliðar og í veg
fyrir þann, sem er á ferð til
hægri, nema hann eða þeir séu
viðbúnir að rýma. Öll breyting
á akstursstefnu verður að hafa
verið gefin til kynna áður en
beygt er og það má ekki
beygja, nema öruggt sé vegna
umferðar til hliðar og umferð-
ar, sem á eftir kemur. Það
verður ávallt að gæta þess, ef
breyta á um stefnu á akbraut-
inni, hvort heldur er til hægri
eða vinstri og hvort heldur öku
maður ætlar að skipta um
akrein, leggja ökutæki sínu í
götuna, aka inn í stæði, eða
aka til hliðar mn í hliðargötu
við gatnamót, — 1.) gefa stefnu
merki, 2.) að doka við þangað
til hann fær tækifæri til að
sveigja.
Ef ökumaður ætlar að
beygja til hliðar á akbrautinni,
þannig að hann ætlar að yfir-
gefa akbrautina, verður hann,
ef hann ætlar að beygja til
vinstri, 1.) að vera kominn að
vinstri vegbrún nokkru áður
en hann beygir og ef hann
ætlar að beygja til hægri. 2.)
að vera kominn með ökutæki
sitt að miðlínu nokkru áður en
hann kemur að gatnamótun-
um hvort sem miðlínan er
Qg hér kemur svo hin marg
umtalaða 46. grein umferðar-
laganna. Ökumaður skal að-
gæta vandlegá, áður en hann
beygir, að unnt sé að gera það
án hættu fyrir þá, sem á effir
koma.
Ökutæki, sem stefna til
vinstri á vegamótum, skal í
hæfilegri fjarlægð frá þeim
ekið út á vinstri brún akbraut-
ar. Ef beygja á til hægri skal,
ef aðstæður leyfa, ekið að mið
línu vegar, eða, ef um ein-
stefnuakstur er að ræða, yfir
að hægri brún akbrautar. Nú
eru tvær eða fleiri akreinar,
fyrir sömu akstursstefnu á
vegi, og skal þá ökumaður í
tæka tið, áður en komið er að
vegamótum, færa ökutækið á
þá rein, sem heppilegust er,
miðað við fyrirhugaða aksturs
stefnu.
Þegar komið er á vegamót
og beygt til vinstri, ber að aka
eins nálægt vinstri brún ak-
brautar og unnt er. Þegar
beygt er til hægri, skal ökutæki
þegar komið er yfir vegamót,
vera vinstra megin (á vinstri
helming) á akbraut þeirri, sem
ekið er inn á. Þetta gildir þó
ekki um akstur inn á einstefnu
akbraut (þar er enginn akstur
á móti). Ekki má taka beygju
til hægri, fyrr en nálæg öku-
tækg sem á móti koma, hafa
farið fram hjá.
Ekki má snúa ökutæki á vegi
eða aka þeim aftur á bak, nema
unnt sé að gera það án áhættu
eða óþæginda fyrir aðra um-
ferð.
Þannig hljóðar greinin sú, en
þú verður að lesa hana aftur
áður en þú skilur hana að
fullu. Og svo að lokum þetta
til þeirra sem Kalda því fram,
að ekki megi aka í röðum í"
eina átt, nema eftir merktum
akreinum. Það er aðeins fram
úr aksturinn sem er varhuga-
verðari, sérstaklega, fram úr
vinstra megin. En um það er
að segja, að þegar sá sem ekur
hægra megin hefur gefið merki
um að hann ætli að aka útaí
akbrautinni til hægri, eða ætl-
ar greinilega að haldá sig
hægra megin í brautinni, þá á
að vera öruggt að aka fram
með honum vinstra megin, ef
rými er til þess, hvort er á
akbraut eða við gatnamót.
Gamall Iögreglnþjónn“.
Námskeið
fyrir unglinga, er lokið hafa barnaprófi, verða haldin
í júní og ágústmánuði í Laugarnesskóla, Melaskóla
og Réttarholtsskóla. Hvert námskeið stendur í 4
vikur. Kennt verður 4—5 stundir á dag, fimm daga
vikunnar. Kennd verður matargerð, framreiðsla,
ræsting, meðferð og hirðing fatnaðar, híbýlafræði,
vöruþekking o. fl. Sund verður á hverjum morgni
kl. 8—9. Námskeiðsgjald verður kr. 1000,00 á þátt
takanda. Nánari upplýsingar og innritun á Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkur dagana 23.—27. maí n.k.
kl. 2—4.
Fræðsluskrifstofa Reykjavíkur.